Morgunblaðið - 20.08.1989, Síða 5
11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. AGUST 1989
C 5
sem Gala hafði skrifað honum, en
Gala var ekki á sama máli og
geymdi öll bréfin sín vandlega. Hún
lét síðan gefa þau út eftir að Paul
féll frá. Þetta er aðeins eitt lítið
dæmi um hina óstjórnlegu pen-
ingagræðgi Gölu. Nusch lést óvænt
úr heilablóðfalli í nóvember 1946
og lét eftir sig Paul sem brotnaði
aigjörlega niður. Cécile dóttir
þeirra eignaðist dóttur um svipað
leyti, svo Gala var orðin amma án
þess að hafa orðið mikið vör við
að hafa verið mamma.
Dali-hjónin ákváðu að flytjast
aftur til Katalóníu á Spáni, til Port
Lligat, litla fiskimannaþorpsins.
Litla fiskimannahúsið hafði að vísu
| tekið stakkaskiptum, því því var
breytt eftir súrrealísku hugmynda-
flugi Dalis og var orðið að furðu-
legu listasafni. Stöðugur straumur
fólks var til Dali-hjónanna og gest-
irnir voru flestir listamenn, kónga-
fólk og stjórnmálamenn. Þau hjón-
in voru mikils metin alls staðar í
heiminum og „fína fólkinu" fannst
„fínt“ að heimsækja þau.
Uppljómun Dalis
Á tímabili gekk Dali í gegnum
eins konar trúarlega uppljómun.
Myndir hans voru fullar af alls
konar trúarlegum táknum; Guðs-
móðirin, Kristur á krossinum, hi-
minninn og Guð voru helstu mynd-
efni hans. Að sjálfsögðu var Gala
ennþá í aðalhlutverki í myndum
hans og hann málaði hana sem
heilaga Guðsmóður, eina af konun-
um við kross Krists, og til hægri
við Krist í „Heilagri kvöldmáltíð."
Gala var gerð að ódauðlegri gyðju,
fyrst í ljóðum Paúls Éluards og
síðan í myndum Salvadors Dali, og
eru þá ótaidir minna þekktir lista-
menn sem fengu inspírasjón frá
Gölu.
Dali gat ekki málað annað en
Gölu, leyndardómsfulla, nakta og
lostafulla Gölu. Á árunum
1960—70 breyttust viðfangsefni
Dalis. Hann naut þess að leika sér
með ímyndunaraflið og mála alls
kyns furðurverur og ófreskjur.
Hann gekkst líka upp í því að
umgangast alls kyns furðufugla og
meðan hann bjó á Hótel Regis í
New York voru meðal gesta hans:
dvergar, kona með geysistórar nas-
ir sem sagðist koma frá Tíbet,
menn sem reyktu ópíum daginn
út og daginn inn, magadansmær,
snillingur í tattóveringum og mað-
ur sem sagðist geta öðlast eilíft líf
ef hann gæti skipt á kynfærum
sínum og kynfærum apa.
Þegar Gala varð 75 ára gaf
Dali henni kastalann í Pubol í af-
mælisgjöf. Hún var orðin þreytt á
öfgafullu lífi og vildi fara að hafa
það rólegt. Hann vildi hins vegar
halda áfram uppteknum hætti og
fann endalaust upp á nýjum að-
„ ferðum til að vekja á sér athygli.
““ Þau rifust oft og sagt er að þau
hafi líka oft slegist. Síðla ársins
1981 voru þau á hóteli í París. Dag
einn, árla morguns fór Dali til hót-
elstjórans og sagðist hafa komið
að konu sinni slasaðri í herbergi
sínu. Hún var flutt á sjúkrahús og
við rannsókn kom í ljós að tvö rif-
bein höfðu brotnað, og handleggir
og fótleggir voru marðir og brákað-
ir. Fáir vita fyrir víst hvort þau
hjónin höfðu lent í slagsmálum um
nóttina.
Gala veiktist vorið 1982 og var
þá iögð á sjúkrahús þar sem hún
gekkst undir skurðaðgerð. Hún lá
meira og minna meðvitundarlaus í
fjórar vikur, en var þá flutt til
Spánar í fiskimannahúsið sitt þar
sem hún lést 10. júní 1982. Hún
hafði beðið um að vera jörðuð í
rauðum kjól í grafhýsi hlöðnu úr
svörtum múrsteinum í Pubol-kasta-
lanum og það var orðið við þeirri
bón. Grafhýsið er skreytt með nökt-
um mönnum og gíröffum með log-
andi höfuð, og fyrir framan það
er gipsstytta af hesti í fullri stærð.
Meistari Dali var einnig lagður til
hvílu í grafhýsinu, en eftir dauða
Gölu veslaðist hann upp og hætti
að koma fram opinberlega. Hann
háði iangt veikindastríð áður en
hann hélt á vit forfeðra sinna —
og Gölu.
HITAMÆLAR
TILBOÐ OSKAST
í Ford Bronco II XLT 4x4 árgerð ’87 (ekinn 19 þús. mílur),
Chevrolet Spectrum árgerð ’85,
Chrysler LeBaron árgerð ’84 (ógangfær), ásamt öðrum bifreiðum
er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 22. ágúst kl. 12-15
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
Sala varnarliðseigna.
... sv •
■
:
■__________________________________________________________________
• •
Skiny nærföt
fást í eftirtöldum
verslunum:
í Rvík og nágrenni:
Dinah, Grímsbæ :
Evito, Eiðistorgi 11
Gullbró, Nóatúni 17
Karen, Kringlunni 4
Madam, Glæsibæ
Seljahlíð, Fellaseli 55
Snotra, Álfheimum 4
S.Ó. búðin, Hrísateigi 47
Trimmið, Klapparstíg 40
H-búðin, Hrísmóum 4 Garðabæ
Embla, Strandg. 29. Hafnad.
Fell, Þverholti Mosfellsbæ
Barnabær, Gerðubergi 1 og
Hraunbæ 102
Hlíð, Grænatúni 1, Kópovogi
Landsbyggðin:
Lísa, Keflavík
Rún, Grindavík
Mdan, Sandgerðí
Líkamshreysti, Þorlókshöfn
Ólabúð, Eyrarbokko
Adam og Evo, Vestmannaeyjum
Kaupfélag Rangæinga, Hvolsvelli
Skoftfellingabúð, Vik í Mýrdal
Hornabær, Höfn í Hornafirði
B.H. búðin, Djúpavogi
Sportvöruversl. Hókonar Sóffuss,
Eskifirði
Nesbær, Neskaupstað
Skógar, Egilsstöðum
Aldan, Seyðisfirði
Kaupfélag Vopnfirðinga, Vopnafirði
Kaupfélag Fóskrúðsfirðinga,
Fóskrúðsfirði
Signar og Helgi, Þórshöfn
Askja, Húsavík
Amor, Akureyri
Klæðoversl. Sig. Guðmundss.,
Akureyri
Sogn, Dalvik
Norma, Ólofsfirði
Sýn, Sauðórkróki
Pez, Blönduósi
Krismo, isofirði
Patreksapótek, Patreksfirði
Fell, Grundarfirði
Litlibær, Stykkishólmi
Ósk, Akranesi
Elin, Siglufirði
Vík, Ólafsvik
Einkaumboð á ísiandi
Hannes Wöhler & Co.,
II Akralandi :i. 108 Rcykjavík,
símar 34050 -4í:l574.
Póslhóll 8029 - 128 Reykjavík.