Morgunblaðið - 14.07.1989, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.07.1989, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989 Dúett fyrir þrjá Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Joan Barfoot: Duett for tre. Norsk þýðing: Brit Jahr. Útg. Norsk Gyldendal 1988. Joan Barfoot er kanadískur rit- höfundur, fædd 1946 og starfaði við blaðamennsku lengi vel, áður en hún sneri sér að því að skrifa bækur. Fyrsta bók hennar, Abra, sem kom út fyrir röskum tíu árum, heitir Abra og mér skilst að sú bók hafi fengið virt kanadísk bók- menntaverðlaun. Næsta bók hennar er Dancing in the Dark, sem kom út 1982, og með þeirri bók þótti Joan Barfoot festa sig í sessi sem meiriháttar rithöfundur og sú bók og síðan sú sem hér er að vikið verið þýddar á ýms tungumál. Hér segir frá konum þriggja kyn- slóða, ættmóðurinni Aggie sem er áttræð, dóttur hennar Jane sem er að verða sextug og við sögu kemur einnig, en minna þó, dóttir Jane, Frances. Þegar sagan hefst búa þær mæðgur Aggie og Jane saman. Aggie hefur verið mikil kjamakell- ing á yngri árum, hún varð ekkja eftir „kennarann“, eiginmann sinn, þegar Jane var fimm, sex ára og dreif sig þá í að koma upp bakaríi og hefur barist áfram með kjafti og klóm og staðið sig eiginlega prýðilega að flestu leyti. Nema því að hún hefur ekki getað elskað Jane, dóttur sína, sem er vitanlega hið versta mál og hefur sett sitt mark á Jane alla tíð. Þó tekur ekki betra við hjá Jane, henni gengur mjög erfiðlega að elska sína dóttur. Aftur á móti hafa tekist miklir kærleikar milli Aggie gömlu og dótturdótturinnar, Frances, og henni sýnir Aggie alla þá hlýju og þann áhuga sem hún hafði ekki handa Jane á sínum tíma. Móð- ur/dóttursambandið sem sagt á fullu og það í meira lagi flókið. Þær Aggie og Jane eru samt dæmi um hina kúguðu konu, hvor á sinn máta, þótt þær hafi báðar reynt að leysa það, Aggie með bak- Joan Barfoot aríinu og Jane með því að afla sér starfsmenntunar. Samt er það varla fyrr en með Frances að þær skynja báðar hvað hún hefur allt öðruvísi stjórn á lífi sínu en þær. Báðar eru á vissan hátt afbrýðisamar hvor út í aðra, Aggie og Jane, og báðar eru þær haldnar sektarkennd, vegna tilfinningasljóleika í hvors annars garð og ákveðinnar beiskju sem þær skilja að hefur komið í veg fyrir að þær nái saman. Aggie verður fyrir þeirri reynslu fljótlega að hún er farin að væta rúmið á nóttunni og hefur ekki leng- ur stjórn á þvaglátum. Niðurlæg- ingartilfinningin sem þessu fylgir hjá henni er óbærileg og viðbrögð Jane og viðbjóður á þessu, þótt hún skilji að móðirin getur auðvitað ekki að þessu gert, eru á sinn hátt ósköp eðlileg. En á elliheimili fer hún ekki, hvað sem Jane segir. Enda spurning um hvort Jane muni geta afborið þá einsemd sem því fylgdi, þrátt fyrir allt. Þessi bók segir á mjög læsilegan og trúverðugan hátt frá móð- ur/dóttursambandinu og höfundur leitar engra billegra lausna heldur vinnur þetta verk af mikilli alúð og listrænum tilþrifum. Þegar bókin endar vitum við ekki, hvernig þær hafa hugsað sér að leiða málið til lykta, en okkur grunar hvernig þær muni gera það enda virðist það rök- rétt niðurstaða bókarinnar. Togstreita nútí mahj ónanna Aase Foss Abrahamsen: Alltid de andre Útg. Norsk Gyldendal 1988 Getur það gengið upp að sameina þátttöku í atvinnulífi umönnun bams og hafa einnig tíma til að njóta ástarinnar. Það er út af fyrir sig ágæt spurning, sem æ fleiri ungir foreldrar hafa orðið að leggja fyrir sig á þessum síðustu tímum og er viðfangsefni Aase Foss Abra- hamsen í þessari nýjustu bók henn- ar. Þar segir frá tveimur metnaðar- gjörnum ungum læknum, Birgitte og Geir sem hefur vegnað vel í sambúð og starfi, en það er komið að því að þau velta fyrir sér hvort þau eigi að eignast bam. Og ef þau eignast barn, hvemig ætla þau að fara að svo að hvorki bamið, sam- skipti þeirra innbyrðis og vinnan bíði skaða af. Er ekki hægt að skipuleggja þetta svo vandlega að alla þessa þætti megi sameina? Þau ganga að því með oddi og egg, að búa til barn og einnig að ræða um framtíðarmálin og hvernig þau hugsa sér að leysa þau jafnóðum og stundum fyrirfram. Birgitte er um þessar mundir falin aukin ábyrgð í sínu starfi, en hún fæst við meðferð á krabbameinssjúkling- um. Geir skiptir um starf til að liðka fyrir, því að sýnilegt er að Birgitte vill ekki gera það. Hún sinnir sínu starfí af mikilli ákefð og það vottar fyrir beiskju hjá henni vegna þess að henni fínnst eiginmaðurinn ekki sýna starfí hennar nægilegan áhuga. Sjálf er hún ekki teljandi áhugasöm um hans glímu við nýtt starf. Aase Foss Abrahamsen Þegar barnið fæðist, heilbrigður drengstauii, skipta þau svo með sér verkum, að fyrst er Birgitte heima í hálft ár að sinna baminu og síðan kemur röðin að Geir. Þetta gengur allt mætavel, en svo er árið liðið og bæði eru komin í sín störf á ný. Þá fyrst fer vitanlega að reyna á hvernig og hvort þetta getur geng- ið upp. Þótt allt hafi verið vandlega und- irbúið að því er þau héldu er samt ýmislegt í samskiptum þeirra sjálfra og afstöðu gagnvart barni og um- hverfi sem kemur þeim á óvart. Af hveiju virðast þau ekki ráða við þetta fyrst aðrir geta það. Og hversu alvarlegir em þeir brestir sem koma í hjónabandið eftir að þessi togstreita hefst. Við þessu gefur höfundur ekkert algilt svar, enda varla til. En bókin er fallega og vitlega skrifuð og áreiðanlega góð lesning fyrir unga foreldra og raunar alla þá sem hafa áhuga á mannlegum samskiptum. Skapgerðir mikilmenna ________Myndlist Bragi Ásgeirsson Það kemur fyrir að hingað á útskerið rekist óvænt einstæðar sýningar, þannig að það þurfi jafnvel að bjarga þeim fyrir horn um húsrými. Undirbúningur lítill ef nokkur og sá er fjallar um þær fær engin gögn upp í hendurnar í formi sýningarskrár og annarra heimilda. Slíkar sýningar vilja hljóta minni aðsókn en efni standa til, því að stundum gleymist einnig að vekja nægilega athygli á þeim, og margur áttar sig fyrst þá, er þær eru afstaðnar. Vonandi hlýtur farandsýning á skapgerðarljósmyndum ýmissa merkra manna aldarinnar eftir hinn magnaða ljósmyndara Yo- usuf Karsh ekki slík örlög, en henni hefur verið komið fýrir í eystri gangi Kjarvalsstaða og mun standa yfir út þennan mánuð. Hinn heimskunni kanadíski ljósmyndari er fæddur 23. desem- ber 1908 í Marden í tyrkneska hluta Armeníu, sem var á hálend- inu. Á barnsaldri upplifði hann fjöldamorð Tyrkja á Armenum 1915-18, og ástandið leiddi til að fjölskyldan hrökklaðist til Sýr- lands árið 1922. Tveim árum seinna sendu foreldrar drengsins hann til Kanada til að tryggja öryggi hans. Hann var skírður til rómversk-kaþólskrar trúar og til marks um ástandið í þessum hluta Armeníu á þessum voðalegu tímum þá varð hann að hafa vas- ana fulla af steinum á leið í skólann til að veijast árásum jafn- aldra sinna múslímanna. Arabíska var mál hans, en hann kunni lítils- háttar í ensku og frönsku. Þegar hann kom til Halifax tók frændi hans, George Nakash, á móti hon- um á hafnarbakkanum, en heim- ili hans var í Sherbrooke, Quebec. Ósk hins unga Armena var að stunda læknisfræði en hann fékk fljótlega áhuga á ljósmyndun og dvaldi löngum á ljósmyndastofu frændans. Eftir aðeins sex mán- aða skólagöngu gaf hann læknis- fræðina upp á bátinn til að helga sig alfarið ljósmyndafaginu og þar með voru örlög hans ráðin, og hann er enn virkur í faginu kom- inn á níræðisaldur. Sýningin er hingað komin fyrir tilstuðlan aðila eins og Merill Lynch, Flugleiða, Seðlabankans og Víkingsprents, en hún var upprunalega sett upp í tilefni átt- ræðisafmælis listamannsins á síðasta ári og hefur vafalítið flakkað víða, en einstakar myndir Karsh eru fastagestir á ljós- myndasýningum virtustu safna austan hafs sem vestan. Svo þekktur er Karsh í heimin- um fyrir einstakar myndir sínar, að flestir munu kannast við eina og eina, og enn fleiri eru góðkunn- ingjar allra upplýstra manna svo sem myndimar af Churchill (1941), Hemingway (1957), Sibel- ius (1949) svo og Rainer fursta og Grace Kelly (1956). Yousuf Karsh hefur verið vígður því að leita uppi mikil- menni samtíðarinnar og taka af þeim skapgerðarmyndir, og hér er hann alveg í sérflokki um Iist- ræna og djúprista útfærslu. En af hveiju mikilmenni, spyr nú einhver, og er það ekki smjað- ur upp á við? Nei, svo held ég alls ekki, en á tímum, er hið öfuga hefur verið mjög svo í tízku, er mikilsvert, að einhver skili til framtíðarinnar þessum þætti mannlífsins. Og hér er í fæstum tilvikum um að ræða fólk, sem fæðst hefur til metorða, heldur öðm fremur fólk, sem hefur unn- ið sig upp til metorða með snilli sinni á hinum ýmsu sviðum mannlífsins og þá einkum vísinda og lista — eins konar andlegir risar tímanna. Og þó væra myndirnar einung- is með almennt heimildagildi, ef ekki kæmi einnig til, að höfundinn má einnig telja í hópi þessa fólks fyrir listræn tök sín á viðfangsefn- inu. Hann hefur í mörgum tilvik- um töfrað fram skapgerð þess á þann hátt, að sá, er lítur mynd- ina, skynjar um leið, að þannig hljóti persónuleiki viðkomandi að vera og meðtekur þennan skiln- ing, sem svo um álla framtíð greipist í minni hans. Þetta er mikil list, ogliér heima höfum við fengið nasasjón af henni í gegnum ljósmyndir okkar ágæta Jóns Kal- dals, sem-þó sérhæfði sig engan veginn á stórmennum, hvorki á lands- né heimsvísu. Sjálfur skilgreinir Yousuf Karsh mikilmenni á þennan veg: „Ég er spurður æ oftar á síðustu áram, hvort ég haldi, að nú á dögum séu uppi jafn mörg mikil- menni til að ljósmynda og á árum áður, hvort persónur á borð við Churchill og Einstein fyrirfinnist nú á tímum andhetjanna. Þegar mynd mín af Winston Churchil! árið 1941 Iukti upp heiminum fyrir mér, átti ég arf- leifð hálfrar aldar til að vinna úr. Á stríðsáranum og í Englandi einu tók ég á stuttu tímabili myndir af 42 alþjóðlegum leiðtogum, og skömmu síðar ljósmyndaði ég álíka fjölda í Washington. Eftir styijöldina vora enn margar per- sónur, sem höfðu verið alkunnar árum saman. Fólk á borð við Si- belius, Helen Keller, Schweitzer eða Casals hefur áunnið sér var- anlega frægð. En ég held ekki, að fortíðin eigi neinn einkarétt á mikilmennum, því að slíkir fram- úrskarandi persónuleikar eur allt- af á meðal vor. Né heldur er enn hægt að dæma um þá, sem enn era ungir. Ég veit það eitt, að leit mín heldur áfram. Leit mín hefur nú staðið í meira en hálfa mannsævi, leit mín að mikilleika andans hefur knúið mig til að Ieggja mig allan fram, leita fullkomleikans, enda þótt ég viti að hann næst aldrei. Leit mín hefur fyllt mig mikilli gleði, þegar ég hef fundið eitt- hvað, sem nálgaðist hið full- komna. Þetta hefur haldið mér ungum í anda, djörfum og síleit- andi og alltaf með það í huga, að hugur og sál era hið eina og sanna Ijósop myndavélarinnar.“ Og Cornell Capa, fram- kvæmdastjóri alþjóðamiðstöðvar ljósmyndarinnar (Intemational Center of Photography) farast þannig orð um ljósmyndir Yousuf Yousuf Karsh Karsh: „Shakespeare gæti hafa haft Karsh í huga, þegar hann samdi þessar línur í Þrettánda- kvöldi: ... „en óttast þú ekki mikil- leikann, sumir fæðast miklir, sum- ir öðlast mikilleika og sumir era knúnir til mikilleika." Eitt er víst, það er okkur mikið lán, að síðustu hálfa öld hefur Yousuf Karsh ljós- myndað svo marga af þeim mönn- um og konum, sem mótað hafa okkar tíma og um leið líf okkar allra. Skarpt innsæi hans, ásamt fullkomnu valdi hans á lýsingu og samsetningu, hafa gert honum kleift að gera þessar snilldarlegu, innihaldsríku ljósmyndir, sem veita áhorfandanum djúpa innsýn í persónuleika fyrirmyndanna. Alþjóða ljósmyndamiðstöðin er hreykin af því að færa fram þessa af- mælissýningu, sem Karsh hefur undir- búið af alúð, og við þökkum Merril Lynch fyrir að gera þessa sýningu mögulega.“ Eins og Kaldal hélt Karsh tryggð við sömu tæknina og tók myndir á sömu filmustærð- ina, 18x24 sm, og við svipuð ljósskil- yrði. Mjög einfalt, en einmitt með þessari fábrotnu tækni töfr- aði hann fram mis- munandi skapgerð- areiginleika með fjölþættri • snilld sinni líkt og snilling- ar málaralistarinn- ar, sem alla tíð beittu kannski sömu aðferðinni, þótt engin mynd þeirra yrði eins. Er ekki leikkonan snjalla, Anna Magnani, Ijóslifandi komin í aust- ursalinn, eða hin sérstæða fegurð Audrey Hepburn? Stjórnmála- maðurinn kæni Pierre Elliott Tradeau, byggingameistarinn óviðjafnanlegi Ludwig Mies van der Rohe, rithöfundur fágunar- innar, Francois Mauriac, eða raunsæisins, John Steinbeck? Hinn grandvari auðmaður Sir J. Arthur Rank, athuguli tískufröm- uðurinn Christian Dior, stórkost- legi sviðsmeistarinn og leikarinn Jean Louis Barrault eða skáld orðkynnginnar, W.H. Auden? Var hægt að kafa dýpra í sálarfylgsni hinnar miklu konu Helenu Keller, er segja má að hafi breytt þögn í tóna og myrkri í ljós með ein- stæðu sálarþreki sínu, svo og fylgdarkonu hennar, Polly Thompson? Og sérstök hátíð hlýt- ur það að vera fyrir myndlistar- menn að virða fyrir sér skap- gerðareinkenni Picassos, Moore, Epsteins, Giacomettis, Lipscitz, Manzú, Max Ernsts, Isamu Nogu- chi, Soulages og O’Keefe. Lesa menn ekki eitthvað úr myndum af sálfræðingnum C.G. Jung, tón- meistaranum Zubin Metha, fiðlu- snillingunum Heifetz og Menuhin, ballettmeistaranum Mörtu Gra- ham, skáldinu W. Somerset Maugham og fleiri og fleiri? En sjón er sögu ríkari og nú er mál að skunda á Kjarvalsstaði og njóta mikillar listar. Mynd af Hemingway.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.