Morgunblaðið - 01.09.1989, Síða 1

Morgunblaðið - 01.09.1989, Síða 1
56 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 197. tbl. 77. árg. FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins 50 ár frá upphafí síðari heimsstyrjaldar: - segir í ályktun sem öldungadeild pólska þingsins hefur sent frá sér Vársjá. Reuter. í ÁLYKTUN, sem öldungadeild pólska þingsins sendi frá sér í tilefhi af því, að 50 ár eru liðin frá innrásinni í Pólland, og upp- hafi síðari heimsstyrjaldar, eru stríðsárin sögð „skelfilegasta tíma- bil í sögu þjóðar vorrar“ ög í fyrsta sinn er skuldinni ekki aðeins skellt á Hitler og nasista, heldur einnig á Stalín og Sovétmenn. í ályktuninni segir, að Þjóðverj- ar, sem réðust inn í Pólland 1. september 1939, og Sovétmenn, sem réðust á landið 17 dögum síðar, hafi lagt á ráðin um „að uppræta pólska ríkið og hneppa þjóðina í þrældóm . .. ekki í fyrsta sinn í sögu okkar“. í þrælabúðum Sovétmanna og nasista hafi verið stunduð „skipuleg útrýming“ þar sem margir þeirra sex milljóna Pólveija, sem týndu lífi í stríðinu, mættu örlögum sínum. í ályktun- inni segir samt, að Þjóðveijar beri meiri siðferðiiega ábyrgð á styij- öldinni. Moldavíska gerð að ríkismáli: herra Póilands, í gær og sagði, að kominn væri tími til varanlegra sátta með þjóðunum. Richard von Weizsácker, forseti Vestur-Þýska- lands, lýsti því líka yfir á mánu- dag, að Bonnstjórnin ætti engar landakröfur á hendur Pólveijum. I ályktun pólsku öldungadeild- arinnar sagði einnig, að Pólland væri nú loksins að losna undan „alræði“ kommúnismans, sem þröngvað var upp á þjóðina þegar sovéski herinn lagði landið undir sig 1944. Reuter í dag eru liðin 50 ár frá upphafi síðari heimsstyijaldar en hún hófst með innrás Þjóðveija í Pólland og 17 dögum síðar lögðu Sovétmenn austurhéruð landsins undir sig. Þessa mesta hildarleiks mannkyns- sögunnar er nú minnst í þeirri von, að hann endurtaki sig aldrei aftur. Jakov Klenstein heitir þessi orðum prýddi öldungur en hann st.endur fyrir framan minnismerki, sem reist var í Varsjá til minning- ar um trúbræður hans, gyðingana, sem féllu í baráttunni við her- námslið nasista. Hitler og Stalín hófu styrjöldina Noregur: Mesta atvinnu- leysi frá styrj- aldarlokum Osló. Reuter. UM 90.000 manns eru nú atvinnu- lausir í Noregi og hefúr atvinnu- ástand þar ekki verið verra frá lokum síðari heimsstyrjaldar, samkvæmt upplýsingum norska atvinnumálaráðsins sem birtar voru í gær. Fram kom að 4,1% vinnufærra manna eru atvinnulausir en i lok júlí var sú tala 3,9%. Norðmenn ganga til kosninga 11. september næstkomandi. Verka- mannaflokkurinn, sem fer með völd í landinu og er spáð miklu fylgistapi í kosningunum, hefur heitið því að halda uppi fullri atvinnu. Ríkisstjórn landsins hefur varið sem nemur 66 milljörðum ísl. króna á þessu ári til endur- og framhalds- menntunar og starfsþjálfunar fyrir atvinnulausa. Gro Harlem Brundtland forsætis- ráðherra hefur sagt að ekki verði vikið af samdráttarstefnu stjórn- valda. Hagfræðingar segja að hún hafi bjargað norskum efnahag úr djúpum öldudal með þeim afleiðing- um þó að mörg þúsund manns hafá misst vinnu sína. Innrásarinnar í Pólland og upp- hafs síðari heimsstyijaldar er minnst með ýmsum hætti þar og víðar um lönd en pólska öldunga- deildin minnir á, að enn eigi Pól- veijar og Þjóðveijar eftir að semja fulla sátt sín í milli. Stafar það ekki síst af yfirlýsingum sumra hægrisinnaðra stjórnmálamanna í Vestur-Þýskalandi um að landa- mærin frá 1937 gildi enn vegna þess, að ekki hafa verið gerðir friðarsamningar milli ríkjanna. Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, hringdi hins vegar í Tadeusz Mazowiecki, forsætisráð- Um 100.000 rússneskir verka- menn mótmæla með verkíbllum Moskvu. Reuter. ÞING Sovétlýðveldisins Moldavíu samþykkti í gær lög sem gera moldavísku að ríkismáli í lýðveld- inu. Um 100.000 rússneskir verka- menn lögðu niður störf í mótmæla- skyni. Frumvarpið breyttist þó í meðföi-um þingsins og sættust þingfúlltrúar, að loknu þriggja daga þrefí, á málamiðlun sem kveður á um að í daglegum sam- skiptum manna á meðal verði töluð rússneska. Ljóst þykir að þessi leið hafi verið valin til að friða stjórnvöld í Moskvu, sem óttast þjóðernisvakningu í lýð- veldinu í líkingu við það sem átt hefúr sér stað í Eystrasáltslýð- veldunum. Júrí Plugaro, talsmaður samtaka þjóðernissinna í Moldavíu, Alþýðu- fylkingarinnar, sagði að samtökin væru ekki ánægð með málamiðlun þingsins. Sagði hann að samtökin myndu beita sér fyrir því að upphaf- legt frumvarp, sem kvað á um að moldavíska yrði eina opinbera tungu- málið í lýðveldinu, yrði samþykkt óbreytt. „Ég skil þessi nýju lög á þann veg að nú séu ríkismálin tvö,“ sagði Plug- aro. Hann sagði að framvegis yrði talað bæði á moldavísku og rússn- esku á þinginu og að opinber skjöl yrðu rituð á báðum tungumálunum. „Málamiðlun þingsins nægir okkur ekki, við munum halda verkfalli okk- ar áfram,“ sagði Dmítrí Kondr- atovítsj, talsmaður verkfallsnefndar rússneskra innflytjenda í lýðveldinu. Samkvæmt nýju lögunum verður tekið upp latneskt letur í stað kýr- illísks, sem sovésk stjórnvöld inn- leiddu þegar Moldavía varð sovéskt lýðveldi 1940. Sovéska sjónvarpið greindi frá því að stjórnvöld i Moskvu hygðust grípa til nýrra aðgerða til að kveða niður átök Azera og Armena sem blossað hafa upp að nýju um yfirráð í hérað- inu Nagorno-Karabak. Nikolaj Sljunkov og Viktor Tsjebrikov, sem sæti eiga í stjórnmálaráði sovéska kommúnistaflokksins, áttu fund með fulltrúum Armena og Azera í Moskvu í gær. Samkomulag varð um að leysa bæri deilumálið „á lýðræðislegan hátt og í samræmi við stjórnarskrá Sovétríkjanna". Ekki var nánar greint frá viðræðunum. Sjónvarpið skýrði einnig frá því að þingfulltrúar í Eistlandi hefðu sent Míkhail Gorbatsjov Sovétforseta símskeyti og gagmýnt árásir Sovét- stjórnarinnar á „and-sovéska öfga- stefnu" í Eystrasaltsríkjunum. Þing- fulltrúarnir kváðust óttast að Sovét- stjórnin hygðist senda herlið inn í Eystrasaltslöndin. Reuter Bandarískir hernaðarráð- gjafar til Kólumbíu Fjórir menn slösuðust í sprengingu í gær í Medellin-borg, heimkynn- um eiturlyfjasala í Kólumbíu. Þetta var átjánda sprengjutilræðið frá því að Virgilio Barco, forseti landsins, lýsti yfir stríði á hendur eitur- lyfjasölum 18. ágúst sl. Talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytis- ins sagði í gær að á inilli 50 og 100 hernaðarráðgjafar yrðu sendir kólumbískum stjórnvöldum til aðstoðar í stríði þeirra gegn eiturlyfja- sölunum. Sjá ennfremur: „Útgöngubann sett í Medeilin..." á bls. 18. Austurríkismenn kreíja Austur- Þjóðveija ekki um vegabréMritun Vín, Austur-Berlín. Reuter. AUSTURRISK stjórnvöld ætla að nema úr gildi reglugerð sem kveð- ur á um að Austur-Þjóðverjar þurfi að írainvísa vegabréfsáritun til að komast inn í landið. Talsmaður austurríska utanríkisráðuneytis- ins sagði að reglugerðarbreytingin tæki að öllum líkindum gildi um hclgina. Talsmaður austurríska ríkisjárnbrautafélagsins sagði að hafinn væri undirbúningur að því að flytja mörghundruð flóttamenn frá Austurríki til flóttamannabúða í Vestur-Þýskalandi. Vestur-þýskir embættismenn hafa sagt að 220.000 Austur- Þjóðveijar séu nú í sumarleyfi í Ungveijalandi. Flestir eiga þeir að snúa aftur til vinnu í heimalandi sínu eftir helgi og hafa getgátur verið uppi um að fjöldaflótti bresti á fyrir þau tímamörk. „Austurrísk lög kveða á um að í neyðartilvikum megi hleypa fólki inn í landið án vegabréfsáritunar og án þess að mikil skriffinnska sé því fylgjandi," sagði talsmaður austurríska utanríkisráðuneytisins við fréttamann Reuters-fréttastof- unnar. Ungversk stjórnvöld hafa ekki sent flóttamenn gegn vilja þeirra til Austur-Þýskalands, en í gildi er samningur milli ríkisstjórna land- anna sem felur í sér að Ungveijum er óheimilt að leyfa austur-þýskum þegnurtj að fara til Vesturlanda. Guyla Horn, utanríkisráðherra Ungveijalands, fór í skyndiheim- sókn til Austur-Þýskalands í gær þar sem hann átti viðræður við þarlenda ráðamenn um flótta- mannavandamálið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.