Morgunblaðið - 20.08.1989, Blaðsíða 19
■morgunblaðið FJÖLMIÐlAk sijknod^ur
20. ÁUUST 1989
c n
Ný spurn-
ingakeppni
á Stöð 2
Fyrsta spurning: Hver er þessi maður?
Kvíðnir Qöbniðlamenn
EVRÓPUÐEILD Alþjóðasambands blaðamanna; Evrópusamband starfs-
manna í prentiðnaði; Evrópunefnd listamanna, skemmtikrafta og tækni-
manna við fjölmiðla stendur stuggur af þróun „fjölmiðlabyltingarinn-
ar“ í álfunni og sendu fyrr í sumar frá sér ályktanir þar að lútandi.
Innan vébanda fyrrgreindra samtaka eru um 700 þúsund meðlimir.
STÖÐ 2 hefur ekki farið leynt
með þann ásetning sinn að efla
innlenda dagskrárgerð. Ómar
Ragnarsson sljórnar „Landsleik"
á sunnudagskvöldum næsta vet-
ur. Landsleikurinn verður spurn-
ingakeppni. Öllum kaupstöðun-
um þijátíu verður boðið að taka
þátt. Gert er ráð fyrir að fyrsti
leikurinn verði sýndur 8. október
næstkomandi.
ættirnir verða útsláttarkeppni
innan hvers kjördæmis; eftir
fyrstu umferð keppa kjördæma-
meistararnir í átta og síðar ijög-
urra-liða undanúrslitum. Að lokum
verður úrslitaleikurinn um lands-
meistaratitilinn.
Dómari verður Ólafur B. Guðna-
son. Ómar og Ólafur sögðu nánari
tilhögun iandsleiksins ekki vera
fullákveðna og enn væri eftir að
semja spurningar sem hæfðu því
ágæta hæfileikafólki sem myndi
mæta til leiks. Dómarinn sagði að
ekki væri hægt að svara því hvort
þrautirnar yrðu erfiðar. Það væri
engin leið að vita fyrirfram hvaða
spurningar stæðu í mönnum. Vand-
inn væri að finna hinn gullna meðal-
veg; spurningarnar verða ekki létt-
ar en menn heima í stofu hafa held-
ur ekki gaman af því að standa
algjörlega á gati.
Það fellur í hlut heimamanna að
velja þrjá keppendur og ekki er
ástæða til annars en að ætla að
fyrir valinu verði þeir menn sem
fróðastir og skarpastir eru taldir.
íbúar á hveijum stað styðja undan-
tekningarlítið sína menn — en
Ómar Ragnarsson tjáði Morgun-
blaðinu að trúlega myndu Reyk-
víkingar ganga sundraðir til leiks í
byijun. Höfuðstaðurinn hlutaður í
sundur. — Og hvar ætti að draga
þennan „Berlínarmúr" sem hugsan-
lega gæti sundrað nánum skyld-
mennum? Ómar sagði að Kringiu-
mýrarbrautin, Elliðaárnar og Blesu-
grófin hefðu verið nefndar. Ómar
fullvissaði blaðamann um að engar
ákvarðanir yrðu teknar nema að
höfðu samráði við borgaryfirvöld
Reykjavíkur.
Ómar var að lokum inntur eftir
því hver munur það væri að vera í
þjónustu ríkisins eða einkafram-
taksins. Hann sagði erfitt að svara
spurningunni; því hann hefði alla
sína tíð barist á báðum vígstöðvum.
Það væri helst lífeyrissjóðurinn sem
væri öðruvísi.
Fjölmiðlabyltingin svonefnda hef-
ur einkennst af örum tækni-
breytingum og því að eignaaðild að
fjölmiðlunum hefur safnast á færri
hendur; alþjóðlegar ijölmiðlasam-
steypur eni komnar til sögunnar.
Ofangreind hagsmunasamtök ijöl-
miðlafólks telja þessa þróun grafa
undan lýðræðinu, eyðileggja þjóðleg
verðmæti og leiða til einhæfar flölda-
menningar. Viðbrögð Evrópuráðsins
og Evrópubandalagsins eru talin
ófullnægjandi.
í ályktunum er sagt að í frétta-
flutningi verði lýðræðisleg og menn-
ingarleg verðmæti að hafa forgang
umfram forsendur markaðsafianna;
KANNANIR sýna að íslending-
um þykir vænt um fyrstu rás
Ríkisútvarpsins „gömlu góðu
gufuna". En er samt ástæða til
að breyta einhveiju þar á bæ,
er hægt að gera betur?
Elva Björk Gunnarsdóttir fram-
kvæmdastjóri hljóðvarpsins
vill athuga það mál; að hennar
frumkvæði hefur verið skipuð
nefnd þriggja manna. Formaður
nefndarinnar er Margrét Odds-
dóttir deildarstjóri fræðslu- og
skemmtideildar og henni til full-
tingis eru. Jón Örn Marínósson frá-
farandi tónlistarstjóri og Ævar
Kjartansson dagskrárgerðarmað-
ur.
Nefndin er nýtekin til starfa og
hafa aðeins tveir fundir verið
ekki megi vanrækja útsendingar í
almannaþágu á öldum ljósvakans.
Ráðamenn í Evrópu eru hvattir til
að sjá um að ákveða með kvótum
að meginhluti sjónvarps- og kvik-
myndaefnis skuli gerður í Evrópu.
Reisa skorður við því að yfirráð og
eignaraðild yfir íjölmiðlum safnist í
fárra hendur, t.d. verði takmarkað í
hve miklum mæli unnt sé að eiga
bæði prent- og ljósvakamiðla. Fjöl-
miðlafólkið er þeirrar skoðunar að
það verði að virða margbreytileika
Evrópu og því þurfi íjölmiðlarnir að
vera fríir og fijálsir af „mddalegum
afskiptum, hvort heldur af hálfu
markaðsafla eður ríkisins.“
haldnir. Nefndarmenn voru því
ekki margmálir í samtölum við
Morgunblaðið en heimildir herma
að þríeykið kanni hvort ástæða sé
til að breyta yfirbrágði, áferð, tóni
og jafnvel niðurröðun efnis rásar
eitt.
Allt er breytingum undirorpið —
jafnvel „gamla góða gufan“. En
formaður nefndarinnar benti Morg-
unblaðsmanni á að hjá Ríkisútvarp-
inu væri vinnulagið frekar eðlileg
þróun og framfarir heldur enn bylt-
ingar og kollsteypur.
Margrét Oddsdóttir sagði að fólk
yrði að sýna nokkra biðlund og sjá
til. Heimildir Morgunblaðsins
herma þó að líklega verði árvökulir
hlustendur varir við árangur af
starfi nefndarinnar fljótlega eftir
næstu áramót.
Nýr tónn á rás 1?
BSSS. if
fe fe I
w as %'
iGISELLA ISLAND
f sérílokki
SUMARHÚS ER EKKI BARA
FJARLÆGUR DRAUMUR
- ÞAÐ SANNA OKKAR VERÐ
OG GREIÐSL UKJÖR
Sjón er sögu ríkarim
Ur eldhúsi
Hjonaherbergi
2-4 manna herbergi
SYNNG
m §
.7^“------------------------------------------------------------------------------------------------ i : a .%
. " *• , -» . .... ' tJvi
- í ;
im
Setustofa
SYNING
t og næstu daga í
ihrauni 8 Hafnarfirði
Okkur hjá TRANSIT hf. er sönn
ánægja að tilkynna yður að á j
30 ára afmæli fyrirtækis okkar
bjóðum við til sölu mjög traust,
hlý og vönduð (heilsárs)
sumarhús, sem við
erum afskaplega
stoltir af. TRÖNUHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI, SÍMI 652501
Frábært hugvit svo og alúð hefur einkennt
alla hönnun og smíði á þessum húsum.
Húsin eru mjög hlý vegna góðrar einangr-
unar m.a. er 6 tommu einangrun í gólfi
og lofti. Tvöfalt verksmiðjugler er í gluggun-
um. Allir viðir húsanna eru sérstaklega
traustir, svo sem gólfbitar (7,5 cm x 20
cm), þaksperrur og aðrir burðarbitar.
TRANSIT hf. býður nú glaesilegt sumarhús
af GISELLA ÍSLAND gerð, sem er 48 fm
að flatarmáli auk 22 fm svefnlofts eða alls
70 fm innanhúss.
Auk þess er yfirbyggð verönd 35 fm. Sam-
tals eru því 105 fm undir þaki.
Við hönnun húsanna hefur hver þumlungur
verið skoðaður gaumgæfilega af fagmönn-
um og vegna hagstæðra viðskiptasamninga
okkar getum við haldið öllum kostnaði í
algjöru lágmarki.
•s’" Itíli&iiafe-jílS . m
mm
Verð á GISELLA ÍSLAND sumarhúsi óupp-
settu er frá kr. 1.250.000,-
Við munum á næstu dögum bjóða nokkur
hús af GISELLA ÍSLAND gerð á einstöku
kynningarverði, sem er aðeins frá kr.
1.110.000,-. Greiðslukjör eru frábær og
við erum mjög sveigjanlegir í samningum.
DÆMI:
1) Við samning greiðist 15% af verði.
2) Við afhendingu greiðist 40% af verði.
3) Eftirstöðvar greiðast síðan á t.d. 2 árum.
Ef þér viljið kynnast GISELLA ÍSLAND sum-
arhúsinu nánar, þá verið velkomin ITRÖNU-
HRAUN 8, HAFNARFIRÐI, skoðið sýninga-
húsið og fáið nánari upplýsingar.
ATH. Þeir sem þegar hafa látið skrá
sig í sumar, staðfesti pöntun sem
fyrst vegna mikillar eftirspurnar.