Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 36
MORGUN'BLAQID lAtU6ÁRDiA.j3UR 8: jfiljí -1989 36 ÞóroddurL Jóhannsson, Akureyri - Kveðjuorð Fæddur 3. júlí 1932 Dáinn 2. júlí 1988 Á bjartri og hlýrri miðsumar- nóttu berast ótíðindin: Góður vinur er hrifinn brott í blóma lífsins. Skyndilega verður allt eins og kalt og dimmt og fregnin nístir hug og hjarta. Og um stund verða orð svo meiningarlítil og máttlaus en spurn- ing leitar aftur og aftur á hugann: Hvers vegna? Við vitum þó að þess- ari spurningu verður ekki svarað að sinni en trúum að Guð sjái lengra en við, skammsýnir menn. Og við trúum líka að góður Guð leggi líkn með þraut. En hinni þungbæru staðreynd verður ekki haggað. Leiðir fjölskyidna okkar hafa legið saman um hartnær þriggja áratuga skeið. Við vorum nýlega flutt í Byggðaveginn, þegar Magga og Þóroddur fluttu þangað. Það kom strax í ljós að þama höfðum við ekki einasta eignast góða granna heldur jafnframt góða vini. Fram- undan voru manndómsárin með þá glímu, sem allir verða að heyja, með misgóðum árangri eins og gengur. En Þóroddur var óvenju vel til þeirrar glímu fallinn. Andlegt og líkamlegt atgervi, ljúfmennska, dugnaður og samviskusemi voru einkennandi fyrir Þórodd, og er þá frekar van- en ofsagt. Og með sína góðu konu sér við hlið, unnust sigr- ar. Samtaka og samhuga vom þau í blíðu og stríðu og aldrei heyrðum við æðruorð né styggðaryrði á milli þeirra fara. Gestrisni og höfðings- skapur ríkti á heimilinu og gott þangað að koma enda óvenju gest- kvæmt og öllum sýnd sama rausn- in. Og minningamar sækja á hug- ann. Með þakklæti minnumst við allra samverustundanna, þegar fjöl- skyldur okkar glöddust saman á góðri stund. Sú minning máist ekki úr huganum og heldur ekki minn- ingin um góðan dreng sem með gleði og hlýju fegraði umhverfi sitt. Það var i sannleika mannbætandi að umgangast hann og erfitt að þurfa að skilja svo skjótt. En vol og víl var Þóroddi víðsfjarri. Þess- vegna skulum við í minningu vinar okkar ekki æðrast, en sýna styrk. Þau tryggðarbönd, sem Þóroddur átti svo mikinn þátt í að knýta okk- ar í milli bila ekki þótt óneitanlega hafi sterkur þáttur brostið. Elsku Magga, Ingvar, Svandís og Berg- hildur, Guð huggi ykkur og styrki og veri ykkur öllum riálægur. Gulli, Signa, Jónsi, Naninga og fjölskyldur. í dag er borinn til grafar Þórodd- ur Ingvar Jóhannsson. Okkur er ljúft að stinga niður penna til að minnast þessa mæta manns, þvi það er óvenju auðvelt að bera lof á Þórodd heitinn. Við höfum löngum talið það fjöl- skyldu okkar til happs að Magga móðursystir skyldi giftast honum Þóroddi. Að öllum mönnum öðrum ólöstuðum átti Þóroddur fáa sína líka. Hann var mannvinur. Hann hallaði ekki á aðra og gerði sér greinilega far um að draga frekar fram hinar jákvæðu hliðar í fari fólks heldur en þær neikvæðu. Hann tók gjarnan málstað lítil- magnans. Þóroddur var skemmtilegur! Það var alltaf grunnt á gamninu hjá honum en hnyttni hans og brandar- ar voru ávallt svo græskulausir að engum sárnaði undan. Það var einn- ig skemmtilega áberandi hvað börn drógust að Þóroddi og segir það nokkuð um persónuleika hans. Þóroddur var sérstaklega félags- lyndur maður, enda nutu ótai fé- lagasamtök óeigingjarnrar vinnu hans. Stundum er sagt að gamli ungmennafélagsandinn sé liðinn undir lok, en Þóroddur var svo ótví- ræð sönnun þess að svo er ekki. Hann var einnig samvinnumaður af lífi og sál. Þóroddur og Magga höfðu búið sér ákaflega hlýlegt heimili í Eik- arlundi 22. Þangað voru allir vel- komnir og alltaf var manni tekið með hispurslausri hlýju sem ein- kenndi heimilishald þeirra hjóna. Þangað sóttum við sennilega oftar en í flest önnur hús. Ósjaldan skutu þau hjónin skjólshúsi yfir okkur unglingana úr sveitinni. Eins ef eitt- hvað bjátaði á áttum við vísan styrk og samastað hjá Þóroddi og Möggu. Það er líka greinilegt að börn þeirra hjóna, tengdaböm og barnaböm eiga ömggt athvarf heima, því þangað sælqa þau mikið. Gaman yar að fylgjast með því sérstaka jafnræði sem ríkti miili allra flöl- skyldumeðlima. Þóroddi var einmitt einkar lagið að koma á slíku jafn- ræði milli manna. Ennþá finnst okkur óhugsandi að mega ekki lengur fara á fund Þórodds í Eikarlundinum. Missir okkar allra er mikill, en mestur þó fyrir nánustu íjölskyldu hans. Tíminn læknar vonandi öll sár, en hann mun aldrei má út minninguna um góðan dreng. Um leið og við kveðjum Þórodd í hinsta sinn biðj- um við þess að fjölskylda hans finni styrk til að yfirstíga þessa miklu sorg. Gunnar og Ema, Þóra og Magnús. Kom, huggari, mig hugga þú, kom, hönd, og bind um sárin, kom, dögg, og svala sálu nú, kom, sól, og þerra tárin, kom, hjartans heilsulind, kom, heilög fyrirmynd, kom, ljós, og lýstu mér, kom, lif, er ævin þver, kom, eilífð, bak við árin. (V.Briem) Sorgin ber snögglega að dyrum, óvænt og harkalega. Þegar sóknar- presturinn á Akureyri hringdi að morgni 2. júlí flaug strax í hugann: Nú hefur eitthvað komið fyrir. Jú, hann var að flytja okkur harma- fregn. Elskulegur mágur okkar og svili Þóroddur Jóhannsson hafði orðið bráðkvaddur þá um nóttina. Það er erfitt að trúa svona fréttum, þegar lífinu er kippt burtu á andar- taki, þar sem hann var að skemmta sér með konu sinni í hópi góðra vina. Hann sem aldrei hafði kennt sér meins, svo neinn vissi og alltaf svo hress og glaður. Þessi góði maður á eflaust meira að starfa guðs um geim. Því trúum við og treystum. Þessi fátæklegu orða eiga ekki að vera neitt æviágrip. Starfssvið hans var mjög víðtækt og hann vann óhemju mikið og fórnfúst starf fýrir ýmis félagasamtök. Hæst ber þar Ungmennafélagshreyfinguna. Hann á miklar þakkir skildar fyrir allt sem hann hefur gefið fjölskyld- um okkar. Foreldrum okkar var hann ætíð sem besti sonur. Alltaf virtist hann gefa sér tíma til að hjálpa og greiða bæði fyrir okkur sjálfum og bömum okkar. Við minnumst allra góðu heim- sóknanna á heimili Möggu og Þór- odds. Fyrst í Byggðaveg 140a og síðar í Eikarlund 22 þar sem þau byggðu sér einbýlishús og eiga þar mjög fallegt heimili. Þar hefur allt- af ríkt mikil glaðværð. Hafði Þór- oddur sérstakt lag á að koma öllum í gott skap með glettni og gaman- málum. Eins gátum við leitað styrks hjá honum á alvöru- og sorgar- stundum. Þóroddur var fæddur á Skriðu- landi í Arnarneshreppi, sonur Ástríðar Sæmundsdóttur og Jó- hanns Sigvaldasonar. Hann fluttist á barnsaldri að Ytri-Reistará og ólst þar upp með foreldrum sínum í stórum systkinahópi. Þóroddur kvæntist Margréti Magnúsdóttur frá Björgum 12. október 1957, yngstu systur okkar. Þau eignuðust þijú börn: Ingvar f. 18. mars 1958 lögfræðingur, sambýliskona Sigríð- ur Vilhjálmsdóttir bókasafnsfræð- ingur, Svandís f. 17. maí 1962 nemi í fatahönnun gift Gretari Örlygs- syni tölvunarfræðingi og Berghild- ur f. 15. nóvember 1966 skrifstofu- maður, sambýlismaður Vignir Már Þormóðsson matreiðslunemi. Barnabörnin eru tvö Eydís Ingvars- dóttir og Birkir Örn Gretarsson, sólargeislar afa síns. Þessi samhenta fjölskylda missti mikið þegar heiðursmaðurinn og mannvinurinn Þóroddur hvarf sjón- um manna. Við biðjum honum blessunar guðs yfir móðuna miklu. Hafi hann þökk fyrir allt og allt. Við biðjum að ijölskylda hans og ættingjum gefist styrkur til að bera þess þungu sorg. Mágkonur og svilar. Um síðustu helgi barst sú frétt um Akureyrarbæ, ógnarfrétt sem engum okkar félaganna hafði órað fyrir að fá á þessum áratug né þeim næsta, að Þóroddur Jóhanns- son væri allur. Það vekur mann til umhugsunar að hann skyldi kvadd- ur á brott 2. júlí, á öðrum degi nýs starfsárs Lionshreyfingarinnar, til umhugsunar vegna þess að Þórodd- ur var sterkasti hlekkurinn í keðju okkar félaganna 39 í hópnum. Hlekkurinn þessi hafði aldrei brugð- ist okkur þrátt fýrir mikið álag. Hann reyndist alltaf traustur og voru honum því falin hin ábyrgðar- mestu störf við líknar og mann- vinamál. Þóroddur var tekinn inn í Lions- klúbbinn Huginn' árið 1981 og á þessum fáu árum gegndi hann mörgum mikilvægum embættum, meðal annars formennsku eitt árið. Hann var lykilmaðurinn í því að koma þaki yfir höfuð okkar Lions- manna í Tollvörugeymslunni við Hjalteyrargötu þar sem hann stjórnaði styrkri hendi. Þó að almættið hafi kallað vin okkar og félaga úr þessum heimi þá verður Þóroddur áfram í hugum okkar sem hinn sterki hlekkur. Það verður erfítt að fylla í skarðið sem hér er skilið eftir en minningin um frábæran félaga hjálpar okkur í viðleitninni til að feta í hans fótspor. Þóroddur Jóhannsson hefur ávallt átt okkar virðingu, okkar þakklæti og aðdáun. Góðvild hans, hjálpsemi og glaðværð gleymast okkur ekki. Við vottum Margréti, bömum þeirra og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Félagar í Lions- klúbbnum Huginn. Olafur Ö. Þórðarson, Varmalandi - Minning Fæddur22. janúarl904 Dáinn 27. júní 1989 Ólafur Óskar Þórðarson, bóndi og fyrrv. hreppstjóri, lést þann 27. júní sl., 85 ára að aldri, í sjúkrahúsi í Reykjavík. Síðustu árin fór heilsu Ólafs heitins hrakandi einkum eftir að hann lét af störfum hjá skatt- stjóraembættinu í Hafnarfirði árið 1980. Með Ólafi er genginn einn mæt- asti maður byggðarlagsins og er hans minnst hér að loknu ævistarfi sem var að stórum hluta í þágu almennings og til velferðar sam- borgara hans. Olafur fæddist á Æsustöðum í Mosfelissveit 22. janúar 1904 og ólst þar upp á heimili foreldra sinna, þeirra Þórðar Jónssonar bónda þar og Kristínar Vigfúsdóttur konu hans, sem bjuggu alla sína búskap- artíð á Æsustöðum. Ólafur vann á búi foreldra sinna þar til hann stofn- aði nýbýlið Varmaland í landi Æsu- staða árið 1935. Skólagöngu naut Ólafur aðeins í farskóla sveitarinnar en ekki var kostur að mennta sig meir þótt hann skorti ekki gáfur og andlegt atgervi. Snemma tók Ólafur þátt í Ungmennafélaginu Áftureldingu og varð virkur vel í þeim samtökum. Hann taldi að framhaldsmenntun sína hafí hann öðlast í ungmennafélaginu svo sem tíðkaðist með unga fólkið á fyrri hluta aldarinnar í sveitum landsins. Svo mikið er víst, að í hinum mörgu og fjölbreyttu félagsmálastörfum bar aldrei á því að hann stæði ekki fyllilega á sporði öðrum, sem voru ef til vill langskólagengnir. Ólafur var annar í röð þriggja barna þeirra Æsustaðahjórfa en það voru Anna, Ólafur bóndi á Varmalandi, svo sem áður segir, og Hjalti bóndi og org- anisti á Æsustöðum. Þessi systkini voru hið mesta atgervisfólk bæði til hugar og handa og þeir bræður virkir í félagsmálum og íþróttum í sveitinni. í félagsmálum má nefna að sókn- . arnefnd og safnaðarlíf átti hug Ól- afs og var hann formaður sóknar- nefndar í 24 ár. í hreppsnefnd sat hann tvö kjörtímabil og var lengst af fundarritari. Ritarastörf fóru honum einkar vel úr hendi, en þar kom til að hann var fljótur að átta sig á ólíkustu málum og hafði lag á að setja fram mismunandi flókin mál á einfaldan hátt í stuttum og ótvíræðum bókunum. Þá sinnti Ólafur ýmis konar öðrum minni- háttar störfum. Þar kom til for- mennska í Lestrarfélagi sóknarinn- ar og héraðsbókasafni í stjórn Sam- bands garðyrkjumanna og fleira mætti telja. Tvisvar varð hann for- maður Aftureldingar, en stundum vildi það korna fyrir að erfitt var að fá menn til formennsku þar af ýmsum ástæðum, og þá brást hann ekki þar fremur eji annars staðar. Árið 1962 var mjög leitað til hans að taka aftur sæti í hreppsnefnd, en hann færðist ákveðið undan og bar fyrir sig aldur og einnig hitt að hann taldi sig tæplega geta sinnt því mikla starfi svo sem þyrfti með öðru, sem hann hafði þegar á sinni könnu. Þá var hann einnig hrepp- stjóri frá 1959-65 eða í 7 ár er hann baðst undan því starfi af svip- uðum ástæðum sem fyrr greinir. Ólafur kvæntist Kristínu Árna- dóttur þann 20. okt. 1934 en hún er ættuð úr Vopnafirði en kom í Mosfellssveitina með fjölskyldu Vigfúsar Einarssonar stjórnarráðs- fulltrúa en hann átti jörðina Reykjahlíð sem hét áður Hlaðgerð- arkot. Þar bjó svo Helgi Tryggva- son bókbindari með fjölskyldu sinni og stundaði iðn sína með búskapn- um. Ólafur Iærði bókband hjá Helga og með því lágu leiðir þeirra Kristín- ar saman. Varð þeim hjónum auðið þriggja bama en þau eru: Þórir prófessor, kvæntur Ingunni Valtýs- dóttur og eiga þau fjögur börn, Arnfríður gift Brúno Hjaltested, þau eiga eitt bam og Ólafur Krist- inn, kvæntur Þómnni Guðmunds- dóttur og eru þeirra börn 3. Árið 1964 brá Ólafur búi og flutti til Reykjavíkur en hóf þá störf á Skattstofunni í Hafnarfirði. Áður hafði hann starfað um langt árabil í skattanefnd og reyndar sjálfkjör- inn formaður hennar meðan hann var hreppstjóri. Þá var leitað til Ólafs með ótalmörg minniháttar erindi og var hann ávallt boðinn og búinn að leysa vanda fólks svo að ef til vill má segja að á stundum hafi það verið um of, en fáir eða ef til vill engir fóru þar bónleiðir til búðar. Mér er það eitt sérstaklega minn- isstætt er við sátum saman í nefnd þeirri sem sá um vígslu Félags- heimilisins Hlégarðs 1951, hann sem fulltrúi hreppsnefndar en ég frá Ungmennafélaginu sem for- maður þess. Þá var það ekki bráð- ónýtt fyrir mig að hafa þennan reynda og velviljaða mann mér við hlið. Eins og menn vita sem til þekkja var í fjölmörgu að snúast á síðustu dögum fyrir opnunarhátíð- ina þar sem búist var við á sjötta hundrað manns í sæti, og allveruleg skemmtidagskrá. Mikill mannfjöldi var að störfum í húsinu síðustu dagana og iðnaðarmenn þar í meiri- hluta en einnig sjálfboðaliðar frá Ungmennafélaginu og Kvenfélag- inu. Að leiðarlokum koma nokkrar minningar upp í hugann. Stundum er talað um aidamótakynslóð og telja má, að Ólafur hafi verið einn úr þeim hópi. Oft er til þess vitnað hversu þessi' kynslóð var þjóðinni verðmæt eða þeim sem á eftir komu, einkum fólki sem er á mann- dómsárunum í dag og ber að þakka þetta. Þessi kynslóð sem kennd hefir verið við aldamótin er það fólk sem upplifði atvinnu- og lífskjarabyltinguna, en naut hennar ekki en það gerum við, sem yngri eru. í góðu næði var oft gaman að hlusta á Ólaf rekja gamlar minning- ar úr Mosfellsdalnum frá fyrri tíð um menn og málefni, en minni hans ,var trútt og frásögn ætíð fléttuð velvilja og yfirleitt dregið fram það sem vel var gert. Ólafur og Halldór Laxness voru á svipuðum aldri og varð honum oft tiðrætt um drenginn sem ætlaði sér að verða rithöfund- ur. Ekki sýndi Halldór öllum ritverk sín frá barnaskólaárunum sem voru mikil að vöxtum en það kom fyrir að hann las upp úr verkum sínum fyrir Ólaf, enda var hann góður hlustandi og hafði áhuga á málum Halldórs og einn af þeim, sem trúði alla tíð á hæfileika skáldsins frá Laxnesi. Það er autt plássið, sem Ólafur skilur eftir sig og margir hugsa hlýlega til þessa ágæta manns við útför hans. Hann var mikill ham- ingjumaður í lífinu en kona hans, Kristín Málfríður, var traustur og góður lífsförunautur, sem studdi mann sinn til allra góðra verka. Börnin og tengdabörn hið ágætasta fólk sem hafa gott samband sín á milli og nutu þess að eiga sam- vistir við foreldra sína. Ég leyfi mér að tala fyrir munn margra vina og kunningja og segja að Ólafur kunni vel að meta drengskap sem og hann var mikill drengskaparmaður sjálf- ur. Aðstandendum er vottuð samúð og viljum við heiðra minningu hans á kveðjustund. Jón M. Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.