Morgunblaðið - 01.09.1989, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 01.09.1989, Qupperneq 19
M.ORGIJNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1989 19 Adamson með tvo ljónsunga. George Adamson jarðsettur: Grænland: Fjárlagaftoim- varpið tilbúið Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgnnblaösins. GRÆNLENSKA landstjómin hef- ur lagt fram fjárlagafrumvarpið fyrir árið 1990 og eru niðurstöðu- tölur þess 3,3 milljarðar danskra króna (um 26,4 milljarðar isl. kr.) Frumvarpið verður tekið til með- ferðar á landsþinginu, sem hefst 29. september. Af fjárlagaupphæðinni eru 2,3 milljarðar dkr. vegna rekstrarút- gjalda. Einn milljarður dkr. fer til framkvæmda, þar af 180 millj. til íbúðarbygginga og 90 millj. til raf- stöðvarbyggingar fyrir Jakobshöfn. Rekstrarútgjöldin samkvæmt fjár- lagafrumvarpinu eru skorin niður um 100 millj. dkr. frá því í fyrra og gert ráð fyrir 230 millj. tekjuafgangi. Lífgjafí ljónanna féll fyrir hendi veiðiþjófa ^ New York Tnnes. Á MORGUN verður borinn til grafar í Kenýa náttúruverndarmaðurinn George Adamson en liann og tveir aðstoðarmanna hans voru myrtir fyrir tæpum hálfúm mánuði skammt frá búðum hans í norðausturhluta landsins. Adafnson og fyrrum kona hans, Joy Adamson, urðu á sinum tíma heimskunn fyrir bækurnar Borin frjáls og Frjálst líf en í þeim sögðu þau frá Ijónunum, moðurh slepptu síðan úti í náttúrunni. Adamson, sem var 83 ára að aldri, var fæddur á Indlandi af írsku og ensku foreldri en 1924 settist hann að í Kenýa þar sem hann ætlaði að hafa ofan af fyrir sér með gull- grefti, tryggingastarfsemi, land- búnaði og veiðum. 1938 venti hann sínu kvæði í kross og fór að vinna fyrir náttúruverndarstofnun ríkisins í Kenýa. Á sjöunda áratugnum urðu þau hjónin fræg fyrir bækurnar, sem ungpim, sem þau olu upp og fyrr eru nefndar, en 1971 skildu þau að borði og sæng. Joy bjó áfram í Kenýa en 1980 féll hún fyrir morð- ingjahendi. Var þar að verki fyrrum starfsmaður hennar, sem hún hafði rekið fyrir þjófnað. Talið er að morðingjar Adamsons séu' Sómalíumenn af ættfiokki Shifta en þeir koma oft yfir landamærin til Kenýa og eru alræmdir veiðiþjófar. Gúlag-eyjaklasinn loks birtur í Sovétríkjunum New York Times. FYRIR fímmtán árum var rithöfundurinn Alexander Solzhenítsyn rek- inn frá Sovétríkjunum og bækur hans voru bannaðar þar í landi. Síðan hefúr mikið vatn runnið til sjávar og það er til marks um breytingarn- ar, að nú hefur sovéska bókmenntatímaritið Novíj Mír birt fyrstu kafl- ana í bók Solzhenítsyns, Gúlag-eyjaklasanum, frásagnir af sovéska fangabúðanetinu og grimmdaræði Stalínstímans. Hér er um mikinn bókmenntavið- ei Zalygín, ritstjóra Novíj Mír. í burð að ræða enda má segja, að nú meira en ár hefur hann staðið í stappi sé frægasti, sovéski útlaginn kominn heim í vissum skilningi. Hlutar af smærri verkum Solzhenítsyns hafa að vísu verið birtir í Sovétríkjunum á síðustu árum en rithöfundurinn hefur alltaf krafist þess, að Gúlagið verði birt fyrst. Útgáfan er mikill sigur fyrir Serg- við embættismenn kommúnista- flokksins, sem augljóslega eru ekkert yfir sig hrifnir af þessu verki Solz- henítsyns og kannski ekki að undra. Með Gúlaginu kveður Solzhenítsyn upp þann dóm, að hörmungar Sovét- manna séu að kenna Lenín og hug- myndafræði hans. Sækjast þeir einkum eftir fílabeini, nashyrningshornum og ljóna- og hlé- barðaskinni. Til að bjarga þessum dýrategundum frá útrýmingu hafa stjórnvöld skorið upp herör gegn veiðiþjófunum og orðið vel ágengt. Það hefur hins vegar valdið því, að þjófarnir hafa lagt fyrir sig aðra glæpi og er þess skemmst að minn- ast, að í sumar voru þrír ferðamenn skotnir til bana í einum þjóðgarðin- um. Samt sem áður eiga villidýrin mest á hættu og segja kunningjar Adamsons, að Ijónin, sem hann hefur alið upp og sleppt, einu ljónin á því svæði, séu mörg fallin fyrir byssukúl- um veiðiþjófa. Alexander Solzhenítsyn MASTER ♦ PL-4 VÖKVAVMDA PULLMASTER PL-4 er afkastamikil tveggja tonna vökvavinda, meö jafnan vinduhraða í báöar áttir. Knúin vökvadrifnum gírmótor. Sjálfvirkar diskabremsur og öryggisbremsa. Innbyggö vökvakæling gegn ofhitun viö mikið álag. Allir snúningsfletir aflokaðir og vinna í olíubaöi. Kúlu og keflalegur á öllum snúningsflötum tryggja langa og áfallalausa notkun meö lágmarks bilanatíöni. Varahluta- og viðgerðarþjónusta. Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar. PULLMASTER - rökréttur kostur. LASALAN H.F. ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122 TVÖFALDUR 1.VINMNGUR á laugardag handa þér, ef þú hittir á réttu tölumar. Láttu þínar tölur ekki vanta í þetta sinn! Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511. Bladid sem þú vaknar vió! V|Sfi/OVNI3WVS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.