Morgunblaðið - 20.08.1989, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGUST 19.89
f M
SS-menn í Goslar (1934):
Miðstöð „endurfæðingar" þýzkra Minningarskjöldur í
æn a' Goslar: „Bændahöfuð-
borg“ nazista.
kynstofnsins og „hins sterka
bónda,“ boðaði „trúarbrögð blóðs-
ins“ og barðist fyrir sameiningu
norrænna eða germanskra þjóða í.
eitt bandalag.
Himmler lærði mikið af Darré,
t.d. um hinn „nýja bændaaðal“, og
bók hans um Blut und Boden varð
kennslurit SS. Seinna var Darré
kallaður „hinn illi andi“ Himmlers,
sem stjórnaði útrýmingarherferð
nazista.
Árið 1931 kom Darré á fót „kyn-
þátta- og landnámsskrifstofu“ SS,
Rasse und Siedlungshauptamt
(RUSHA), að beiðni Himmlers. Illa
þokkuð hjúskaparlög SS, sem
Himmler gaf út í janúar 1932, voru
byggð á hugmyndum Darrés og
lýstu áhuga hans á blóðflokkum og
flokkun kvenna. Auk þess að vera
„hjúskaparskrifstofa SS“ fékkst
RUSHA við rannsóknir á ættum
Þjóðveija erlendis og skar úr um
hverjir fengju þýzkan borgararétt.
Darré gegndi starfi forstöðumanns
RUSHA til 1938.
íslandsævintýrið
Darré lét málefni Norðurlanda
til sin taka. Hann átti sæti í stór-
ráði Norræna félagsins í Þýzka-
landi, sem var útibú nazistaflokks-
ins og rak áróður meðal Norður-
landabúa. Það annaðist meðal ann-
Hitler á fundi með
bændum:
„Nýr bændaaðall."
ars samskipti við íslenzku íþrótta-
hreyfinguna fýrir Olympíuleikana í
Berlín 1936. Himmler sat einnig í
stórráðinu, ep Rosenberg var
„verndari" félagsins og helzti for-
ystumaður þess.
Sumarið 1934 sendi Darré nefnd
manna úr ráðuneyti sínu til íslands
til að „kynnast íslensku bændastétt-
inni“ og fræða hana um „endurreisn
landbúnaðarins“ í Þýzkalandi Hitl-
ers. Frá þessu segir i bók Þórs
Whiteheads, íslandsævintýrí
Himmlers, sem kom út í vetur. Þjóð-
veijarnir könnuðu einnig kaup á
íslenzkum hestum handa þýzkum
smábændum.
Tveimur árum síðar sendu
Himmler og Darré „rannsóknar-
nefnd“ hingað. Nokkrir nefndar-
menn urðu seinna illræmdir stríðs-
glæpamenn. Að sögn Þórs Whitehe-
ads má ætla að nefndin „hafi átt
að kanna hér lauslega jarðveginn
fyrir umsvif SS . . Heimildir séu
til um áhuga SS-manna á landnámi
Þjóðveija í sveitum íslands og þátt-
taka bænda og búfræðinga í nefnd-
inni kunni að einhveiju leyti að
hafa stafað af slíkum áhuga.
Norræna félagið ofsótt
Kreppan kom harðar niður á stór-
um býlum en litlum í Þýzkalandi
og Darré dró þá ályktun að stundum
kynni að vera hagkvæmast að nota
plóga. Samkvæmt fyrirmælum
hans fengu landbúnaðarverkamenn
hús og landskika, svo að þeir gætu
orðið sjálfum sér nógir með mat-
væli. A árunum 1936-1937 gagn-
rýndu umhverfisverndarsinnar
framræslu og nýrækt á vegum land-
búnaðarráðuneytisins. Þessar fram-
kvæmdir voru stöðvaðar að skipun
Hitlers, sem stundum fannst hug-
myndir Darrés bera of mikinn keim
af sósíalisma, vegna uggs um að
grunnvatn mundi spillast.
Stuðningsmenn Darrés lentu í
útistöðum við stjórn nazista og
sjálfur komst hann í vandræði.
Bramwell segir að hann hafi verið
á móti sterku ríkisvaldi, „heims-
valdastefnu“ og skilyrðislausri
hlýðni við Foringjann, en haldið
völdunum vegna þess að bændur
hafi stutt hann og hann hafi verið
kunnur erlendis. '
Hreyfing „anþrópósófista“ varð
að hætta starfsemi sinni 1935.
Nazistar ofsóttu bændur, sem að-
hylltust kenningar Steiners, og
jafnvel norrænu félögin í Þýzka-
landi urðu fyrir barðinu á þeim.
Þótt undarlegt kunni að virðast
stafaði það af andúð nazista á
frímúrurum. Nokkur norræn félög
voru bönnuð, þar á meðal „regla
drúída,“ þótt hún harðneitaði því
að hún væri tengd frímúrurum.
Bramwell segir að Darré hafi
orðið fyrir áhrifum frá nokkrum
stuðningsmönnum Steiners, sem
störfuðu á hans vegum. Hann hafi
tekið nokkrar hugmyndir þeirra
traustataki, t.d. að moldin sé, „lif-
andi vera“ og „hlekkur í lífkeðju
Darré og aðrir yfir-
menn landbúnaðar-
mála: Hugmyndir um
„lífrænan búskap."
vaxtar og hnignunar“. Sé hróflað
við þessari hringrás muni mikilvæg
næringarefni fara forgörðum og
hafa áhrif á fæðu mannsins.
Nokkrir „mannspekingar“ úr
bændastétt reistu tilraunabú í Mari-
enhöhe. Þeir héldu skrá um allt, sem
máli skipti við búskapinn, gáfu út
mánaðarritið Demeter og beittu sér
fyrir ljölgun limgerða og skjólbelta,
meiri framræslu og aukinni notkun
lífræns úrgangs í stað tilbúins
áburðar.
Ráðherrum nazista var boðið að
heimsækja þessa forgöngumenn
„lífræns búskapar“ og Hess, Bor-
mann og Darré sátu fund RNS um
málið 1937. Hess studdi fylgismenn
Steiners, en Bormann var andvígur
hugmyndum þeirra. Bramwell segir
að Darré hafi ekki sannfærzt um
kosti hugmyndanna fýrr en í maí
1940, en hafízt þá handa um að
tryggja stuðning 22 valdamestu
manna nazista við þær. Sjö reynd-
ust meðmæltir hugmyndunum, þrír
voru í vafa, þrír fjandsamlegir
vegna dulspekikenninga Steiners
(sem Bramwell segir að Darré hafi
tekið afstöðu gegn) og níu voru
algerlega á móti hugmyndunum.
Landnámið í austri
I nóvember 1939 varð Himmler
við ósk Darrés um að fá að stjórna
landnámi Þjóðveija á pólskum jörð-
um, sem voru teknar eignarnámi.
Þar með vildi hann sjálfur hrinda
í framkvæmd þeim hugmyndum,
sem hann hafði kennt Himmler og
Hitler 10 árum áður, og sjá hugsjón
þýzku ungmennahreyfingarinnar
um landnám í austri rætast. Þjóð-
veijar utan Þýzkalands áttu að setj-
ast að á pólsku jörðunum, en land-
námið fór út um þúfur. Tilraunirnar
gerðu Darré að „litlum Himmler“
og fyrir þær var hann dæmdur í
sjö ára fangelsi í Nurnberg.
Þegar Hess flaug til Skotlands í
maí 1941 voru allir stuðningsmenn
Steiners handteknir. Þeirra á meðal
voru ritstjóri Demeter og einn hán-
asti samstarfsmaður Darrés, dr.
Hans Markel, sem var með í ís-
landsferðinni 1936 og varð síðar
veijandi hans í Nurnberg.
Darré hélt þó áfram stuðningi
við landbúnaðartilraunir og söfnun
upplýsinga. Hann skoraði á Himml-
er og Heydrich að hætta ofsóknum
gegn bændum, en í marz 1942 vár
hann sviptur embætti að kröfu
Görings og Bormanns. Bramwell
segir að hann hafí tekið lítinn þátt
í stjórnarstörfum frá því stríðið
hófst. Hann hafi ekki hikað við að
segja að Hitler mundi tapa stríðinu
og sakað hann um að hafa „svikið
hugmyndir um blóð og mold“ og
lagt hraðbrautir í staðinn.
í Bretlandi gerði lafði Eve Bal-
four grein fyrir svipuðum hugmynd-
um og Darré barðist fyrir í bók sinni
The Living Soil 1941. Viðurkennt
var að þær ættu vel við á stríðs-
tímum.
Bændahugsjónin
í nóvember 1950 var Darré
sleppt úr fangelsi vegna heilsu-
brests. Síðustu þijú ár ævinnar
skrifaði hann greinar um „lífrænan
búskap" og mikilvægi bændastétt-
arinnar, en minntist ekki á aðrar
fyrri kenningar. Greinar hans birt-
ust undir dulnefni í bæjarblaðinu í
Goslar, þar sem hann settist að, og
í suður-amerísku tímariti, sem gam-
all skólabróðir hans ritstýrði.
í greinum sínum gagnrýndi
Darr i stórfyrirtæki fyrir að virða
að vettugi möguleika á nýrri tækni,
sem gæti hjálpað bændum. Hann
lagðist gegn rányrkju, „verksmiðju-
búskap“ og verkaskiptingu í land-
búnaði og taldi að allt væri þetta
tækni nútímans að kenna. Hann
áleit það þráhyggju hjá ríkisvaldinu
og atvinnufyrirtækjum að stórbýli
gætu leyst allan vanda, en hvatti
til vélvæðingar í landbúnaði og
notkunar metangass til að fram-
leiða orku úr lífrænum úrgangi.
Skömmu fyrir andlátið skrifaði
Darré lofsamlegan dóm um The
Living Soil, sem enskur kunningi
hans frá því fyrir stríð sendi honum.
Hann fékk einnig send rit eftir Jor-
ian Jenks, sem barðist fyrir smábú-
skap og hafði verið búnaðarráðu-
nautur brezkra fasista.
Annar Englendíngur, Rolf Gard-
iner, sem hafði hitt Darré í Goslar,
setti sig í samband við hann 1951
og kvað það honum að þakka að
„lífrænn búskapur" hefði dafnað
og eflzt á Englandi. Gardiner var
forystumaður á þessu sviði og hafði
flutt erindi í BBC 1940 til að láta
í ljós aðdáun á Darré og vanþóknun
á því hvernig nazistar notuðu hug-
myndir hans í áróðursskyni.
Demeter var endurvakið eftir
stríðið, en Marienhöhe lenti á
hernámssvæði Rússa. Demeter-
hreyfingin hefur útibú í Norður-
Ameríku og Ástralíu og ef hún
mælir með einhverri tegund af
„heilsufæðu“ er hún talin fyrsta
flokks vara.
Moldin og gnð
Darré lét það verða sitt fyrsta
verk þegar hann var laus úr fang-
elsi að reyna að koma á fót samtök-
um áhugamanna um lífrænan bú-
skap og umhverfisvernd. Hann fékk
nægan fjárhagsstuðning, en varð
að gefa hugmyndina upp á bátinn
vegna heilsubrests. Aðrir tóku upp
merki hans.
The Times fór lofsamlegum orð-
um um Herr Darré þegar hann lézt
og tók létt á ásökununum gegn
honum. Skömmu fyrir andlátið
sagði Darré í bréfi til ungs áhuga-
manns um „lífrænan búskap“ að
sú hugsjón jafnaðist á við landnám
erlendis fyrir 1914. Maðurinn hefði
í aidanna rás „slitnað úr tengslum
við lífrænan mátt moldarinnar og
guð, sem lifði og hrærðist í öllu“.
Fyrir daga efnishyggju hefði smá-
bóndinn verið tengiliður guðs og
manna. Það eina, sem gæti gert
manninum kleift að njóta sín til
fullnustu væri „heilög þrenning“
bóndans, náttúrunnar og guðs. Því
miður hefði hann verið svo mikill
kjáni að halda að nazistar gætu
bætt þessi tengsl.
Anna Bramwell telur að tvennt
sýni að Darré hafi verið beinn for-
veri græningja: áherzla hans á þörf
mannsins fyrir tengsl við moldina
og áherzla hans á nauðsyn þess að
varðveita „lífræna hringrás moldar,
vaxtar og hnignunar“. Trú hans á
alþjóðasamband bænda beri auk
. þess vott um að hann hafi haft
óbeit á „útþenslu- og heimsvalda-
stefnu,“ eins og græningjar nú og
fyrri boðberar „bændahugsjónar-
innar,“ þeirra á meðal Bretarnir
Cobbett og Goldsmith.
Bramwell segir að halda rnegi
því fram að án Darrés hefði hreyf-
ing umhverfisvemdarsinna liðið
undir lok um hans daga í Þýzka-
landi. Ekki er víst að öllum líki sú
áherzla, sem hún leggur á braut-
ryðjandastarf nazistaforingjans í
þágu umhverfisverndar, .én að
hennar mati er ekki hægt að ganga
fram hjá honum.