Morgunblaðið - 08.07.1989, Síða 44

Morgunblaðið - 08.07.1989, Síða 44
44 osoi 'i' c oTr vriiíiri/ iioif, fu/:\''59r’/i MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JULI 1989 Þetta er mynd af konunni minni. Má ég biðja um Iyf- ■seðil fyrir blásýru? Ég var heppinn að þú gleyptir ekki mig heldur konuna mína. HÖGNI HREKKVlSI Hvers vegna þessi linkind? Til Velvakanda. Fyrir skömmu birtist frétt í Morgunblaðinu þar sem sagt var frá tveimur Belgum sem ekki virtu íslensk umferðarlög og óku þung- um bíl um hálendið svo víða urðu skemmdir á vegum. Lögreglan kom auga á þá úr flugvél og svo voru þeir eltir upp á Hveravelli þar sem þeir voru staddir. Eftir allt þetta vesen þurftu þeir hins vegar aðeins að greiða þijú þúsund krónur hvor til að vera lausir allra mála. Er þetta ekki full vel slopp- ið? Ökumaður sem virðir ekki stöðvunarskyldu þarf að greiða miklu hærri sekt. Kostnaður lög- reglu vegna þessarar handtöku hlýtur að hafa verið mikill og þar sem um ítrekað brot var að ræða er ekki hægt að afsaka mennina með því að þeir hafi ekki vitað betur. Það kemur líka fram í frétt- inni að greinileg umferðarmerki úm þungatakmarkanir væru við upphaf leiðarinnar. Oft virðist sem erlendum ferða- mönnum líðist ýmislegt hér sem landsmönnum sjálfum er forboðið. Erlendir ferðamannahópar tíðka það mjög að ferðast hér um á eig- in vegum og hafa þá allan mat með sér frá heimalandinu. Þeir hafa sjálfsagt kynnt sér verðið á Manstu alltaf eftir því að mannanöfn fallbeygjast eins og önnur nafnorð í íslensku? Ferðu rétt með nöfn vina þinna? £r 7 Morgunbl«ðið/Kh«yán I/ögreglan á Blönduósi gengur að bll Belganna. Eins og sjá má höfðu Belgamir áð á HveravöUum Þyrla flaug með tvo lögreglumenn & Hveraveili: Tveir Belgar hándteknir menn frá Blönduósi inn á hálendið I fymnótt. völlum þar sem tveir Belgar voru handteknir fynr að aka ólög- lega um hálendið en ÖU umferð um það er nú bönnuð. Uigreglan hafði stöðvað Belgana fyrr um daginn og snúið þeim við en þá voru þeir komnir að Sandánni norðan frá. Þeir yirðast þá hafa keyrt bíl sinn suður og farið þaðan aftur inn á Kjöl. Þeir voru á stórum yfirbyggðum vörubíl sem markaði djúp lör Ijarðveginn. Er Belgamir voru stöðvaðir 1 varðstjóri á Blönduósi 1 enirlitsflug fyrra sinnið voru þeir fluttir til á Iftilli einshreyfilsvél suður eftir sýslumannsins á Blönduósi scm Kili. Hann kom þá auga á vðrubfl veitti þeim áminningu. Sfðan var Belganna við Hveravelli. Þekkti þeim sleppt. Nokkrum tfmum sfðar hann bflinn aftur vegna fyrri af- fór Þór Gunnlaugsson lögreglu- skipU lögreglunnar af þessum skílti sem bannar alla bflaumferð um þessar slóðir. Lögreglan hafði samband við Landhelgisgæsluna og fór TF-SIF f loftið klukkan 23 um kvöldið og sótti fyrst lögreglu- mennina á Blönduós en siðan var haldið til Hveravalla. Þór Gunnlaugsson varðstjóri segir að Belgamir hafi I íyrstu ekki viljað koma mcð lögreglunni þar sem þeir fengu ekki að hafa annað af búnaði sfnum með en voru færðir til sýslumanns í annað Jón Isberg sýslumaður segir að hann hafi gert sátt við Belgana þannig að þeir borguðu 3.000 króna sekt hvor. Þar með lauk málinu af hans hálfu. Kjalvegur verður opnaður formlega f dag. það er að sunnan. og gcta Bclgamir þá væntanlega sótt bfl sinn og búnað. matvælum hér og spara sér stórfé með þessu. Ætli íslenskur ferða- maður hins vegar að hafa með sér eina ósoðna pylsu til landsins er hún umsvifalaust tekin af honum með óbótaskömmum og liggja háar sektir við. Þarna virðist gæta lítils samræmis svo vægt sé til orða tekið. J.A. Kópavogshæli: Komast ekki leiðar sinnar Til Velvakanda. Allir þurfa að komast leiðar sinnar, einnig fatlaðir! Á Kópavogs- hæli búa 150 fatlaðir einstaklingar. Vinnan er þeim mikils virði. í frítímum sínum hafa þeir kost á að nýta sér glæsilega sundaðstöðu staðarins svo og æfingar á vegum íþróttafélagsins, einnig er tóm- stundalífið mjög öflugj;. Ekkert er til fyrirstöðu, vinnuglatt starfsfólk, áhugasamt heimilisfólk og eins og fyrr er getið góð aðstaða. En galli er á gjöf Njarðar. Þó allt ofantalið sé til staðar dugir það ekki til. Hver yrði ekki þreyttur á að brölta með hjólastóla langar vegalengdir yfir stórgrýti, aur, framhjá óhreyfð- um vinnuvélum og yfir misfellur. Af þessum sökum eru tilboðin oft ekki nýtt. Oftar en ekki þarf að kalia til sjúkrabíl eða aðrar þjónustubifreið- ar. Ríkjandi er mikil óánægja með- al ökumanna þeirra og hefur verið gripið til mótmæla sem höfðu ekki nægjanleg áhrif. Starfsmenn Kópa- vogshælis eru mjög óánægðir með gang mála þar sem bifreiðar þeirra verða illilega fyrir barðinu á gijót- kasti og öðru hnjaski á vegunum. Ekki má gleyma að nefna þá líkam- legu áreynslu sem lögð er á starfs- fólk við að komast á milli staða. Kópavogshæli stendur fyrir mik- illi hátíð vikuna 16,—22. júlí og er hún haldin á lóð Kópavogshælis. Margir góðir gestir eru væntanlegir og vonumst við til að geta verið stolt af heimili skjólstæðinga okkar. Stjórn starfsmannafélags Kópavogshælis. Yíkverji skrifar etta er búið að vera óttalega dapurlegt sumar það sem af er hér á suðvesturhorninu að minnsta kosti. Það þýðir að vísu ekkert að nefna þetta við veður- fræðingana, þá vísu menn, því að þeir snúa bara upp á sig og byrja að ausa yfir mann veðurfarsskýrsl- um síðustu áratuga sem sanna að í rauninni sé þetta hreint ekkert 'afleitara en venjulega, menn séu bara svo gleymnir á veðrið. Og líklegast hafa þessir herrar lög að mæla, því er nú verr. En gróðurinn hagar sér undar- lega hér syðra allt um það. í görð- um í grennd við þann Víkveijann sem hér stýrir penna í dag fer því til dæmis fyarri að aspirnar séu með hýrri há og hið sama er að segja um aumingja reyninn. Hann sýnist meira að segja á stöku stað alveg við að gefa upp andann. xxx Þetta hlýtur að vera tíðin hvað sem öllum fræðingum líður og hvað sem þeir derra sig. Trjárækt- arráðunautur Víkveija kveðst raun- ar viss um að dapurlega upplitið á mörgum fyrrnefndum trjám hér á höfuðborgarsvæðinu eigi rsetur í langtum of löngum Gg leiðinlegum vetri. Hann segir um vorið að það hafi eiginlega aldrei skiiað sér og um sumarið að það hafi verið svo seint á ferðinni og þá svo lítið í það varið að til dæmis aspirnar sem fyrr eru nefndar og reyniskvölin hafi eiginlega alls ekki fengið tíma til þess að laufgast almennilega og koma sér í ærlegan sumarskrúða. xxx Hrakspámar um hnignun fugla- lífs á Tjörninni með tilkomu ráðhússins sýnast alls ekki ætla að rætast. Eins og menn muna eflaust, vó það einmitt þungt í huga þeirra, sem voru sárir útaf staðarvalinu, hvernig hinir fiðmðu ábúendur Tjarnarinnar hlytu óhjákvæmilega að leggja á flótta. En það er nú eitthvað annað. Svanirnir og gæs- irnar og endurnar með una sér augljóslega hið besta í öllu atinu. Ekki er samt laust við að sumum finnist sem kríunni hafi fækkað en aðrir vilja hafa fyrir satt að hún forðist bara þann hluta Tjarnarinn- ar þar sem hinir tröllvöxnu kranar ráða ríkjum. Það kynni samt líka að vera vargurinn sem eins og fram kom hér í dálkunum núna í vikunni hefur fjölgað allískyggilega og heij- ar ekki síst fast á umrætt svæði. - Með sama áframhaldi fer það að verða útí hött að tala um að fara með börnin niður að Tjörn að gefa öndunum. Viðkvæðið verður senn: Eigum við ekki að skjótast í bæinn, börnin smá, að fóðra varginn. xxx Stoðir gáfu sig í bátskrifli um daginn, sem byijaði þar með að liðast í sundur, að sögn eins fréttamanns ríkissjónvarpsins, og skömmu síðar birtist svo fræðingur nokkur á skjánum í boði sama fyöl- miðlis og tók til við að fræða okkur um „líkama“ ákveðinnar fiskteg- undar. Þetta verður með öðrum orðum skrýtnara og skrýtnara með bless- aða íslenskuna og um leið verða fréttirnar ótrúlegri og ótrúlegri. Víkveiji spurði gamlan sjómann sem síðan gerðist ungur rithöfundur og spurði hvort hann kannaðist við fyrrnefnd fyrirbæri í fyrrnefndu samhengi, þ.e. stoðirnar og líkam- ann, og hann bað guð að hjálpa sér. Okkur kom saman um að frétta- maðurinn hefði betur talað um „bönd“ til dæmis'og fræðingurinn um „bol“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.