Morgunblaðið - 15.07.1989, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.07.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989 15 £~~~> SX...S, S/y fa-'/T, /'/'■ /r/,./&*/-?■ ■/ ■/£. Á> - . , ' . /~„ . / *> //.£ Ý ©L, __S'/L /~ Sw-~s //;/ ///-r/'y /*•&£-*■-/ ■ íZ/.V./Snfs v/--1 4*- - -* ^.n-/ l»i %s~ ///m sz.—VS/- (oT+ // /5„y- ■ /•/'-- Bréf Thorvaldsens til Rentukammersins. Þessi mynd sýnir tvær hliðar fontsins. í blóma- kransinum er keramikskálin gamla. frásögn Erlings Sveinbjörnssonar mun sr. Jóhann hafa fundið á kirkjuloftinu hina fornu skírnarskál Dómkirkjunnar og komið með hana. Að lokinni skírn Svövu gaf hann foreldrum hennar skálina. Erling áleit, að skál þessi hefði verið not- uð, áður en skírnarfontur Thor- valdsens kom. Það fær ekki stað- ist, því í skrá um eignir Dómkirkj- unnar 1837 greinir frá aldagömlu skírnarfati úr messing, sem frá 1825 hefur staðið á málaðri trésúlu og fylgdi því tinkanna fyrir skírnar- vatn. Þeir hlutir eru nú týndir. En skálin, sem Jörgen Strand gaf, er hins vegar eins og hún hafi verið gerð til þess að nota í fonti Thor- valdsens, því hún fellur nákvæm- lega inn í blómakransinn. Glerung- ur hefur kvarnast neðan af börmum hennar, e.t.v. af árekstrum við marmarann. Erfitt hefur verið að hreinsa vatn úr blómakransinum, og því er ekki ósennilegt, að þessi skál hafi fljótlega verið útveguð og þá e.t.v. valin af Thorvaldsen sjálf- um. En, er hún tók að láta á sjá, hafi silfurskálin verið gerð. Miklibær eða Dómkirkjan Nokkuð hefur verið um það rætt, að skírnarfonturinn hafi upphaflega átt að fara til Miklabæjarkirkju í Blönduhiíð í Skagafirði. Föðurafi Thorvaldsens, sr. Þorvaldur Gott- skálksson, var prestur þar. Ekki er ólíklegt, að slíkt hafi borið á góma, þegar listamaðurinn ákvað að gefa ættlandi sínu gjöf og hann Skag- firðingur. Fljótlega hefur þó verið frá því horfið. Til þess benda áður nefnd orð Kristíönu Jóhönnu Briem, en ekki síður bréf Thorvaldsens sjálfs, sem til er hér á Þjóðskjala- safni. (íslenska stjórnardeildin X. 2). Bréfið er á dönsku, stílað til Rentukammersins og er þannig í lauslegri þýðingu: „Svo sem Hinu konunglega rentukammeri er án efa kunnugt, þá lauk ég fyrir nokkrum árum við skírnarfont úr marmara. Hann er gjöf til Dómkirkjunnar í landi feðra minna, íslandi. Umræddur skírnar- fontur er í vinnustofu minni á Charl- ottenborg, og bið_ ég um, að hann verði sendur til íslands, þegar er ferðir hefjast þangað næsta vor. Þar sem íjármál nefndrar kirkju heyra undir hið virðulega Rentu- kammer, þá vona ég það taki að sér að sjá um, að þessu listaverki, sem ég geri mér vonir um, að verði kirkjunni til prýði, verði komið fyr- ir á þann hátt, sem ákveðið hefur verið. Kaupmannahöfn, 28. desember 1838. Með virðingu. Thorvaldsen. Lokaorð Skírnarfonturinn komst nú á réttan stað. Honum var komið fyrir í gömlu Dómkirkjunni, sem reist var eftir teikningum A. Kirkerups og vígð 1796. Hún var svo stækkuð og vígð í núverandi mynd 1848. Arkitekt hennar var L.A. Winstrup. Báðar teljast kirkjurnar til hins nýklassíska stíls, einkum þó núver- andi kirkja. Fonturinn er einnig þeirrar gerðar og hæfir húsinu því einkar vel. Hann er sterkasta tákn hennar og hefur verið tekinn upp sem merki hennar bæði á bréfsefn- um og í embættisstimpli prestanna. Hann mun enn um aldir verða það sem hrífur augað sterkast í hinum aldna þjóðarhelgidómi okkar íslend- inga. Heimildir: Matthías Þórðarson: Grein í Lesbók Morgunblaðsins 1939. Helgi Thordersen: Ræða við vígslu skírnarfontsins, Rvík 1876. Erling Sveinbjörnsson: Bréf með gjafabréfi Jörgen B. Strand, Khöfn 1979. Þjóðskjalasafn íslands, ísl. stjórnardeild- in X. 2. Björn Th. Bjömsson: Munnleg heimild. Sr. Helgi Konráðsson: Bertel Thorvaldsen, Rvík 1944. Sjá einnig grein eftir Þ.St. í Mbl. 1/12 ’79. stæðu og illa stæðu fyrirtækjanna og sá munur sem kemur fram í mismunandi álagi á kjörvexti í Ián- um til fyrirtækja er aðeins brota- brot þegar fjármagnskostnaðurinn í heild er skoðaður. Handafl á vexti í því skyni að koma skuldurum vel hefur því þver- öfug áhrif miðað við það sem ráða- menn ætlast til. Afleiðingin af slíku er lækkun á fjármagnskostnaði þeirra sem standa vel en hækkun hjá þeim sem skulda mikið og eru í vanskilum. Handafl hækkar rekstrar- kostnað banka Hér er ekki vonsku bankastjóra um að kenna því þeir verða sam- kvæmt lögum að reka bankana með hagnaði og halda lágmarks eigin- fjárhlutfalli. Ef þeir standa sig ekki geta þeir átt á hættu ákúrur frá bankaeftirliti Seðlabankans og jafn- vel ákæi-ur frá saksóknara sbr. fyrr- um bankastjóra Utvegsbankans. Kringumstæðurnar eru einfald- lega þær að bankastjórarnir þurfa bæði að lána út takmarkað fé og eins að láta bankana bera sig. Hins vegar liggur það í hlutarins eðli að krunk í vextina og aukin skammtímafyrirgreiðsla með til- heyrandi vanskilum leiðir til enn aukins mannahalds og kostnaðar við rekstur bankanna. Þótti þó ýmsum nóg um í þeim efnum. Góð afkoma atvinnu- lífsins eina lausnin Raunveruleg og almenn lækkun fjármagnskostnaðar hjá íslenskum atvinnurekstri verður ekki nema aðstæður á fjármagnsmarkaðnum leyfí slíkt. Þess vegna má segja að fjármagnsmarkaðurinn sé og verði frjáls. En hvaða aðstæður eru þetta? Það sem skiptir fyrst og fremst máli er að eftirspurn eftir lánsfé minnki og sparnaður aukist. Stærsti þátturinn í þessum efnum er af- koma atvinnulífsins. Taprekstur fyrirtækja kallar á gífurlega láns- fjárþörf. Við höfum t.d. séð hvernig taprekstur í útflutningsgreinum hefur leitt til mikillar eftirspurnar eftir lánsfé. Áhrifaríkasta Ieiðin nú til þess að lækka fjármagnskostnaðinn er að laga rekstrarstöðu útflutnings- fyrirtækjanna þannig að þau fari að greiða niður skuldir í stað þess að halda áfram að safna þeim. Þá verða bankastjórarnir ekki lengur í skömmtunarhlutverki heldur þurfa þeir að hugsa um að koma pening- unum út. Þá verður auðveldara fyr- ir skuldug fyrirtæki að semja. Eins á ríkið hér hlut að máli. Hallarekstur ríkissjóðs hefur í för með sér lánsfjárþörf sem þarf að fullnægja. Með því að lækka út- göld ríkisins verður eftirspurn ríkisins eftir lánsfé minni. Handafl á vexti getur aldrei skil- að tilætluðum árangri. Það kemur þeim fyrst og fremst í koll sem skulda mikið og þurfa að fá skil- yrði til að hagnast og greiða niður lánin. Handafl á vexti getur heldur aldrei komið í staðinn fyrir að gefa vel reknum fyrirtækjum tækifæri til þess að hagnast og standa á eig- in fótum. Höfundur er fraiukvæmdastjóri Verslunarráðs íslands. Hluthafafundur í Verslunarbanka íslands M. verður haldinn í Súlnasai Hótel Sögu þriðjudaginn 25. júlí 1989 og hefst kl. 17:00. Dagskrá: Tillaga bankaráðs um staðfestingu hluthafafúndar á samningi formanns bankaráðs við viðskiptaráðherra um kaup bankans á 1/3 hluta hlutabréfa ríkissjóðs í Útvegsbanka íslands M. og að rekstur Verslunarbanka, Iðnaðarbanka og Alþýðubanka verði sameinaður í einn banka ásamt Útvegsbankanum fyrir 1. júlí 1990. 2Tillaga bankaráðs um viðbótarákvæði til bráðabirgða við samþykktir bank- ans þar sem bankaráði er veitt heim- ild til að efna samninginn m.a. með þeim hætti að taka þátt í hlutafjár- aukningu Útvegsbanka íslands hf. sem heimilt verði að greiða af eign- um og rekstri bankans. Önnur mál löglega fram borin. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fúndarins verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í Verslunarbankanum, Bankastræti 5, fimmtudaginn 20. júlí, föstudaginn 21. júlí og mánudaginn 24. júlí 1989 kl. 9:15-16:00 alla dagana. Samningurinn og tillögur munu liggja frammi hluthöfum til sýnis á sama stað viku fýrir fundinn. Bankaráð Verslunarbanka íslands hf. < | uí < Q O >- VKRSlUNRRBflNKINN -vútHUt (Hed þén f p [flfr co co in co Metsölublaó á hverjum degi! ösazíslA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.