Morgunblaðið - 15.07.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.07.1989, Blaðsíða 24
Í24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JULÍ 1989 Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins; Athugasemd um rúllu- pökkun á heyi og ostagerð Morgnnblaðinu hefur borist eftirfarandi athugasemd fi-á upplýs- ingaþjónustu landbúnaðarins: „Fram hafa komið í fjölmiðlum undanfarið ýmsar fréttir og athuga- semdir varðandi heyverkun og mjólkuriðnað, sem valdið geta tals- verðum misskilningi. Þrennt ber hér hæst: 1) Haldið hefur verið fram að óvænt milljónatjón hafi orðið vegna óeðlilega mikilla skemmda á ósta- birgðum sl. vetur. Þetta er rangt, samkvæmt upplýsingum frá Osta- og smjörsölunni sf. Sker nýliðinn vetur sig ekki úr hvað ostagæði varðar. Tölur um óvenjulegt tjón vegna skemmdra osta á sl. vetri hafa því verið orðum auknar. 2) Fjölmiðlar hafa lagt þunga áherslu á að talið sé að mistök í rúllubaggaheyskap hérlendis valdi skemmdum á ostum í birgða- geymslum. Engar niðurstöður liggja fyrir í þessu efni hérlendis né úttekt á því. Heyverkunaraðferð þessi hefur verið þekkt og stunduð árum saman, ekki síst í Bretlandi, og öll lögmál hennar eru þekkt, einnig hér á landi. Full þörf er á auknum rannsóknum og leiðbein- ingum í þessum efnum og mun þá væntanlega koma fram hvort or- sakir ostaskemmda er þangað að rekja eða annað. 3) Haldið hefur verið fram að íslenskir bændur hafi fjárfest of ört og fyrirhyggjulaust í vélbúnaði og „ekki hugsað út í afleiðingamar“. Samkvæmt upplýsingum þeirra 4 innflytjenda sem að mati kunnugra selja um 99% allra vélanna, hafa íslenskir bændur nú á tiltölulega skömmum tíma keypt um 310 rúllu- pökkunarvélar. Þær spara vinnu og orku og bæta heyverkun verulega, ef rétt er að staðið. Notkun þeirra er samt vandasöm og full þörf á að leggja áherslu á leiðbeiningar um rúllupökkun. Áhersia hefur því verið lögð á fræðslu um þessa nýju tækni. Birt- ar hafa verið greinar og viðtöl í því skyni. Bændaskólinn á Hvanneyri hefur boðið upp á námskeið í rúllu- Fiskverð á uppboðsmörkuðum 14. júlí. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 63,50 53,50 60,94 16,381 998.254 Þorskur(smár) 28,00 28,00 28,00 0,384 10.752 Ýsa 78,00 35,00 66,25 0,669 44.319 Karfi 28,00 27,00 27,12 0,872 23.660 Ufsi(smár) 11,00 11,00 11,00 1,661 18.274 Steinbítur 56,00 54,00 55,70 1,097 61.140 Langa 23,00 23,00 23,00 0,107 2.465 Lúða 200,00 30,00 53,36 0,313 16.703 Koli 45,00 10,00 37,16 4,880 181.328 Keila 10,00 10,00 10,00 0,024 240 Samtals 51,43 26,389 1.357.135 Á mánudag verður selt úr Otri HF, 100 tonn af karfa og 12 tonn af þorski. Einnig blandaður afli úr Sigluvík Sl og bátafiskur. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 63,00 55,00 60,24 15,728 947.476 Ýsa 87,00 20,00 77,07 17,343 1.336.613 Karfi 29,00 15,00 22,87 110,440 2.526.132 Ufsi 37,00 16,00 30,06 3,969 119.319 Steinbítur 51,00 49,00 49,96 1,307 51.158 Langa 38,00 38,00 38,00 0,740 28.120 Lúða 205,00 145,00 179,17 0,036 6.450 Skarkoli 25,00 25,00 25,00 0,160 4.000 Keila 7,00 7,00 7,00 0,100 700 Samtals 32,34 149,825 4.845.106 Selt var úr Krossvík HK, Keili RE og Ottó N. RE. Mánudaginn 17. júlí verður selt úr Halkion um 100 tonn af þorski og 15 tonn af ýsu. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 63,00 53,50 60,69 8,531 578.407 Ýsa 94,00 30,00 64,33 5,607 360.729 Karfi 35,00 11,00 24,69 12,048 297.431 Ufsi 35,50 12,00 23,97 5,408 129.632 Steinbítur 52,00 15,00 40,13 1,698 68.271 Langa 37,00 1,00 23,01 1,608 36.996 Lúða 275,00 70,00 146,14 0,487 71.170 Hlýri 15,00 15,00 15,00 0,238 3.570 Skarkoli 205,00 10,00 43,15 1,649 71.148 Keila 8,00 8,00 8,00 0,046 360 Skata 115,00 115,00 115,00 0,009 1.035 Skötuselur 295,00 90,00 245,39 0,251 61.715 Grálúða 20,00 20,00 20,00 0,2384,- 760 Blálanga 31,00 26,00 29,33 0,600 17.600 Öfugkj. 15,00 15,00 15,00 1,000 15.000 Undirm.fis. 18,00 18,00 18,00 0,018 324 Samtals 42,49 40,437 1.718.206 SKIPASÖLUR í Bretlandi 10. til 14 júlí. Þorskur 109,51 309,000 33.837.409 Ýsa 116,41 99,395 11.570.563 Ufsi 40,10 27,265 1.093.287 Karfi 57,64 9,520 548.758 Koli 80,15 15,150 1.214.205 Grálúða 100,71 2,650 266.890 Blandað 116,70 8,465 987.829 Samtals 105,4 471,445 49.518.944 Skipin sem seldu í Grimsby og Hull voru Dalborg EA, Gullberg VE, Börkur NK, Súlan EA og Katrín VE. GÁMASÖLUR í Bretlandi 10. til 14. júlí. Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Koli Grálúða Blandað Samtals 113,96 108,44 41,07 66,77 115,16 91,35 126,27 69,580 116,005 5,610 2,780 42,135 25,810 28,645 109,28 290.565 7.929.299 12.579.388 230.384 185.620 4.852.167 2.357.650 3.616.977 31.751.525 SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 10.- 14. júlí. Þorskur 92,62 0,593 54.920 Ufsi 81,82 1,054 86.235 Karfi 83,97 167,143 14.034.407 Blandað 97,62 5,149 502.631 Samtals 84,39 173,939 14.678.195 Ögri RE seldi í Bremerhaven. pökkun undanfarið, bæði á heima- slóðum og annars staðar á landinu. Þessi námskeið hafa reynst vinsæl- ust allra kennslutilboða skólans. Á þau hefur mætt mikill meirihluti allra bænda sem nota rúllupökkun- arvélar. 4) Fram hefur komið sá mis- skilningur að stjórn Samtaka af- urðastöðva í mjólkuriðnaði tefji rannsóknir á þessu viðfangsefni og hafi „ekki talið þess virði að eyða í miklum peningum". Þetta er villandi lýsing. Sem svar við bréfi Rannsóknastofu mjólkur- iðnaðarins með beiðni um fjárstuðn- ing lýsti stjórn Samtaka afurða- stöðva í mjólkuriðnaði yfir á fundi sínum 22. júní sl. stuðningi við rannsóknir á þessu sérstaka verk- efni og vísaði því síðan til stjórnar Rannsókriastofnunarinnar. Mjólk- ursamlögin á landinu kosta starf- semi Rannsóknastofunnar sem og Samtaka afurðastöðva. Stjórn SAM vill stuðla að því að samin sé rann- sóknaáætlun sem taki til rúllu- baggaheyskapar og gerlamyndunar í heyi, í samstarfi við Bútæknideild- ina á Hvanneyri og Rannsókna- stofnun landbúnaðarins, sem hafa annast athuganir og fræðslu á þessu sviði.“ Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Stúlkurnar í 3. flokki UMFN í handknattleik höfðu nóg að gera við að þrifa og bóna bíla Njarðvíkinga um helgina og jafiivel Keflvíkingar lögðu bæjarríginn á hilluna og komu til að láta bóna bíla sína í Njarðvík. Handknattleiksstúlkur í Njarðvík: Bónuðu og þrifii 30 bíla á 2 dögum Keflavík. STÚLKURNAR sem skipa 3. Njarðvík stóðu í ströngu síðustu og þrifú 30 bíla á tveim dögum, Stúlkurnar sem eru íslands- meistarar í sínum flokki hyggja á keppnisferð til Danmerkur í næsta mánuði og voru þær að safna peningum fyrir væntanlega keppnisferð. Fyrr í vor léku stúlk- umar „maraþon“ handbolta í 16 tíma af sama tilefni. Dugnaður flokk UMFN í handknattleik í helgina í júní, en þá bónuðu þær handknattleiksstúlknanna hefur vakið athygli á Suðurnesjum, en þær hafa tvívegis orðið Islands- meistarar í sínum flokki á síðustu þrem árum og láta ekki sitt eftir liggja í fjáröflun við rekstur sinnar deildar. BB Sumarhátíð á Kópavogshæli SUMARHÁTÍÐ verður haldin í fyrsta sinn á Kópavogshæli dagana 16. til 22. júli næstkomandi. Frumkvæði og undirbúningur að hátí- ðinni hefúr að mestu leyti verið í höndum þroskaþjálfa sem sjá um tómstundir á stofiiuninni eú ákveðið var að halda hana eftir að ljóst var að vinnustofúr hælisins yrðu lokaðar í þijár vikur í sparnaðar- skyni eins og segir í frétt frá Kópavogshæli. Með þessari sumarhátíð vill heimilisfólkið og starfsfólk stofnun- arinnar gera sér dagamun og auka á fjölbreytni þeirra frístunda sem fötluðum bjóðast. Dagskrá hátíðar- innar miðast við almenna þátttöku fatlaðra með skemmtiatriðum, íþróttaiðkun og ferðalögum. Flestir sem koma fram eða hafa lagt mál- inu lið gera það endurgjaldslaust. Gestum af höfuðborgarsvæðinu og utan af landi er boðin þátttaka og er þeim sem koma utan af landi séð fyrir svefnpokaplássi og aðgangi að mötuneyti staðarins. Sunnudagur 16. júlí Kl. 14.00. Opnun, Homaflokkur Kópavogs leikur. Kl. 14.30 Látúnsbarkarnir. KI. 15.00 Flugsýning, Björn Thor- oddsen flýgur listflug yfir vogin- um. Kl. 16.00 Fyrsta frumsýning leik- félagsins Loka. Árstíðirnar. Kl. 16.30 Heimakórinn, fjöldasöng- ur. Sprell frá starfsmannafélag- inu. Kl. 17.00 Harmonikkuball. Seldar blöðrur, sælgæti, gos, popp og merki. GENGISSKRÁNING Nr. 132 14. iúlí 1989 Kr. Kr. Toll- Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala flongi Dollari 67,82000 57,98000 58,60000 Sterlp. 93,68300 93,94200 91,34600 Kan. dollari 48.49700 48,63100 49,04800 Dönsk kr. 7,87470 7,89650 7,65260 Norsk kr. 8,31940 8,34240 8,18780 Sænsk kr. 8,96050 8,97520 8,80280 Fi. mark 13,57280 13,61030 13,29100 Fr. franki 9,01040 9,03540 8,77440 Belg. franki 1,46130 1,46540 1,42250 S v. franki 35,39640 35,49430 34,62850 Holl. gyllim 27,13280 27,20790 26,41960 V-þ. mark 30,59260 30,67720 29,77570 it. líra 0,04217 0,04229 0,04120 Austurr. sch. 4,34820 4,36020 4,23030 Port. escudo 0,36690 0,36700 0,36680 Sp. peseli 0,48660 0,48800 0,46870 Jap.yen 0,41442 0,41557 0,40965 Irskt pund 81,83000 82,06600 79,35900 SDR (Sérst.) 73,65520 73,85900 72,96810 ECU.evr.m. 63,28400 63,45910 61,69990 Tollgengi fyrir júli er sölugengi 28. júní. Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70. Mánudagur 17. júlí Kl. 10.00 - 15.00 Þingvallaferð, ekið um Nesjavelli og Ljósafoss (u.þ.b. 5 klst.). Kl. 10.30 Bátaleikir í sundlaug, fyrir yngri þátttakendur. Kl. 13.00 Djazzballet. Kl. 13.30 Einfaldir útileikir. (Hring- leikir, þrautaleikir, bolti í fötu o.fl.) Kl. 14.00 Hjóíastólaganga. Kl. 16.00 Plankaslagur, hólmganga starfsmanna í sundlaug. Kl. 20.00 Kvöldvaka, söngur og leikir. Þriðjudagur 18. júlí Kl. 10.00 - 12.00 Sigling um sund- in blá með Viðeyjarfeijunni. Kl. 10.00 Boccia úti eða inni. Frjálst. Kl. 14.00 Viðeyjarferð, gengið um eyjuna, nesti úti eða í veitinga- skála. Kl. 16.00 - 17.00 Reiðskóli Gusts býður upp á stutta reiðtúra. Kl. 16.30 Leikhópurinn Perlan sýn- ir. Sölutjöld opin frá kl. 16.00. Sæl- gæti, gos, popp, merki o.fl. Miðvikudagur 19. júlí Kl. 10.00 Sigling á Fossvogi, lagt upp frá Nauthólsvík. Kl. 11.00 Bátaleikir í sundlaug. Útileikir. Kl. 13.00 Starfsmannagrín. Feg- urðarsamkeppni. Kl. 14.00 Gönguferðir: a) í Hlíðar- garð, styttri ferð, b) í Öskjuhlíð og heita lækinn, lengri ferð. Fimmtudagur 20. júlí Kl. 10.00 Boccia sveitakeppni í íþróttahúsinu Digranesi. Kl. 11.00 Krikket, frisbí og bolta- leikir. Kl. 13.00 Sigling, lagt upp frá Nauthólsvík. Kl. 14.00 Starfsmannagrín, hjóla- stólakeppni, pokahlaup o.fl. Kl. 15.00 Brúðubíllinn. ,K1. 20.00 Kvöldvaka, varðeldur leikir og söngur í umsjón skáta. Sölutjöld opin frá kl. 15.00. Sæl- gæti, gos, popp, merki o.fl. Föstudagur 21. júlí Kl. 10.00 Frjálsar íþróttir á Kópa- vogsvelli. Kl. 13.00 Veiði- og gönguferð. Erf- ið ferð ca. 5-6 klst. Kl. 14.00 Kvikmyndasýning í Há- skólabíói. Sýnd verður gaman- myndin „Beint á ská“ (Naked Gun). Kl. 17.00 Leikfélagið Loki. Endur- tekin sýning á Arstíðunum. Kl. 20.00 Hljómsveitin Október leikur fyrir dansi. Laugardagur 22. júlí Kl. ,16.00 Valgeir Guðjónsson skemmtir. ’KI. 17.00 Byijað að kynda grillið. Starfsmannagrín og sprell. Kl. 18.00 Matur. Nikkarinn og Heimakórinn. Kl. 20.00 Dansleikur í Digranesi. Húsið opnar kl. 20.00 en dansinn stendur frá 21.00-1.00. Sæta- ferðir úr Digranesi kl. 22.30 og 1.00. Sundlaug Kópavogshælis verður opin til fijálsra afnota fyrir þátttak- endur frá 9.00-12.00 og 17.00 -21.00 alla dagana. Strætisvagnar Kópavogs sjá um akstur í alla dagskrárliði utan lóðar Kópavogshælis, nema í lengri ferðir utan höfuðborgarsvæðis. Flugleiðir bjóða upp á útsýnisflug. Tími óákveðinn. Harmonikkuleikur öðru hvoru alla vikuna og ýmsar aðrar uppákomur. Nauðsynlegt að fólk skrái sig í ferðirnar og bátaleikina. Dagskrárliðir geta breyst og enn er tækifæri til að bæta við atriðum ef þátttakendur hafa einhveijar sérstakar óskir og/eða skemmtiat- riði fram að færa. Samkvæmisdans- ar á Borgirmi SÚ nýbreytni hefur verið tekin á Hótel Borg á sunnudagskvöldum að þar eru dansaðir samkvæmis- dansar. Stjórnendur eru Sigurður Garðarsson og Stefán P. Þorbergs- son. Matargestir fá frítt inn á dans- leikinn., segir í frétt frá Hótel Borg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.