Morgunblaðið - 21.09.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.09.1989, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLÁÐÍÐ FIMMTUDáGUR 2T. 'SEPTEMBER“T989 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið. Vinnulöggjöfin og frumkvæði forsætis- ráðherra Að undanförnu hefur verið töluverður órói á vinnu- markaðnum. Þótt tekizt hafi að koma í veg fyrir verkfall mjólkurfræðinga, að því er virðist án meiriháttar tilslak- ana, er engu að síður ástæða til að staldra við og íhuga stöðu þjóðfélagsins gagnvart fá- mennum starfshópum, sem hafa lykilaðstöðu í atvinnulíf- inu. í frásögn Tímans af blaða- mannafundi, sem Steingrímur Hermannsson, forsætisráð- herra, efndi til sl. föstudag sagði m.a.: „Steingrímur sagði í gær vinnulöggjöfina algerlega úrelta. Ekki væri unnt að líða lengur að fámennir hagsmuna- hópar gætu gengið yfir fjöld- ann, hagsmunir heildarinnar yrðu að ráða. Aðspurður kvaðst forsætisráðherra ekki vita, hvort ríkisstjórnin gæti breytt lögum um vinnumarkaðinn: „Eg veit ekki, hvort við höfum styrk til að gera það, það hefur engin ríkisstjórn haft til þessa.“ I samtali við Morgunblaðið í fyrradag sagði forsætisráð- herra: „Ég er þeirrar skoðunar, að þessi ríkisstjórn eigi að reyna að laga vinnulöggjöfina og breyta henni, en ég efast þó um, að menn hafi dug í það. Það er eins og það gangi aldrei. . . Menn hafa aldrei lagt í að breyta vinnulöggjöfinni, því verkalýðshreyfingin hefur staðið svo hörð á móti, en ég segi, að andstaða hennar sé byggð á miklum misskilningi.“ Steingrímur Hermannsson bætti því við, að hann teldi „að stefna bæri að því að taka upp fyrirkomulag á vinnustöðum hér í líkingu við það, sem væri hjá íslenzka álfélaginu í Straumsvík, en þar hefðu menn sameinast í einu vinnustaðarfé- lagi, andstætt því, sem tíðkað- ist hjá öðrum stórfyrirtækjum, sem hefðu mörg ólík félög, þar sem vinnuveitendur þyrftu að semja við hvert og eitt fyrir sig.“ Það er tímabært að taka þessi mál upp til umræðu. Það hefur gerzt hvað eftir annað áratugum saman, að fámennir starfshópar í lykilaðstöðu, mjólkurfræðingar og starfsfólk við flug svo að dæmi séu tekin, hafi notað aðstöðu sína til þess að knýja fram kjarabætur langt umfram það, sem samið hefur verið um almennt. Stundum eru svo miklir hagsmunir í húfi fyrir viðkomandi fyrirtæki, að þau sjá engan annan kost en þann að semja við þessa starfs- hópa og láta undan kröfum þeirra. Undansláttur gagnvart kröfugerð þessara fámennu hópa er hins vegar ekki í þágu annarra launþega. Raunar verður að ætla, að aðrir starfs- menn, t.d. Flugleiða, kunni því illa, að einstakir starfshópar innan fyrirtækisins geti jafnan knúið fram meiri kjarabætur en þorri starfsmanna. Steingrímur Hermannsson segir réttilega, að verkalýðs- hreyfingin hafi jafnan verið andvíg breytingum á vinnulög- gjöf. En tímarnir hafa breytzt. Það er ákaflega erfitt að sjá hvaða rök ættu 'að vera fyrir því, að verkalýðshreyfingin í heild sinni verndi sérstaklega aðstöðu fámennra hagsmuna- hópa, til þess að knýja hveiju sinni fram meiri kjarabætur en launþegasamtökin hafa náð fram fyrir sína félagsmenn. Það væri a.m.k. fróðlegt að sjá þau rök. Nú hefur það gerzt, að for- sætisráðherra vinstri stjórnar hefur hreyft breytingum á vinnulöggjöf til þess að gera að engu þessa sérstöku aðstöðu fámennra hópa. Að vísu hafa forsvarsmenn Alþýðuflokks og Alþýðubandalags ekki tjáð sig um þetta mál en engu að síður er það staðreynd, að forsætis- ráðherra hefur lýst þeirri skoð- un sinni, að taka beri á þessu vandamáli. Ótrúlegt er, að ráð- herrar og þingmenn Borgara- flokks mundu leggjast gegn slíkum breytingum á vinnulög- gjöf og ætla verður, að þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins sé reiðubúinn til' samstarfs um lagabreytingar af þessu tagi. Af þessum sökum sýnist full ástæða til að taka forsætisráð- herra á orðinu og taka upp samráð milli þingflokka innan og utan ríkisstjórnar um nauð- synlegar lagabreytingar. Að- staða fámennra sérhagsmuna- hópa til þess að setja atvinnu- fyrirtæki og ríkisstjórnir upp að vegg er auðvitað óþolandi og tímabært að þar verði breyt- ing á. Þar sem forsætisráð- herra hefur tekið frumkvæði í málinu er fyllsta ástæða til að fylgja því fast eftir. Sendinefiid frá Angólu: Kannar möguleika á auknu samstarfi á sviði sjávarútvegs ÞRIGGJA manna sendinefhd frá Angólu var nýlega hér á landi til kanna möguleikana á auknu samstarfi Islands og Angólu á sviði sjávarútvegs. Meðal þess sem Angólumennirnir telja sig geta haft gagn af er sú reynsla sem Islendingar hafa á sviði skipulags land- helgisgæslu. Munu Angólumenn eiga í erfiðleikum með ólöglegar veiðar erlendra fiskiskipa í landhelgi þeirra. Sendinefhdin er hér í boði Þróunarsamvinnustofnunar Islands. í angólsku sendinefndinni eru þeir dr. Adáo Kapilango, hagfræð- ingur, Waldemar dos Santos, fisk- tæknifræðingur, og Garcia Neto, fulltrúi angólska sjávamtvegs- ráðuneytisins í Bengo-héraði. Á meðan á dvöl þeirra hér stóð skoð- uðu þeir ýmislegt er tengist íslenskum sjávarútvegi, s.s. fisk- vinnslu, fiskmarkað, Hafrannsókn- arstofnun, Ríkismat sjávarafurða, mennta- og sölukerfi sjávarútvegs- ins, og fiskeldisstöð ríkisins í Kolla- firði. Úlfur Björnsson, ráðgjafi hjá Þróunarsamvinnustofnun íslands, fór til Angólu í fyrravetur til að kanna þar aðstæður og voru An- gólumennirnir nú að endurgjalda þá heimsókn. Það sem þeir hafa haft mestan áhuga á að fræðast um af íslendingum er þjálfun og kennsla manna í verkstjórn í fisk- vinnslu, skipulag landhelgisgæslu og fiskveiða, fiskeldi í sjó og fiski- rannsóknir. Þegar Morgunblaðið spurði sendinefndina hvernig staðan i angólskum sjávarútvegi væri í dag sögðu þeir Angólu hafa mikla auð- lind þar sem fiskurinn væri. Eins og staðan væri í dag næði fiski- floti þeirra ásamt nokkrum sam- starísaðilum að veiða nægilega fyrir innanlandsmarkað en stefnt væri að því að veiða einnig fyrir útflutning í framtíðinni. Fiskimiðin hefðu verið rannsökuð og bentu niðurstöður þeirra rannsókna til að hægt væri að veiða 600.000 tonn á ári. í dag væru hins vegar ekki veidd nema rúmlega 100.000 tonn árlega. Heimsókn sína til íslands sögðu þeir vera kynningarheimsókn en samskipti landanna töldu þeir eiga eftir að vaxa á næstunni, sérstak- lega hvað varðaði samstarf á sviði sjávarútvegs, en þar stæðu íslend- ingar mjög framarlega. Hlutir sem þeir sögðust hafa.sérstakan áhuga á, auk þeirra atriða sem fyrr voru nefnd, eru samstarf við samvinnu- hreyfinguna, sem er öflug í An- gólu, og smábátaútgerð, en hún er talin munu henta þeirra aðstæð- um mjög vel. Sendinefndarmenn sögðu að nýlega hefði verið samþykkt lög- gjöf um erlendar íjárfestingar í Angólu sem miklar vonir væru bundnar við. Miðaði þessi löggjöf að því að hverfa frá miðstýringu og gætu nú erlendir aðilar komið og ijárfest með hagnað beggja aðila í huga. Aðspurðir sögðust þeir vona að íslendingar myndu jafnvel ijárfesta í Angóiu. íslend- ingar ættu tækni og tæki og An- gólumenn ættu fisk. Doktor í sagnft’æði ANNA Agnarsdóttir varði doktorsritgerð í sagnfræði við London School of Economics and Political Science þann 6. júlí síðastliðinn. Ritgerðin nefnist Great Britain and Iceland 1800-1820. Eins og titillinn gefur til kynna, fjallar ritgerðin um samskipti ís- lands og Bretlands á tímabili Napól- eonsstyijalda, en þá komst ísland á yfirráðasvæði Breta. Ritgerðin fjallar einnig m.a. um aðdraganda o g eftirmál byltingar Jörundar hundadagakonungs árið 1809-og um fyrstu tvo ræðismenn Breta á íslandi. Verslunarsaga tímabilsins er einnig rannsökuð, bæði enska verslunin og verslun landsmanna, sem á stríðsárunum var að mestu stjórnað áf Bretum með höftum og útflutningshömlum. Andmælendur voru dr. Stewart P. Oakley, prófessor í skandin- avískri sögu við University of East Anglia og Patricia K. Crimmin, lektor við Royal Holloway College, University of London, sérfræðingur - í sögu tímabilsins. Anna er fædd í Reykjavík 14. maí 1947. Faðir hennar var Agnar Kl. Jónsson_ sendiherra, en móðir hennar er Ólöf Bjarnadóttir. Hún lauk stúdentsprófi 1967, B.A. (Hons.) prófi í sagnfræði frá háskól- anum í Sussex árið 1970 og prófi í íslandssögu við Háskóla Islands árið 1973. Síðan tók við framhalds- nám við London School of Econ- omics 1974-7. Anna hefur starfað sem stundakennari við Menntaskól- ann í Reykjavík 1972-4, Kennara- háskóla íslands 1973-4, Mennta- Dr. Anna Agnarsdóttir skólann við Sund 1981-5 og frá 1980 við Háskóla íslands. Maður hennar er dr. Ragnar Árnason, prófessor og eiga þau tvær dætur. Samskiptin við Islendinga hafa verið afar ánægjuleg - segir yfirmaður þýska ferðamálaráðsins á Norðurlöndum sem nú tekur við starfi flugvallarstjóra í Saarbriicken KNUT Hanschke, sem verið hefúr yfirmaður þýska ferðamálaráðs- ins á Norðurlöndum í tæp fjögur ár, hefúr nú verið ráðinn flug- vallarstjóri í Saarbriicken. Hann tekur við starfinu þann 1. októ- ber, en fyrir nokkrum dögum var hann staddur hér á landi til að kveðja vini og samstarfsmenn. „Undanfarin ár hefur verið stöð- ug fjölgun íslenskra ferðamanna í Þyskalandi og ég hef haft mikla ánægju af samskiptum mínum við íslenskar ferðaskrifstofur og flugfé- lög,“ sagði Knut. „Árið 1984 fjölg- aði gistinóttum íslendinga í Þyska- landi um tæp 100% frá árinu áður, voru árið 1983 rúmlega 23.500 en fóru 1984 í tæp 46 þúsund. Skýr- ingin á þessu er sú, að árið 1984 var byijað að selja ferðir til Daun Eifel, þar sem margar íslenskar fjöl- skyldur hafa eytt sumarfríinu sínu. Á síðasta ári voru gistinæturnar komnar í tæp 80 þúsund og fyrstu ijóra mánuði þessa árs var aukning- in 24%. Það er því ljóst að íslending- ar kunna að meta Þýskaland og njóta þess að dvelja þar í fríum.“ Knut Hánschke sagði að hann hefði í starfi sínu lagt mikla áherslu á að ná góðu sambandi við flugfé- lögin og þá sem selja ferðir. „Á íslandi, líkt og í Finnlandi, þekkir fólk ekki eins vel til Þýskalands og til dæmis í Danmörku eða Svíþjóð. Þess vegna fannst mér skemmtileg- ast að vinna að kynningu á landi mínu á íslandi og í Finnlandi og gera fólki ljóst að í Þýskalandi eru ekki bara stórar verksmiðjur Volks- wagen og fleiri iðnfyrirtækja, held- ur einnig fallegt landslag.“ Knut sagði, að í starfinu sem flugvallarstjóri í Saarbriicken myndi hann leggja mesta áherslu á að vekja athygli á flugvellinum. „Völlurinn sinnir nú tólf áætlunar- ferðum daglega og þaðan eru farin 14 leiguflug í viku,“ sagði hann. „Hins vegar er auðveldlega hægt að tvöfalda umferð um völlinn og það verður mitt hlutverk. Nú leita íbúar í nágrenni vallarins til flug- vallanna í Lúxemborg eða Frank- furt ef þeir vilja fara til útlanda, en ég ætla að reyna að breyta þessu. Til að byija með vil ég koma á flugi til London og Parísar." Knut sagði að stór hluti starfs hans yrði að kynna flugfélögum þann möguleika sem opnaðist þegar innri markaður Evrópubandalags- ins yrði að veruleika árið 1992. „Saarbriicken verður þá skyndilega í miðri Evrópu,“ sagði hann. „Stóru flugvellirnir, til dæmis í París og London, eiga takmarkaða mögu- leika á að auka umferðina og marg- ir flugvellir lenda í vanda þess vegna, til dæmis vegna þess að mjög er nú litið til umhverfismála. Fólk í næsta nágrenni þeirra sættir sig ekki við aukna umferð og háv- aða sem af henni stafar. Flugfélög í Evrópu eru því nú þegar farin að leita til minni flugvalla, meðal ann- ars til þess að minnka kostnað, sem stafar af töfum á stærri völlunum.”

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.