Morgunblaðið - 01.09.1989, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 01.09.1989, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1989 7 Nýtt út- gerðar- félag Höfn. —7 STOFNFUNDUR útgerðarfélags um rekstur togarans Oturs HF 16 var haldinn á Höfti, þriðjudags- kvöldið 29. ágúst. Otur var keyptur af Sjólastöðinni í Hafnarfirði snemma í þessum mán- uði og var kaupverð 243 milljónir króna. Otur er 451 lesta skip, smíðaður á Spáni 1974. Hann mun halda til veiða um miðjan næsta mánuð og er síðan væntanlegur í nýja heima- höfn undir mánaðamótin septem- ber-október. Skipstjóri verður Sæ- mundur Gíslason á Höfn. Um 100 fyrirtæki og einstaklingar hafa skráð sig fyrir hlutafé í hinu nýja félagi en hlutafé er 90 milljónir króna. Stærstu hluthafar eru Kaup- félag Austur-Skaftfellinga með 35 milljón króna hlut. Bæjarsjóður Höfn leggur til 30 milljónir og verkalýðsfélagið Jökull 10 milljónir. Stjórn hins nýja félags skipa Hermann Hansson kaupfélags- stjóri, Gunnar Ásgeirsson, útgerðar- maður, Guðjón Þorbjörnsson fram- kvæmdastjóri og bæjarfúlltrúi, Eirík- ur Jónsson, bæjarfulltrúi og Guðný Böðvarsdóttir. Varastjórn skipa Ingólfur Ás- grímsson, Haukur Þorvaldsson og Birnir Bjarnason. í samþykktum fé- lagsins er gert ráð fyrir að togarinn landi allt að 80% afla á Höfn en kvóti skipsins er 1.744 tonn af þorski. - JGG Biskupstungur: Sumarbústað- ur brann til kaldra kola MIKIÐ tjón varð er nýlegur sum- arbústaður í landi Efri-Reykja í Biskupstungum brann til kaldra kola á þriðjudagsmorgun. Enginn var i bústaðinum þegar eldsins varð vart og hafði ekki verið dval- ið þar í um það bil hálfan mánuð en þegar fólk í nálægum bústað vaknaði stóðu eldtungur út um glugga. Slökkvilið sveitarinnar kom fljótt á staðinn með vatn á bíl og náði fljótt tökum á eldinum. Hins vegar varð slökkviliðið vatnslaust og meðan sótt var meira vatn blossaði eldurinn upp að nýju og breytti húsinu í rjúk- andi rústir þar sem ekkert er heillegt nema undirstöður hússins. Rannsóknarlögreglan á Selfossi vinnur að málinu í samvinu við Raf- magnseftirlitið. Að sögn Hergeirs Kristgeirssonar lögreglufulltrúa eru eldsupptök óljós en ekkert hefur komið fram sem bendir til að eldur- inn hafi komið upp af mannavöldum. * Ovissa um framtíð Iðnó FRAMTÍÐ Iðnó er enn óráðin að sögn Jóns Árnasonar fram- kvæmdastjóra Alþýðuhússins Iðnó. Þessa dagana hefúr AI- þýðuleikhúsið fengið inni með ' æfingar sínar en enginn leigu- samningur hefúr verið undirrit- aður. Að sögn Jóns er allt í óvissu með framtíð hússins. Nefnd sú er Birgir ísl. Gunnarsson þáverandi mennta- málaráðherra skipaði til að fjalla um framtíð þess hefur ekki komist að neinni niðurstöðu. Húsið er til sölu og munu leigusamningar ef það verður leigt taka mið af því. ....hefst í dagkl. 13.00 ÓTRÚLEGT VERÐ ‘P'Utt&afái. STEINAR BOMBEY NAFNLAUSA BÚÐIN Hljómplötur - kassettur Barnafatnaður Efni allskonar KARNABÆR - BOGARY - GARBÓ THEÓDÓRA Tískufatnaður Herrafatnaóur Kventískufatnaður HUMMEL SKÆÐI KRINGLUNNI MÆRA Sportvörur alls konar Skófatnaður Snyrtivörur - skartgripir SAMBANDIÐ EFRAIM PARTY Fatnaður ó alla fjölskylduna Skófatnaður Tískuvörur FELL 1 BLÓMALIST KÁRI Blóm og gjafavörur Sængurfatnaður o.fl. Fjöldi fyrirtœkja — gífurlegt vöruúrval STORUTSÖLUMARKAb

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.