Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIB LAUGARDAGUR, 8. JÚLÍ lp89 Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson mjómsveitin Stuðmenn á útitónleikunum sem haldnir voru á Stakkagerðistúni. V estmannaeyj ar: Útitónleikar Vestmannaeyjum. ÚTITÓNLEIKAR með þátttöku þriggja stórgóðra hljóm- sveita voru haldnir á Stakkagerðistúni laugardaginn 1. júlí. Það var Pálmi Lórensson sem stóð fyrir þessum tónleikum sem tókust í alla staði vel. Þrátt fyrir heljarmikla regnsk- úr í upphafi tónleikanna þá fylgd- ist talsverður fyöldi með þeim. Hljómsveitin Centaur byijaði með flutningi nokkurra laga. Síðan steig Mezzoforte ásamt Ellen Kristjánsdóttur á svið og að leik þeirra loknum komu Stuð- menn fram og keyrðu upp stemmninguna sem stóð til loka tónleikanna. Tónleikarnir stóðu yfir í tvo tíma og voru bæjarbúar ánægðir með þessa tilbreytingu í bæjarlíf- inu. Grímur Þorbjörg Gríms- dóttir - 100 ára 100 ára er í dag, laugardag, Þorbjörg Grímsdóttir, húsmóðir, Skólavörðustíg 24a. Hún fæddist 8. júlí 1889 í Litla-Seli við Vestur- götu í Reykjavík, nú númer 59. Hún er elst núlifandi Reykvíkinga, þeirra sem fæddir eru í höfuðstaðnum. Foreldrar hennar voru Katrín Eyjólfsdóttir frá Hausastaðakoti á Álftanesi og Grímur Jakobsson, sjó- maður, frá Litla-Seli. Þorbjörg ólst upp í foreldrahúsum og ’vann að mestu við fiskvinnslustörf og kaupamennsku þar til hún kvæntist Aðalbirni Stefánssyni, prentara, 22. apríl 1915 og hófu þau búskap á Skólavörðustíg 24 a þar sem hún hefur búið alla tíð síðan. Aðalbjörn fæddist 28. desember 1873, á Garðsá í Öngulstaðahreppi, Eyjafírði, sonur Stefáns Jónasson- ar, bónda, og konu hans, Guðrúnar Jónasdóttur. Aðalbjörn var einn af stofnendum prentsmiðjunnar Gut- enberg og Hins íslenska prentarafé- lags. Auk þess var hann mjög virk- ur í starfí góðtemplara. Þá var hann um langt skeið ritstjóri „Æskunn- ar“. Aðalbjörn lést 18. júní 1938. Þorbjörg og Aðalbjörn eignuðust 8 börn, sem öll fæddust á Skólavörðu- stíg 24a. Þau eru: Aðalbjörn, fæddur 1915, bygg- ingaverkamaður, ókvæntur og barnlaus, býr á Skólavörðustíg 24a með móður sinni. Grímur, fæddur 1917, lést 1987, verslunarmaður í Reykjavík, kvæntur Lovísu Rut Bjargmundsdóttur, og eiga þau fjögur böm. Stefán, fæddur 1918, bifreiðastjóri í Reykjavík, kvæntur Sigurlaugu Guðmundsdóttur sem lést 1977 og eiga þau 8 börn. Kristín, fædd 1920, lést 1981, hús- móðir á Skólavörðustíg 24a, ógift, en átti 1 barn. Katrín, fædd 1922, lést 1986, húsmóðir á Hvolsvelli, gift Kjartani Einarssyni, sem lést 1961, og áttu þau 2 börn. Guðjón, fæddur 1924, lést 1979, slökkviliðs- maður, ókvæntur og barnlaus og bjó á Skólavörðustíg 24a. Guðrún, fædd 1928, húsmóðir á Hvolsvelli, gift Helga Einarssyni og eiga þau 4 börn. Þorbjörn, fæddur 1932, lést 1977, sjómaður, ókvæntur og barn- laus. Hann bjó á Skólavörðustíg 24a. Seinni manni sínum, Þorsteini Jónssyni, sjómanni, giftist Þorbjörg 23. desember 1944. Þorsteinn fæddist 29. janúar 1897 á Hafur- bjarnarstöðum á Miðnesi og lést 5. september 1958. Systkini Þorbjargar voru; Jakob- ína, fædd 1884, dáin 1885, Georg, hálfbróðir, samfeðra, fæddur 1900, dáinn 1933 og fóstursystir, Geir- þrúður Anna Gísladóttir, fædd 1906, dáin 1954. Þorbjörg hefur fótavist nærfellt á hveijum degi og hefur allt fram til síðasta árs pijónað mikið og les- ið. Það sem háir henni helst er að hún á orðið erfítt með gang, auk þess sem heyrnin er farin að gefa sig. Hún hefur alla tíð fylgst vel með gangi mála og er vel minnug á atburði frá æsku- og unglingsár- um sínum. Hún hefur alla tíð, eins og maður hennar Aðalbjörn, verið stuðningsmaður Alþýðuflokksins. Auk þess er hún mikil reglumann- eskja og trúuð. Áfkomendur Þorbjargar eru nú 86 talsins. Þorbjörg tekur á móti gestum á 2. hæð Hótels Sögu í dag, afmælis- daginn, kl. 15 til 18. N.N. SVIPMYNDIR ÚR BORGINNI /ÓlafurOrmsson Sumarmyndir Þá er hafinn að margra áliti skemmtilegasti tími ársins. Þorri launþega fer senn í sumarleyfi, heilu fjölskyldurnar taka sig upp og ferðast til fjarlægra landa og hér innanlands með tjald og við- leguútbúnað og ekki er óalgengt að íjölskyldur fari hringveginn umhverfis landið. Gróður jarðar er kominn nánast í fullan skrúða og fuglalífíð blómstrar eins og ekkert hafi í skorist þrátt fyrir harðan vetur og Reykvíkingar eins og aðr- ir landsmenn væntanlega í sumar- skapi. Það sýndist mér Ögmundur Jón- asson, formaður Bandalags starfs- manna ríkis og bæja, vera inná Hótel Lind við Rauðarárstíginn, miðvikudaginn 7. júní síðastliðinn. Hann var þar við homborð sem snýr út að Grettisgötunni, í komp- aníi með Ásmundi Stefánssyni, for- seta Alþýðusambandsins, og þriðja manni sem ég kann ekki skil á. Það var í síðdegiskaffi, ég sat þar og sötraði kaffi og át ijómatertu- sneið. Það var fámennt, aðeins se- tið við tvö borð. Ögmundur bað um heitt súkkulaði í bolla með kræs- ingum og ég heyrði ekki betur en verkalýðsforinginn hafi að lokum sætt sig við kaffið, þjónustustúlkan kvað súkkulaði ekki vera á boðstól- um þann daginn og ætli launþega- foringjum veiti nú af ilmandi kaffi- sopanum yfír djúphugsuðum pæl- ingum, þegar lagt er á ráðin um næstu viðbrögð til að mæta við- brögðum við ört vaxandi heimtuf- rekju alls þorra launþega sem ekki með nokkru móti geta skilið að við íslendingar getum tæplega mikið lengur haldið uppi þeim lífsstand- ard sem við teljum að sé eins sjálf- sagður og nýr dagur tekur við af þeim sem liðinn er. Eldra fólk og lífsreynt bendir á með réttu að nú sé raunar komið að skuldadögum og ekkert annað fram undan en að borga þau stóru lán sem þjóðin hefur tekið erlendis á liðnum árum og eru alvarlegt áhyggjuefni. Bjöm Kristjánsson, miðaldra maður, kaupmaður í Mýrarbúðinni, búð sem er að flatarmáli á stærð við rúmgott herbergi í eldri íbúð, ber sig vel þrátt fyrir barlóminn í þjóðfélaginu, reitir af sér brandara og er með spjaldskrána, listann yfír skuldunauta á öruggum stað og dregur fram þegar á gjalddaga og linnir ekki látum þar til við- skiptavinur í reikningi borgar með glöðu geði, enda þá fengið að heyra nokkra velvalda brandara. Hafsteinn Einarsson, kennari og lögmaður, er þó aldrei svo blankur að hann eigi ekki fyrir vindli í miðri kreppunni. Ég kom auga á Haf- stein í ljósum sumarfrakka á Gunn- arsbrautinni í lok maímánaðar, í úrhellisrigningu, líkt og hellt væri úr fötu og auðvitað var Hafsteinn Einarsson eins og ávallt með sinn vindil í hægri hendi og glóðin í vindlinum lýsti nánast upp um- hverfíð og var þó orðið verulega skuggsýnt enda komið fram yfír miðnætti, og þá eru einhleypir menn sumir hveijir stöku sinnum á ferðinni og láta sig dreyma ró- mantíska drauma. Eyjólfur Halldórsson, starfsmað- ur ljósmyndasafns Reykjavíkur- borgar, var að spóka sig í góða veðrinu sunnudagseftirmiðdag, ekki alls fyrir löngu. Það var á gangstétt við Laugaveginn og í fylgd með lífssnillingnum góð- kunna var myndarleg kona og Eyjólfur á svipinn eins og hann væri á leið til sóknarprests með mikilvæg skilaboð um bjarta framtíð, líkt og erlendur konsúll í fasi, uppáklæddur og virðulegur með alskegg sem tekið er að grána enda fimmtugsafmælið ekki svo langt undan og Eyjólfur heilsaði í allar áttir. Þannig hefur árstíðin, sumarið, margvísleg áhrif á mannfólkið. Sig- urður Þór Guðjónsson, rithöfundur og dálkahöfundur hjá DV, var í sólskinsskapi fyrir framan aðal- stöðvar Pósts og síma einn morgun í miðri viku snemma í júnímánuði þegar við hittúmst þar óvænt og þegar hann tjáði sig þá fór þessi litli búkur allur á hreyfíngu, hendur og fætur, andlit og þá einna helst yfirvararskeggið. Sigurður Þór Guðjónsson á það til að tjá sig þannig um menn og málefni að þegar honum tekst best upp þá á hann fáa sína líka. Þegar loks er komið sumar þá fjölgar hjólreiðamönnum á götum borgarinnar og komast bara furðu langt þrátt fyrir að varla sé lengur hægt að þverfóta fyrir bifreiðum sem hefur fjölgað ískyggilega hér á höfuðborgarsvæðinu á liðnum árum, okkur sem aldrei höfum dýrkað bifreiðina, til ama. Fyrir framan höfuðstöðvar ríkissjón- varpsins við Laugaveginn sá ég einn föstudagsmorgun, viku af jún- ímánuði, hvar Þórunn Valdimars- dóttir, sagnfræðingur og rithöfund- ur, kom á reiðhjóli og þar sem ég sat í strætisvagnabiðskýli og beið eftir strætisvagni kom hún á hjól- inu, brosandi og bauð góðan daginn og spurði tíðinda og sagði síðan þau tíðindi að hún hefði verið að koma frá Húsnæðismálastjórn ofar við Suðurlandsbrautina og beinlínis geislaði af lífsþrótti og bjartsýni og lét sér ekki bregða þó bílaum- ferðin væri með meira móti og reið- hjólamenn, hvað þá ljósskolhærðar konur á besta aldri, litnir hornauga og líklega taldir óveijandi sérvitr- ingar sem voga sér að hafna bílnum, eftirlætis leikfangi nútíma- mannsins. Aftan á hjóli Þórunnar Valdi- marsdóttur er bögglaberi og sé ég nú eiginlega mest eftir því að hafa ekki fært það í tal við stúlkuna hvort ég hefði ekki getað fengið far með henni á bögglaberanum niður í miðborg Reykjavíkur, þang- að sem ég átti áríðandi erindi við embættismann. Það er komið sum- ar og því ekki að bregða á leik og aldrei að vita hvað þeir verða marg- ir hvort eð er sólskinsdagamir, raunverulegir sumardagar hér á klakanum á norðlægum slóðum, flarri mannabyggðum. Ólíkt skemmtilegra að sitja aftan á bögglabera á reiðhjóli þar sem myndarleg stúlka situr við stýrið en að setjast inn í strætisvagn, þar sem varla nokkrum manni dettur einu sinni í hug að bjóða góðan dag. Og það er einmitt það sem gjarnan má breytast nú með hækk- andi sól og sumri, að menn bjóði góðan dag, t.d. á fömum vegi, eða sýni að þeim er ekki alveg sama um náungann. Tillitsleysi og ókurt- eisi fínnst mér stundum nokkuð áberandi í fari íslendinga. Það er einnig bráðnauðsynlegt að geta einstaka sinnum sagt góðar fréttir úr lífsbaráttunni, ekki endilega af happdrættisvinningi, heldur fremur bjartsýni og t.d. góðum anda innan fjölskyldunnar. Og veitir sannar- lega ekki af, fjölmiðlaheimurinn og þá sérstaklega fréttastofur útvarps og sjónvarps flytja stöðugar fréttir af volæði og grimmd mannsins sem ólíkt fuglum og dýmm virðist ekki lengur kunna að gleðjast. Það er þó enn einhver von um betri tíð, það er allavega komið sumar ... Leiklistarskólinn: Atta braut- skráðir LEIKLISTARSKÓLA íslands var slitið í þrettánda sinn fyrir skömmu. Voru þá átta ungir leik- arar brautskráðir firá skólanum. Er þetta 11. árgangurinn sem lýk- ur námi við skólann. Leikararnir sem brautskráðust í vor em: Bára Lyngdal Magnúsdóttir, Christine Carr, Elva Ósk Olafsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Ólafur Guð- mundsson, Sigurþór Albert Heimis- son, Steinn Ármann Magnússon og Steinunn Ólafsdóttir. Við skólaslitin vom veitt verðlaun fyrir meðferð og framburð íslensks máls og hlaut Elva Ósk Ólafsdóttir þau. (Úr fréttatilkynningu) Nýútskrifaðir leikarar: Helga Braga Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Bára Lyngdal Magnúsdóttir, Christine Cai-r, Sigurþór Albert Heimisson, Elva Osk Olafsdóttir, Steinn Ármann Magnússon og Steinunn Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.