Morgunblaðið - 20.08.1989, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
MYIMDASÖGUR 20. águst isso
C '2S
Stiöriau-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
NautiÖ
Nautin eru fædd að vorlagi
(20. apríl — 20. maí) þegar
sólardagur er langur og nátt-
úran að vakna til lífsins. Vor-
ið er fijósamur og gjöfull
árstími.
Vinna og nautnir
Nautið er athafnamaður en
vill einnig njóta lífsins, sólar-
innar og ávaxta jarðarinnar.
Það vill taka til höndunum og
ná áþreifanlegum árangri en
síðan vill það njóta afraksturs
vinnu sinnar.
Staöfesta
í Nautinu býr ákveðin festa
og stöðugleiki. Það vinnur
jafnt og þétt og grunntónninn
er þungur og hægur. Það er
stöðugleikinn sem er að baki
hinnar frægu þijósku og þol-
inmæði Nautsins. Það vill ein-
faldlega ekki breyta til og
skipta um skoðun þegar það
á annað borð er búið að taka
ákvörðun. Breytingar krefjast
a.m.k. vandlegrar umhugsun-
ar, enda eru fæstar af stærri
ákvörðunum Nautsins teknar
í flýti. Það er því svo að þeg-
ar aðrir ætla að pressa Naut-
ið til að taka skjótar ákvarð-
anir rekast þeir á steinvegg.
Því meir sem pressan verður
því þéttari verður veggurinn.
Hlédrœgni
Nautið er frekar feimið og
varkárt merki. Það tekur
t.a.m. tíma að kynnast Nauti.
Sama atriði gerir að þú sérð
ekki Naut sem treður sér fram
á gólfið með hávaða og látum.
Aðferð þess er sú að láta lítið
á sér bera, kynna sér aðstæð-
ur í rólegheitum og horfa á
sviðið úr fjarlægð. Ef því líst
á það sem er í boði gengur
það örugglega til verks, hægt
og hljótt, en af yfirvegun.
Jarðbinding
Nautið er raunsæismerki. Það
trúir á það sem það getur séð
og snert á, annað á síður upp
á pallborðið. Hinn áþreifan-
legi heimur er því sterkur,
stundum um of. Áhersla á
líkamlega vellíðan, á mat,
peninga, steinsteypu og
margs konar nautnir getur
því orðið sterk.
Stöönun
Hið neikvæða í fari Nautsins
er að stundum verður festan
og þörfin fyrir öryggi að
stöðnun. Úthaldinu er einnig
hægt að beina inn á neikvæð-
ar brautir, sbr. þegar Nautið
þijóskast við að láta hið
ómögulega verða mögulegt.
það er því svo að stundum
grefur það sig ofan í skurð
og þijóskast við, fer dýpra og
dýpra. Stundum birtist raun
sæið og ástin á hið áþreifan-
lega í tortryggni á allt annað
en hið „hagnýta" og skapar
þröngsýni. í sannleika sagt
geta mörg Naut átt til að
vera óttalegir „tuddar“.
FriÖur
Nautið er friðelskandi merki
sem tekur samvinnu fram yfir
keppni. „Ef þú lætur mig í
friði þá læt ég þig í friði.“
Þess vegna er það yfirleitt vel
liðið. Mörg Naut eru einnig
listræn og unna menningu og
fallegum munum. Margir góð
ir söngvarar eru t.d. fæddir í
Nautsmerkinu.
Öryggi
Til að Nauti líði vel þarf það
fjárhagslegt og heimilislegt
öryggi. Þegar það er blankt
og daglegur grundvöllur, t.d.
varðandi atvinnu og heimili,
er óöruggur þá tapar það orku
og verður þungt og þreytt.
Það þarf einnig að standa
nærri náttúrunni og hafa
gras, tré og fjöll í umhverfi
GARPUR
ÞeTTA fle ETOd 8Ú!E> HJ/t
ÞÞr. pytae en þú hefur. KO/yi/&
SiÆFO/NU T/L. /yiT/J A
és HEF EKKt GLE'y/Vir J '/27
SAMN/NS/ OKKAR, 8E/N/
ÉG H£F ÚTBÓ/E) SÉ/SSTAKrr
/LMVATU FyRJR. (3ARJP
/L/ytMTN s£Ai TR.yGÍ5/e.
o/c/cu/t siou/e'
GRETTIR
BRENDA STARR
LJOSKA
FERDINAND
IM 50RRY YOUR CHRI5TMA5
PLAY WAS CANCELEP..
T~
NO CHRISTMA5 PLAV..N0
CHRI5TMA5 TREE..NO
CHRI5TMA5 CAROL5.. NO
CHRI5TMA5 COOKIE5...
T-
JU5T A MATM TE5T ON
REP ANP 6REEN PAPER..
Mér þykir leitt að það skyldi hætt
við jólaleikritið ykkar ..
Ekkert jólaleikrit, ekkert jólatré, eng-
in jólalög og engar jólakökur ...
Bara reikningspróf á rauðan og
grænan pappír..
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Spuming: Hvað eru mistök í
brids? Svar: Að bregðast og vita
af því — gera ekki eins vel og
maður veit að maður getur.
Hver einasti spilari gerir sig sek-
an um 2—4 mistök á hveiju
spilakvöldi — sum em dýrkeypt,
frá öðrum sleppa menn ódýrt
og kannski óverðskuldað. En
grundvailarspurningin er þessi:
Hvað veldur því að við spilum
ekki eins vel og við vitum að við
getum? Hvað veldur mistökun-
um? Bandaríski landsliðsmaður-
inn Mike Lawrence og fyrrum
liðsmaður Dallas-ásanna svarar
því: skortur á einbeitingu.
Norður
♦ G87
▼ K54
♦ ÁG965
+ K2
Vestur Austur
J 111 J
♦ *
Suður
+ K10
¥DG3
♦ KD83
♦ ÁG97
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Vestur kemur út með lítinn
spaða, austur drepur upp á ás
og sendir spaðaþristinn til baka.
Þú átt slaginn á spaðakóng, og
gerir hvað?
Slagirnir eru átta og tvær
leiðir koma til greina til að ná
í þann níunda: (1) bijóta út
hjartaásinn í þeirri von að spað-
arnir skiptist 4-4 á milli handa
AV, (2) svína fyrir laufdrotting-
una. Hvor er betri?
Ef einbeitirtgin er í lagi, þá
veistu auðvitað að þú hefur ekki
nægjanlegar upplýsingar til að
velja á milli af öryggi. Eða ná-
kvæmlega hvaða spaða kom
vestur út með? Fimmuna eða
tvistinn? Á þvl veltur ákvörðun-
in.
Noti AV 11-regluna gegn
grandi (að spila 4. hæsta), þá
er rétt að spila hjarta ef tvistur-
inn kom út, þvi þá brotnar litur-
inn 4-4 ef útspilið er heiðarlegt.
Og því skyldi það ekki vera það?
Fimman út bendir hins vegar til
að spaðinn sé D9654 í vestur
og Á32 í austur. Og þá er rétt
að svína. Hálftíma umhugsun
skilar engri niðurstöðu ef maður
sofnaði í fyrsta slag — ef ein-
beitingin datt niður af einhveij-
um ástæðum, sem enginn veit
nema kannski maður sjálfur.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á mjög fjölmennu opnu móti í
Búdapest í mars kom þessi staða
upp í skák alþjóðlegu meistaranna
Luthers, A-Þýzkalandi, og Jud-
asins, Sovétríkjunum, sem hafði
svart og átti leik. Hvítur lék síðast
23. Df3-h3.
SMAFOLK
23. - Hxd3!, 24. Dxd3-Ba6!, 25.
Dxa6-Dxc2+, 26. Kal-Dxdl+,
27. Rbl-Hcl (Svartur hefur unnið
liðið til baka og er kominn í návígi
við hvíta kónginn. Lokin eru
skammt undan) 28. Rd2-a3, 29.
Dxe6+-Kli8, 30. bxa3-Rg8! og
hvítur gafst upp, því hann á ekk-
ert svar við hótuninni Bf6+.