Morgunblaðið - 17.09.1989, Side 23
ATVINNURAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Tangi óskar eftir
framkvæmdastj óra
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Tangi hf. á Vopnafirði
óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Æskilegt er að við-
komandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánari samkomu-
lagi.
Eldri maður/náms-
maður óskast
í blaðinu í dag er auglýst eftir samviskusömum manni til
sendistarfa á bíl frá fyrirtækinu. Vinnutíminn er frá kl.
13—17, en um meiri vinnu getur orðið að ræða á álagstím-
um. Tekið er fram að starfið henti vel eldri manni eða náms-
manni.
Krefjandi
stj órnunar starf
Teitur Lárusson starfsmannaþjónusta auglýsir í dag lausa
stöðu hjá rótgrónu innflutningsfyrirtæki í Reykjavík. Um
er að ræða kreíjandi stjórnunarstarf þar sem viðkomandi
þarf í upphafi að taka að sér fjármálastjórn og bókhald,
síðan sölustjórn og ef vel tekst til og árangur í starfi er
mikill, framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Um er að ræða inn-
flutning og sölu á vörum til matvöruverslana, mötuneyta
og veitingahúsa. Leitað er að ungum, baráttuglöðum, metn-
aðarfullum og vel menntuðum einstaklingi sem tilbúinn er
til stórra átaka og um leið að leggja töluvert á sig til að
ná árangri.
RAÐAUGL ÝSINGAR
Námsstyrkir í Banda-
ríkjunum 1990—’91
íslensk ameríska félagið auglýsir eftir umsóknum vegna
aðstoðar félagsins við öflun námsstyrkja í „undergraduate"-
námi í Bandaríkjunum fyrir skólaárið sem hefst haustið
1990. Aðstoð félagsins felst í milligöngu með aðstoð stofnun-
arinnar Institute of International Education, sem sendir
umsóknir til bandarískra háskóla, en styrkirnir koma frá
þeim. Til greina koma þeir sem hafa lokið stúdentsprófi í
síðasta lagi vorið 1990. Umsóknum skal skilað fyrir 1. októ-
ber nk. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást hjá
Verslunarráði Islands.
Stelpur og strákar
10—15 ára
Samræðu- og rökleikinámskeið fyrir stelpur og stráka á aldr-
inum 10—15 ára hefjast 18. septerftber. Sígildar ráðgátur
verða til umfjöllunar. Tekið er fram að þetta sé síðasti inn-
ritunardagurinn.
Útboð hjá Félags-
stofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta óskar eftir tilboðum í útimottur,
borð og stóla í kaffistofur, leiktæki fyrir barnaheimili, linole-
um-dúk og gólfteppi. Einnig í vörur fyrir kaffistofur, s.s.
kaffi, samlokur, ávaxtasafa í litlum neytendaumbúðum,
sælgæti og álegg.
SMÁAUGLÝSINGAR
Haustferðir
Ferðafélag íslands segir í auglýsingu í dag að góð hvíld frá
amstri hversdagsins sé hclgardvöl í Þórsmörk. Gróðurinn sé
hvergi fallegri en í Þórsmörk á haustin. Gist er í Skagfjörðs-
skála í Langadal. Brottför er kl. 20 föstudag.
Sjá nánar í auglýsingum
Námið er einkum ætlað sölu- og markaðsstjórum.
Nýjung hjá Stjórnunarfélaginu:
Nám ímarkaðs-
og sölufræðum
Ætlað starfandi og verðandi markaðs- og sölustjórum
HJÁ Markaðsskóla íslands, sem rekinn er
af Stjórnunarfélaginu, hefúr staðið yfir
undirbúningur að 12 vikna námi í mark-
aðs- og sölufræðum og hefst námið 26.
september nk.Kennt verður tvo daga í
viku. Að sögn Árna Sigfússonar fram-
kvæmdastjó’ra Sljórnunarfélagsins er
námið sérstaklega ætlað núverandi og
verðandi markaðs- og sölustjórum íyrir-
tækja auk helstu aðstoðarmönnum þeirra.
Við höfum fundið fyrir mikilli
þörf og áhuga á námi sem
þessu og þeir þremenningar sem
sjá um leiðbeinedahlutverkið hafa
gert sér sérstakt far um að byggja
á raunhæfum verkefnum, þannig
að hér sé komið nám sem nýtist frá
fyrsta degi“, sagði Árni. Leiðbein-
endurnir eru Friðþjófur Johnson
framkvæmdastjóri, Sigurður Ágúst
Jensson markaðsfræðingur og
framkvæmdastjóri ásamt Hauki
Haraldssyni, sem sér um Time
Manager verkefni Stjórnunrfélags-
ins. Auk þeirra þremenninga munu
Davíð Scheving Thorsteinsson,
Birna Eyjólfsdóttir, Gunnar Maack,
Jón Ásbergsson, Lýður Eriðjónsson
og Ólafur Stephensen ræða við
þátttakendur um reynslu sína úr
atvinnulífinu.
Að sögn Árna hefur íslenski
markaðsklúbburinn (ÍMARK) og
Félag atvinnusölumanna (FAS)
yfirfarið námsefnið. „Það er mikils
virði að samtök fagmanna á þessu
sviði mæla með náminu. Þetta hef-
ur hert kröfurnar um hagnýtt nám,
sem hlýtur að skipta miklu fyrir
vinnumarkaðinn. Þátttakendur
vinna raunhæfa markaðsáætlun og
farið verður í heimsóknir í fyrir-
tæki, auk þess sem áðurnefndir
aðilar úr viðskiptalífinu koma í
heimsókn og segja frá reynslu
sinni,“ sagði Árni.
Raunhæf verkefiii unnin
í náminu verður farið í grund-
völl markaðsfræðinnar. Farið verð-
ur yfir uppruna og stöðu hennar,
þar sem áhersla verður lögð á að
skýra grundvallarhugtök. Rætt
verður um hlutverk markaðsfræð-
innar í þjóðfélaginu og innan fyrir-
tækisns, auk þess sem fjallað verð-
ur um þróun og breytingar í mark-
aðsmálum. Einnig verður fjallað
ítarlega um markaðsfræðina í fram-
kvæmd, þar sem áhersla verður
lögð á raunhæf dæmi.
Fjallað verður um stjórnunarmál,
þar sem greinarmunur verður gerð-
ur á markaðsstjórnun og sölustjórn-
un. Farið verður yfir skipulegt
markaðsstarf. Til þess að gera
þennan þátt sem gagnlegastan fyr-
ir þátttakendur verður þeim leið-
beint í gerð markaðsáætlunar þar
sem gert er ráð fyrir að þeir tengi
saman nám sitt og starf og vinni
raunhæft verkefni fyrir fyrirtæki
sitt. Skoðaðar verða dreifileiðir,
hvernig koma á vöru og þjónustu
á framfæri. Fjallað verður um ýmsa
þætti alþjóðaverslunar og í því sam-
andi verður litið á lög og reglur sem
gilda um slík viðskipti ásamt mark-
aðssetningu á erlendum mörkuðum.
Segir Árni að rík áhersla verði lögð
á umræður þátttakenda um náms-
efnið bæði í kennslutímum og í
hópvinnu nemenda.
Þingeyri:
Fáftiir yfir-
tekur rekstur
Hraðfrysti-
hússins
Þingeyri.
ÝMSAR breytingar hafa átt sér
stað hjá Kaupfélagi Dýrfirðinga
og dótturfyrirtækja þess og fleiri
breytinga er að vænta að sögn
Magnúsar Guðjónssonar kaup-
félagssljóra. Meðal annars hefur
Framnesið ÍS-708 verið selt að
hálfú til íshúsfélags ísfirðinga og
sláturhúsið hefúr verið leigt
Barða hf. Fáftiir hf. er nú að yfir-
taka rekstur Hraðfrystihúss Dýr-
firðinga sein hingað til hefúr
verið deild innan kaupfélagsins.
• •
Orlítill hagnaður varð af rekstri
kaupfélagsins á fyrstu sex
mánuðum þessa árs en nokkuð tap
á Fáfni á sama tímabili. Verið er
að vinna að allsherjar endurskipu-
lagningu á rekstri Fáfnis sem m.a.
felst í því að selja Framnesið ÍS til
Arnarnúps hf. sem er dótturfyrir-
taéki Fáfnis og til íshúsfélags ís-
firðinga. Þá er ætlunin að selja
Fáfni Hraðfrystihús Dýrfirðinga.
Sökum þessa mun hlutafé Fáfnis
aukið um tugi milljóna króna með
þátttöku Hlutafjársjóðs Byggða-
stofnunar, Þingeyrarhrepps og
fleiri.
Hraðfrystihúsið hefur hingað til
keypt bróðurpartinn af smábáta-
aflahum sem veiðst hefur í sumar.
Þrátt fyrir fyrirsjáanlegan samdrátt
á vinnslu hraðfrystihússins, sökum
lítils kvóta, er búist við að vinnu
verði hægt að halda áfram þar fram
í desember.
Hulda
Blönduós:
Atvinnu-
ástand gott
Blönduósi.
Á BLÖNDUÓSI voru átta
skráðir atvinnulausir um
miðjan september og er það
veruleg fækkun frá því í maí
en þá voru 39 á atvinnuleysis-
skrá. Starfsfólk vantar í
brauðgerðina Krútt og
pappírspokaverksmiðjuna
Serki.
A
Ofeigur Gestsson bæjarstjóri
á Blönduósi sagði í samtali
við Morgunblaðið að útlitið í
atvinnumálum Blönduóss væri
betra núna en það var á sama
tíma í fyrra. „Það er léttara
yfir öllum þessum málum og
stemningin er betri," sagði
Ófeigur. Ófeigur Gestsson gat
þess að í gangi væri samstarfs-
verkefni Kaupfélags Húnvetn-
inga, Blönduósbæjar og Iðn-
tæknistofnunar um ný atvinnu-
tækifæri á Blönduósi og lofaði
þetta starf mjög góðu.
Jón Sig