Morgunblaðið - 21.09.1989, Page 2
2
MORCíUNBÍLAÐíÐ- FIMMTUDAGUR il. -SÉPTEMBER 1989
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar:
Sorpeyðingar höfuð-
borgarsvæðisins finni
annan urðunarstað
Á FUNDI bæjarstjórnar Mosfellsbæjar í gærkvöldi var samþykkt sam-
hljóða tiilaga um að skora á stjórn Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðis-
ins, að leita að öðrum urðunarstað en Álfsnesi, þar sem komið hefur
fram afdráttarlaus andstaða íbúa Mosfeilsbæjar gegn urðun þar.
í greinargerð með tillögunni segir: ekki, er alltaf hætta á efnamengun.
Morgunblaðið/Einar Falur
Larsen tekur „nokkrar léttar“ við landsmenn “
Danski stórmeistarinn Bent Larsen er staddur hér
á landi um þessar mundir og teflir meðal annars
fjöltefli víða um land. Hér er hann staddur í
Reykjavík og etur kappi við ýmsa kunna kappa. Á
myndinni má meðal annarra þekkja Gunnar Gunn-
arsson fyrrum forseta Skáksambandsins og Magnús
Pétursson milliríkjadómara. Larsen mun taka þátt
í helgarskákmóti Skáksambandsins, sem fram fer á
Egilsstöðum um helgina.
„Sorpeyðing eins og að henni mun
vera staðið af hálfu Sorpeyðingar
höfuðborgarsvæðisins er mjög til fyr-
irmyndar og væri bylting í þessum
málum ef hún væri framkvæmd jafn
vel frá upphafi til enda. En þegar
komið er að lokastiginu, það er urð-
uninni sjálfri, er stigið spor aftur í
tímann. Staðurinn er valinn í næsta
nágrenni við íbúðabyggð og aðalúti-
vistarsvæði Mosfellsbæjar.
Ekki verður komið í veg fyrir fok-,
lyktar- og sjónmengun. Þetta þrennt
ætti að nægja til að útiloka urðun í
Álfsnesinu. Auk þess veit enginn
með vissu hvað urðað verður þarna,
þar til íbúar höfuðborgarsvæðisins
verða farnir að flokka sitt sorp
heima. Að minnsta kosti mun taka
nokkur ár að koma á flokkun sorps
í heimahúsum og á meðan svo er
Nú liggur fyrir afstaða íbúa Mos-
fellsbæjar eftir ítarlegan kynningar-
fund bæjarstjórnar þann 19. septem-
ber 1989, þar sem fulltrúar Sorpeyð-
ingar höfuðborgarsvæðisins mættu
og kynntu þessi mál. Þar kom fram
eindregin andstaða gegn urðun í
Álfsnesi. Það hlýtur að vera skylda
kjörinna bæjarfulltrúa að fara að
vilja fólksins og leita allra leiða til
að koma í veg fyrir þessi umhverfis-
spjöll."
Sjá frásögn af opnum fundi bls.
18.
Samkomulag um meðferð fiillvirðisréttar liggur fyrir:
Gert ráð fyrir 1,8% skerð-
ingri á heildarfiillvirðisrétti
Undirritun frestað á síðustu stundu að ósk eins ráðherra
SAMKOMULAG hefur tekist í
framkvæmdanefhd um búvöru-
samninga um lausn ágreinings-
mála varðandi framkvæmd gild-
andi búvörusamninga, og stóð til
að það yrði undirritað af Stein-
grími J. Sigfússyni landbúnaðar-
ráðherra og Hauki Halldórssyni,
formanni Stéttarsambands
bænda, síðdegis í gær. Undirrit-
uninni var frestað á síðustu
stundu þar sem ósk barst frá ein-
um ráðherra um að samkomu-
lagsdrögin í endanlegri mynd
yrðu lögð fyrir ríkisstjórnarfund
í dag til umfjöllunar. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er
gert ráð fyrir því í samkomulags-
drögnnum að skerðing vegna
úthlutunar á fullvirðisrétti sam-
kvæmt reglugerð sem Jón Helga-
son, fyrrverandi landbúnaðar-
ráðherra, gaf út árið 1987 verði
ekki afturvirk, en 1,8% flöt skerð-
ing komi heildarframleiðslurétt
það sem eftir lifir samningstí-
mans, þ.e. til 1992, og að auki
komi viðbótarskerðing á ónýtt-
um fullvirðisrétti sem bændur
hafa fengið greiðslur fyrir.
Fulltrúaráð sjálfctæðisfélaganna í Reykjavík:
163 landsfiindar-
fulltrúar kjörnir
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík kaus á fundi
sínum í gærkvöldi 163 fulltrúa á
Iandsfúnd Sjálfstæðisflokksins. 10
varafulltrúar voru cinnig kjörnir.
Landsfúndurinn verður í Laugar-
dalshöllinni dagana 5. til 8. sept-
ember næstkomandi.
Alls eiga úm 350 manns úr
Reykjavík rétt á að sækja lands-
fundinn. Fulltrúaráðið kýs 155 sam-
kvæmt tilnefningum stjórna sjálf-
stæðisfélaganna, stjórn fulltrúaráðs-
ins tilnefnir 18 sem kosið var um í
gærkvöldi, auk tíu varamanna. Þess-
ir voru allir kjömir með samhljóða
atkvæðum. Að auki kjósa sjálfstæð-
isfélögin 91 fulltrúaogfastað hundr-
að eru sjálfkjörnir.
Sjálfstæðisfélög víða um land velja
nú fulltrúa á landsfundinn, en um
1.050 manns eiga rétt á að sækja
hann.
Á landsfundinum verður bryddað
upp á þeirri nýbreytni að þessu sinni
að haldnir verða þrír málefnafundir
fyrsta kvöld fundarins, og eru þeir
ekki eiginlegur hluti landsfundar,
heldur hugsaðir til að sjálfstæðis-
mönnum gefist þar tækifæri til skoð-
anaskipta um málefnin, án þess að
vera bundnir af ákveðinni niðurstöðu
hvers fundar. Rætt verður um
byggðastefnuna, kjördæmamálið og
um ísland og Evrópubandalagið.
Þessir fundir verða á Hótel Sögu.
Ágreiningur hefur verið uppi
milli Ólafs Ragnars Grímssonar
fjármálaráðherra og Steingríms J.
Sigfússonar landbúnaðarráherra
um hvernig staðið yrði að skerðingu
þess fullvirðisréttar sem ekki rúm-
ast innan ramma búvörusamnings-
ins. Fjármálaráðherra hefur talið
að líta ætti á heildarframleiðslu á
gildistíma búvörusamningsins sem
eina heild, en samkvæmt því ættu
bændur að taka á sig að fullu skerð-
ingu vegna úthlutunar Jóns Helga-
sonar á fullvirðisrétti, sem ríkisend-
urskoðun hefur bent á að eigi sér
ekki lagastoð og rúmist ekki innan
verðábyrgðar ríkisins samkvæmt
magntölum búvörusamningsins.
Landbúnaðarráðherra hefur hins
vegar lýst því yfir að óhjákvæmi-
legt sé að gera greinarmun á þeirri
framleiðslu sem þegar er til komin
eða væntanleg á grundvelli útge-
finna reglugerða, og hins vegar
þeim árum sem eftir lifa samningst-
ímans og ekki hafa verið settar
reglugerðir um.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er gert ráð fyrir því í sam-
komulagsdrögunum, sem koma
eiga sem viðauki við gildandi bú-
vörusamning, að 1,8% flöt skerðing
komi á heildarfullvirðisrétt síðustu
tvö ár samningstímans, en ekki
verði um afturvirka skerðingu
vegna áðurnefndrar reglugerðar að
ræða. Auk þess er gert ráð fyrir
að ónýttur fullvirðisréttur sem
greitt hefur verið fyrir verði skert-
ur, og mæti það þeirri úthlutun sem
er umfram ramma búvörusamn-
ingsins. Þá er gert ráð fyrir að
framleiðsluréttur vegna riðuniður-
skurðar verði ekki skertur, en hins
vegar verður skert vegna líflamba-
töku af völdum riðuniðurskurðarins.
Samkomulagsdrögin sem um
ræðir voru nýlega kynnt í ríkis-
stjórninni og var landbúnaðarráð-
herra þá falið að ganga frá samn-
ingi við bændur á grundvelli þeirra.
Formenn stjórnarflokkanna fengu
síðan samkomulagsdrögin til um-
sagnar í gærmorgun, og munu þeir
ekki hafa gert athugasemdir við
þau. Síðdegis í gær barst síðan ósk
frá einum ráðherra um að sam-
komulagsdrögin í endanlegri mynd
yrðu lögð fyrir ríkisstjórnarfund til
umfjöllunar, og var undirritun fre-
stað af þeim sökum.
Matargjöf
reyndist
vera gabb
EIGENDUR Þorbjörns hf. í
Grindavík urðu þrumu lostnir
þegar tilkynnt var í sjónvarps-
þætti áhugafólks um bætta
umferðarmenningu og SEM-
samtakanna, að fyrirtækið
ætlaði að gefa íbúum hússins
sem verið var að safna fyrir,
fisk í matinn þrisvar í viku
um alla ft-amtíð. Einhver
óprúttinn náungi hafði tekið
að sér að gefa fiskinn fyrir
hönd fyrirtækisins. í öðru til-
viki hringdi drukkinn maður
undir lok þáttarins í nafni
annars manns og tilkynnti um
500 þúsund króna gjöf, sem
ekki reyndist fótur fyrir.
„Já, þetta var grátt gaman,
héðan hringdi enginn," sagði
Gunnar Tómasson verkstjóri.
„Við gátum ekkert gert nema
látið vita, strax daginn eftir, að
þetta væri ekki frá okkur komið.
Við vitum ekki hver þetta var
og eigendur fyrirtækisins, sem
horfðu á þáttinn komu alveg af
fjöllum. Ég veit ekki hvort þetta
getur talist spaug, hálf finnst
manni það nú aumt að gera grín
að svona hlutum. Þetta fólk á
allt gott skilið og sjálfsagt kem-
ur til álita að gera eitthvað, en
það er ekki hægt að standa
svona að hlutunum."
1 Egill Stefánsson formaður
SEM-samtakanna sagði að alltaf
mætti búast við einhverjum af-
föllum í stórri söfnun en þetta
væru einu dæmin sem komið
hefðu upp.
Umboðsmaður Alþingis:
Breyta þarf reglum um lokun
síma vegna vangoldinna gjalda
GAUKUR Jörundsson, umboðsmaður Alþingis, segir í áliti sem hann
hefur sent frá sér að hann telji þann frest sem Póstur og sími veit-
ir Bimnotendum til að greiða símareikninga vera of stuttan, og at-
huga beri hvort ekki sé ástæða til að breyta þeim reglum sem nú
gilda um lokun síma í tilcfni af því að gjöld séu ekki greidd á ein-
daga. Auk þess að lengja gjaldfrestinn leggur hann til að sett verði
sérstök fyrirmæli um tilkynningar til símnotenda um væntanlega
lokun síma vegna vanskila.
í áliti Gauks Jörundssonar kem-
ur fram að samkvæmt upplýsing-
um símstjórans í Reykjavík erþeirri
reglu fylgt af hálfu Póst- og síma-
málastofnnnarinnar, að tekið er
fram á öllum útsendum símareikn-
ingum að eindagi reikninga sé 10.
dagur útgáfumánuðar, og búast
megi við lokun síma fyrsta virkan
dag eftir eindaga hafi reikningur-
inn ekki verið greiddur þá. Einnig
kemur fram að þegar líður að ein-
daga séu símnotendur minntir á
ógreidda reikninga með tilkynning-
um í hljóðvarpi og sjónvarpi. Sam-
kvæmt gildandi reglum sé því ráð-
rúm símnotenda til að greiða síma-
gjöld sín án þess að eiga á hættu
að gripið verði til lokunar 10 dag-
ar, þó að í framkvæmd kunni frest-
ur fram að lokun síma að vera 15
til 20 dagar frá útgáfudegi reikn-
ings.
Gaukur telur að þessi frestur sé
stuttur miðað við það óhagræði og
tjón sem hlotist getur af því að
síma sé lokað, og niðurstaða hans
sé sú að athuga beri hvort ekki sé
ástæða til að breyta þeim reglum
sem nú gilda um lokun síma í til-
efni af því að gjöld séu ekki greidd
á eindaga. Við þá endurskoðun
verði hugað að því að lengja um-
ræddan frest og setja sérstök fyrir-
mæli um tilkynningar til símnot-
enda um lokun síma vegna van-
skila.
Fram kemur í áliti Gauks Jör-
undssonar að samkvæmt greinar-
gerð símstjórans í Reykjavík er til
skrá yfir ákveðna aðila sem hringt
er í til viðvörunar áður en til lokun-
ar síma kemur, en Gaukur segir
að engin ákvæði séu í lögum eða
reglum um slíkar undanþágur.
Hann telur ástæðu til að kveðið sé
á um slíkar undanþágur í reglum
um símaþjónustu, þannig að
símnotendum sé kunnugt um hvaða
reglur gildi um skráningu í slíka
skrá og hvaða skilyrði þurfi að
uppfylla.