Morgunblaðið - 20.08.1989, Side 21
_________ -_________MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR sunnudagur
BLÚS///^r er Telecastermeistarinn?
20. AGUST 1989
c
Svart/hvítur rafblús
ÞVÍ er iðulega haldið fram að
biúsinn sé dautt tónlistarform og
að allir sem einhverju hafi náð í
þeirri tónlist séu dauðir eða svo
gott sem. Einn af þeim sem ekki
fallast á það sjónarmið er
Chicagobúinn Bruce Iglauer,
sem rekur útgáfúfyrirtækið Alli-
gator.
Alligator hefur einbeitt sér að
því að gefa út þann blús sem
leikinn er í Bandaríkjunum í dag
og hefur náð góðum árangri og
sífellt bætast við nýjar blússveitir
eða blúslistamenn
sem fyrirtækið
gefur út. Ein
helsta stjarnan,
Albert Collins, er
þó enginn nýgræð-
ingur, heldur hef-
ur hann verið á
meðal fremstu
blúsgítarleikara
Bandaríkjanna í nærfellt fjörutíu
ár. Það var þó ekki fyrr en hann
fór að gefa út plötur á vegum Alli-
gator fyrir tíu árum að vinsældir
hans urðu almennar og síðan 1985
hefur hann m.a. vakið hrifningu
fyrir frammistöðu sína með George
Thororgood á Live Aid-tónleikun-
um, leikið inn á plötu með David
Bowie og komið fram með Stevie
Ray Vaughan svo eitthvað sé nefnt.
eftir Áme
Motthíosson
Albert Collins lék á tónleikum í New
York fyrir skemmstu.
Lone Star Roadhouse
Tónleikarnir voru í búllu sem
kallast Lone Star Roadhouse og er
þá vísað til Texas. Upphitunarsveit
var sveit Elvins Bishops, sem lék í
Butterfield Blues Band á sínum
tíma. Bishop hefur leitt eigin hljóm-
sveit síðan hann sagði skilið við
Paul Butterfield um 1970 og geng-
ið þokkalega. Hann leikur rokkblús
með kímnitextum og ágætis gítar-
leik og hefur sér til fulltingis þokka-
lega sveit. Saxófónleikari sveitar-
innar var þó framúrskarandi, en
það bar mest á Bishop, sem var
einkar frískur og léttur á sviðinu.
Hann var með senditæki tengt
gítarnum og átti það til að bregða
sér á barinn til að fá sér bjór eða
annan drykk í miðjum lögum og í
lokasyrpunni fékk hann föngulega
stúlku úr salnum til að leika á gítar-
inn með sér, sem vakti mikla hrifn-
ingu og vonlegt er.
Texasblús
Eins og áður sagði hefur tónlei-
kastaðurinn Lone Star Roadhouse
nafn sitt af „lone star“-fylkinu Tex-
as og það var því við hæfi að Texas-
blúsleikarinn Albert Collins væri
næstur á svið. Collins sjálfur birtist
Elvin
„Pigboy
Cranshaw"
Bishop
Albert Collins
þó ekki strax; lét sér nægja að
senda sveitina, Icebreakers, á und-
an til að hita aðeins upp. Vakti
athygli að gítarleikari var hvít
stúlka, sem sýndi að hún var enginn
viðvaningur í gítarleik í fyrsta lag-
inu sem sveitin lék. Icebreakers var
á þessum tónleikum skipuð lítt
þekktum tónlistarmönnum að
mestu, en þó var á meðal bassaleik-
arinn snjalli Johnny B. Gayden og
tiymbillinn Morris Jennings.
Eftir upphitunarlag kom Albert
á svið með Fender Telecaster-gítar-
inn sinn á öxlinni og sett var á
fulla ferð. Byrjað var á rólegu lei-
knu lagi en siðan kom lag sem vakti
mikla hrifningu, I ain’t Drunk, með
snjöllum texta og virtúósaleik Coll-
ins á gítarinn, sem talaði til áheyr-
Ijósmynd/Björg Sveinsdóttir
enda og hreytti ónotum í þá. Það
lag er að finna á síðustu plötu Al-
berts, Cold Snap og fleiri lög voru
viðruð af þeirri plötu. Til þess kall-
aði Albert með sér á svið homa-
flokkinn The Uptown Horns, sem
vann með honum plötuna. Þá voru
komnir á svið sjö blásarar, því þrír
voru fyrir, og fundu þeir sem næst
sátu sviðinu hár sitt bærast er
flokkurinn blés af hvað mestum
móð.
Sem gítarleikari standa fáir Al-
bert Collins á sporði og enginn leik-
ur eftir „ískaldan“ hljóm hans á
gítarinn. Hann hefur verið kallaður
Telecastermeistarinn, en fáir
nútíma gítarleikarar leika á Telec-
aster-gítar, flestir kjósa heldur
Fender Stratocaster eða einhveija
Gibson-útgáfu. Collins er ekki góð-
ur söngvari, en hefur þó batnað
mikið með árunum og hann er
ófeiminn við að fá til liðs við sig
söngvara úr ýmsum áttum eftir því
sem við á. Svo var og þetta kvöld
og í síðustu lögunum fékk hann til
liðs við sig kunninga utan úr sal,
sem söng af mikill íþrótt og innlifun
á meðan Collins rölti um salinn og
lék af fingrum fram hina ótrúle-
gustu tónaklasa.
Líkléga hefur Collins leikið í um
hálfa aðra klukkustund, og hefði
gjarnan mátt leika jafn lengi til
viðbótar, en ógjörningur reyndist
að klappa hann upþ, enda orðið
framorðið og Collins og sveit hans
búinn að leika aiinað eins fyrr um
kvöldið.
Afínæliskveðja;
Rögnvaldur Sig-
urðsson, bókbindari
í dag, sunnudaginn 20. ágúst, á
vinum minn 75 ára afmæli. Rögn-
valdur Sigurðsson fæddist 20. ágúst
1914 á Fáskrúðsfirði. Foreldrar
hans voru Sigurður, fæddur 11.
desember 1887, dáinn 10. desember
1964, kennari á Siglufirði Björg-
ólfsson og kona hans Svava, fædd
20. nóvember 1888, dáinn 29. sept-
ember 1960, Hansdóttir. Rögn-
valdur hóf nám í bókbandi hjá Árna
Árnasyni á Akureyri 1934. Hann
flutti til Reykjavíkur 1936 og hélt
áfram námi hjá Guðmundi Gamalí-
elssyni. Lauk námi í ísafoldarbók-
bandi 5. október 1942. Leiðir okkar
Rögnvaldar lágu fyrst saman 1939
og því hálf öld sem ég hef þekkt
Rögnvald og unnið með honum og
aldrei hefur okkur orðið sundurorða
að heitið gæti og tel ég það sérs-
takt, enda Rögnvaldur sérstakt
prúðmenni og þægilegur í um-
gengni enda er lífsstíll Rögnvaldar
þannig að hann hefur ekki tekið
lífinu of alvarlega því hann veit að
hann sleppur aldrei lifandi frá því.
Sérstaklega man ég eftir árunum í
ísafoldarbókbandi árin 1941-1947
var þá oft glatt á hjalla hjá okkur
félögunum í bókbandinu. Rögn-
valdur vann síðustu 23 starfsárin
sín í Ríkisprentsmiðju Gutenberg
og lét þar af störfum sökum aldurs
Afínæliskveðja:
Margrét Jónsdóttir
Á morgun, 21. ágúst, hyllum við
elskulega ömmu mannsins míns,
Margréti Jónsdóttur. Hún verður
90 ára þessi „unga“ kona. í mínum
huga minnir amma mig um margt
á Bjart í Sumarhúsum. Hún er hetja
síns tíma, sjálfstæð, stolt og skap-
stór. Auk þess er hún skemmtileg
kona og falleg. Bein í baki og með
sitt hvíta hár geislar af henni hvar
sem hún fer. Já, hún amma á gott!
Þó lífið hafi ekki alltaf farið um
hana silkihönskum. Hún á gott, því
lífið gaf henni djörfung og hug sem
fáum.
Manninn sinn, Jóhannes Bárðar-
son sjómann, missti Margrét fyrir
þrjátíu árum og tveimur af börnum
þeirra fylgdi hún til grafar í vetur,
Elsu stjúpdóttur sinni í janúar og
yngsta syninum Ómari nú í apríl.
En hún stendur styrk, hin börnin
hennar, Jóhannes, Bárður og
Kristín, eru hennar stoð og gleði.
í tilefni afmælisins samgleðjumst
við Margréti Jónsdóttur á heimili
dóttur hennar, Kristínar, Ránar-
götu 44 eftir klukkan þijú á morg-
un.
Elsku amma, þína heill og ham-
ingju!!! Helga Mattína
1984.
Rögnvaldur giftist Guðnýju Guð-
mundsdóttur, fædd 17. desember
1917. Átti hann eitt barn með
henni, Snorra, fæddan 4. júlí 1942.
Þau slitu samvistum. Seinni kona
Rögnvaldar, Unnur Sigurðardóttir
f. 11. maí 1910. Hún lést þann 11.
apríl 1973. Dóttir þeirra er Sigríður
Svava, f. 17. mars 1949.
Rögnvaldur mun taka á móti vin-
um og vandamönnum í húsi Félags
bókargerðamanna á Hverfisgötu 21
milli kl. 17 og 19 í dag, afmælis-
daginn. Ég og aðrir vinir Rögn-
valdar óska honum innilega til ham-
ingju með afmælisdaginn.
Arnkell B. Guðmundsson
Hraðlestrarnámskeið
Námskeið í hraðlestri hefst 30. ágúst nk.
Þú lærir áhrifaríkar aðferðir í hraðlestri á námskeið-
um Hraðlestrarskólahs!
Á níu ára starfstíma skólans hafa nemendur að
jafnaði þrefaldað lestrarhraða sinn í öllu lesefni.
Viljir þú bætast í hóp ánægðra nemenda skólans,
skaltu skrá þig sem fyrst á námskeið.
Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 641091.
Hraólestrarskólinn
HANDGERÐ FUGLAHUS
Garðprýði aBt árið
61 x 61 x 71 cm
Póstsendum.
Sendum bæklinga
ef óskað er.
Verslunin
Klapparstíg 44
Sími 623614
46x63x48 cm
86 x 51 x 76 cm
23 x 28 x 23 cm