Morgunblaðið - 08.07.1989, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 08.07.1989, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989 47 TENNIS/WIMBLEDON Stefan Edberg fagnar sigri en John McEnroe liggur kylliflatur í leik þeirra í gær. Edberg mætir Boris Beck- er eða Ivan Lendl í úrslitum á morgun. Meistarinn sá um „gamla manninn“ Edberg sigraði McEnroe í undanúrslitum MEISTARINN á Wimbledon, Stefan Edberg frá Svíþjóð, tryggði sér rétt til að leika til úrslita er hann sigraði „gamla manninn" á Wimbledon, John McEnroe, 7:5,7:6 og 7:6 í spennandi leik. Óvíst er þó hver andstæðingur Edbergs verður, því fresta varð viður- eign Ivans Lendls og Boris Beckers. Þeir mætast í dag og þá kemur í Ijós hvor þeirra etur kappi við Edberg. Leikurinn í gær var spennandi og skemmtilegur, þrátt fyrir að regn hafi sett strik í reikning- inn. Stöðva varð leikinn eftir tvær hrinur, sem Edberg hafði unnið,. Eftir þriggja tíma hlé hófst leikur- inn aftur og Edberg sigraði í loka- hrinunni eftir spennandi viðureign. Edberg lék af miklu öryggi, þrátt fyrir að taugamar hafa ekki verið uppá það besta í lokin. Hann fékk mikla hjálp frá McEnroe sem fór mjög illa með uppgjafir sínar þegar mest reið á. „Ég var smeykur eftir hléið og vissi að ég þurfti að einbeita mér vel ef ég ætlaði að ná að vinna hann strax,“ sagði Edberg. „Hann er frábær leikmaður og hefur sann- að það. Það leikur sér enginn að því að vinna hann á grasi,“ sagði Edberg. McEnroe var að vonum vonsvik- inn eftir leikinn. „Uppgjafir mínar vom slæmar og ég veit að ég get gert betur,“ sagði McEnroe. Úrslitaleikur karla fer fram á morgun en í dag mætast Martina Navratilova og Steffi Graf í úrslita- leik í kvennaflokki. KORFUBOLTI Franskt liðáeft- irPétri étur Guðmundsson, sem lék Im með San Antonio Spurs, í NBA-deildinni í vetur, mun á næstu dögum eiga fund með forráðamönnum 1. deildarliðs í Frakklandi. Liðið hefur áhuga á að fá Pétur til liðs við sig og mun fylgjast með honum á sum- armóti í Los Angeles. Þá hafa Los Angeles Lakers og Mil- waukee Bucks einnig lýst yfir áhuga á að fá Pétur í sínar raðir. „Eg mun taka þátt í móti í Los Angeles í sumar og þá mun þetta líklega skýrast. Mörg lið hafa áhuga en vilja fá að sjá mig spila áður en gengið verður til samninga. Það em helst lið Milwaukee og Los Angeles sem koma til greina, enda vantar bæði lið miðheija. „Frakkarnir koma hingað og fylgjast með mótinu. Franskur körfuknattleikur hefur vaxið á undanfömum ámm og ég gæti vel hugsað mér að leika þar,“ sagði Pétur. WIMBLEDON UNDANÚRSLIT: Einliðaleikur karla: 2-Stefan Edberg (Sviþjóð)—5-John McEnroe (Bandaríkin)7:5 7:6 (7:2) 7:6 (7:5) 1- Ivan Lendl (Tékkóslóvakía)—3-Boris Becker (V-Þýskaland)........frestað Tvíliðaleikur kvenna: 2- Larisa Savtsjenkó/Natalía Zvereva (Sovétr.)—N. Provis/E. Reinach (S-Afr.).6:2 6:2 3- J. Novotna/H. Sukova (Tékkósl.)—1-M. Navratilova/P. Shriver (Bandar.) 7:6 (7:4) 7:5 Tvíliðaleikur karla: 1-Rick Leach/Jim Pugh (Bandar.)—Javier Frana/Leonadro Lavalle (Mexíkó).6:3 6:3 6:4 J. Fitzgerald (Ástr.)/A. Jarryd (Svíþj.)/K.Flach/R. Seguso (Bandar.).frestað KNATTSPYRNA / 3. DEILD ÍK komið á toppinn Með 3:0 sigri sínum á Hvera- gerði skaust ÍK á topp A- riðils 3. deildar. Höfuðkeppinautar liðsins, Þróttur, Grindavík og Grótta, töpuðu allir stigum. Grindavík og Þróttur gerðu jafn- tefli 1:1 í Grindavík og Grótta beið óvæntan ósigur fyrir Reyni Sand- gerði, 0:2. Af öðmm leikjum í riðlin- um er það að segja, að Leiknir sigr- aði Aftureldingu 3:0 og BÍ burstaði Víkverja 6:1. ÚRSLIT 3. DEILD: ÍK—Hveragerði............... 3:0 Hörður Magnússon, Reynir Björnsson, Steindór Elísson. Grindavík—Þróttur R...........1:1 Páll Bjömsson — Óskar Óskarsson. Leiknir R,—Afturelding........3:0 Jóhann Viðarsson, Ingvar Hannesson, Sig- urpáll Scheving. Víkveqi—ÍB....................1:6 Jakob Haraldsson — Svavar Ævarsson 3, Ömólfur Oddsson, Haukur Benediktsson, Pétur Jónsson. Grótta—Reynir S...............0:2 3. DEILD A-RIÐILL Fj. leikja U J T Mörk Stig ÍK 8 6 1 1 14: 6 19 ÞRÓTTUR R. 8 5 2 1 22: 8 17 GRINDAVÍK 8 5 1 2 21: 8 16 GRÓTTA 8 4 2 2 15: 14 14 Bí 8 4 0 4 14: 10 12 VÍKVERJI 8 3 1 4 10: 20 10 LEIKNIRR. 8 3 0 5 13: 17 9 HVERAGERÐI 8 2 2 4 17: 17 8 REYNIRS. 8 2 0 6 11: 23 6 UMFA 8 1 1 6 11: 25 4 4. DEILD: Stokkseyri—Fyrirtak...............2:3 Sigurður IUugason, Róbert Jónsson — Jör- undur Jörandsson 2, Gunnar Valsson. Ármann—Baldur.....................3:1 Konráð Árnason 2, Gústaf Alfreðsson — Árni Sæmundsson Skallagrímur—Léttir...............8:1 Valdimar Sigurðsson 3, Sigurður Már Harð- arson 2, Snæbjöm Óttarsson 2, Sigurður Halldórsson — Bjami Sigurðsson. Hafiiir—Árvakur...................0:1 — Friðrik Þorbjörnsson. 4. DEILD C-RIÐILL Fj. leikja u J T Mörk Stig ÁRMANN 7 5 1 1 21: 6 16 SKALLAGR. 6 5 O 1 25: 4 15 ÁRVAKUR 7 4 1 2 12: 12 13 HAFNIR 7 2 1 4 12: 12 7 VÍK. ÓL. 5 2 1 2 6: 9 7 LÉTTIR 7 1 1 5 9: 30 4 BALDUR 5 0 1 4 6: 18 1 UMSE-b—S.M.............•••....1:1 Þröstur Guðmundsson - Örn Orlygsson. FRJALSAR IÞROTTIR / STIGAMOT Kennslubókar- dæmi hjá Aouita Sigraði örugglega í míluhlaupinu SAID Aouita er síöur en svo af baki dottinn, og í gær sigr- aði hann í mfluhlaupi á stiga- mótinu í Edinborg. Sigur Aouita var sagður vera kennslubókardæmi um það, hvernig sigra ætti í hlaupi sem þessu. í síðustu beygjunni geystist hann fram úr Joseph Chesire, frá Kenýa, sem hóf lokasprettinn of snemma, og átti ekki nóg eftir til að fyigja Marokkómanninum í markið. Aouita hafði verið gagnrýndur töluvert fyrir þátttöku sína í míluhlaupi í Osló um síðustu helgi, en nú sýndi hann og sannaði hvað í honum bjó og hljóp á tímanum Um helgina Laugardagur: 3. d. B Magni-KS..........Kl. 14. 3. d. B Þróttur—Reynir....Kl. 14. 4. d. A Augnablik—Njarðvík.Kl. 14. 4. d. B Geislinn—Emir....Kl. 14. 4. d. B Snæfell—Fjölnir..Kl. 14. 4. d. D Hvöt-TBA..........Kl.14. 4. d. D Neisti—HSÞ.b......Kl.14. Sunnudagur: 1. deild Valur-KA.........Kl.20. 1. deild ÍBK—Fýlkir.......Kl. 20. 1. deild FH—Víkingur......Kl.20. Bik. kv. Valur-KR.........Kl.14. Bik. kv. ÍA-UBK...........Kl.14. 2. deild ÍR—Tindastóll....Kl.20. Mánudagiu-: 1. deild Fram-ÍA..........Kl.20. 1. deild Þór-KR...........Ki. 20. Bik. kv. KA—Stjaman.......Kl. 20. 2. deild UBK—Selfoss......Kl.20. 2. deild ÍBV—Stjaman......Kl.20. 2. deild Viðir—Einhetji...Kl. 20. 3. d. B Austri—Huginn....Kl. 20. 3:58,80 mínútum. Það átti heldur ekki fyrir Kenýamanninum Robert Kibet að liggja, að sigra í sínu hlaupi, því hann varð einungis Jjórði í 800 metra hlaupi á 1:46,18 mínút- um. Ólympíumeistarinn í 400 metra hlaupi, Steve Lewis, varð fyrir óvæntum ósigri, þegar samlandi hans, Tom Simon, komst fram úr honum við marklínuna og varð 14 sekúndubrotum á undan honum í mark. Margir snjallir fijálsíþróttamenn mættu ekki til leiks í Edinborg. Þeir munu verða þó flestir með í Nice í Frakklandi á mánudaginn og er búist við spennandi keppni þar. Mýmörg færi fóru forgörðum í markalausum jafnteflisleik Leifturs og Völsungs í gærkveldi. Var alveg ótrúlegt að sjá til leik- manna, hvernig þeir Frá Helga klúðruðu hveiju Jónssyniá dauðafærinu á fæt- Olafsflrði. ur öðm> 0g voru Leifturmenn alveg sérlega mistækir. Of langt mál yrði að telja upp öll þau færi sem liðin fengu, en ekki verður hjá þvi komist að nefna Said Aouita sigraði í míluhlaupi í Edinborg. tvö þeirra. Á 40. mínútu áttu bræð- umir Hafsteinn og Sigurbjöm Jak- obssynir mjög fallegt samspil, þeg- ar þeir skölluðu á milli sín inni í vítateig Völsunga. Sigurbjöm lauk svo sókninni með því að þruma í hliðarnetið. í næstu sókn fengu Völsungar sitt langbesta færi í leiknum, þegar Hörður Benónýsson gaf hárnákvæmt á Jónas Hallgrímsson, sem hafði ekki við neinn að kljást nema Þorvald í markinu, sem varði laust skot hans. KNATTSPYRNA / 2. DEILD Jafnt á Ólafsf irði Mm FOLX ■ CHICAGO tarfamir í körfu- knattleiknum hafa rekið þjálfara sinn, Doug Collins, og segja ástæð- una vera ólíkar hugmyndir um að- ferðir. Tarfarnir sigmðu í 47 af 82 leikjum sínum á síðasta keppn- istímabili og komust alla leið í úr- slit austurdeitdarinnar. Það þurfti svo sjálfa meistarana, Detroit Pist- ons til að slá þá út úr úrslitakeppn- inni. Þessi annars ágæti árangur Coilins með liðið, kom ekki í veg fyrir að hann þyrfti að taka pokann sinn. H ÚRÚGUAY vann stórsigur, 3:0, á Chile í Suður-Ameríku- meistarakeppninni í knattspyrnu. Ruben Sosa, Antonio Alzamendi og Enz Francescoli skomðu mörk meistarana, sem hafa fjögur stig í öðmm riðli eins og Ekvador, sem gerði jafntefli, 0:0, við Bólivíu. Argentína hefúr þrjú stig, en hefur leikið einum leik minna. ■ CLIVE AUen hefur nú fallist á að yfirgefa franska liðið Borde- aux, sem hann hefur leikið með að undanförnu og fara til Manchester City, sem leikur í 1. deildinni ensku næsta keppnistímabil. Kaupverðið er sagt vera ein milljón sterlings- punda. Allen hefur á undanförnum áram þvælst svolítið á milli liða, en stjarna hans reis hæst þegar hann var kosinn knattspymumaður árs- ins í Bretlandi eftir að hann hafði skorað 49 mörk fyrir Tottenham 1986-87. ■ EDWIN Moses, heimsmethafi og margfaldur heims- og ólympíu- meistari í 400 m grindahlaupi, seg- ir að meira sé talað en framkvæmt í baráttunni gegn ólöglegri lyfja- notkun íþróttamanna. Moses ætlar að taka sér frí frá kepnni í sumar og helga sig þessari baráttu. Einnig ætlar hann að nota tímann til að Ijúka háskólaprófi í viðskiptafræð- um. Hann segist hins vegar ákveð- inn í að mæta aftur til leiks á hlaupabrautina næsta sumar, þrátt fyrir að hann verði þá orðinn 35 ára. ■ HEIMIR Karlsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Fram í handknattleik kvenna. Þá er Ingunn Bernótusdóttir, ein af lykilmönnum Framliðsins, hætt við að hætta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.