Morgunblaðið - 08.07.1989, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 08.07.1989, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989 ____________________________________________17 . ■ ■ ■ ' 1 ......1 1 1 " — . . Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptaráð- Bjarni Benediktsson, forsætis- Ólafur Jóhannesson, form. Fram- Magnús Kjartansson 1969 Björn Jónsson 1969. rierra 1969 ráðherra 1969 sóknarflokksins 1969 Gylfi Þ. Gíslason : Breikkar grundvöll atvinnulífsins Gylfi Þ. Gíslason, ráðherra við- skipta- og menntíimála, mælti fyr- ir tillögu um aðild íslands að Fríverzlunarsamtökum Evrópu, EFTA, í sameinuðu þingi 8. des- ember 1969. „A fyrstu árum Fríverzlunarsamtak- anna urðu íslendingar ekki fyrir verulegu óhagræði vegna starfsemi samtakanna. Að vísu lækkuðu tollar á ýmsum sjávarafurðum smám sam- an innan Fríverzlunarsamtakanna, t.d. fóru Norðmenn að fá hærra verð í Bretlandi fyrir þær sjávaraf- urður, sem samningurinn tekur til. En verðlag á sjávarafurðum var á þessum árum yfirleitt hvarvetna hækkandi, svo að tjónið var ekki tilfinnanlegt. Þegar tollar höfðu hinsvegar að fullu verið afnumdir fyrir tveimur árum og sjávarútveg- urinn við norðanvert Atlantshaf átti við vaxandi erfiðleika að etja, fór aðstöðumunurinn að verða æ tilfinn- anlegri. Einkum og sér í lagi kom þetta í ljós á árunum 1967 og 1968, þegar íslendingar urðu fyrir meira efnahagsáfalli en þeir höfðu nokkurn tíma orðið fyrir á öldinni og meira áfalli en dæmi eru um, að nokkur nálæg þjóð hafi orðið fyrir á jafn- skömmum tíma.“ Ráðherra vakti síðan athygli á nauðsyn þess að breikka grundvöll íslenzks atvinnulífs, en rnannfjölda- spár stæðu til þess að íslendingum á vinnualdri fjölgaði um 34 þúsund á árabilinu 1965-1985. Ljóst væri jafnframt að störfum héldi áfram að fækka í landbúnaði (markaðarins vegna) og fjölgaði ekki að ráði í sjáv- arútvegi (vegna nýtingarmarka nytjastofna). „Þessvegna hníga öll rök að því,“ sagði Gylfi, „að vinna beri að því að koma á fót nýjum fyrirtækjum og nýjum atvinnugreinum jafnhliða því, sem unnið verði af alefli að efl- ingu þeirra atvinnugreina, sem nú eru stundaðar, og þá fyrst og fremst allra greina sjávarútvegs.“ Gylfi sagði og: „Ekki kemur til greina að tryggja íslendingum tollfrjálsan aðgang að EB-markaðinum, þar sem Rómar- samningurinn óbreyttur verður með engu móti talinn aðgengilegur fyrir íslendinga. Eini tollfrjálsi markaður- inn, sem hugsanlegt var að íslend- ingar gætu fengið aðgang að með kjörum sem þeir gætu sætt sig við og væru þeim til hagsbóta, var markaður Fríverzlunarsamtakanna . . . sem um 40% utanríkisviðskipta þjóðarinnar fara nú [1969] fram við . . . En ef við eigum að geta komið á fót umtalsverðum útflutningsiðnaði, er aðild að samtökum eins og Fríverzlunarsamtökunum [EFTA] nauðsynleg. Þetta eru meginrökin fyrir því, að íslendingar eiga að gerast aðilar að Fríverzlunarsamtök- um Evrópu." Bjarni Benediktsson: V-Evrópu- viðskiptin mikilvægust Bjarni Benediktsson, þá forsæt- isráðherra, lagði áherzlu á það í þingræðu um aðild íslands að EFTA í desember 1969, að meiri hluti milliríkjaviðskipta okkar, bæði innflutnings og útflutnings, væri við V-Evrópuríki, sem stæðu að EB og EFTA. „Það væri okkur stórhættu- legt“, sagði hann, „ef við værum algjörlega utan tengsla við þann mikla markað“. Orðrétt sagði forsætisráðherra: „Eg er sannfærður um, að ein- mitt sú staðreynd, að við blasa á næstu misserum ■ samningar við Efnahagsbandalagið, á að vera hvöt fyrir ísland til að gerast aðili að EFTA, vegna þess að svo varhuga- vert sem það er fyrir okkur að vera utan við EFTA og Efnahagsbanda- lagið, þeim mun hættulegra verður, ef við verðum utan við algera heild höfuðviðskiptaþjóða okkar, samein- aðra í Efnahagsbandalaginu.“ Með þessu segi ég ekki, — ég undirstrika það alveg greinilega, — ég tel, að það komi ekki til álita, að ísland gerizt fullkominn aðili að Efnahagsbandalaginu. Það hefur verið rakið fyrr í þessum umræðum, að það bandalag er þeim mun sterk- ara á alla vegu og strangara, að ísland á þar ekki heima, a.m.k. svo langt sem við getum séð. Hitt er mér ljóst, að við þurfum, ef þarna myndast ný, stór heild, að ná ein- hveijum viðskiptatengslum við þá efnahagsheild, vegna þess að þá eru þar samankomin þau ríki, sem við höfum haft a.m.k. helming og stund- um allt að því 60% af okkar viðskipt- um við, og það væri okkur stór- hættulegt, ef við værum algerlega utan tengsla við þann mikla mark- að... En það er nauðsyn á einhvers konar samningum við þau samtök, og sú nauðsyn verður því ríkari sem þau verða sterkari og öflugri. Hvort það næst með viðskiptasamningum, hvort það næst með einhvers konar aukaaðild, það er mál, sem verður tekið upp á sínum tíma, þegar það liggur ljóst fyrir, hvort nokkuð verð- ur úr þessari stækkun, og þá í hvaða mynd“. Forsætisráðherra sagði nauðsyn- legt að láta reyna á EFTA-aðild, a.m.k. í nokkur ár. „Eg sé ekki að neinu yrði tapað. Þá hafa menn ein- mitt færi til þess, ef þeir telja skyn- samlegt, að draga sig í hlé“. „En það sem við vinnum þegar í stað, er það, að við fáum tollfrelsi nú þegar innan EFTA-ríkja. En sam- keppnin af þeirra hálfu við Island kemur ekki til með að bitna á íslenzkum fyrirtækjum, ekki að neinu marki, fyrr en eftir fjögur ár og smám saman á tíu ára tímabili, þannig að við höfum allt að vinna á því árabili, sem hér er verið að tala um, en engu að tapa í raun veru“. Ólafur Jóhannessson : EFTA- aðild engin nauðsyn „Ég tel ísland ekki undir það búið, eins og sakir standa, að gerast aðili að EFTA ... Ég tel rétt að slá gildistöku samninga við Fríverzlunarsamtökin á frest og samþykkja nú samtímis fastar ákvarðanir varðandi tilteknar aðgerðir og ákveðna iðnþróunar- steíiiu". Þannig komst Olafur Jóhannes- son, þá formaður Framsóknar- flokksins, að orði, er hann mælti gegn aðild íslands að EFTA í þing- ræðu í desember 1969. Formaður Framsóknarflokksins sagði orðrétt: „Það er engin sérstök knýjandi nauðsyn til aðildar að EFTA ein- mitt nú. Það er ekkert sérstakt sem rekur á eftir í því efni. Engin aðkall- andi þörf atvinnuveganna kallar á aðild, eins og nú standa sakir. Einn- ig má á það benda, eins og hv. við- skiptaráðherra kom að áðan, að framtíð EFTA er vægast sagt óviss um þessar mundir. Þau ríki, sem til þessa hafa verið höfuðstoðir Fríverzlunarsamtakanna, sækja nú um inngöngu í Efnahagsbandalag- ið, og sterkar líkur benda til þess, að þau verði innan tíðar aðilar. Eg hygg, að það hafi m.a.s. komið fram í fréttatilkynningu, sem út hefur verið gefin, að það væri vilji ríkjanna, að undirbúningsviðræður við Breta hæfust fyrir mitt næsta ár. Hvað verður þá um EFTA? Eru þá fríverzlunarsamtökin ekki úr sögunni? Um það spyrja menn“. Síðar í ræðu sinni sagði flokks- formaðurinn m.a.: „Mér sýnist það liggja í augum uppi, að það geti orðið skammgóður vermir að EFTA-aðild nú í skyndi, ef upplausn samtakanna er alveg á næstunni. Er ekki skynsamlegra, þegar svo stendur á, að bíða átekta um sinn og sjá, hveiju fram vind- ur? Það sýnist mér. Þegar rætt var um aðildarum- sókn að EFTA á síðasta þingi, tók ég fram, að ég væri því alls ekki andvígur, að að kannað væri, hvort og með hvaða kjörurn ísland gæti með einhveijum hætti gerzt aðili að EFTA, en ég taldi ekki aðild tímabæra þá, eins og sakir stóðu. Ég tók einnig fram, að svo gæti farið, að óhjákvæmilegt yrði fyrir íslendinga að tengjast EFTA með einhveijum hætti, framvindan gæti orðið sú. En ég tók einnig skýrt fram, að áður en aðild Islands kæmi til greina, þyrftum við að athuga margt hjá okkur sjálfum og lag- færa, marka hjá okkur ákveðna iðnþróunarstefnu og búa iðnaðinn þannig í stakk, að hann gæti staðið sig í samkeppni við iðnað EFTA- landahna“. Magnús Kjartansson : Klúbbur ríkra háþró- aðraþjóða „Þetta [EB og EFTA] eru sem sé ekki bandalög, sem stuðla að almennri fríverzlun í heiminum, heldur þvert á móti. Og við skul- um gera okkur það ljóst, að þau ríki, sem utan standa, t.d. nýfrjáls ríki, líta á þessar viðskiptaheildir báðar sem eins konar klúbba ríkra og tiltölulega háþróaðra þjóða, sem reyna að halda yfir- burðum sinum gangvart öðrum með þessari samvinnu“. Þannig komst Magnús Kjartans- son, Alþýðubandalagi, að orði í þing- ræðu, er hann mælti gegn aðild Is- lands að EFTA í desember 1969. „Menn hafa rætt um gagnsemi fríverzlunar", sagði Magnús, „og það er ástæða til að taka undir það sjónarmið. Vaxandi og fijáls verzlun er ákaflega mikilvægur þáttur í sam- skiptum ríkja í heiminum, og það er ekki nokkur vafi á því, að það eflir bæði efnahag þjóða og pólitíska samvinnu að tryggja sem greiðust viðskipti þjóða um heim allan. Hins- vegar skulum við gera okkur ljóst, - að þær viðskiptaheildir í Evrópu, sem við ræðum um, hafa öldungis ekki þann tilgang. Tilgangur þeirra er að auðvelda takmörkuð viðskipti milli þeirra landa, sem eru aðilar að þessum viðskiptaheildum, en tak- marka á sama tíma viðskipti við aðra“. „Ef við göngum í EFTA núna,“ sagði þingmaðurinn, „vitum við í rauninni ekki, hvert við erum að fara. Við vitum ekki, hvort afleiðing- in verður sú, að aðild að Efnahags- bandalaginu komizt óhjákvæmilega á dagskrá næstunni... Á hinu kynni að vera hætta, ef við göngum í EFTA, að það geti stuðlað að einangrun, vegna þess að þar með erum við að mismuna viðskiptaríkjum okkar eftir því, hvort þau eru með okkur í þessum samtökum eða ekki. Slíkt kann að hafa áhrif á viðskipti við aðila utan EFTA.“ Magnús komst svo að orði um meintar forsendur þáverandi ríkis- stjórnar fyrir EFTA-aðild: „Hvað er það, sem gerir það að verkum, að hv. ríkisstjórn leggur á þetta slíkt ofurkapp einmitt nú? Eg er ekki í nokkrum vafa um það að meginástæðan... er sú efnahags- stefna, sem felst í sjálfum EFTA- samningnum. EFTA-samningurinn fjallar ekki einvörðungu um við- skipti. í EFTA-samningnum eru til- tekin ákvæði um það, hvað okkur er heimilt að gera í efnahagsmálum og hvað okkur er ekki heimilt að gera. Með því að ganga í EFTA skrifum við undir skuldbindingar um það, hvernig við eigum að haga málum eins og innflutningstollum, fjáröflunartollum, innlendum álög- um, útflutningstollum, takmörkun á innflutningi og útflutningi, ríkis- styrkjum, skipun verðlagsmála o.s.frv.. . Björn Jónsson : Otvírætt hagsmunir launþega „Er rétt fyrir okkur og hag- kvæmt að taka upp þá efiiahags- samvinnu, sem felst í aðild að EFTA, eða er þessu öfiigt farið? Svar mitt við þessari spurn- ingu er hiklaust, að það sé ekki aðeins hagkvæmt heldur og nauðsynlegt, vegna þeirrar at- vinnu-, eftiahags- og lífskjaraþró- unar, sem ég æski og vil vinna að, að ísland gerizt aðili að Fríverzlunarbandalaginu. Ég tel það líka nauðsynlegt af menning- arlegum og félagslegum ástæð- um, og ég tel það beint og ótví- rætt hagsmuni íslenzkrar launa- stéttar." Það var Björn Jónsson, þingmað- ur Fijálslyndra og vinstri manna [og forseti ASI um árabil], sem þann veg komst að orði í þingræðu [1969] um aðild íslands að EFTA. Orðrétt sagði Björn: „Flestum hlýtur að vera augljóst, að við lifum nú um skeið a.m.k. tímabil þróunar til stóraukinnar efnahagssamvinnu þjóða í milli og skiptingar þróaðra landa í efna- hagsblokkir. Allar þjóðir V-Evrópu hafa nú, að Spáni og íslandi undan- skildu, skipt sér í tvær efnahags- heildir, EFTA og EB, og tekið sínar ákvarðanir í þessum efnum, að því er ég bezt veit, af fijálsum og fús- um vilja og þá af þeirri ástæðu einni, að þær telja sér aðildina vera hagstæða. Þessar blokkir eru þó að flestu gerólÍKar að eðli og gerð . . . Allt eðli EFTA-sáttmálans er þessu gjörólíkt. Þar er einvörðungu um að ræða tollabandalag, sem leiða á til innbyrðis fríverzlunar í tilteknum greinum, og þar með væntanlega til hagstæðari verka- skiptingar í framleiðslugreinum þeim, sem sáttmálinn nær til, og í kjölfarið til örari hagvaxtar og efnahagslegra framfara, þ.e. undir- stöðu betri lífskjara. Þessi sáttmáli gerir engri þjóð að skyldu að halda sig lengur innan bandalagsins en hún telur sér þátttöku hagkvæma, og pólitískur ákvörðunarréttur er í engu skertur. Við íslendingar eig- um meira undir hagstæðum utan- ríkisviðskiptum en allar aðrar þjóð- ir í V-Evrópu, og gefur því auga- leið, að hagur okkar af rýmkuðum mörkuðum fyrir útflutningsfram- leiðslu okkar ætti og hlýtur raunar að vera mikilvægari en flestra eða allra annarra. Okkur er brýn nauð- syn, hvað markaði snertir, að eiga sem flestra kosta völ. Það sannar líka öll saga okkar og reynsla bæði fýrr og síðar.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.