Morgunblaðið - 01.09.1989, Síða 4

Morgunblaðið - 01.09.1989, Síða 4
4 MORGtJNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEFl'EMBER 1989 Aðalfundur Stéttarsambands bænda: „Leitað verði samstarfs um lækkun búvöruverðs“ Hvanneyri, frá Halli Þorsteinssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. Á AÐALFUNDI Stéttarsambands bænda, sem hófst á Hvanneyri í gær, sagði Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambandsins að hann áliti að Stéttarsambandið ætti að leita eftir samstarfi við aðila vinnu- markaðarins, ASÍ og BSRB, svo og ríkisvaldið um könnun á því á hvern hátt mætti lækka verð búvara með langtímamarkmið í huga, og aðlaga landbúnaðinn á þann hátt breyttum viðhorfum í markaðsmál- um innanlands og erlendis. Haukur sagði að gera þyrfti úttekt á núver- andi kerfi niðurgreiðslna og útflutningsbóta með tiiliti til þess hvort hagkvæmt væri að greiða niður vöruverð á frumstigi framleiðslu, eða taka upp beinar greiðslur til bænda. Þá sagði hann að flýta þyrfti nauðsynlegum aðgerðum til þess að hagræða skipulagi sláturhúsa og mjólkurbúa, og fela ætti Byggðastoftiun að aðstoða við atvinnuupp- byggingu á stöðum þar sem vinnslustöðvar yrðu lagðar niður. í ræðu ginni fjallaði Haukur meðal annars um framkvæmd búvörusamn- inganna, og sagði að framkvæmd þeirra hefði tekist í öllum aðalatrið- um nema hvað varðaði sölu kinda- kjöts innanlands, en með aðgerðum sínum í niðurgreiðslumálum og með álagningu söluskatts hefðu stjóm- völd sjálf raskað þeim forsendum sem söluáætlun búvörusamninga byggðist á. Haukur sagði að ein af skýringum þess hversu hátt verð sauðfjárafurða VEÐUR væri í dag, væri að stjórnvöld hefðu rekið byggðastefnu sína í gegnum sauðfjárræktina. Úr því yrði að draga að stuðningur stjómvalda við viðhald byggðar um landið yrði fjármagnað- ur í gegnum kaup neytenda á sauð- fjárafurðum, og í því sambandi kæmi til álita að taka upp beinar greiðslur til bænda, sem líaga mætti mismun- andi eftir landshlutum, bústærð og öðmm aðstæðum. Með því móti yrði byggðastefnan mun markvissari í framkvæmd, og unnt yrði að beina stuðningnum til þeirra sem raun- verulega þyrftu hans með, en slíkar greiðslur myndu auk þess stuðla að lækkun vöraverðs á öllum stigum og bæta samkeppnisaðstöðu kindakjöts á markaðnum. Varðandi mjólkurframleiðsluna sagði Haukur að eitt brýnasta verk- efnið væri að ná niður framleiðslu- kostnaði og auka hagkvæmni bú- anna. Einnig væri brýnt að auka hagkvæmni vinnslunar, og óhjá- kvæmilegt væri að vinnslustöðvum yrði fækkað. Hann sagði það stinga nokkuð í augu að á sama tíma og mjólkurframleiðendur hefðu þurft að þrengja verulega áð sér, þá hefði hlutur vinnslunnar sem hlutfalls af óniðurgreiddu heildsöluverði mjólkur hækkað úr 19,6% árið 1980 i 23,8% á síðasta ári, en samkvæmt sömu viðmiðun hefði hlutur grandvallar- verðs til bóndans á sama tíma lækk- að úr 75,3% í 68,5%. Sjá einnig bls. 10. VEÐURHORFUR íDAG, 1. SEPTEMBER YFIRLIT í GÆR: Um 400 km norðaustur af Langanesi er 982ja mb lægð á leið norðaustur, en iægðardrag meðfram suðurströnd- inni þokast suðaustur. Veður fer kólnandi. SPÁ: Norð- og norðvestlæg átt og skýjað á Norðausturiandi en annars léttskýjað. Hiti 5-14 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Sunnan- og suðaustanátt. Rigning eða súid á Suður- og Vesturlandi, en viðast þurrt á Norður- og Austur- landi. Hiti 8-16 stig. Hiýjast norðaustanlands. HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestanátt um land allt, skúrir vestan- lands, en þurrt og léttir til austanlands. Hiti 9-17 stig, hlýjast norð- austanlands. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 6 skýjaö Reykjavík 7 rigning Bergen 16 hálfskýjaö Helsinki 16 skýjað Kaupmannah. 18 skýjað Narssarssuaq 6 skýjaö Nuuk 3 rign. og súld Ósló 14 rígning Stokkhólmur 19 téttskýjað Þórshöfn 11 skúr á sfö. klst. Algarve 25 léttskýjað Amsterdam 17 þokumóða Barcelona 24 skýjað Berlín 19 léttskýjað Chicago 17 heiðskírt Feneyjar 22 léttskýjað Frankfurt 21 léttskýjað Glasgow 16 skúr á sið. klst. Hamborg 'skýjað Las Palmas 26 skýjað London 18 skýjað Los Angeles 16 heiðskírt Lúxemborg 19 skýjað Madríd 27 léttskýjað Malaga vantar Mallorca 30 léttskýjað Montreal 14 léttskýjað New York 20 heiðskírt Orlando 26 skýjað París 22 alskýjað Róm 25 léttskýjað Vín 19 hálfskýjað Washington 21 heiðskírt Winnipeg vantar Morgunblaðið/RAX Frá aðalfúndi Stéttarsambands bænda á Hvanneyri í gær. Steingrímur J. Sigfússon: Tilboðum um kaup eða leigu fullvirðisréttar hætt STEINGRÍMUR J. Sigfússon landbúnaðarráðherra sagði í ræðu sem hann hélt á aðalfúndi Stéttarsambands bænda í gær, að sá gríðarlegi munur, sem nú væri á sölu kindakjöts á innanlandsmarkaði og úthlutuð- um fúllvirðisrétti til bænda, væri tvímælalaust. stærsta vandamál sem nokkur grein íslensks landbúnaðar stæði frammi fyrir. Hann kynnti á fúndinum nokkrar tillögur varðandi stefhumörkun og undirbúning að nýjum grundvelli búvöruframleiðslunnar, meðal annars um að almenn- um tilboðum um kaup eða leigu á fúllvirðisrétti yrði hætt, en við tækju sérstakar aðgerðir á grundvelli markmiða um aðlögun og svæðaskipt- ingu framleiðslunnar. Samkvæmt þeim tillögum sem landbúnaðarráðherra kynnti er gert ráð fyrir sérstöku svæðaskipulagi búvöruframleiðslu og vinnslu búvara, sem byggi á bestu samræmingu land- nýtingarsjónarmiða, hagræðingu í framleiðslu, vinnslu og dreifingu búvara og markmiðum stjórnvalda í byggðamáium. Svæðaskipulag þetta ásamt búrekstrarskilyrðum á jörðum yrði síðan haft til hliðsjónar við framtíðarstjórnun framleiðslunnar. Steingrímur sagði að efla þyrfti Jarðakaupasjóð í því skyni að kaupa jarðir sauðfjárbænda, sem láta vilja af þeim búskap og selja jarðir sínar, og ekki búa á „ríkjandi“ sauðfjár- ræktarsvæðum. Sjóðurinn yrði sam- einaður Jarðeignum ríkisins og fengi til sín allar tekjur af þeim. Þessum tekjum yrði heimilt að ráðstafa til að aðstoða þá sauðfjárbændur, sem láta vildu af þeim búskap, með úreld- ingu mannvirkja sem tengjast beint sauðfjárræktinni á viðkomandi jörð og ekki nýtast til nýrra viðfangs- efna. Þetta yrði gert í þeim tilvikum sem viðkomandi bændur óski ekki eftir að selja jarðir sínar þrátt fyrir að þeir láti af sauðfjárbúskap. Sam- kvæmt tillögu ráðherra yrði í þessu skyni þegar veitt aukaíjárveiting með það að markmiði að hefja strax aðgerðir, en síðan yrði á fjárlögum næstu tvö ár sérstök fjárveiting tengd þessum verkefnum jarðeigna og jarðasjóðs. Bændum sem láta vildu af mjólkurframleiðslu yrði auð- veldað það á sambærilegan hátt með úreldingu mannvirkja. Framleiðslu- réttur í mjólk sem þannig losnaði yrði eingöngu nýttur af mjólkurfram- leiðendum á ríkjandi mjólkurfram- leiðslusvæðum, sem afsaíi sér fram- leiðslurétti í sauðfé á móti. Steingrímur J. Sigfússon sagði í ræðu sinni að viðræður ríkisvaldsins og bænda um nýjan grundvöll bú- vöraframleiðslu ættu að miðast við að samningar færist úr magnsamn- ingi yfir í markaðstengdan grund- völl, þannig að gerður yrði ramma- samningur til nokkurs tíma sem feli í sér innbyggða aðlögun að breyttum markaðsaðstæðum. Þá yrði núver- andi tilhögun framleiðslustjórnunar með framreikningi fullvirðisréttar frá tilteknum viðmiðunarárum tekin til gagngerrar endurskoðunar samhliða viðræðum, með það að markmiði að framvegis taki framleiðslustjórnun einnig mið af búskaparskilyrðum, falli að markmiðum um hagræðingu á grundvelli svæðaskipulags og leiði til meiri jafnaðar í afkomu bænda. Þá sagði hann jafnframt að stefna bæri áð endanlegri niðurstöðu í yfir- standandi viðræðu ríkisvaldsins og bænda á fyrstu mánuðum næsta árs, en niðurstöður vegna aðgerða á yfir- standandi hausti þyrftu að liggja fyrir eigi síðar en 20. september. Síefán Ólafsson veit- ingamaður látinn STEFÁN Ólafsson veitingamað- ur, Einimel 1 í Reykjavík, lést í fyrradag, 57 ára gamall. Hann var á leið úr veiðiferð ásamt sonum sínum, er hann varð bráðkvaddur. Stefán var Vestfirðingur, fæddur á Þingeyri 28. október 1931. Hann gerðist ungur sjómaður og hóf síðar nám í Matreiðslu- og veitingaskól- anum í Reykjavík. Þaðan braut- skráðist hann 1952. Hann tók að sér rekstur tveggja mötuneyta í stórum frystihúsum: ísbiminum á Seltjamarnesí og Kirkjusandi. Jafnframt vann hann að stofnun Múlakaffís við Hallarm- úla sem tók til starfa 1962. Þegar Hús verslunarinnar var opnað hóf hann þar rekstur Veitingahallarinn- ar og Hallargarðsins. Stefán var um árabil í stjórn Sambands veit- inga- og gistihúsaeigenda. Eiginkona Stefáns er Jóhanna R. Jóhannesdóttir. Lifir hún mann Stefán Ólafsson. sinn ásamt þremur börnum þeirra. Öll starfa þau við fyrirtæki fjöl- skyldunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.