Morgunblaðið - 01.09.1989, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 01.09.1989, Qupperneq 32
í «ötíi yiLÍidiVid ;iiaurrao^ cuctftj - - 32 ' MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR T.' SEPTEMBER' 1989 SHUSIÐ 'œ-áié-œ. A í KVÖLD OG ANNAD KVÖLD: Hljómsveit Hilmars Sverrissonar .g Anna Vilhjálms leika fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld. Opiðfrá kl. 22.00 til 03.00. Rúllugjald 750, Muniö gömlu dansana sunnudagskvöld. (Ath.: Við höldum upp á þjóðhátíðardag Búlgaríu laugardaginn 9. september með Bítlavinafélaginu. Forsala er hafin í Danshúsinu alla virka daga frá kl. 13.00-16.00, og um helgar frá kl. 22.00-03.00). SUNNUDAGUR: Nú' byrjum við aftur með gömlu dansana í kvöld meö Hjördísi Geirs og hljómsveit. Hermann Ragnar Stefánsson verður leiðbeinandi okkar. Þar sem landsfundur danskennarafélags íslands er haldinn þessa dagana, ætla þeir að heiðra okkur með nærveru sinni í kvöld. Húsið opnað kl. 21.00 og dansað verður til 01.00. Gömlm daiisarjniir í Áriiini í kvöld f rá kl. 21.00-03.00 Hljómsveitin IMÝJA-BANDIÐ leikur Dansstuðið er íÁrtúni Vagnhöfða 11, Reykjavík, simi 685090. fclk í ttum MONAKO Albert prins ástfanginn Albert prins af Mónakó er nú ástfanginn af ungri bandarískri leikkonu. Hún heitir Khrystyne Haje og leikur í sjónvarpsþáttum sem nefnast „Head of the Class“ og eru vinsælir vestan hafs. Albert og Khryst- yne kynntust fyrir þremur árum þegar hún ásamt fleira frægu fólki tók þátt í tennismóti í Mónakó. En það var ekki fyrr en um síðustu áramót að ástin fór að blómstra. Albert bauð Khrystyne að dvelja í höllinni í Mónakó í ijóra daga um jólin. Þau sáust ekki saman opin- berlega heldur borðuðu í höllinni og fóru saman í sund og tennis. Eftir að Khrystyne var farin aftur til Bandaríkjanna héldu þau símasambandi og um miðjan Mónakó- Albert prins. júlí flaug Albert til Los Angeles þar sem Khrystyne býr. Hann dvaldi þar í viku og þau fóru út að borða á hveiju kvöldi. Hann skoðaði myndverið þar sém hún starfar og þau fóru saman í bíó og í Disneyland. Bandaríska vikuritið National Enquirer telur sig hafa öruggar heimildir fyrir því að prinsinn hafi beðið Khrystyne þegar þau fóru í tunglskinsgöngu á ströndinni í Santa Monica. Þetta á að hafa gerst 22. júlí sl. En Khrystyne vildi ekki gefa prinsinum svar alveg strax. Hún er aðeins tuttugu ára og hefur aldrei orðið ástfangin af alvöru fyrr. Því fylgir talsverð ábyrgð og vissu- lega verður mikil breyting á lífi þeirrar stúlku sem þarf að feta í fótspor Grace, furstynju í Mónakó. Khrystyne vildi því leita ráða hjá fjölskyldunni sinni sem að sögn var ánægð með þennan ráðahag. Því mætti búast við opinberri trúlofun í dvergríkinu Mónakó innan skamms. Bandaríska leikkonan Khrystyne Haje ENDURKOMA McCartney flytur Bítlaliig í fyrsta sinn 20 ár Bítillirin Paul McCartney hefur sagt að hann ætli að flytja „Hey Jude“ og fleiri Bítlalög á hljómleikum, sem ráðgerðir eru í Bandaríkjunum í vetur. Þetta verður ‘ í fyrsta sinn sem þessi kunni söngvari og lagahöfundur flytur lög sín og Johns Lenn- ons á hljómleikum frá því Bítlarnir hættu samstarfi sínu. Hann sagði einnig á blaða- mannafundi í New York nýlega að hann og hinir Bítlarnir tveir sem enn eru á lífi, Ringo Starr og George Harrison, hefðu nú loksins komist að samkomulagi um lögfræðileg at- riði, sem þeir hafa deilt um undanfarna tvo áratugi. Hann vildi þó ekki upplýsa í hverju það samkomulag fælist. Heyrst hefur að ráðgert sé að EIvis Costello og Julian Lennon, sonur Johns Lennons heitins, komi fram á nokkrum af hljóm- leikum hans í vetur en McCartney vildi þó ekki staðfesta það. ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA ■ ÚTSALA 10-50% afsláttur GÓLFDÚKAR - VEGGDÚKAR - VEGGFÓÐUR O.M.FL. VEGGFÓDRARINN -

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.