Morgunblaðið - 17.09.1989, Síða 40
Höföar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
ÆFÆFJFÆAfJEf
73r7^/7/7
Efstir á blaði
FLUGLEIÐIR
MORGVNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 IŒYKJA VÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Stal skjala-
tösku úr bíl
Skjalatösku meö ýmsum verð-
mætum í sem metin eru á um
þúsund krónur, var stolið úr
bí! síðdegis á fostudag. Þriggja
ára barn sat eitt í bílnum.
Móðir þess hafði farið að reka
erindi og skiiið bílinn eftir í gangi
ólæstan. Þegar hún kom til baka
sagði barnið að maður hefði komið
inn í bílinn og stolið töskunni. Ekki
er vitað hver hann er. RLR vinnur
að málinu.
Slysadeild:
Þrír á dag
með áverka
af völdum
ofbeldis
OFBELDI, bæði á götum úti og
á heimilum, virðist fara mjög í
vöxt í borginni. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Slysadeild Borg-
arspítalans komu að meðaltali
nær þrír einstaklingar á dag að
meðaltali fyrstu sex mánuði
þessa árs með áverka vegna of-
beldis. Og samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar hefur orðið
merkjanleg aukning á árinu á
kærum vegna líkamsárása.
Morgunblaðið/Sverrir
Davíð Oddsson borgarstjóri þakkar Erró listaverkagjöf hans til borgarinnar. Til vinstri er Hulda Valtýs-
dóttir, formaður menningarmálanefndar Reykjavíkurborgar sem opnaði sýningu á verkum Errós á
Kjarvalstöðum í gær.
Saltsíldarviðskipti:
Svíar og Finn-
ar kaupa 60-
70þús.tunnur
Síldarútvegsneftid hefur samið
við Svía og Finna um kaup þeirra
á 60-70 þúsund tunnum af
saltsíld, sem er svipað magn og
þeir keyptu fyrirfram í fyrra,
miðað við hausskorna og slóg-
dregna síld.
Um er að
ræða all-
margar tegund-
ir, meðal annars
ýmsar tegundir
af 'flakaðri síld,
en verð á hefð-
bundnum teg-
undum er 6-7%
hærra en í fyrra.
Verðið er í
sænskum krón-
um og finnskum mörkum, eins og
áður.
Sala á flakaðri saltsíld til Norður-
landanna hefur aukist á undanförn-
um árum. Síldin hefur bæði verið
ferskflökuð á söltunarstöðvunum
og flökuð eftir að hún hefur verið
fullverkuð.
Samningaviðræður við Sovét-
menn um kaup þeirra á saltaðri
síld hafa enn ekki hafist og ekki
liggur ljóst fyrir hvenær þeir verða
tilbúnir til viðræðna, að sögn Gunn-
ars Flóvenz, framkvæmdastjóra
Síldarútvegsnefndar.
Erró um listaverkagjöf sína sem verður kjarninn í listamiðstöð að Korpúlfsstöðum:
Hef í mörg ár hugsað
um að gefa þessa gjöf
í RÆÐU Davíðs Oddssonar borgarstjóra, við opnun sýningar á veríí-
um Errós á Kjarvalsstöðum í gær, kom fram að listamaðurinn hefur
ákveðið að gefa Reykjavíkurborg rúmlega 2000 verk er spanna allan
hans feril sem listamanns. Gjöfínni fylgir fyrirheit um fleiri verk í
framtíðinni.
Flestar Iíkamsárásir eiga sér
stað í miðbæ Reykjavíkur að
kvöldi til um helgar. Lögreglan í
Reykjavík hefur nú skipað starfs-
hóp, skipaðan fimm mönnum, sem
ætlað er að kanna ástandið í mið-
bænum og koma með tillögur til
úrbóta. Á hópurinn að skila af sér
áliti í nóvember.
Allt árið í fyrra komu rúmlega
2000 manns á Slysadeild með það
sem flokkast undir „áverka af hendi
annarra". Og á fyrstu sex mánuðum
þessa árs var fjöldinn tæplega 1100
manns. Tryggvi Þorsteinsson lækn-
ir segir að af þeim tæplega 1100
sem til meðferðar komu í ár hefðu
flestir verið með meiðsl sem þeir
höfðu hlotið á eða við skemmti-
staði, eða alls 334 einstaklingar.
Næst stærsti hópurinn var af heim-
ilum eða 253 talsins. Hér er um
meiðsli vegna ofbeldis að ræða.
Samtals má því segja að nær þrír
einstaklingar á dag leiti til Slysa-
deildar af þessum sökum.
Sjá nánar á bls.10-11.
Fyrir liggur að kaup Lands-
bankans á Samvinnubankanum
eru liður í björgunaraðgerðum til
handa Sambandinu, sem alls skuld-
ar um niu milljarða króna. „Ég vil
ekki hugsa þá hugsun til enda
Af því tilefni hafa borgaryfirvöld
ákveðið að safn Errós verði
kjaminn í nýrri listamiðstöð sem
fyrirhugað er að verði á Korpúlfs-
stöðum. Að sögn Gunnars B. Kvar-
an forstöðumanns listasafna
hvaða afleiðingar það hefði úti í
þjóðfélaginu, ef Sambandið yrði
gjaldþrota," segir forsætisráðherra,
sem segist líta á þessi kaup Lands-
bankans sem lið í björgunaraðgerð-
um til handa Sambandinu.
Reykjavíkurborgar er verðmæti
verkanna talið vera um milljarður.
„Ég hef í mörg ár verið að hugsa
um að gefa Reykjavíkurborg þessi
verk, en það hefur tekið tíma að
koma þessu saman,“ sagði Erró.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins skuldar KEA (Kaupfélag
Eyfirðinga, Akureyri) um 1,4 millj-
arða í Landsbankanum og er þar'
með annar st.ærsti skuldarinn við
Landsbankann á eftir Sambandinu,
sem skuldar 1,9 milljarða króna.
í tengslum við fyrirhuguð kaup
Landsbankans á Samvinnubankan-
um hefur Landsbankinn gert kröfur
til þess að fá rekstrar- og söluáætl-
anir Sambandsins í hendur. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
„Eldri verkin voru hér heima en þau
stærri koma seinna þegar vegg-
.plássið er fundið. Ég hef ekkert að
gera með hvar myndirnar verða
varðveittar, það er annarra að
ákveða það. Þetta er gjöf. Henni
fylgja engin skilyrði.“
Davíð Oddsson sagði, að jafn
stórkostlegri gjöf væri ekki hægt
að taka við nema af stórhug og að
á þessum tíma félli sú krafa vel að
hafa forsvarsmenn Sambandsins
látið Landsbankanum í té lista yfir
eignir sem fyrirtækið hyggst selja.
Þar á meðal eru eignir eins og
Krókháls 7, Osta- og smjörsalan,
Snorrabraut 56 og hlutur Sam-
bandsins í tollvörugeymslunni.
Jafnframt hafa formenn stjórnar-
flokkanna og Guðjón B. Ólafsson,
forstjóri Sambandsins rætt mögu-
Ieikann á því að ríkið kaupi hlut
Sambandsins í íslenskum aðalverk-
tökum sem sumir telja að geti verið
yfir tveggja milljarða króna virði.
Sjá fréttaskýringu: Sambönd
bjarga Sambandi bls. 16-17.
þeim hugmyndum er borgaryfirvöld
hafa um næstu skref á menningar-
sviðinu, að Korpúlfsstaðir verði
gerðir upp. „Þar verði í framtíðinni
menningin mjólkurkýrin og listin
lífsmjólkin. Hugmyndin er að taka
góðan hluta af því mikla húsi undir
safn listamannsins Errós. Annars
staðar í húsinu verður rými fyrir
margvíslega aðra menningarstarf-
semi, jafnt leiklist, höggmyndalist,
ritlist og tónlist.“
Borgarstjóri þakkaði listamann-
inum fyrir þessa einstæðu gjöf og
sagði að af þijátíu sjálfsmyndum
frá æskuárum Érrós væri gjöfin öll
besta sjálfsmyndin. Því ætti við að
segja: „Hver er sínum gjöfum
líkastur."
„Með þessari gjöf tengjumst við
heimslistinni því Erró er eina al-
þjólega nafnið sem við eigum. Menn
munu koma hingað til að skoða
safn Errós,“ sagði Gunnar. „Auk
þess sem þessi verk munu verða
eftirsótt til sýningar í söfnum ér-
lendis og auðvelda okkur um leið
að fá hingað verk annarra heims-
þekktra listamanna.“
Að sögn Gunnars gefur safnið
óvenju fullkomna mynd af lista-
manninum þar sem það er valið af
honum sjálfum en oftast eru slík
söfn sett saman að listamönnunum
látnum. „Söfn i Frakklandi hafa
sýnt þessu safni, sem hér er gefið,
mikinn áhuga en listamaðurinn
sjálfur valdi því stað hér,“ sagði
Gunnar.
Sambandið skuldar Samvinnu-
bankanum 1,6 milljarða króna
KEA skuldar 1,4 milljarða í Landsbankanum
SKULD Sambands íslenskra samvinnufélaga í Samvinnubankanum
nemur um 1,6 milljörðum króna og vilja forsvarsmenn Landsbanka
og Sambandsins að skuldin verði flutt í Seðlábankann, fryst þar í 5
ár og greiðist á 10 árum eftir það. Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um það af bankastjórum Seðlabankans hvort eða hvernig Seðlabank-
inn geti veitt fyrirgreiðslu í tengslum við kaup Landsbankans á 52%
hlut SIS í Samvinnubankanum.