Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989 Afríkuríki deila um verslun með fílabein Gaborone. Reuter. HART VAR deilt á fundi 15 Afríkurílg'a í gær þar sem fjallað var um hvernig bjarga mætti Afríkufílnum frá útrýmingu. Austur- Afríkuríki vilja banna verslun með fílabein en ríkin í suðurhluta álfunnar eru því mótfallin. Til fundarins var boðað til að reyna að sætta ólík sjónarmið ríkjanna en litlar líkur voru taldar á samkomulagi. Fundarmenn sögðu að þótt Austur-Afríkuríkin myndu e.t.v. tapa þessari orustu þá væru þau búin að vinna stríðið þar sem almenningsálitið hefði snúist á sveif Portúgal: Ars fangelsi fyrir ölvun- arakstur Lissabon. Reuter. OLVAÐIR ökumenn I Portúgal geta nú gert ráð fyrir allt að eins árs fangelsi samkvæmt nýjum lögum, sem ætlað er að draga úr mikilli tíðni dauða- slysa í umferðinni þar í landi. Um 2.600 manns létust í um- ferðarslysum í Portúgal í fyrra og á miðvikudag samþykkti þing- ið lög, sem heimila fangelsun öl- vaðra ökumanna. Þá samþykkti þingið einnig að tífalda sektir fyrir ýmis umferðarlagabrot. Fari ökumaður yfir leyfilegan hám- arkshraða, verðurhann sjálfkrafa sektaður um allt að 25.000 es- cudos (um 9000 ísl. kr.), og ölvað- ir ökumenn, sem sleppa við fang- elsisvist, eiga yfír höfði sér sekt, sem nemur um 200.000 escudos (um 70.000 ísl. kr.). „Umferðarslys í Portúgal eru með þeim eindæmum, að þessar ráðstafanir eru óhjákvæmilegar," sagði Joao Oliveira Martins sam- gönguráðherra í portúgalska þinginu. Búist er við, að nýju lögin taki gildi mjög fljótlega. með þeim. Mörg ríki, þ.á.m. Banda- ríkin og ríki Evrópubandalagsins, hafa bannað innflutning á fílabeini. Það eru einkum Kenýa og Tans- anía sem beijast fyrir banni á versl- un með fílabein en fílahjarðir í Austur-Afríku hafa orðið fyrir barð- inu á veiðiþjófum. í suðurhluta álf- unnar hefur fílum hins vegar ekki fækkað enda vandlega fýlgst með veiðiþjófum. Þar er um þriðjungur þeirra 650.000 fíla sem talið er að séu eftir í Afríku. Kenýumenn hafa ákveðið að eyðileggja birgðir sínar af fílabeini í næstu viku og viija að Zimbabwe- menn geri slíkt hið sama. Helsti markaður fyrir fílabein er í Japan og Hong Kong og þar selst bæði Iöglega og ólöglega fengið fílabein frá Afríku. Reuter Fjöldafundur í Myanmar Þúsundir stjómarandstæðinga og námsmanna í Myanmar, sem áður hét Búrma, minntust í gær þeirra sem létust fyrir 27 ámm í árás á námsmenn er safnast höfðu saman á lóð háskólans í Rangoon til að mót- mæla valdatöku hersins í mars 1962. Herstjórnin í Myanmar hefur áhyggjur af vaxandi andstöðu almenn- ings og herlög banna ijöldafundi og mótmæli. Hermenn meinuðu hundruðum námsmanna aðgang að há- skólalóðinni í gær en hún hefur verið lokuð síðasta árið. Forsetakosningar í Chile: Einn frambjóðandi allra stjórnarandstöðuflokka Santiago. Reuter. Sljómarandstöðuflokkarnir í Chile hafa komið sér saman um sameiginlegan frambjóðanda i forsetakosningum sem verða 14. desember næstkomandi. Patricio Aylwin, leiðtogi Kristilega demó- krataflokksins, var tilnefhdur á þriðjudag af 17 sljómarand- stöðuflokkum sem hafa bundist samtökum. Aylwin, sem er sjötugur að aldri og lögfræðingur.að mennt, fór fyrir breiðfylkingu stjórnarandstæðinga og leiddi þá til sigurs gegn Augusto' Pinochet einræðisherra í þjóðarat- Árásarkafbátur Meö langdrægar kjarnaflaugar Í2 Meö stýriflaugar A Dagsetning StaÖur Kafbátasiys Rauða flotans Rauði flotinn er með stœrsta kafbátaflota veraldar, 372 alls. Flestar tegundanna eru kjarnorkuknúnar. Fyrir neðan eru skráð helstu óhðpp sovéskra kajbáta frá miðju ári 1977, en þeir hafa allir verið kjarnorkuknúnir. Tegund Eöli óhapps Slysámönnum 28. ágúst, 1977 Miöiaröarhat • Echo Árekstur viö bandariskt herskip Ekki vitað 19. ágúst, 1978 Norövestur af Skotlandi AEcho II „Taeknileg mistök" Ekki vitaö 21. ágúst, 1980 Austur af Okinawa • Echo Eldsvoöi 9 látnir September, 1981 Eystrasalt Ekkl vitaö „Röö þungra álalla" Geislunaráverkar Júnf, 1983 Viö Kamtsjatka-skaga ACharlle 1 Ekki vitaö Ekki vitaö September, 1983 Noröur-Kyrrahaf Ekki vitaö Ekki vitaö Ekki vitaö 31. október, 1983 Viö austurströnd Bandaríkjanna • Victor III Flæktist I ratsjárköplum Engin 21.mars, 1984 Japanshaf • Victor 1 Árekstur viö bandariskt herskip Ekki vitaö 20. september, 1984 Japanshaf OGolf II Eldsvoöi Ekki vitaö 21. september, 1984 Njörvasund • Victor 1 Árekstur viö kaupskip Ekki vitaö 13. janúar, 1986 Norövestur af Okinawa AEcho II Ekki vitaö Ekki vitaö 3. október, 1986 Austur af Bermúda-eyjum OYankee Sprenging 1 eldflaugarturni 3 látnir 7. aprfl, 1989 Noregshaf • Mike Sprenging og eldsvoöi 42 látnir 26. júnf 1989 Noregshaf AEcho II Eldsvoöi Engin Heimödir: Jane'i Informatlon Group. Jane's Fightlng Shþs og Daity Tolegraph kvæðagreiðslu í október á síðasta ári þar sem kosið var um hvort herstjóm hershöfðingjans ætti að fara áfram með völd. Skoðanakannanir gefa til kynna að Aylwin njóti stuðnings 55% kjós- enda. Hann er eini frambjóðandinn, enn sem komið er, í fyrstu frjálsu forsetakosningunum í 20 ár, eða frá 1969. Þá var Salvador Allende, leið- togi sósíalista, kjörinn forseti en hon- um var steypt af stóli og hann myrt- ur í blóðugu valdaráni Pinochets árið 1973. Kristilegir demókratar, flokk- ur Aylwins sem er stærsti stjórn- málaflokkur í Chile, studdi valdarán- ið. Pinochet er hins vegar bannað að bjóða sig fram í kosningunum í desember. Mörg hundruð stuðningsmenn Aylwins hrópuðu hvatningarorð þeg- ar útnefningin var tilkynnt í miðborg Santiago, fýrir utan bækistöðvar samtaka stjórnarandstæðinga, sem hafa fyrrum stuðningsmenn Pinoc- hets innan sinna vébanda jafnt sem sanntrúaða marxista. Aylwin, sem er miðjumaður í chi- leskum stjómmálum, var útnefndur frambjóðandi er stjómarandstöðu- flokkarnir höfðu komið sér saman um sameiginlega áætlun fyrir vænt- anlega ríkisstjóm eftir tveggja mán- aða samningaþóf. Patricio Aylwin. Reuter í áætlun stjórnarandstöðuflokk- anna, sem verður birt eftir 10 daga, er meðal annars gert ráð fyrir að laun hækki tafarlaust og skattar verði hækkaðir til að standa undir samneyslu, að sögn leiðtoga stjómar- andstæðinga. Stefnt verður að því að festa lýðræði í sessi og auka hag- sæld í Iandinu. Þar er því jafnframt heitið að hrófla ekki við hinu frjálsa hagkerfí sem ríkisstjórn Pinochets kom á í sinni stjórnartíð. Komdu og prófoðu nýjusfu bilana! BMW Touring og Renault 19 Sýningunni á BMW Touring og Renault 19 veröur framhaldiö í dag til klukkan 17. Þér gefst tækifæri til reynsluaksturs og viöræöna viö sölumenn um hagstæö skiptikjör og viöráöanlega skilmála. Kynningarverö á Renault 19 verður óbreytt þrátt fyrir gengisbreytingu. Renault 19 kostar frá kr. 799.399 — án ryðvarnar og skráningar. Veriö velkomin í reynsluakstur. Opiö í dag frá kl. 13—17. Bílaumboðið hf Krókhálsi 1, sími 686633, Reykjavík. RENAULT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.