Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JULI 1989
Subaru Justy;
Smár og knár
fj órhj óladrifsbíll
Farangursými er ekki ógnar stórt en séu ekki farþegar í aftursæti
má stækka það með því að leggja niður sætisbökin.
Subaru er löngu orðið þekkt örumerki meðal landsmanna svo
mikið sem selst hefur af þessum japönsku bílum á liðnum árum
en Ingvar Helgason hf. hefur umboð fyrir þá. Stærri bíllinn, Su-
baru 1800, hefiir átt sinn trygga aðdáendahóp og nú Qölgar þeim
sífellt sem kaupa Subaru Justy, J-12, bíiinn litla sem einnig er
fjórhjóladrifinn og að ýmsu leyti skemmtilegur bíll. Verðmunur á
þessum bílum er kringum 350 þúsund krónur eftir gerð og bún-
aði og er fúll ástæða til að menn spari sér þann mun og skoði
J-12 sem álitlegan fjórhjóladrifsbíl séu þeir á annað borð ekki að
sækjast eftir stórum bíl. J-12 er nefiiilega bíll sem stendur fylli-
lega fyrir sínu, er skemmtilegur í borgarakstri og dugar líka vel
á malarvegum. Hann er að vísu óþarflega hávaðasamur en það
er líka einn af fáum göllum.
Subaru Justy hefur verið hér á
markaði í nokkur ár og er nú boð-
inn með nýjum svip og ýmsum
endurbótum. Eins og hjá öðrum
framleiðendum þróast nýjungarnar
frá köntuðum útlínum yfir í mjúk-
ar og bogadregnar og má telja það
áberandi breytingu hjá J-12. Ekki
er þó verið að sækjast eftir
straumlínulagi til hins ítrasta því
hér verður aldrei um neinn hrað-
akstur að ræða þótt hámarks-
hraðinn sé vel á annað hundraðið.
J-12 er boðinn í nokkrum gerðum,
þrennra eða fimm dyra, hægt er
að fá hann tvílitan og með samlit-
um stuðurum og spegium óski
menn þess. Verðið er á bilinu 696
þúsund krónur upp í 727 þúsund
kr. án ryðvarnar og skráningar.
Veitt er þriggja ára ábyrgð.
Ekki smábíll
Þegar sest er undir stýri á J-12
gleymist að um smábíl er að ræða
því hann er allvel útbúinn og þægi-
legur fyrir ökumann. Sætin eru
góð og rými gott í framstólum.
Stillingar eru hefðbundnar og ekk-
ert fram yfir það en það dugar líka
alveg. Séu framstólar mjög aftar-
lega er heldur farið að þrengja að
farþegum aftur í en aftursætin er
að öðru leyti góð þótt sumir muni
vilja hafa meira höfuðrými. Þá má
benda á að lítill verðmunur er á
þrennra og fimm dyra bílunum,
aðeins þijú þúsund krónur, og
skyldu kaupendur fremur kjósa
fimm dyra vilji þeir þægilegri um-
gang í aftursætin.
Þá er mælaborð og fyrirkomulag
stjórntækja gott og hefðbundið í
J-12. Hraða- og snúningshraða-
mælar eru framan við stýrið og
þar eru einnig bensínmælir og
vatnshitamælir og nauðsynleg við-
vörunarljós, svo sem vegna fjór-
hjóladrifs, handbremsu, ojíu, háu-
ljósa og afturrúðuhitara. Á kantin-
um umhverfis mælaborðið eru ro-
far fyrir afturrúðuhitara og viðvö-
runarblikkið. Miðstöðvarrofar eru
hægra megin við ökumann og á
armi vinstra megin við stýri eru
ljósa- og stefnuljósarofar en á armi
hægra megin þurrkurofar en
þurrka og sprauta er einnig á aft-
urrúðu.
Allt þetta virkar vel á ökumann
og sem fyrr segir hefur hann það
ekki á tilfinningunni að hann sitji
undir stýri í ómerkilegum smábíl.
Klukka, vindlingakveikjari og
spegill í sólskyggni gefa manni enn
frekar til kynna að hér sé boðið
upp á örlítið umfram það allra
nauðsynlegasta. Fyrir utan
hanskahólf eru í hurðum og víðar
nokkrir aukavasar eða lítil hólf
fyrir smádót sem geta komið sér
vel.
Gírskiptingin er góð og efst á
stönginni er rofi til að skipta í fjór-
hjóladrifið og úr því. Nægir að ýta
á 'hnappinn og gefur ljós í mæla-
borði til kynna hvort drifið hefur
tengst fullkomlega. Hægt er að
skipta á fullri ferð, aðeins þarf að
gæta þess að það sé ekki gert í
beygju.
KF o 792!
Subaru Justy er álitlegur fjórhjóladrifsbíll. Utlínur verða sífellt bogadregnari og mýkri,
Mörg smáhólf auk hanskahólfsins eru til þæginda.
Mælaborð er hefðbundið Og gOtt. Morpi„blaðið/Einar Falur
Aflmikill og mjúkur
Subaru J-12 er búinn all kraft-
mikilli vél. Er stærri vél ein af
endurbótunum frá fyrri árgerð.
Hún gefur 68 hestöfl, er þriggja
strokka vatnskæld, bensínknúin og
mælt er með sterkara bensíninu.
Blýlaust 95 oktana bensín myndi
þó ganga væri það fyrir hendi hér.
Bensíntankur er 35 lítra og mætti
kannski telja smæð hans einn af
fáum göllum. Þó má kannski segja
að það sé ákveðin skynsemi í því
að aka ekki alltaf um með tugi
lítra af bensíni, að minnsta kosti
Nissan Maxima sem kynntur var á Bandaríkjamarkaði síðast liðið
haust hefúr fengið góðar móttökur. Seljast þar nú kringum 8 þús-
und bílar á mánuði en þetta er sem kunnugt er japanskur fólksbíll
af stærri gerðinni sem keppa á við bandaríska lúxusbílar.
morgni þegar hanskarnir hafa
gleymst? Þetta verður mögulegt í
haust því Volvo hefur kynnt að
fáanlegt verði upphitað stýri í
nokkrum gerðum. Staðhæfa þeir
að þetta sé hentugri lausn en ein-
hvers konar hlífar sem algengar eru
á stýri.
Leyland/Daf Vörubílar frá
sameinuðum Leyland/Daf voru
söluhæstir í Bretlandi á síðasta ári
en alls seldust 9.065 bílar. Volvo
vörubílar voru í öðru sæti með 6.259
selda bíla og vörubílar frá Mercedes
Benz í þriðja með 4.470 bíla. Hér
er átt við vörubíla sem eru 15 tonn
Molar:
Samvinna um nýja framleiðslu
Bandaríska Ford bílaverksmiðj-
an og Nissan hin japanska hafa
síðustu misserin átt í viðræðum
um samvinnu á framleiðslu á svo-
nefhdum minivan, bíls, sem
síðustu árin hefúr verið að koma
í stað hins venjulega skutbíls á
Bandaríkjamarkaði. Þessa gerð
þekkja menn hér á landi til dæm-
is firá Honda og Mitsubishi. Þylqa
þeir á ýmsan hátt liprari og hent-
ugri sem rúmgóðir fjölskyldu-
bílar sem taka mikinn farangnr
og marga farþega án þess þó að
vera of stórir.
Gert er ráð fyrir að samvinna
Nissan og Ford beri þann árangur
að haustið 1991 geti framleiðsla
hins nýja bíls hafist og að fram-
leiddir- verði kringum 135 þúsund
bílar á árlega þegar allt verður
komið í fullan gang. Markaður fyr-
ir þessa bíla er talinn hraðvaxandi
í Bandaríkjunum en fyrir um fimm
árum var hann vart fyrir hendi.
Skrifstofa í bíl getur verið jafiivel búin og hver önnur skrifstofa.
Árið 1987 voru seldir um 740 þús-
und slíkir bílar og gert er ráð fyrir
að salan fari yfir milljón bíla árið
1992.
Upphitað stýri
Væri ekki þægilegt að losna við
að taka á ísköldu stýrinu á vetrar-