Morgunblaðið - 14.07.1989, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
41
Leitað langt fyrir skammt
iLíf er á öðrum stjörnui
Til Vclvakanda.
Slofnendur Bandarikjanna um og
fyrir 1800 ,trúftu“ nær allir á llf á
öðrum stjömum, og það var þess-
vegna sem þeir voru svona miklir
framfaramenn, eða réttara sagt, það
hélst i hendur hjá þeim að trúa á
framtiðina og að hafa þessa hugsun
(Ld. John Adams, Jeffereon, Prankl-
in, Thomas Paine o.fl.; ég hef rekist
á nýja heimild um þetta, þjá M.
Crowe, sem er á móti þeim og ég
kem að slðar, en heimfldaskrá hans
er góð). Hinn hressandi gustur sem
stafar af æviverki slíkra brautryðj-
enda, og menn halda stundum að
Leyri fortiðinni einni til, gæti vakist
1 nýju, V^^^^^sem er, ef
þar. Hreinlega það og hreint ekki
annað. Sá maður er á móti Cuði, scm
segir, að hann hafi ekki getað skap-
að líf nema á einum hnetti. Sá mað-
ur ómerkir Jesúm, aem í lágkúru-
skap síi\um og i heimildaleysi fer
að brigsla honum um að hafa trúað
á kristalshvel.
Michael Crowe, prófessor í Banda-
rfkjunum, hefur skrifað 800 blaðsí-
öna bók til þess að klekkja á „lífi á
öðrum stjörnum”. Ég skrifaði honum
og spurði hann hvaðan hann hefði
það að tala um „vitsmunaverur utan-
jarðar" með þvi orðalagi sem hann
hafði (extraterrestrial intelligences).
Þvi gat hann ekki svarðað. „Ég
ættiað vita miðiir er^
hringja til min um daginn og biðjií
um bækur mínar, en ég týndi miðan-1
um. Hann ætti að hringja aftur. Ég í
vona að Velvakandi leyfi að lýsa '
eftir þessu ekki síður en köttum og
lyklakippum (sem einnig hafa sitt
gfldi).
Þorsteinn Guðjónsson
©
Til Velvakanda.
„Líf er á öðrum stjömum". Grein
með þessari fyrirsögn birtist í Vel-
vakanda fyrir skömmu og vakti
mig til umhugsunar. Höfundur
greinarinnar vitnar í Biblíuna máli
sínu til stuðnings en þar er einmitt
varað við stjörnuspeki og kukli.
Fyrir nokkrum áratugum voru til
menn sem trúðu því að líf væri á
tunglinu og þar væru vitsmunaver-
ur. Hið sama er að segja um Mars,
margir töldu að skurðirnir þar væm
órækt merki um að þar byggi ann-
að mannkyn sem jafnvel væri vits-
munalega fremra okkur og lengra
komið í vísindum og tækni. Þetta
reyndist ekki annað en vitleysa.
Þessir hringdu ...
Skemmdarverk í Svínadal
Albert Jensen hringdi:
„Verktakar á vegum Vegagerðar
ríkisins hafa staðið í svokölluðum
vegaframkvæmdum í Svínadal í
Dölum og Hvolsdal. Mest hefur mér
þótt þau einkennast af miklum nátt-
úruspjöllum á staðnum, mest í landi
Bessatungu. Þeir heiðursmenn sem
þarna standa að verki hljóta að
misskilja hrapalega þá herferð sem
fer nú fram í verndun lands. Ég
gæti trúað að viðkomandi bónda
ofbjóði óskapanður slíkra skemmda.
Betur að menn í sveitinni gerðu
eitthvað í að stöðva skemmdarverk
þessi sem nú þegar eru óbætanleg.“
Köttur
Bröndóttur köttur með hvítt trýni
og hvíta bringu er kom í veitinga-
skálan í Þrastarlundi fyrir skömmu
og hefur sennilega vilst úr sumar-
bústað. Eigandi hans er beðinn að
hafa samband sem fyrst.
Læða
Hvít ómerkt læða fór að heiman
í Kópavogi 7. júlí. Vinsamlegast
hringið í síma 621997 eða 43075
hafí hún einhvers staðar komið
fram.
Opið of leng-i frameftir
Hrefiia Jónsdóttir hringdi:
„Unglingadansleikir í Broadway
standa til kl. 3 á nóttinni um helg-
ar og tel ég að þeim ætti að ljúka
miklu fyrr. Krakkarnir koma ekki
heim fyrr en kl. 4 eða jafnvel seinn'a
því það tekur tíma fyri'r þau að
komast heim til sín. Þarna er ald-
urstakmarkið 16 ára en það virðist
ekki vera neinn vandi fyrir 13 ára
krakka að komast inn. Það kæmi
ef til vill ekki að sök ef dansleikjum
þessum lyki ekki svona seint.“
Trúir því einhver lengur að vits-
munaverur fínnist á tunglinu?
Furðulegt er hversu hjátrúin er
lífseig. Svo virðist sem margir geti
ekki losnað undan hugsunarhætti
fyrri tíma og þeim hugmyndum sem
menn byggðu á vanþekkingu. Vera
má að frumstætt líf sé til staðar á
Mars og einnig gæti það verið á
Venus. Er þá örugglega aðeins um
einfrumunga að ræða eða mjög
frumstæðan gróður. Sama gildir um
aðrar plánetur. Hvergi er minnst á
það í Biblíunni að vitsmunaverur
finnist á öðrum stjörnum. Þar
stendur að Guð hafi skapað jörðina
með öllu sem á henni er en það
stendur hvergi að Guð hafi skapað
vitsmunaverur á öðrum plánetum.
Það er áreiðanlega happasælast
fyrir hvern og einn að halda sig við
staðreyndir og láta ekki hugmynda-
flugið hlaupa með sig í gönur. Menn
hafa leitað langt fyrir skammt og
ekki fundið annað en auðn og tóm
úti í geimnum. Sannleikann höfum
við í Biblíunni og það verður ekki
neinum til góðs að snúa útúr því
sem þar stendur.
Kristin kona
HEILRÆÐI
Til afa og ömmu
Hér er vinsamleg ábending til afa og ömmu.
Geymið lyf á öruggum stað þannig að barnabörnin nái alls
ekki til þeirra. Sykurhúðaðar pillur líta út sem sælgæti í þeirra
augum. Lyf sem ykkur eru lífenauðsynleg eru aftur á móti börn-
unum stórhættuleg og jafttvel banvæn.
Þakka öllum, sem glöddu mig meÖ heimsókn-
um, skeytum og gjöfum á áttrœÖisafmœli minu
þann 9. júlí sl.
Ólafurlngi Þórðarson,
Borgarnesi.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu
mér hlýhug, heiÖur og vinarþel i tilefni 70 ára
afmœlis míns 3. júlí.
LifiÖ heil.
Hulda Sigurjónsdóttir,
Hverfisgötu 56,
Hafnarfirði.
Terylenejakkar frá kr. 6.800.-
Terylenekápur frá kr. 7.400,-
Terylenesíðbuxur frá kr. 2.400,.-
Ný kjólasending
Félag eldri borgara: Munið 10% afsláttinn.
v/Laugalæk, sími 33755.
HVERFISGÖTU 26 HVERFISGÖTU 26