Morgunblaðið - 06.06.1989, Side 58
58
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Iflúkrunarfræðingar í Vestmannaeyjum buðu fólki í verslunarleið-
angri m.a. upp á mælingu á blóðþrýstingi á heilsudaginn sem hald-
inn var í tilefni 70 ára afmælis Hjúkrunarfélags íslands.
Heilsudagur í Eyjum
Vestmannaeyjum.
í TILEFNI 70 ára afmælis Hjúkmnarfélags Islands, stóðu hjúkrunar-
fræðingar í \ estmannaeyjum fyrir heilsudegi í Eyjum fyrir skömmu.
Hjúkrunarfræðingarnir komu sér
upp aðstöðu í tveimur stærstu mat-
vöruverslunum bæjarins og buðu
fólki upp á að mæla blóðþiýsing og
kólestrólmagn í blóði þess. Þá dreifðu
þær allskyns bæklingum um heilsu-
vemd og skaðsemi reykinga.
Þetta framtak hjúkrunarfræðing-
anna mæltist mjög vel fyrir og var
örtröð við borð þeirra allan daginn.
Grímur
VIÐ BYGGJUM TÓNLISTARHÚS
Dregið 17. júní
Við treystum á þig
Ferðahappdrætti
Samtaka um byggingu tónlistarhúss
Vinningsröðin 3. júní:
22X-2XX-2X1-X1X
12 réttir = 233.538 kr.
Enginn var með 12 rétta - og því er tvöfaldur pottur núna!
11 réttir = 100.040 kr.
Einn var með 11 rétta - og fær í sinn hlut kr. 100.040,-.
-ekkibaraheppni
333.578 kr.
Er eining kristinna manna möguleiki?
Til Velvakanda.
Hvaða ályktun má draga af
kristnitöku Islendinga árið 1000 á
Þingvöllum?
Fyrir 10 árum kom herra Sigur-
bjöm Einarsson biskup hingað í
Stykkishólm til að minnast 100 ára
afmælis Stykkishólmskirkju. Eftir
þjónustuna heilsaði hann fólkinu og
ræddi við það. Ég var einn þeirra.
„Mig langar til að ræða við þig,“
sagði hann og ég sagði það velkom-
ið. Hann kom síðan til mín í fylgd
séra Gísla Kolbeins sóknarprests.
Hann spyr mig hvort ég sé ekki til
með að taka þátt í að stofna nefnd
ýmissa söfnuða hér á landi sem
yrði samstarfi í þjónustu kristninn-
ar til bóta. Ég var auðvitað tilbú-
inn. Þessu var síðan komið á fót
og ég hefi starfað í þessum samtök-
um. Ég hefi kynnt mér mál þessa
vettvangs síðan. Það er vitað að
1910 komu trúboðar kirkjudeilda
mótmælenda saman í Edinborg til
að reyna að ná víðtækari einingu
trúarinnar. Árið 1929 var jafnvel
stofnað í Amsterdam „heimsráð
kirknanna". Nú em í þeim samtök-
um um 300 kirkjudeildir, en ekki
kaþólsk, sem hefir þó tvöfalt fleiri
meðlimi. Sérstök deild guðfræðinga
hefir í meir en 50 ár reynt að ná
einingu. Þó þessir guðfræðingar nái
einingu er það þó ekki bindandi
fyrir deildimar. Kirkjudeildin mun
aldrei með þeim hætti, held ég, ná
þeirri einingu sem Jesús talar um.
„Ein hjörð og einn hirðir." Skyn-
semi, sálfræði, erfikenning kirkju-
feðra jafnvel Biblían sýna okkur
auðveldari og ömggari leið. Við
skulum taka dæmi úr okkar daglega
lífi. Tökum t.d. knattspymukeppni.
Þar er ekki nóg að báðir flokkar
þekki leikreglur. Þar þarf dómara
sem sker úr. Tökum dæmi lögfræð-
innar. Báðir málsaðilar túlka sin
viðhorf og styðjast við lög, en svo
er það dómarinn sem sker úr. Gegn-
ir þessu sama ekki um trúmálin?
Jú, vissulega. Lúther og Zwingli
ræddu saman um texta biblíunnar,
sem talar um altarissakramentið.
Er Jesús þar viðstaddur? Annar
sagði já, en hinn neitaði.
Spilareglur, lagaþekking og
biblíubókin nægja ekki. Það sannar
heimsráð kirknanna. Hvað skal þá
gera? Ef til vill það sem íslendingar
gerðu árið 1000 til að koma á einni
trú, velja dómara? Erfikenning
kirkjufeðranna gefur okkur svarið.
Klemens páfi sem dó 97 e. Kr. sem
píslarvottur mátti leysa alvarlega
sundmng í Grikklandi. Ignatius
biskup í Antiokkíu gefur einnig
biskupi Rómar yfirburði yfir kirlq'-
umar. Hann dó sem píslarvottur
undir Trajanus keisara (97—117).
En enginn útskýrir það betur hvem-
ig sé mögulegt að finna rétta trú
en Irenaeus biskup (2. öld). „Við
eigum að rannsaka aðeins hvort
biskupinn sé eftirmaður postulanna.
Og jafnvel," segir biskup, „er það
nóg að þekkja eftirmenn Péturs því
allir biskupar eiga að vera í einingu
við hann.“ Þess vegna gefur hann
Til Velvakanda.
Hversu lengi ætla birfreiðaeig-
endur að una því að bensín sé selt
á slíku okurverði eins og lengi hef-
ur viðgengist hér á landi? Bíll er
nauðsyn, engar vangaveltur þarf
um það. Það hljóta jafnvel stjóm-
málamennimir að skilja. Dugar
síðasta verðsprengingin á bensíni
ekki til að bifreiðaeigendur mmski?
Þær hækkanir sem nú dynja á okk-
ur sýna algert vanhæfi stjómarinn-
ar, sem á reyndar ekki skilið að
okkur lista eftirmanna Péturs. Það
er vitað að Páll postuli fór einnig
eftir opinbemn postulanna til Jerú-
salem, til að leggja fram sína skoð-
un. Og við vitum einnig að Pétur
reis upp á kirkjuþingi og útskýrði
lögmál Móse. Það var hann sem
Jesús hafði sett hirði kirkjunnar,
þetta stuðlaði að einingu. Þeir tóku
þá Pétur sem sinn dómara. Það er
víst lítill möguleiki á að vita beint,
en þó óbeint, hver sé hin rétta trú.
Hitt vitum við hver er eftirmaður
Péturs postula.
Jan Habets,
Stykkishólmi.
kallast stjóm. Almenningur hefur
misst allt traust á þeim sem nú
fara með völd og þess sjást merki
að virðing fyrir þingmönnum og
alþingi fer minnkandi. Það er kom-
inn tími til að setja þessum mönnum
stólinn fyrir dymar. Þeir gera ekki
annað en heimta sparnað af al-
menningi en sóa svo fjármunum í
alls kyns óþarfa vitleysu, veislur
og flæking út um allan heim.
Bifl*eiðareigandi
Víkverji skrifar
Heimsókn páfans verður mörg-
um minnisstæð. Hvers vegna?
Fyrst ber að nefna, að þessi pólski
páfi býr yfir sterkum en jafnframt
hlýjum persónuleika. í útvarpssam-
tali sagði kona úr hópi kaþólikka
hér, að frá honum kæmi svo sterk
“útgeislun“. Hvað sem um það má
segja er ljóst, að páfinn hefur sterk
áhrif á fólk með framkomu sinni
og háttum. Þó líkist hann fremur
gömlum sjómanni eða bónda en
leiðtoga hundruð milljóna manna,
eins og við kynnumst þeim í gegn-
um sjónvarp. Kannski er það af
þessum ástæðum, sem páfinn er svo
minnisstæður.
* í annan stað liggja sögulegar
ástæður til þess, að heimsókn páfa
hingað vekur svo mikla athygli og
þá ekki sízt þátttaka hans í athöfn-
inni á Þingvöllum. Er ekki ástæða
til þess, að hennar sé getið með
einhveijum varanlegum hætti þar?
Nöfn þeirra íslendinga, sem páfi
nefndi í ræðum sínum vekja einnig
eftirtekt hér. Hann nefndi Jón Ara-
son a.m.k. tvisvar á nafn. Ekkert
af þessu er tilviljun. Kaþólska kirkj-
an hefur yfirsýn yfír lengra tímabil
en samtímann.
Loks er ekki ólíklegt, að heim-
sókn páfans verði til þess að vekja
fólk til umhugsunar um hvað skilur
á milli lúterskra manna og kaþól-
skra. Þótt Víkveiji hafi áður verið
við kaþólska messu hefur hann ekki
áður verið við páfamessu. Það var
eftirminnileg áthöfn - en um leið
minnti hún okkur á, að margt í
kaþólskum sið er ákaflega fjarlægt
hugsunarhætti okkar hér á norður-
slóðum.
XXX
eimildarmynd Gísla Gestsson-
ar um Sjómannadaginn, sem
ríkissjónvarpið sýndi í fyrrakvöld
var skemmtileg minning um þennan
merka þátt í þjóðlífi okkar. I henni
var sögulegur fróðleikur, sem áreið-
anlega er ekki á almanna vitorði í
dag. Víkverja þótti bæjarbragurinn
í Reykjavík skemmtilegri fyrr á
árum, ef marka má þessa mynd,
þótt vera megi að það mat byggist
á söknuði vegna þess, sem liðið er!
Fróðlegt var að kynnast hlut
Henrys Hálfdánarsonar í sjómanna-
deginum, sem sýnir hvað hugmynd
eins manns getur fengið miklu
áorkað. Víkveiji minnist þess að
hafa hlýtt á framsöguræðu Ólafs
Thors á Alþingi fyrir frv. um happ-
drætti DAS, líklega á árunum 1953
eða 1954. Sennilega er sú ræða
Ólafs svona eftirminnileg vegna
þess, að sjómannadagurinn og
bygging dvalarheimilis fyrir aldraða
sjómenn hefur verið honum mikið
hjartans mál. Eins og bezt kemur
fram í því, að sjómenn gerðu hann
að fyrsta heiðursfélaga sjómanna-
dagsins. Það þarf ekki lítið til, að
stjórnmálaforingja sé sýnd slík virð-
ing.
Þá kom þáttur Péturs Sigurðs-
sonar og samstarfsmanna hans á
borð við Guðmund H. Oddsson vel
í ljós í þessari mynd. Pétur Sigurðs-
son sat á Alþingi í áratugi og lét
þar málefni sjómanna og annarra
launþega til sín taka með myndar-
legum hætti. En jafnframt er ljóst,
að hann hefur á vettvangi Sjó-
mannadagsráðs unnið þrekvirki í
starfí að hagsmunamálum sjó-
manna, sem mun halda nafni hans
á lofti. Umhugsunarefni fyrir
marga alþingismenn, sem virðast
líta svo á, að þingmennska sé fullt
starf og að þeir geti ekki sinnt öðr-
um verkefnum jafnhliða.