Morgunblaðið - 01.09.1989, Page 21

Morgunblaðið - 01.09.1989, Page 21
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1989 jltagtsiiÞIafrtfr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónssön. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Skýr stefna sjálfstæðismanna ingflokkur sjálfstæðis- manna hefur samþykkt yfir- lýsingu um fijálslynda og víðsýna umbótastefnu í atvinnu- málum. í stuttu máli má segja, að í henni sé mælt fyrir um allt önnur tök á stjórn efnahags- og atvinnumála en þau sem ríkis- stjórn Stejngríms Hermannsson- ar beitir. í inngangi yfirlýsingar- innar segir einnig: „Það eykur á efnahagsvanda þjóðarinnar að núverandi ríkisstjórn hefur farið á vit fortíðarinnar við lausn hans og beitt ráðum sem hvarvetna eru á undanhaldi. Af þeim sökum hefur samdrátturinn bæði orðið meiri og verður langvinnari en ella.“ Úrræði ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar hafa einkum falist í því að auka af- skipti stjómmálamanna og auka hlut ríkisins eða sjóða á þess vegum í atvinnulífinu. í yfirlýs- ingu sjálfstæðismanna kenna þeir þessa stefnu við þjóðnýtingu og minna á að slík stefna hafi hvarvetna leitt til stöðnunar og versnandi lífskjara almennings. Skipbrot þjóðnýtingar og ríkis- forsjár blasir best við í ríkjunum í Austur-Evrópu, þar sem at- vinnufyrirtæki eru komin á von- arvöl og almenningur býr við skort. Hinni almennu stefnumörkun sinni lýsa sjálfstæðismenn með þessum orðum: „Hornsteinn þessarar atvinnustefnu er að endurvekja fijálslyndi og víðsýni við stjórn atvinnumála og gefa atvinnulífinu kost á því að standa á eigin fótum. Við slík skilyrði eru bestar forsendur til umbóta og árangurs hjá öllu því vinnu- fúsa fólki sem starfar hjá íslensk- um fyrirtækjum. í hagnaði traustra fyrirtækja felst vonin um aukinn kaupmátt og betri lífskjör." Eftir þessa almennu stefnu- yfirlýsingu er drepið á ýmis at- riði og því lýst, hvernig að þeim verði staðið í framkvæmd. Gengi krónunnar á að ráðast af efna- hagslegum forsendum en ekki vera háð geðþótta stjórnmála- manna. Gjaldeyrisviðskipti verða gefin fijáls í áföngum. Eiginfjár- myndun í atvinnulífinu á að örva og losa fyrirtæki á þann veg af skuldaklafanum. Eignaskattar vinstri stjórnarinnar verða afn- umdir. Opinberir millifærslusjóð- ir verða einnig afnumdir. Starf- semi Verðjöfnunarsjóðs fiskiðn- aðarins verði hætt. Fulltrúi ríkis- stjórnarinnar verði ekki lengur oddamaður við fiskverðsákvarð- anir. Ný vinnubrögð verða tekin upp við fjárlagagerð. Ríkisbönk- um verði breytt í hlutafélög og síðan seldir í áföngum. Ríkis- ábyrgð á starfsemi Fiskveiða- sjóðs, Iðnlánasjóðs og Stofn- lánadeildar landbúnaðarins verð- ur afnumin. Hér hefur verið stiklað á stóru. Allt ber hins vegar að sama brunni. Hlut ríkisins á að minnka og draga úr beinum afskiptum stjórnmálamanna en skapa al- menn skilyrði í anda fijálsræðis. Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur með þessum hætti hafizt handa um að móta skýra stefnu út úr þeim ógöngum, sem af núverandi stjórnarstefnu leiða. Því frumkvæði þarf að fylgja eftir með skýrri stefnumörkun í málefnum sjávarútvegs og land- búnaðar. Takist Sjálfstæðis- flokknum að skapa samstöðu um nýja stefnu í þeim veigamiklu málaflokkum er miklum áfanga náð. Furðulegir stjórnar- hættir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra viðurkenn- ir réttmæti þeirrar gagnrýni Ólafs G. Einarssonar, formanns þingflokks sjálfstæðismanna, að það sé lögbrot að skipa ráðherra án ráðuneytis í ríkisstjórn ís- lands, það samrýmist ekki lögun- um um Stjórnarráð íslands. Á hinn bóginn lætur forsætisráð- herra eins og það sé ekki mikill vandi að greiða úr þvi, hann muni bara gefa út bráðabirgða- lög og breyta stjórnarráðslögun- um en í sömu andrá lætur hann orð falla um að ekki sé unnt að koma á fót umhverfisráðuneyti með bráðabirgðalögum. Þessi málflutningur forsætis- ráðherra er fyrir neðan allar hell- ur og ber þess vott, að hann líti á valdið til að gefa út bráða- birgðalög eins og einhvers konar pólitískt leikfang. Þjóð og þingi er nóg boðið vegna þess hvernig ráðherrar hafa farið með valdið til aukafjárveitinga og nú er rætt um að þrengja þær venjur sem skapast hafa í því efni. Full ástæða sýnist einnig til þess fyr- ir þingmenn að þrengja heimild- ina til útgáfu bráðabirgðalaga, ef það á nú að nota hana til þess að troða Borgaraflokknum í ríkisstjórn. Ber brýna nauðsyn til þess að einhver þingmanna hans verði ráðherra án ráðuneyt- is? Staða og steíiia í íslenskum landbúnaði Halldór Gunnarsson: Hollusta íslenskra matvæla, uppstokkun verðlagskerf- isins og sátt við neytendur eru átaksatriði „Þegar spurt er um það,“ svaraði séra Halldór Gunnarsson í Holti, „hvort ég telji mögulegt að við munum standa frammi fyrir því innan tíðar að leyfður verði inn- flutningur á landbúnaðarafurðum hlýtur svar mitt að helgast af því að ég er nýkominn úr ferð erlendis frá og eftir að hafa lifað þá reynslu að hafa verið með magapínu allan tímann. Það er staðreynd að við íslendingar getum nær hvergi er- lendis drukkið vatn og'Evrópulönd- in í austri og vestri eru að beijast fyrir tilvist landbúnaðar á allt öðr- um forsendum en við íslendingar. Þeir eru að berjast við mengunina, súra regnið, beijast við ólöglega hormónanotkun af því að bændur eru neyddir til þess með lægra vöru- verði að fá meira kaup með þessu móti. Þegar ég lít á vanda land- búnaðarins erlendis þá eru okkar vandamál hér heima svo miklu auð- leysanlegri. í fyrsta lagi þurfum við að láta neytendur vita um hollustu mat- væla hérlendis í samanburði við erlendis og hve stórkostlegt það er að geta neytt þessarar heilbrigðu fæðu. í öðru lagi verðum við bændur að horfast í augu við uppstokkun á verðlagskerfi landbúnaðarins sem kann ef til vill að valda sárindum og erfiðleikum hjá sláturleyfishöf- um og smásöluverslun. Við verðum að koma á ódýrari meðhöndlum vörunnar í átt til þess sem tíðkast erlendis hjá nágrannaþjóðum okk- ar. Það er ekki hokkur leið að við- halda sláturleyfishöfum í dag. Þeir stefna í 200 kr. sláturkostnað á kíló í haust þegar þessi kostnaður er í kringum 20-30 krónur erlendis. . Tífalt hærra verð hér heima en er- lendis er óframbærilegt. Þegar svo er komið er nauðsynlegt að koma upp litlum einingum í slátrun með lágmarks kostnaði og umsvifum í yfirbyggingu þar sem vanir menn geta haft vinnu nær allt árið og öllum búfjártegundum er slátrað eins nálægt eftirspurn og kostur er, einnig dilkum. Það myndi þýða að bændur yrðu að gelda hrútlömb og hafa á fóðrum, en í staðinn myndu bændur fá hluta af vaxta- kostnaði og geymslukostnaði sem ríkið greiðir í dag, nálægt 700 millj- ón krónur á ári. Til þess að halda verðlaginu niðri verðum við að fá sjóðagjöldin sem nema um 4 millj- örðum króna þegar allt er talið og greiða þau til fyrsta stigs fram- leiðslunnar. Þetta þýðir að við verð- um að breyta öllu sjóðakerfinu og fyrirkomulagi þess, en með því móti væri hægt að lækka verð til neytenda um 20% vegna þess að öll margfeldisáhrif sjóðagjalds, söluskatts og fleiri þátta, myndu lækka. í þriðja lagi miðað við að okkur takist með þessari uppstokkun að ná sáttum við neytendur, þá þurfum við einnig að ná sáttum um það að byggja landið. Við slíka uppstokkun verður auðvitað að tryggja það að bændur njóti atvinnuleysisréttinda. Grundvallaratriði að lækka vöruverðið Grundvallaratriðið í þessu er það að lækka vöruverðið og þegar við höfum lækkað það myndi verða girt fyrir þann mikla innflutning sem á sér stað í dag á innfluttum landbúnaðarafurðum, niðursoðnum og í formi tilbúinna rétta og dýra- fóðri, en vissulega skerðir þessi inn- flutningur möguleika bænda til sjálfstæðrar afkomu. Það kerfi sem við búum við er búið að ganga sér til húðar, eií það er ekkert' einfalt mál að aðlaga of mikla framleiðslu að innanlands- markaði. í Bandaríkjunum og Kanada, til dæmis, er framleiðslu stjórnað á ósveigjanlegan hátt með tveimur valkostum. Annars vegar framleiðslukvóta líkt og við höfum í dag, sem er útilokað að láta ná til sumra búgreina en ekki allra, eða hins vegar talning búfjár og mæling lands sem gefur bóndanum a.m.k. það frelsi að hann fái að njóta góðra skepna og góðrar rækt- unar. Framleiðslukvótinn hegnir þeim sem framleiða mikið, en það gengur ekki gagnvart þeim bænd- um sem búa við mikla fijósemi og verða gráhærðir af að byggja upp af því að það er of hagkvæmt en er háð þröskuldum. Við verðum að byggja upp það kerfi að bændur og neytendur fái að njóta útsjónar- semi, starfsorku og hæfileika.“ Þórólfur Sveinsson: Misskilningnr ef menn halda að landbúnaðar- kerfið sé einkamál bænda „Skilin á milli vinnsluþátta í land- búnaði verða sífellt erfiðari vegna þeirra möguleika sem tæknin býður upp á í fullvinnslu afurða,“ sagði Þórólfur Sveinsson bóndi á Feiju- bakka í Borgarfirði í samtali við Morgunblaðið, „en varðandi áróður fyrir innflutningi landbúnaðarvara er ég að sjálfsögðu andvígur honum í því formi sem ýmsir tala um, það er fijálsum innflutningi. Það ber margt til, ekki síst byggðasjónar- mið, því landbúnaðarframleiðslan er beint og óbeint undirstaðan und- ir byggð í dreifðum byggðum lands- ins og landbúnaðarframleiðsla er- lendra þjóða er meira og minna niðurgreidd. Sjálfsagt má lengi gera betur í að ná niður yöruverði sem er nauðsyn og má til dæmis benda á niðurfellingu matarskatts- ins. Það er alveg ljóst að land- búnaðarkerfið má ekki að mínu mati, vera heilagt, gagnrýni og umræða er eðlileg, en mesti skaðinn í þessari umræðu til dæmis af völd- um Jónasar Kristjánssonar um ára- bil eru gróflegar og harkalegar ár- ásir á landbúnaðinn sem hefur leitt til þess, því miður, að talsmenn bænda hafa hneigst til þess að veija allt sem um er rætt í kerfi land- búnaðarins og oft hefur lítið orðið úr málefnalegri umræðu. Það þarf að nást sátt um það að það sé eðli- legur þáttur í íslensku þjóðfélagi að framleiddar séu landbúnaðar- furðir fyrir þjóðfélagsþegnana al- veg eins og það á að vera eðlilegt að leita til íslenskra iðnaðarmanna um vinnuafl á þeirra vettvangi. Þetta er auðvitað pólitísk og stéttar- leg spurning, en ég tel það mesta misskilning ef menn halda að land- búnaðarkerfið sé einkamál bænda. Það er þjóðfélagsleg spurning á hveijum tíma hvaða áherslu við leggjum á það að dreifa framleiðsl- unni um landið og það er nokkuð ljóst að ef við tökum mið af aldri, bústærð og tekjumöguleikum, þá munu þau störf sem skapast í land- búnaði í náinni framtíð ekki duga til þess að halda öllum byggðum í landinu í byggð. Kúabændum hefur fækkað úr 3.600 í 1.800 á 20 árum og á að líkindum eftir að fækka um nokkur hundruð á næstu árum. Þetta er þróun sem ekki verður stöðvuð. Litlu einingarnar í mjólk- urframleiðslunni gefa ekki tekju- lega möguleika á endurnýjun. Búin með gömlu ijósin, um það bil 30 þúsund lítra framleiðslu, 8-12 kúa fjós, eiga erfitt með endurnýjun. Mjólkurframleiðslan er einnig dæmigerð aðalstarfsgrein og leyfir ekki annað, öndvert við sauðfé sem auðvelt er að hafa sem aukastarf. Offramleiðsla er auðvitað dulið at- vinnuleysi, en þá er það spurningin um það hvort menn sitja við sama borð þjóðfélagslega. Gjaldþrota bóndi missir allt, iðnaðarmaður get- ur flutt sig um set, en bóndinn ekki á sama hátt. Hagkvæmnin skiptir miklu máli í þessari þróun. Þegar framleiðslumagnið er sett fast þá breytir það miklu, því leiðin sem menn fóru til þess að auka tekjur sínar var aukin framleiðsla. Það skiptir því gífurlega miklu máli hve margar framleiðslueining- arnar eru á hveija krónu og hveija vinnustund. Kerfið hefur hins vegar dregið úr framleiðslu margra, bremsað marga af sem voru og eru íull rök til þess að framleiða meira. Ég skal ekki segja um hvort hægt er að framleiða vöruna fyrir lægra verð, en tækninýjungar breyta framleiðslukostnaði vérulega. Fé- lagsbú eru sterk þegar allt leikur í lyndi, en þar geta skjótt skipast veður í lofti og ég tel það grundvall- aratriði að fjölskyldubúið haldi áfram að hafa möguleika og að það fái að nýta sína möguleika. Það mun gerast að sjálfu sér á næstu árum í mjólkurframleiðslunni þar sem réttur þeirra sem hætta gengur til þeirra sem hafa fjárfestinguna, en sauðfjárbúskapurinn er ekki kominn í jafnvægi og það er spurn- ing hvort og hvenær við náum því marki. Ég vil þó vekja athygli á því að allar alhæfingar í landbúnaði eru hættulegar, því það er svo margt sem spilar inn í, sérstaklega með tilliti til þess að landbúnaðurinn er safn margra og ólíkra greina. Ég ætla að á næstu tveimur til þremur árum verði mikill órói í kringum landbúnaðargeirann, at- vinnuleysi og órói sem hlýtur að skapast vegna EFTA og Evrópu og óvissu sem ríkir um það hvað sam- einuð Evrópa er. Það er að mörgu að hyggja. Smásöluverslunina vant- ar að eigin sögn nokkur hundruð MORGUNBLÁÐIÐ FÖSTUDÁGUR 1. SEPTEMBER 1989 21 TEXTI: ARNI JOHNSEN - SEINNIGREIN—____ í blaðinu í gær birtist grein um landbúnaðarmál og samtöl við tvo menn, sem tengjast landbúnaði. Hér á eftir fara samtöl við fjóra til viðbótar. milljónir til þess að þeirra þáttur gangi upp, en ég tel að þetta béndi til þess að öll sú fjárfesting sem gerð hefur verið borgi sig ekki með þessu móti, það er að segja ef vöru- verðið á að borga ijárfestinguna. Markmiðið er að framleiða vöru sem neytandinn hefur þörf fyrir og vill kaupa. Neytandinn er eins konar útgangspunktur í þessu öllu saman og taka þarf fullt tillit til, þvi þörf neytandans er forsendan fyrir fram- leiðslunni." Sigurgeir Þorgeirsson: íslensk bændastétt á að vera háreist stétt, launalega „Það er ljóst að kvótakerfi er í sjálfu sér mjög óhagstætt og stuðl- ar að óhagkvæmni í búrekstri. Þess vegna hlýtur það að vera grundvall- arsjónarmið að reyna að losna út úr slíkri stýringu," sagði Sigurgeir Þorgeirsson búfjárfræðingur. „Hins vegar er ljóst að við búum við kvóta á meðan þessi búvörusamningur er, eða til ársins 1992. Á undanförnum árum hefur allt miðast við það að eyða offramleiðslunni, en minna hefur verið hugað að hagkvæmni í búrekstri. í sauðfjárframleiðslunni hef ég mestar áhyggjur af því að hreinlega sé verið að verðleggja sauðfjárafurðir út af markaðnum, en þar kemur hvort tveggja til, verð til bænda og ekki síður milli- liðakostnaðurinn. Á 9 ára tímabili hefur verðið til bænda fyrir lamba- kjöt 14,5-faldast, slátur- og heild- sölukostnaður 26,4-faldast og með- alsmásöluverð samkvæmt verð- könnunum hefur 17,7-faldast. Verðlagsbreytingin á framfærsluv- ísitölu hefur að sjálfsögðu marg- faldast, en þetta sýnir svart á hvítu hvernig hlutfallið hefur breyst og bóndinn situr eftir, en mesta aukn- ingin er í slátur- og milliliðakostn- aði. Meðan sauðfjárræktin býr við stífan kvóta en önnur kjötfram- leiðsla er óháð kvóta, þá verður verðþróun á lambakjöti mjög óhag- stæð. Við höfum borðað mun meira af lambakjöti en nálægar þjóðir og með auknum ferðalögum og breytt- um lífsháttum helst þetta ekki og þvi er það meginmál að halda verð- inu niðri. Sauðfjárræktin hér á landi stendur þróunarlega mun framar en alifugla- og svínarækt borið saman við nágrannalöndin. Síðar- nefndu greinarnar geta því vænst mun meiri þróunar í framleiðslu og þá um leið verðlækkunar á næstu árum. Það er því algjör forsenda fyrir framtíð sauðijárræktarinnar að hún geti þróast til hagkvæmari rekstrareininga og hagkvæmnis- sjónarmiðið ætti algjörlega að sitja í fyrirrúmi við stefnumörkun. Hagkvæmnin í fyrirrúmi við stefiiumörkun Ef menn vilja fara hina leiðina, tryggja alla byggð og halda sem flestum í þeim störfum sem nú eru, þá er það göfug hugsun út af fyrir sig, en þýðir einfaldlega of háan framleiðslukostnað með miklu meiri samdrætti og minni neyslu og hruni í greininni. Það sem skiptir máli ef hugsað er til enda er það að lífvænleg bú fái að dafna, en hin fari út úr framleiðslu á ásættanleg- an hátt. Það gengur ekki nema að takmörkuðu leyti að framleiða á stöðum sem ekki eru hagkvæmir, ef menn vilja tryggja byggð á slíkum stöðum verður að gera það með beinum styrkjum. Hins vegar tel ég að ýmis afskekt byggðarlög geti vel staðist samkeppni þrátt fyrir þessa kerfisbreytingu, en allt verður þetta auðveldara viðureignar þegar framleiðslan er komnin í jafn- vægi fyrir markaðinn. Margt er duiarfullt í dæminu. Það er til dæm- is heimska stjórnvalda að velta birgðum sem þau eru búin að taka verðábyrgð á, á undan sér og hlaða upp kostnaði í stað þess að losa sig við birgðirnar um hæl. Vaxtakostn- aður á birgðum í maí sl. reiknaðist vera kominn upp I 60 kr. á kíló frá því sl. haust og að auki kemur geymslukostnaður til. Þegar spurt er um niðurgreiðsl- urnar þá verður það að viðurkenn- ast að betra væri að vera laus við þær, en upphaf niðurgreiðslna er ekki upphaflega styrkur til bænda, heldur til þess að bæta kjör launa- fólks. Niðurgreiðslur eru hins vegar óvinsælar og það hlýtur að vera stefnumið að losna út úr niður- greiðslum. Það er hins vegar hæg- ara sagt en gert. Ég tel mikilvægt að halda matvælakostnaði niðri og þannig geta niðurgreiðslurnar verið réttlætanlegar, en afstaða sam- keppnisaðila sem búa ekki við nið- urgreiðslur á sinni framleiðslu, er mjög skiljanleg. Öll svona misvísun þar sem menn sitja ekki við sama borð er hættuleg alveg eins og ágreiningsefnin milli landsbyggðar- innar og Reykjavíkursvæðisins er mjög hættuleg. Það er svo mörgu slegið fram sem ekki er hugsað til enda. Fijáls innflutningur land- búnaðarafurða segja menn, en mál- ið er bara ekki svo einfalt. Ég er algjörlega andsnúinn því eins og mál standa í dag að leyfa innflutn- ing á kjöti og mjólkurafurðum. Það er markmið út af fyrir sig að fram- leiða sem mest sjálfur af sínum matvælum miðað við einhveija vit- ræna forsendu. Viðbrögð bænda- stéttarinnar við þessari gagnrýni eiga að vera þau að mótuð sé stefna \ sem fyrst og fremst miðar að því að skila sem Ijölbreyttustum og ódýrustum matvælum til þjóðarinn- ar. íslensk bændastétt á að geta verið háreist stétt launalega, en það er engri stétt hollt að búa við of mikla opinbera vernd eins og verið hefur hérlendis undanfarin 40-50 ár í landbúnaði og reyndar öðrum greinum einnig. Það þarf tvímæla- laust uppskurð á landbúnaðarkerf- ið. Kvótakerfið stenst ekki til lengd- ar og það er óréttlátt og líklega ósanngjarnara en markaðslögmál- in. Margir hafa fengið kvóta um- fram aðra án raka og kvótakerfinu fylgir óhagkvæmni þar sem verið er að búa til hærra verð en þörf krefur. Það er hins vegar ekki fram- kvæmanlegt í stöðunni að Ieggja kvótakerfið niður í einni svipan með einu pennastriki. Þessi aðgerð þarf aðlögun, sérstaklega á meðan fram- leiðslugetan er mun meiri en mark- aðurinn tekur við. Aðalatriðið er að bindá menn ekki niður í óhag- kvæmum einingum, framleiðendum verður að fækka eða að þeir taki upp hliðarstarfsemi sem er að mörgu leyti eðlilegt í sauðljárbú- skap eftir möguleikum og stað- háttum. í dreifðum byggðum með miklu og góðu haglendi er fýsilegt að reka stór bú, en annars staðar smá bú með öðrum búskap eða annarri atvinnustarfsemi." Haukur Halldórsson: Imynd landbúnaðar- ins á að byggjast á góðri vöru á góðu verði „Hver þúsund tonn í framleiðslu kindakjöts í landinu þýða 250 árs- verk,“ sagði Haukur Halldórsson bóndi og formaður Stéttarsam- bands bænda í upphafi máls síns, „og það er einmitt mikilvægasti þátturinn í landbúnaðinum, staða þess fólks sem byggir afkomu sína á atvinnugreininni. Þjóðfélagslega er þetta grundvallaratriðið þegar fjallað er um vanda landbúnaðar- ins. Það er oft vitnað í niðurgreiðsl- ur og að þær séu af hinu illa, en almennt hafa niðurgreiðslur oft komið til sem vísitölubætur. Að því leyti hefur það komið bændum vel. Vörur þeirra hafa verið auðseljan- legri en ella. Þegar niðurgreiðsluin var hætt á sínum tíma var árs- framleiðslan 11 þúsund tonn, eða um 50 kg á mann í landinu, en hefur farið niður í um 30 kg og það er auðvelt að sjá samræmi ■ þarna á milli. Það er mismunandi teygni í vörum í sölu. Verðið virðist ekki skipta miklu máli í mjólkur- sölu. Fólk kaupir mjólkina sína. Þá virðist það ekki skipta miklu máli þótt sáralitlar niðurgreiðslur séu á rjóma. Hann selst jafnt og þétt og hefur heldur aukist. En við höfum talið að það væri í anda launajöfn- unarstefnu að ákveðnar frumþarfir standi til boða sem ódýrastar. Hjá Bretum er til dæmis enginn sölu- skattur á helstu matvælum, en hjá okkur hafa kjarasamningar spilað inn í þetta. Ég fagnaði því þegar það kom ákveðið fram hjá forustu- mönnu launþegasamtaka ekki alls fyrir löngu að meta niðurgreiðslur sem meiri launajöfnun heldur en prósentuhækkun launa. En niður- greiðslan verður þá að vera þannig að hún skili sér til neytenda. Bænd- ur og neytendur eiga það sameigin- legt að keppa að lægra búvöru- verði. Rekstrarvara hefur verið lækkuð með niðurgreiðslum og rætt er um hvort ekki eigi að taka ýmis gjöld af framleiðsluþáttum, til dæmis aðflutningsgjöld til þess að skapa betri samkeppnisgrundvöll. Það hefur ýmislegt verið gert en margt má gera betur. Það má einn- ig huga að ýmsum breytingum. Niðurgreiðslur mætti greiða beint til framleiðenda og miða til dæmis við framleiðsluna. Ríkisvaldið gæti einnig með tilliti til sambands byggðastefnu og landbúnaðar greitt mismunandi beint til bóndans ef stjórnvöld vilja framkalla munst- urbreytingu I landinu til þess ,að efla eða draga úr sauðljárrækt, en slíkt er pólitísk ákvörðun. Niður- greiðslur eiga á vissan hátt rétt á sér, en það ætti að nota þær meira markvisst í framtíðinni. Sífelldar breytingar í niðurgreiðslum skapa óvissu og því þyrftu þær að vera markvissari ef þær á annað borð eiga að vera. Bændur hafa óskað eftir kvóta - af illri nauðsyn, en kvótakerfið er fyrst og fremst til þess að ná niður offramleiðslunni. Þegar. jafnvægi er komið á ætti að vera hægt að gefa miklu meira svigrúm og minnka kerfið og láta byggðir og möguleika þeirra njóta sín betur. Að fengnu jafnvægi í framleiðslu og á markaði mætti jafnvel afnema fullvirðisrétt og kvótakerfi á ákveðnum svæðum. Fullyirðisrétt- urinn var aflagður í Svíþjóð með árs fyrirvara og hefur skapað svig- rúm til þess að treysta jafnvægi í mjólkurframleiðslu. Ég sé þó ekki að við ættum að leggja niður á næstu árum þá kosti sem eru í full- virðisréttarkerfínu. í heild má segja að við þurfum að fá betri og jákvæð- ari umfjöilun um vanda landbúnað- arins. Það er ljóst að við verðum að draga meira úr sauðíjárrækt, en það þýðir ekki að drepa alla jafnt, við verðum að stöðva og finna farveg fyrir eðlilega þróun með til- liti til hagkvæmni og þar hefur hver grein sína sérstöðu, mjólkur- framleiðslan, sauðíjárræktin og aðrar greinar landbúnaðarins. Til þess að styrkja stöðu landbúnaðar- ins í heild þarf að auka skilning milli neytenda og framleiðenda um mikilvægi landbúnaðarins. Land- búnaðurinn þarf að fá betri ímynd í augum neytenda heldur en hann hefur í dag, ímynd sem byggist á góðri vöru á góðu verði. Landbúnaðinn á að miða við landgæði og markaðsaðstæður Það hefur átt sér stað veruleg hagræðing hjá mjólkurframleiðend- um. Menn hafa sparað aðföng og við höfum minnkað framleiðsluna úr 125 milljónum lítra í 100 milljón- ir lítra, en tekjur hafa ekki lækkað um 25% og í sumum tilvikum juk- ust tekjur. Við þurfum að breyta og bæta í íslenskum landbúnaði með ákveðinni hagræðingu, nýta eigið fé ög opinbert sem best, haga allri umgengni við landið á sem bestan hátt og miða landbúnaðinn við landgæði og markaðsaðstæður. Það þarf að stuðla að framleiðslu þar sem hún er hagkvæm. Það er ekkert samhengi á milli stærðar og hagkvæmni í vinnslustöðvum, en það er samræmi milli framleiðslu og fjárfestingar. Umtalsverðra breytinga að vænta Það er að mörgu að hyggja. Ef bændur eru sammála um að reka eitthvað sameiginlega er það gert með sjóðum, til dæmis framleiðslu- gjaldi til þess að kosta starfsemi búnaðarsamtakanna. Bændur hafa verið sammála um að jafna aðstöðu- mun á byggingartíma varðandi vexti í fjárfestingum, en um þessar mundir á sér stað heildar endur- skoðun á öllum sjóðágjöldum og það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hvaða millifærslu menn eru með í höndunum. Ég vænti umtalsverðra breytinga eftir þá endurskoðun.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.