Morgunblaðið - 20.08.1989, Blaðsíða 32
32 C
MORGUNBLAÐIÐ sa.NTKl|Í)A(H;R M/ Á'GtlST, 1989
HESTAMENN
IITSALA - UTSALA
BAKÞANKAR
Hænsnakom
Suðurlandsmót í hestaíþróttum verður haldið á
Flúðum 26. og 27. ágúst.
Gisting og tjaldstæði hjá Hótel Flúðum í síma
98-66630 og Ferðamiðstöðinni Flúðum í síma
98-66756.
Skráning í símum 98-66028, 98-78688 og
98-21276 fyrir 24. ágúst.
Mikil verðlækkun
GLUGGINN,
Laugavegi 40
Ævintýraferð fyrir minna verð
Flugfar til Thailands kostar litlu meira en til
evrópskra sólarlanda. Á móti kemur að
verðlag í Thailandi er svo lágt að í heildina
er ódýrara að ferðast til Thailands en
annarra sólarlanda.
Upplifun í Thailandsferð verður
hins vegar ekki jafnað við
venjulega sólarlandaferð.
f Thailandi kynnist þú framandi
menningu, fjölskrúðugu mannlífi,
stórkostlegu landslagi og glæsilegri
baðströndum en finnast annars staðar.
Er ekki kominn tími til að breyta til?
FLUCLEIDIR áOB
SÍMI: 690300 *
í september býðst þér helmings afsláttur
af gistingu á hinu stórglæsilega hóteli
Royal Cliff á Pattaya haðströndinni.*
Ef þú t.d. borgar fyrir gistingu
í fimm nætur færðu tíu.
Svo er tilvalið að dvelja í Bangkok
í nokkra daga fyrir eða eftir
dvölina á Pattaya.
Bæklingur um Thailand liggur
frammi á öllum ferðaskrifstofum.
Þar færðu allar nánari upplýsingar um
Thailandsferðir.
* Afslátturinn miðast við að greitt sé fyrir minnst fimm nætur.
m/SAS
Laugavegur 3, simi 62 22 11
Sá maður sem í heilan vetur
hefur mokað sig niður á
hurðina á hænsnakofa í kafalds-
byl til þess að gefa hænsnfuglum
vatn og korn hefur fullan rétt á
því að skrifa
hænsnapistil. Ég
er sá maður.
Foreldrar
mínir áttu hæn-
ur þegar ég var
barn að aldri og
ég hef haldið við
þeim sið. í gamla
daga hafði ég
meiri vísindaleg-
an áhuga á hænsnum en nú. Þá
var ég helst að fást við rannsókn-
ir á vængjum þeirra og að reyna
að kenna þeim að fljúga svo
skikkanlegt væri, og þær mættu
vera fullsæmdar af, á meðal ann-
arra fugla. Ég tók þess vegna
tvær og þrjár á bakið í strigapoka
stundum, settist klofvega á
mæninn á húsinu heima og lét
þær gossa fram af sjálfum sér til
góðs. Ærið þungar og bosma-
miklar sýndust mér þær vera á
fluginu.
Stéttaskipting tíðkast meðal
hænsna eins og frægt er orðið.
Eitt sinn eignaðist ég hænu sem
var '/4 hærri en aðrar hænur og
eftir því frek. Hún var svo frek
að hún át þau egg sem hún verpti
sjálf. Hún var vitskert, þessi
stóra hæna, það sá ég þegar ég
horfði í augu hennar. Ég kallaði
hana: Herra frú Hitler. Það kom
til af því að hinar bundust sam-
tökum og gerðu henni fyrirsát.
Herra frú Hitler hélt velli en var
alblóðug eftir. Þetta bar upp á
20. júlj. Sama dag og hjá Adolf
forðum. Ógurleg ógnarstjórn ríkti
í hænsnakofanum eftir 20. júlí-
tilræðið. Eftir það gátu hinar
hænurnar ekki verpt einu ein-
asta eggi hvernig svo sem þær
rembdust. Að lokum varð ég að
drepa Herra frú Hitler til að fá
egg handa sjálfum mér úr stöll-
um hennar. Ég ætla ekki að segja
hvernig ég bar mig að við það,.
til að eyðileggja ekki morgunkaff-
ið fyrir virðulegum lesendum
Morgunblaðsins á þessum fagra
sunnudagsmorgni.
Já, ég gæti talað lengi um
hænur. Ef út í það fer treysti ég
mér til að skrifa 600 síðna bók
um hænur en ég er að hugsa um
að láta það eiga sig. Það er ekki
spanderandi svo miklu lesmáli á
þær. Eina litla frásögn sem sann-
ar það. Eitt sinn þegar ég keypti
kjúklingahóp þá var einn þeirra;
særður á löpp. Ég batt um og bar
á júgursmyrsl, en hin hænsnin
gogguðu sárabindið i sundur. Þá
batt ég um á nýjan leik og setti
aumingjann út fyrir stíu en þá
gerði hann ekki annað allan lið-
langan daginn en að hlaupa fram
og aftur með netinu til að reyna
að komast aftur inn.
En þær eru ekki allar svona
slakir pappírar. Ein hænan mín
heitir Eggjalína. Það er bæði fal-
legt og frumlegt nafn. Hænum
hefur orðið það ágengt við flug
síðan ég var að fleygja þeim fram
af þakinu forðum að hún Eg-
gjalína mín getur lyft sér yfir
stíuna. En þó hún hafi lag á því
að fljúga út, þá ratar hún alls
ekki aftur inn. Á kvöldin kemur
hún að hurðinni minni, heggur
þar í þéttingsfast, rapp-tapp-
tapp, sem er hænsnamors og
þýðir: Stóri pabbi hleyptu mér
inn. Þá verð ég hrærður i hjarta
og labba með henni út að kofa,
ég opna dyrnar og hún hoppar
hamingjusöm upp á sitt prik.
Já, elskuleg er hún Eggjalína.
En systur hennar sex éta allt
sem að kjafti kemur. Þær eru
Jangleiðina komnar með að éta
jEilla einangrunina úr hænsna-
kofanum, ekki að furða þótt
manni verði bumbult af eggjun-
um. Fari svo einn góðan veður-
dag að ekkert til mín spyrst, þá
er óþarfi að kalla út Hjálparsvett
skáta. Kíkiðí bará í hænsnakof-
ann. Þar gefur að líta: hálfétinn
skó, slitur úr sokk og brotin gler-
augu. Hænurnar hafa étið hús-
bónda sinn.
Á prikinu sínu munu þær sitja
saman í röð, sakleysið uppmál-
að, sanniði til!