Morgunblaðið - 20.08.1989, Qupperneq 18
18-. C
Fjölmiðlar
Stöð 2 til
97% lands-
manna um
áramótin
Stöð 2 etur kaupstöðum landsins
samaii í landsleik — en hve margir
landsmenn ná og horfa á Stöð 2?
Að sögn þeirra Hannesar Jóhanns-
sonar tæknistjóra og Sighvats Blönd-
als markaðsstjóra er ekki langt í að
Stöð 2 geti talist sjónvarp allra lands-
manna. Fastir áskrifendur séu 43
þúsundir en heimili á landinu talin
um 74 þúsund. Sighvatur sagði að
92 af hveiju hundraði landsmanna
næðu sendingum stöðvarinnar en
markmiðið væri að um næstu áramót
næðu 96-97% sendingunum.
Enn eru t.a.m. Sigluíjörður, Seyð-
isfjörður, Grundarfjörður og nokkrir
aðrir staðir ekki „inni í myndinni"
og einnig væru myndgæðin á ein-
staka stöðum um landið ekki sem
skyldi, t.d. á Vopnafirði og á Höfn í
Homafirði væru þau öldungis ófull-
nægjandi.
I lok þessa mánaðar verður tækni-
búnaður settur upp á Langholtsfjalli
við Flúðir og fyllt verður í tvær „hol-
ur“ í Reykjavík; móttökuskilyrði í
miðbænum og Þingholtum og Skóga-
hverfi hafa verið slæm. Nýr sendibún-
aður verður settur upp við Blönduós
og munu Skagstrendingar þá ná
sendingum stöðvarinnar. Næsti
áfangi verður um miðjan október, þá
munu m.a. Grundarfjörður og Búðar-
dalur ná sendingunum og einnig kem-
ur Siglufjörður inn í myndina enn-
fremur Þórshöfn, Raufarhöfn og
Kópasker og Seyðisfjörður. Reiknað
er með að lokið verði við nýtt dreifi-
kerfi um Austfirði í september eða
októbermánuði og þá munu mynd-
gæðin í Vopnafirði og Hornafirði
verða mjög vel boðleg. I árslok er
stefnt að því að þrengja hringinn enn
frekar; hefja sendingar á Vestfjörð-
unum suður af Bolungavík, Mývatns-
svæðinu og í Rangárvallasýslu aust-
anverðri.
Eins og nýlega hefur komið fram
í fréttum sótti Stöð 2 um 12 milljón
króna lán frá Byggðastofnun til að
fjármagna hluta þessara fram-
kvæmda en þeirri málaleitan var
hafnað. Jón 'Óttar Ragnarsson sjón-
varpsstjóri Stöðvarinnar sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að markmið
þeirra stöðvarmanna væru óbreytt
þrátt fyrir afsvar Byggðastofnunar
en þessi afgreiðsla gæti hugsanlega
hægt eitthvað á framkvæmdum.
Hann sagðist þó vongóður um að
lánafýrirgreiðsla fengist annars stað-
ar frá sem gæti gert Stöð 2 kleift
að standa nokkum veginn við þessar
tímaáætlanir.
jMORÓUNBLABH)
FJÖUWÐLAR
________ .
UR 20. ÁGUST 1089
Fj ölmiðlagagnrýni! ?
■ Ekki sjálfsdýrkun heldur nauðsynlegft menningarlegt aðhald
FJÖLMIÐLAR fjalla mijkið um fjölmiðla, — meira en góðu hófí
gegnir að mati sumra. Útvarpsraddir tala mikið um aðrar raddir
á sömu rás ýmist í kynningarskyni eða vegna þess að raddimar
em helstu einkenni þeirra veralda sem rásiraar reyna að skapa.
Strákamir á Bylgjunni tala mikið um Valdísi og þar fram eftir
götum. Sjálfsdýrkun af þessu tagi þykir víst nauðsynleg til þess
að skapa sjónvarps- og útvarþsstöðum sjálfsmynd og fyrir áhang-
endur skiptir hið vinalega og kunnuglega andrúmsloft sem skap-
ast, miklu máli. Víst er að Islendingar hafa enn sem komið er
heyrt minna af þessu en margar aðrar nágrannaþjóðir sem hafa
búið lengur við samkeppni á öldum ljósvakans. Þó svo fj ölmiðla-
gagnrýnendur Qalli um fjölmiðla í fjölmiðlum þá á það sem þeir
gera að vera af allt öðmm toga en það sjálfshól og — gælur sem
lýst er hér að ofan. Þetta tvennt er í raun óskylt með öllu.
Orðið gagnrýni eða krítík er
grískt að uppruna. Kritikos
eða krités þýðir í klasSískri grísku
dómur eða dómari. Rökhefð
Grikkja er kunn og því kemur það
ekki á óvart að greining er samof-
in þessari skilgreiningu á gagn-
rýni því enginn úrskurður getur
verið án rökfræðilegrar sundur-
greiningar. Fjölmiðlagagnrýni er
því samkvæmt þessu rökfræðileg
greining á fjölmiðlum og úrskurð-
ur í framhaldi hennar, — hún er
einskonar tilraun til þess að halda
uppi upplýstri umræðu um fjöl-
miðla og leit að vitrænum viðmið-
unum til þess að meta verk þeirra,
er á fjölmiðlum vinna. Smekkur,
stjórnmálaskoðanir, lífsviðhorf og
aðrir huglægir þættir hafa að
sjálfsögðu áhrif en þeir eiga að
vera víkjandi. Þegar Qölmiðla-
gagnrýnir segir að eitthvað sé
betra eða verra en annað þá bygg-
ir hann það á öðrum forsendum
en þeim sem
hann leggur til
grundvallar þeg-
ar hann gerir
upp við sig hvort
hann vilji kaffi
eða te.
En til hvers gagnrýni? Hvers
vegna setja einhveijir sig á háan
hest og flokka, greina og meta?
Sjónvarpið er bara eins og það
er. Hvað þarf að velt vöngum
yfir því? Þessum spurningum er
helst hægt að svara með því að
vísa til þess að fjölmiðlar eru mjög
áhrifamiklir jafnt félagslega,
stjórnmálalega sem menningar-
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
lega. Vondir fjölmiðlar geta haft
vond áhrif. Rlöð geta borið út
óhróður um saklausa einstaklinga
og félagasam-
tök, — vont út-
varp getur skert
málhæfni fólks,
— hlutdrægt og
óvandað sjón-
varp getur orðið
áróðursmaskína ófyrirlitins
minnihlutahóps sem skert gæti
lýðréttindi meirihlutans. Gegn
slíku beinist m.a. gagnrýnin. Fjöl-
miðlar geta aukið á grósku mann-
lífsins og fjölbreytni menning-
arlífsins, — þeir geta stuðlað að
betra samfélagi, — auknu frelsi,
jafnrétti og bræðralagi. Fjölmiðla-
gagnrýnandinn á að halda þeim
BAKSVIÐ
eftir Ásgeir Fridgeirsson
Þröstur Haraldsson.
Illugi Jökulsson.
við það sem vel er gert og gott
þykir. Gagnrýnandi á að benda á
slæm vinnubrögð og mistök og
hann á að kalla forsvarsmenn til
ábyrgðar. Hann á að veija sjónar-
mið almennings, neytandans, sem
þegar upp er staðið, borgar allan
brúsann. Hann á að gæta þess
að neytandinn sé ekki snuðaður.
Almenningur á ekki að þurfa að
borga fyrir innihaldslaust og leið-
inlegt froðusnakk eða slæma
tæknivinnu. Fiölmiðlar eiga ekki
að komast upp með slíkt. Gagn-
rýnirinn á að veita ijölmiðlum fé-
lagslegt, faglegt og menningar-
legt aðhald.
íslensk fjölmiðlagagnrýni er til-
tölulega ný af nálinni og er óhætt
að segja að hún sé afsprengi hinna
svokölluðu fjölmiðlabyltingar.
Hún er ekki að neinu leyti fallin
í fastan farveg. Útvörp, tímarit
og blöð eru mjög að þreifa fyrir
sér með hentugt yfírbragð og
form. Líklegt er að fjölmiðlakrítík
verði á næstu árum meira áber-
andi og fastmótaðri, — víst er að
Ólafiir M. Jóhannesson.
„Gagnrýni á ekki að
byggjast á smekk, — ekki á
sömu forsendum og sú
löngun sumra að vilja
fremur kaffi en te.“
hér á landi er af nógu að taka.
Engin gagnrýni er algild, allra
síst fjölmiðlagagnrýni þar sem
hún eltir endalaust ólar við tísku-
sveiflur allskonar, — ólíkt sígildri
menningargagnrýni. Hins vegar
geta forsendurnar verið algildar
svo og markmið og tilgangur, þó
svo gagnrýnin sjálf sé háð tíma
og rúmi. Þótt allt fram streymi
endalaust þá er vatn alltaf vatn
sem ávallt leitar til sjávar.
...HAHAHA...ERTA MEINIDA?...
Það er svo gott að kom-
ast upp á golfvöll, ekki
síst þegar veðrið er gott.
Þarna ríkir svo mikill friður,
svo mikil kyrrð að það er
engu líkara en maður sé
langt úti í sveit. Samt er
völlurinn að Jaðri hér rétt í
jaðri bæjarins. Án þess að
truflast af byggðarhljóðum
gengur maður upp og niður
hæðir og lautir með kerruna
í eftirdragi og reynir að berja
boltann smátt og smátt
áleiðis að flöt og ofan í holu.
Flestir keppast við að slá sem
fæst högg og fara sem lengst
hveiju sinni en mér þykir
ágætt að taka stutta áfanga
og tel sjálfum mér trú um
að það sé miklu betri líkams-
rækt. Því fleiri högg, þeim
mun fleiri bolvindur, ekki
satt?
Þegar ég var að leita að
kúlunni minni einn daginn
um verslunarmánnahelgina
fór ég að huga um útvarp.
Það er dálítið merkilegt að
fylgjast með því úr fjarska
eftir að hafa kynnst inn-
viðum þess dálítið. Og það
er undarlegt hvaða stefnur
geta orðið ráðandr á svona
útvarpsstöðvum.
Á bemskudögum Svæðis-
útvarpsins á Norðurlandi,
sem margir kalla í seinni tíð
Svæðisnuddið, minnti Jónas
Jónasson iðulega á nauðsyn
þess að útvarp væri vinur
fólksins. Það er vissulega
góð kenning því vörpin eiga
hvorki að svíkjast að fólkinu
með eitthvað sem er því tii
ills né drepa það úr leiðind-
um. En þessi vináttustefna
er vandmeðfarin í meira lagi
og skelfilegt þegar svo langt
er gengið í vinskapnum að
vörpin séu orðin eins og
rakkar sem flaðra upp um
hvem sem á vegi þeirra verð-
ur.
Mér hefur orðið tíðrætt
um það handa hveijum það
útvarp er sem er lítið annað
en góðlátlegt og innihalds-
laust kjaftæði. Fjarskalega
margt er í þá áttina hjá þeim
útvarpsstöðvum sem óma
sleitulaust daginn út og inn
og jafnvel nóttina líka á
vinnustöðum, í verslunum,
meira að segja hátt og snjallt
í heyrnarhlífum þeirra sem
hafa þess háttar tæki á höfð-
inu til þess að veija eyrun
skemmdum. Þessi niður virð-
ist meira að segja ekki meira
virði en svo í augum þeirra
sem ráða til dæmis Stjörnu-
bylgjunni og Effemmstöðinni
að þeim þykir ástæðulaust
að birta dagskrá. Aðeins em
birt nöfn þeirra sem velta
plötum á þessum stærstu
diskótekum landsins. Fæstir
hafa þeir nokkuð að segja.
Þetta fólk er bara þarna og
reynir að vera ósköp vin-
gjarnlegt. Rás tvö er oft litlu
skárri þó að dagskrárliðir
heiti nöfnum. Þó em þar
fastir þættir sem almenni-
lega er staðið að, til dæmis
hjá Gunnari Salvarssyni,
Kristjáni Siguijónssyni,
Skúla Helgasyni og Svavari
Gests.
Til þess að spara sér fyrir-
höfnina af því að láta sér
koma eitthvað í hug í afþrey-
ingunni er svo bmgðið á það
ráð að hafa símatíma. Þá em
saklausir hlustendur píndir
til að taka þátt í allsheijar-
sauma- og kjaftaklúbbum
um trúlofanir, gamlar hræri-
vélaskálar, heillegt eintak af
Kapítólu, hvað á að gera,
borða, fara um helgina,
meira að segja hvernig heið-
virðar miðaldra konur geti
komið því til leiðar að sak-
lausum eiginmönnum þeirra
rísi hold meira og betur en
reynst hefur hingað til! Svo
bætast við meinhornin og
þjóðarsálirnar með þrasi og
blaðri. Allt meira og minna
til þess að fólk geti heyrt í
sjálfu sér í útvarpi eða sagt
við vinnufélagana: „Heyrð-
irðu hvemig ég tók þá í gegn
í útvarpinu í gær?“
Og rétt eins og trúlofunar-
snakkið og plötusnúðarausið
á Stjörnubylgjunni er talið á
Rás tvö að verða eins og í
saumaklúbbi. Allt er að
verða svo óskaplega sniðugt,
hahaha, og góðlátlegur hlát-
ur og stelpnalæti em að
verða fastur liður á dagskrá.
Hahaha, ertameinaða, elsku
bara hringiði ef ykkur langar
f óskalag, hahaha, hvemig
er veðrið hjá þér skan?, já
ég vissiða, sonerett alltaf
þama fyrir austan, hvað seg-
irðu? hahaha, og fóbbrotnað-
ann? og svo era hérna nokkr-
ar afmæliskveðjur, hahaha,
bið eruð bara ekkert hættir
þó að þið hafið oft gefið út
alls konar yfirlýsingar, haha-
ha, þú ert igja meinida, haha-
hahaha, og við ætlum að
gefa þeim sem hringja frítt
inn á leikinn í kvöld, hahaha,
og það er matsölustaðurinn
pottlokið á horninu á Suður-
vegi og Vesturbraut sem var
svo vinsamlegur að senda
okkur þessa obbossla góðu
hamborgara sem við emm
að borða núna, hahaha,
ummm!
Það er gott að vera uppi
á golfvelli, en það er líka
gott að sitja heima og hafa
slökkt á útvarpinu. En er
ekki dálítið fáránlegt þegar
það er að verða einn fárra
kosta við útvarp að það er
hægt að slökkva á því?
Sverrir Páll
Erlendsson