Morgunblaðið - 06.06.1989, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR G. JÚNÍ 1989
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SVAVA ARNÓRSDÓTTIR,
Kleppsvegi 134,
lést í Landspítalanum laugardaginn 3. júní.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín
JÓNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
lóst á heimili sínu Ásum í Stafholtstungum, Mýrasýslu, laugardag-
inn 3. júní.
Jóhannes Ólafsson.
t
Faðir minn,
ÞORLÁKURR.HALDORSEN
llstmólarl,
lést þann 4. þ.m. í Borgarspítalanum.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Haldor G. Haldorsen.
t
Elskulegur eiginmaður minn,
ÞORMÓÐUR JÓNASSON
húsgagnasmiður,
Grettisgötu 43,
lést í Landakotsspftala laugardaginn 3. júní.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Steinunn Bergþóra Pótursdóttir.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
JÓNÍNA GUÐFINNA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Seyðisfirði,
Hlfðarvegi 11,
Kópavogi,
lóst í Landspítalanum fimmtudaginn 1. júní.
x Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Marfa Þorleifsdóttir,
Hreiðar Anton Aðalsteinsson.
t
Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir,
INGIBJÖRG SUMARLIÐADÓTTIR
frá Valshamri,
Svalbarðl 12,
Hafnarflrði,
andaðist í St. Jósefsspítala að morgni 3. júní.
Guðmundur Karlsson, Erla Sörladóttir,
Jóhanna Karlsdóttir,
Guðbjörg Karlsdóttir, Emil Hallfreðsson,
Sigrfður Karlsdóttir, Rútur Óskarsson.
t
Jarðarför
SIGURÐAR KRISTJÁNSSONAR
loftskeytamanns
fer fram í kapellunni í Fossvogi miövikudaginn 7. júní kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda.
Þrálnn Slgurðsson,
Björg Krlstjánsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför bróður okkar og mágs,
GUNNARS NIELSEN
fyrrverandl skrifstofustjóra,
Tjarnargötu 10 C.
Guðrún Halldórsson, Ólafur Halldórsson,
Snorra May Cheek.
t
Faðir okkar,
ÞORSTEINN GUNNARSSON
kennari,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 7. júní kl.
13.30.
Ingunn Sigrfður Þorsteinsdóttir,
Tryggvi Þorsteinsson.
Guðríður Jóhannesson
Norðfjörð - Kveðjuorð
Fædd 5. desember 1897
Dáin 15. maí 1989
Guðríður Jóhannesson er látin á
nítugasta og öðru aldursári. Þó
kynni okkar væru lítil langar mig
að minnast hennar vegna brautryðj-
andastarfs hennar sem stofnanda
Kvenskátafélagsins Valkyijunnar á
Akureyri.
Guðríður var Vestfirðingur að
ætt, dóttir Jóns Þórðarsonar bónda
og dýralæknis í Mosdal í Arnarfirði
ogVigdísar Jónsdóttur konu hans.
Á Akureyri bjó Guðríður með
fyrri manni sínum Snæbimi Norð-
fjörð og rak hér hárgreiðslustofu.
Ekki er mér kunnugt um kveikjuna
að áhuga hennar á skátamálum.
Hér var starfandi drengjaskátafé-
lag, Skátafélag Akureyrar, eflaust
hefur Guðríði fundist ástæða til að
stúlkur fengju sama tækifæri og
drengir til félagsstarfa, enda konur
að verða sér meðvitaðri um getu
sína til jafns við karia.
I gjörðabók Valkyijunnar segir
svo um stofnfundinn: „Mánudaginn
2. apríl 1923 var fundur settur kl.
6 e.h. í Bíóhúsinu á Oddeyri til að
ræða um stofnun kvenskátafélags
á Akureyri. Foringi drengjaskátafé-
lags Akureyrar, hr. Gunnar Guð-
laugsson setti fundinn og skýrði í
stuttu máli frá sambandi kven-
skátafélags og drengjaskátafélags
og skýrði frá uppruna þess.
Frú Guðríður Norðíjörð las upp
lög fyrir félag þetta, sömuleiðis
próf þau er áskilin eru að meðlimir
þess ynnu af hendi og skýrði hún
ennfremur frá tilgangi þess. Lög
þessi kvað hún aðallega sniðin eftir
lögum danskra kvenskáta, er hún
hafði fengið hjá fröken cand. phil.
Gertrud Nielsen í Kaupmannahöfn,
foringja kvenskáta þar og sumpart
eftir lögum drengjaskáta hér á
Akureyri, er foringi þeirra hr.
Gunnar Guðlaugsson hefði látið sér
í té. Ennfremur skýrði hún frá því
að Gertrud Nielsen hefði stofnað
kvenskátafélag í Reykjavík síðast-
liðið sumar með samskonar fyrir-
komulagi og hér væri áformað.
Var kvenskátafélag Akureyrar
síðan stofnað og hlaut nafnið „Val-
kyijan“. Foringi þess og stofnandi
er frú Guðríður Norðfjörð."
Stofnfélagar auk hennar voru 19
stúlkur á aldrinum 11-16 ára.
Af þessari fundargerð má sjá að
Guðríður hefur vandað vel til undir-
búnings félagsstofnunarinnar og
haft samband við þá sem hún taldi
best til þekkja. Að fara nýjar leiðir
krefst áræðis, þó nokkur reynsla
væri komin á starf drengjaskáta
var ekki sjálfgefið að slíkt þætti
að öllu leyti við hæfi stúlkna, enda
lét Guðríður sér það ekki nægja
heldur leitaði til Danmerkur til að
afla sér meiri þekkingar og reynslu.
Meðal annars heimsótti hún
Kvenskátaskólann I Korinth á Fjóni
sem þá var nýstofnaður. Til gamans
má geta þess að svo mikið þótti
henni til um komuna þangað að
heimkomin sendi hún skólanum
áritaða ljósmynd af stofnendum
Valkyijunnar.
Guðríður var óþreytandi að
standa fyrir allskyns uppákomum
til fjáröflunar fyrir skátastarfið og
minnist ég þess að heyra hana löngu
síðar segja frá því með stolti hversu
t
Móðir okkar, tengdainóðir, amma og langamina,
ÁSTRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR,
Dvalarhelmilinu Hlíf,
ísaflrði,
verður jarðsungin frá (safjarðarkapellu miövikudaginn 7. júní
kl. 14.00.
Sólveig K. Davfðsson,
Þórdfs Þorleifsdóttir,
Anna Þorleifsdóttir,
Örnólfur Þorlelfsson,
Kjartan Brynjólfsson,
barnabörn
Olav Davfðsson,
Héðlnn Kristlnsson,
Alfons Guðmundsson,
Brynja Einarsdóttir,
barnabarnabörn.
og
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýju vegna andláts móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR JÖRUNDSDÓTTUR.
Heba H. Júlfusdóttir, Gfsli Theodórsson,
Sigrún Júlfusdóttir, Þorsteinn Vilhjálmsson,
Júlfus og Alma Ólafsbörn,
önnur barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför manns-
ins míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GUNNLAUGS S. JÓNSSONAR,
Miðleiti 5.
Hulda Guðmundsdóttir,
Guðmundur Gunnlaugsson, Ásdfs Þorsteinsdóttir,
Sigurður Gunnlaugsson, Arnþrúður M. Jóhannesdóttir,
Sigurlfna Gunnlaugsdóttir, Axel V. Magnússon,
Björn Gunnlaugsson, Ragnhildur Magnúsdóttlr,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegt þakklæti sendum við öllum, sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
sonar, bróður og afa,
EIRÍKS E. EINARSSONAR,
Grýtubakka 30,
Reykjavfk.
Þórey Eirfksdóttir,
Anna Þóra Eirfksdóttir, Jón S. Ingason,
Ragnar örn Eirfksson,
Edda Hrönn Elrfksdóttir, Vlðar Helgason,
Elnar Vfdalfn Elnarsson,
Agnar Einarsson,
Marfa Einarsdóttir
og barnabörn.
duglegar stúlkumar hennar voru.
Dvöl hennar á Akureyri og af-
skipti af skátamálum varð þó aðeins
til ársins 1925 er þau hjónin fluttu
burt úr bænum. Hlýhugur hennar
til félagsins var þó ætíð samur er
hún fylgdist úr fjarlægð með fram-
gangi þess í tímans rás.
Á 50 ára afmæli Valkyijunnar í
apríl 1973 kom Guðríður hingað til
Akureyrar og tók þátt I afmælis-
fagnaði félagsins og færði því höfð-
inglegar gjafir. Það var gaman að
hlusta á hana rifja upp minningar
frá þessum fyrstu árum, finna
hversu sterk ítök þetta starf átti í
huga hennar eftir hartnær hálfrar
aldar fjarveru og hversu vænt henni
þótti um að vera heiðruð af sínu
gamla félagi.
Á áttræðisafmæli hennar var hún
sæmd heiðursmerki Bandalags
íslenskra skáta og veit ég að það
gladdi hana mjög.
Guðríður Norðfjörð er „farin
heim“. Að leiðarlokum vil ég þakka
henni fyrir að hafa tendrað þann
neista sem síðar varð leiðarljós
Kvenskátafélagsins Valkyijunnar á
Akureyri meðan það starfaði. Þar
fengum við Valkyijumar að skynja
og reyna það ævintýri sem skáta-
starfíð er hveijum þeim sem mætir
því heilshugar.
Ég kveð hana með lokalínum úr
kvöldsöng kvenskáta.
Allt er hljótt
hvildu rótt
guð er nær.
Hulda Þórarinsdóttir
Bjom Bjarnason'
^igurður Magnússon
Minmns
Jón Jónsson, tré-
smiður — Minning
Birting
afmælis-
ogminning-
argreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofú blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
í minningargreinum skai hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki em
tekin til birtingar frumort ijóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar em
birtar afrnælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.