Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989
segja það sama um allar ríkisstofn-
anir.
Það kostar auðvitað sitt að
byggja fallegar byggingar og halda
þeim við. Sá kostnaður fæst þó
endurgreiddur í tímans rás m.a.
með betri umgengni fyrirtækja og
almennings við sínar eignir og ann-
arra.
Átök á Alþingi
Eftir nokkrar vikur kemur Al-
þingi saman. Ljóst er að átökin á
næsta þingi verða harðari en oftast
áður. Éjölmargir kjósendur stjórn-
arflokkanna i siðustu kosningum
hafa snúið baki við ríkisstjórninni
„Á undanförnum árum hefur farið í
vöxt að ýta undir úlfúð milli
landsbyggðarinnar og
höfuðborgarsvæðisins. Talað er um
Reykjavíkurvaldið eins og skrímsl,
sem sýgur blóðið úr landsbyggðinni.
Þegar gagnrýnin er skoðuð ofan í
kjölinn reynist það oftast vera
ríkisvaldið í höfuðborginni, sem verið
er aðamast við.“
ar menntaskóiakennara 1880-1881,
voru hér á ferð nokkrir brezkir
ferðalangar. Einn þeirra, John Col-
es, lýsti Reykjavík með þessum orð-
um:
„Ég minnist þess ekki að hafa
séð ljótari bæ en Reykjavík. Húsin
eru að stærð, lit og gerð sitt úr
hverri áttinni, hvergi sést tré og
ekki virðist hafa verið fylgt neinu
ákveðnu skipulagi við lagningu
gatna. Ef bærinn á eftir að stækka
mikið, þá á borgarstjórnin erfitt
verk fyrir höndum, því að þegar
kemur út fyrir þær götur, sem nú
eru, hafa húsin verið reist út um
hvippinn og hvappinn, og ef fram-
lengja á göturnar í beina línu, verð-
ur ekki komizt hjá því að rífa nokk-
ur hús. En höfuðgalli Reykjavíkur
er þó ekki, hve ljót hún er, heldur
hinn algeri skortur á hvers konar
viðleitni til þrifnaðar, sem hvar-
vetna blasir við augum og er nærri
óbærilegur óvönum þeftaugum
ferðamannsins."
Nú rúmri öld síðar myndu gestir
varla lýsa borginni með viðlíka
hætti og John Coles gerði á sínum
tíma. Reykvíkingar hafa haft metn-
að til að prýða borgina og halda
henni hreinni. Borgin og stofnanir
hennar hafa sýnt gott fordæmi með
frágangi á lóðum sínum og fast-
eignum. Því miður er ekki hægt að
og sífellt fleiri krefjast kosninga
sem fyrst. Sjálfstæðisflokkurinn
kemur vel undirbúinn til leiks. í
sumar hefur þingflokkurinn end-
urnýjað stefnu sína í efnahags- og
atvinnumálum. Landsfundur
flokksins verður haldinn í byijun
október og þar verður mótuð stefna
í fjölmörgum málaflokkum. Að því
verki hafa hundruð flokksmanna
unnið að undanförnu. Stjórnarand-
staða Sjálfstæðisflokksins verður
því málefnaleg og eindregin. Mark-
miðið er að koma ríkisstjórninni frá
sem allra fyrst og efna til kosn-
inga. Þess vegna má búast við
snörpum átökum á komandi þingi.
þeim tíma hef ég þurft að kalla á
aðstoð lögreglu 8-9 sinnum. Þar
sem ég var dyravörður fyrir nokkr-
um árum voru hinsvegar áflog á
hveiju kvöldi. Það var þrisvar ráð-
ist á mig með hnífi og maður
beinlínis ofsóttur á leiðinni heim.
Slíkt gerist ekki núna. Maður sér
ekki hnífa hjá fólki hérna.
Það versta, sem ég hef séð hérna,
var þegar maður braut ölkönnu á
höfðinu á öðrum, en sá þurfti að
láta sauma 11 spor þvert yfir ennið.
En þetta er ekkert miðað við
ástandið í Austurstræti. Fyrstu tvo
mánuðina sá maður ekki lögreglu-
þjón hér eftir að sjónvarpsdagskrá-
in byijaði. Eitt kvöldið taldi ég 14
áflog hér beint fyrir utan. Þá tel
ég ekki þessa smápústra, sem alltaf
eru. Bara áflog þar sem ég var
beinlínis dauðhræddur um að ein-
hver myndi bíða óbætanlegt tjón
af.“
Úttekt þessi veitir vitaskuld ekki
viðhlítandi svör við þeirri spurningu
hvort tilefnislaust ofbeldi eða of-
beldi almennt færist nú í aukana.
Til þess skortir tölulegar upplýsing-
ar og úrvinnslu þeirra. Skoðanir eru
skiptar meðal viðmælenda blaðsins
og flestir þeirrar skoðunar að um
viðverandi ástand sé að ræða, sem
lítið er hægt að gera til þess að
sporna við. Furðu sætir hversu fáir
kæra ofbeldisverk, en samkvæmt
fyrrnefndri könnun Erlends Bald-
urssonar töldu um 20% þeirra, sem
orðið höfðu fyrir „alvarlegu“ of-
beldi, gagnslaust að kæra málið til
lögreglu. Sé þetta enn raunin er
um alvarlegan trúnaðarbrest al-
mennings og lögreglu að ræða.
Skoðanakannanir sýna að almenn-
ingur ber traust til lögreglunnar,
en fyrrnefndar tölur gefa til kynna
að hann hafi ekki jafnmikið álit á
dug hennar.
Ekki síður er það alvarlegt mál
ef önnur 20% vilja ekki kæra vegna
þess að fórnarlömbin þekktu of-
beldissegginn, sérstaklega þar sem
50% kvenna sögðu það vera fjöl-
skyldumeðlim, sem gengið hefði í
skrokk sér.
Eitt ofbeldisverk er ávallt einu
of mikið. Brýnt er því að leita leiða
til að draga úr eða eyða vandamál-
inu. Starfshópur sá, sem lögreglan
hefur nú myndað, er hugsanlega
fyrsta skrefið í þá átt.
MALUN - MYNDVEFNADUR
SÍÐDEGIS- OG KVÖLDTÍMAR FYRIR
BYRJEIMDUR OG LENGRA KOMNA
Málun: Meðferðvatns-og olíulita. Myndbygging
Myndvefnaður: Undirstöðuatriði, ofið á ramma.
Upplýsingar og innritun í dag og næstu daga.
Kennari: Rúna Gísladóttir, SÍITIÍ 611525.
Langar þiB
að starta í
hiálparsveit?
Hjálparsveit skáta f Garðabæ býður
þeim sem áhuga hafa á hjálparsveitar-
starfi á kynningarfund, í húsnæði
sveitarinnar við Bæjarbraut, fimmtu-
daginn 21. september nk. kl. 20.00.
Við leitum að fólki frá 17 ára aldri sem
áhuga hefur á björgunarstörfum, nám-
skeiðum og ferðalögum tengdum
þeim. Á fundinum munum við kynna
ykkur störf okkar í máli og myndum.
Láttu sjá þig!
IM Uf OG DAUOA
Bestaspennu-og
ævintýramynd sem
komið hefurfrá Don
Coscarelli, höfundi
og leikstjóra Phant-
asm.
Þúgeturtreystein-
um fyrir lífi þínu — en
hætt þvímeðöðrum.
Sýnd kl. 5—7 - 9 og 11.
Bönnuðinnan16ára.
[ftnjjB HÁSKÓLABIÚ
li-il—wiwitimasiivii 2 21 40