Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGÚR' 8. JÚLÍ 1989 ÍÞRÚntR FOLK ■ BAYER Leverkusen er nú á eftir brasilíska landsliðsmanninum Jorghino, sem er 24 ára miðjuleik- maður. Framkvæmdastjóri félags- BHg ins er nú í Brasilíu FráJóni til að ræða við Jorg- Haíldórí hino, sem er fyrirliði Garðarssyni Brasilíumanna. i V-Þyskalandi m DORTMUND hefur keypt Michael Schulz, mið- ’Nörð Kaiserslautem á 58 millj. ísl. króna. ■ TYRKNESKA félagið Be- siktas er tilbúið að kaupa Norbert Meier frá Bremen. Hann á að fá 7.2 millj. ísl. kr. í árslaun ■ ALAN Giresse, sem hefur tekið við þjálfarastarfi hjá Borde- aux í Frakklandi, vill ekki gera nema eins árs samning við Manny Kaltz, leikmann Hamburger, sem upphaflega átti að fá tveggja ára samning. ■ CHRISTOPH Daum, þjálfari Köln, er harður við sína leikmenn. Hann hefur ákveðið að sekta þá um 30 þús. ísl. kr. fyrir hvert kíló sem þeir bæta á sig í sumarfríinu. ■ BELGÍSKI landsliðsmaðurinn Stephane Demol, sem hefur leikið með ítalska félaginu Bologna, hef- ur gengið til liðs við Porto í Porúg- al. ■ ALEXANDER Czerniat- ynski, markaskorari landsliðsmað- ur Belgíu, er farinn frá Standard Liege til Antverpen. ■ MALMÖ FF varð sænskur bikarmeistari með því að leggja Djurgarden, 3:0. KNATTSPYRNA Chris Waddle til Marseille Frönsku meistararnir greiða metupphæð fyrir hann ENSKI landsliðsútherjinn, Chris Waddle, er á förum frá Tottenham til frönsku meistar- anna Marseille fyrir ævintýra- legt verð, 4,25 milljónir punda (400 miljónir. ísl. kr.), að því er umboðsmaður hans tilkynnti í gær. Þetta er hæsta upphæð sem greidd hefur verið fyrir enskan knattspyrnumann. Samningurinn verður formlega undirritaður í næstu viku. Hann er til fjögurra ára og gefur Waddle sjálfum tvær milljónir punda, auk bónsusgreiðslna. Marseille, sem varð franskur meistari í vor, hefur undanfarið ieit- að dyrum og dyngjum að nýjum FELAGSLIF Framdagurinn á sunnudaginn Hinn árlegi Framdagur verður haldinn á félagssvæði Fram við Safamýri á morgun, sunnudaginn 9. júlí, en ekki í dag eins og sagt var frá í gær. Framheimilið verður opið frá kl. 11.30 til 17.30. Fram- konur verða með kaffi og meðlæti á boðstólum frá kl. 14. leikmönnum. Á tímabili var nafn Maradona nefnt í því sambandí en ekkert varð af því að hann færi til liðsins. Kaupverðið, 4,25 milljón punda, er langhæsta verð sem greitt hefur verið fyrir enskan leikmann. Það er nærri því einni milljón punda hærri upphæð en Juventus greiddi Liverpool fyrir Ian Rush á sínum tíma en það var gamla metupphæð- in. Ómótstæðilegt tilboð Terry Venables, framkvæmda- stjóri Tottenham, hafnaði fyrir þremur vikum tilboði frá Mareille en eftir að tilboðin tóku að hækka, ákvað hann að láta Waddle sjálfan velja. Waddle stóðst ekki freisting- una. „Mér hafði ekki komið í hugar- lund að yfirgefa Tottenham en mátti til með að taka tilboðinu vegna þess sem það færir íjölskyldu minni í framtíðinni", sagði Waddle, sem er 28 ára gamall. Mikið hefur verið um kaup og sölur leikmanna hjá Tottenham undanfarið ár. Nú síðast keypti lið- ið Gary Lineker frá Barcelona fyrir eina og hálfa milljón punda. Salan á Waddle ætti því að geta rétt hressilega við haliann á innkaupa- reikningi Venables. HANDKNATTLEIKUR Hilmar og Guðmundur með Eyjamönnum Hilmar Sigurgíslason, fyrrum landsliðsmaður í handknattleik úr Víkingi og HK, hefur verið ráðinn þjálfari Vestmannaeyjarliðsins í handknattleik. Hilmar tekur við starfi félaga síns úr Víkingi, Sigurð- ar Gunnarssonar, sem fer til Bidasoa á Spáni. Hilmar var í Vestmannaeyjum í vikunni, ásamt Guðmundi Alberts- syni, hornamanni úr KR, sem hefur einnig gengið til liðs við Eyjamenn. Chris Waddle fær ævintýralegt tilboð. GOLF / MEISTARAMOT GOLFKLUBBANNA Veðrið setur strik í reikninginn Hart barist á meistaramótum golfklúbbanna um allt land J>AÐ er mikið um að vera hjá kylfingum þessa dagana. Síðasta miðvikudag hófust meistaramót golfklúbbanna og má því sjá golfkúlur á ferð og flugi á golfvöllum hringinn í kringum landið. Leiknar eru 72 holur á fjórum dögum og líkur keppni víðast hvar í dag. Keppendur á meistaramótunum eru kylfingar á öllum aldri og hjá flestum klúbbanna um að ræða skemmtilega og spennandi keppni. PUNKTAR GOLF ■ NESKLÚBBURINN er með góðan gest á meistaramótinu í golfi. Sara Palmer, sem er íslensk í aðra ættina, keppir sem gestur og hefur mikla yfirburði í kvenna- flokki. Sara hefur' 3 í forgjöf, en enginn íslenskur kvenkylfingur hef- ur svo lága forgjöf. I fyrra setti Sara vallarmet á Nesvellinum, og er ekki ólíklegt að hún bæti það nú. ■ TVEIR kunnir kappar beij- ast um sigurinn í öldungaflokki á .meistaramóti golfklúbbs Suður- nesja. Þorbjörn Kjærbo, marg- faldur Islandsmeistari, er í efsta sæti en landsliðseinvaldurinn Jó- hann R. Benediktsson fylgir fast á eftir. ■ DAVÍÐ Oddsson, sem keppir í unglingaflokki hjá golfklúbbnum Keili, var nálægt því að fara holu í höggi á 6. braut, en 10 cm mun- aði að sá merki áfangi næðist Veðrið hefur að vísu sett strik í reikninginn og er því skor kylfinga almennt nokkru lægra en í fyrra. Keppni í Vestmannaeyjum hófst ekki fyrr en á fimmtudag vegna veðurs og eru keppendur þar því einum degi á eftir. Meistaramót golfklúbbanna er síðasta stórverkefni kylfinga fyrir íslandsmótið sem hefst í lok júlí. Að þessu sinni er það golfklúbbur Suðurnesja sem sér um framkvæmd mótsins. STAÐAN Úrslit meistaraflokka á meistara- mótinu eftir annan daginn eru sem hér segir: Golfklúbbur Reykjavíkur Karlar: 1. Hannes Eyvindsson................152 2. KarlÓmar Jónsson.................154 3. Ragnar ólafsson..................157 4. -5. Gunnar Sigurðsson............159 4.-5. Sigurjón Arnarson..............159 6. EinarL. Þórisson.................162 7. Sigurður Hafsteinsson............165 8. -10. FransP. Sigurðsson..........167 8.-10. Viggó Viggóson................167 8. -10. Þorsteinn Hallgrimsson......167 Konur: 1. Steinunn Sæmundsdóttir...........175 2. Ragnhildur Sigurðardóttir........187 3. Jóhanna Ingóifsdóttir............195 Golfklúbbur Akureyrar Karlar: 1. Björn Axelsson...................152 2. Viðar Þorsteinsson...............155 3. Björgvin Þorsteinsson............157 4. Örn Amarson......................158 5. -6. Kristján Hjálmarsson.........159 5.-6. Magnús Karlsson............... 159 7.-8. Halldór Rafnsson...............161 7.-8. Haraldur Ringsted............ 161 9. -10. Eiríkur Haraldsson..........165 9.-10. Þórhallur Pálsson.............165 Konur: 1. Jónína Pálsdóttir.................179 2. Inga Magnúsdóttir.................189 3. Ámý L. Amadóttir................ 196 4. Karólína Guðmundsdóttir...........215 5. Áslaug Stefánsdóttir..............216 Golfklúbbur Suðurnesja Karlar: 1. Sigurður Sigurðsson...............153 2. Gylfi Kristinsson.................157 3. Hilmar Björgvinsson...............165 4. -6, Bjöm Skúlason.................168 4.-6. Páll Ketilsson..................168 4.-6. Sigurður Albertsson.............168 Konur: 1. Karen Sævarsdóttir................166 2. Eygló Geirdal................... 189 3. Gerða Halldórsdóttir............ 195 4. -5. Sigurbjörg Gunnarsdóttir......202 4.-5. Elín Gunnarsdóttir..............202 6. Kristín Sveinbjömsdóttir..........212 Golfklúbbur Vestmannaeyja (staðan eftir 1. dag) Karlar: 1. Jóhann Pálmason...................72 2. Sindri Óskarsson................ 73 3. Böðvar Bergþórsson................74 4. Magnús Þórarinsson.............. 76 5. -6. Haraldur Júlíusson............77 5.-6. Grétar Jónatansson..............77 7. Hallgrímur Júlíusson..............78 Konur: 1. Jakobína Guðlaugsdóttir...........85 2. Ásta Finnbogadóttir..............103 3. Kristín Harðardóttir.............106 4. Kristín Einarsdóttir.............107 5. Kristjana Ingólfsdóttir..........110 Golfklúbburinn Keilir Karlar: 1. Tryggvi Traustason...............141 2. Úlfar Jónsson....................144 3. Hörður Amarson...................148 4. Björgvin Sigurbergsson...........149 5. Sveinn Sigurbergsson.............150 6. -7. Guðbjörn Ólafsson............152 6.-7. Guðmundur Sveinbjömsson........152 8. -9. Magrnús Birgisson............153 i 8.-9. Arnar Már Olafsson..............153 Sigurður Sigurðsson. Konur: 1. Þórdís Geirsdóttir...................162 2. Alda Sigurðardóttir..................165 3. Kristfn Þorvaldsdóttir...............169 4. Kristín Pálsdóttir...................172 Nesklúbbur Karlar: 1. Jón Haukur Guðlaugsson.............145 2. Gunnlaugur Jóhannsson..............148 3. Jóhannes Gunnarsson................154 4. Friðþjófur Helgason................155 5. Jón Ólafsson.......................157 6. Óskar Friðþjófsson.................158 Konur: 1. Anna Einarsdóttir..................199 2. Kristine Eide......................204 3. Jóhanna Jóhannsdóttir..............205 4. Áslaug Bemhöft................... 208 Steinunn Sæmundsdóttir. Fyrirtækja- keppni GSÍ Fyrirtækjakeppni Golfsam- bands Islands fer fram föstu- daginn 14. júlí. Keppnin fer fram á velli Keilis í Hafnar- firði. Keppt verður í tveggja manna liðum eftir Bogey- stigafyrirkomulagi og hafa keppendur fulla forgjöf. Glæsileg ferðaverðlaun verða í boði. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til GSÍ sem fyrst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.