Morgunblaðið - 08.07.1989, Side 38

Morgunblaðið - 08.07.1989, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989 Sérðu ekki stafina hér á veggnum? Gott, þá færðu ný gleraugu. Kristín G. Magnús í sýningu Ferðaleikhúsins á Light Nights. LIGHT NIGHTS Leikendur og stjórnendur Light Nights: Halldór Snorrason, Kristín G. Magnús, Matthías Arngríms- son, Hanna R. Guttormsdóttir, Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Guðrún Kristinsdóttir, Nátttröllið, Er- lendur Pálsson og Magnús Snorri Halldórsson. Haldið upp á 20 ára afmæli Ferðaleikhúsið Light nights hélt upp á 20 ára starfsaf- mæli sitt með sérstakri afmælis- sýningu síðastliðið sunnudags- kvöld. Sýningar Light Nights eru að- allega ætlaðar erlendum ferða- mönnum sem leggja leið sína til íslands á sumrin. Fjallað er um sögu og menningu íslensku þjóð- arinnar frá víkingaöld til dagsins í dag. Efninu er skipt í tuttugu og fjögur atriði sem ýmist eru leikin eða fjallað um með hjálp íjölmyndatækni. Fyrri hluti sýn- ingarinnar er um íslenskan nútíma, þjóðtrú og menningar- heim. I seinni hiutanum er m.a. fjallað um víkinga, landnám Ing- ólfs, kristnitökuna, glímu og Is- lendingasögumar. Leikin eru brot úr Eglu og sungnir íslenskir söngvar. Allt efni, að undanskild- um þjóðlagavísum og einstaka lausavísum, er flutt á ensku. Fimm leikendur taka þátt í sýn- ingunni. Það em þau Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Guðrún Kristins- dóttir, Erlendur Pálsson, Matthías Arngrímsson og Kristín G. Magn- ús. Stofnendur og eigendur ferða- leikhússins eru Halldór Snorra- son, Kristín G. Magnús og Magn- ús S. Halldórsson. íslendingar og erlendir ferða- menn fjölmenntu á afmælissýn- inguna á sunnudaginn og var ekki að sjá annað en áhorfendur skemmtu sér konunglega. Eftir sýninguna var aðstandendum hennar þakkað með lófaklappi og gjöfum. Að lokum þakkaði Kristín G. Magnús Jónasi Magnússyni, Kristni Daníelssyni, Jóni Guð- mundsyni, Herði Gunnarssyni, Kristjáni Jónssyni, Leo Monroe og Hönnu R. Guttormsdóttur sér- staklega fyrir óeigingjarnt starf í þágu Ferðaleikhússins. Þá bar hún fram þakkir til allra sem standa eða hafa staðið að sýning- um Light Nights. Sérstakar þakk- ir fengu Halldór Snorrason og Magnús Snorri Halldórsson. Að venju fara sýningarnar fram í Tjarnarbíói fimmtudags-, föstu- dags-, laugardags-, og sunnu- dagskvöld kl. 21. Tekið á móti gestum á sunnudagskvöldið. COSPER Ásta Hannesdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir, Lára Vig- fusdóttir, Svava Alexandersdóttir og Sigríður Jóhannesdóttir I078Z ©PIB MANNAMÓT Fermingarsystkin hittast Helgina 19.-21. maí komu fermingarsystkin úr Vestmannaeyjum, fædd árið 1929, saman og gerðu sér glaðan dag. Dagskráin hófst með grillveislu föstudagskvöldið 19. maí en daginn eftir var farið í Náttúrugripasafnið og Byggðarsafnið. Þá var einnig litið við í barna- skólanum. Um kvöldið var samsæti í Akóges. Þar var glatt á hjalla, súngið og dansað langt frameftir nóttu. A sunnudeginum var farið til messu í Landakirkju. Alls tóku 65 manns þátt í dagskránni, 40 fermingarsystkin og 15 makar. Þátttakendur komu alls staðar að af landinu. Undirbúningur og framkvæmd mótsins þótti takast einkar vel.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.