Morgunblaðið - 21.09.1989, Blaðsíða 34
MPMiUiN'BLAÐtt): FIMM TUDAGUR 2:1. SEJfTPMBER ,19íBS>
m
Elíás J. Guðjónsson
Akranesi - Minning
Fæddur 13. maí 1919
Dáinn 13. september 1989
Þótt allir viti og geri sér ljóst að
„eitt sinn skal hver deyja“ þá fer
ekki hjá því að þegar maður stend-
ur frammi fyrir þeirri staðreynd að
góður vinur og félagi er.ekki lengur
á sínum stað er manni brugðið.
Það eru margar góðar minningar
bundnar við Elías Guðjónsson bæði
hér heima og erlendis. Þar sem
Elías var skorti aldrei léttan anda.
Elías kunni margar sögur er lýstu
vel mönnum og málefnum og var
hann næmur á það broslega í lífinu
og hafði gaman af ýmsum sérkenn-
um manna sem ekki allir veittu
athygli. En hann fór ekki illa með
slíka hluti frekar en annað sem
honum var trúað fyrir. Elías talaði
ekki illa um fólk, enda var hann
nærgætinn og hjartahlýr. Og tók
hann nærri sér að sjá fólki líða illa.
Við Elías áttum viðskipti saman
í fjölda ára og það liðu sjaldan
margir dagar svo að við töluðum
ekki saman. 0g síðast var það 13.
september. Við voru þá að ræða
vörukaup til næstu mánaða. En að
kvöldi þess sama dags var þessi
árvaki verslunarmaður ekki lengur
til viðræðna við einn eða neinn.
Þannig er lífið og þannig er dauð-
inn. Þegar litið er til baka eru
margar stundir eftirminnilegar ekki
síst á vörusýningum erlendis þar
sem við vorum oft saman í hópi
góðra vina. Og Elías var ætíð hrók-
ur alls fagnaðar. Og eftir á finnst
manni að liðnu árin, sem enn virð-
ast svo nálæg, komi til manns með
óráðnar gleðistundir. En þá, þégar
minnst varir, hefur slokknað á
lampanum og myrkrið hellist yfir.
Þannig er vitundin þegar maður
hrekkur við og sér að dauðinn er
hinumegin við þilið.
Ég votta eftirlifandi eiginkonu
og börnum mína dýpstu samúð.
Andres Guðnason
Elli vinur okkar er fallinn frá.
Harmafregnin barst okkur morgun-
inn eftir að hann lést, miðvikudag-
inn 14. sept.
Elías Jón Guðjónsson hét hann,
borinn og barnfæddur Akurnesing-
ur. Fæddur 13. maí 1919 og því
nýorðinn 70 ára.
Við vorum svo lánsöm að kynn-
ast honum og konu hans fyrir um -
20 ámm. Vegir okkar lágu saman
er við sóttum skósýningar í Diis-
seldorf og London.
Elli var vel af Guði gerður, þétt-
ur á velli og léttur í lund, hvers
manns hugljúfi og hrókur alls fagn-
aðar. Alltaf hinn mesti æringi, vildi
öllum gott gera og hjálpa til ef á
þurfti á að halda. Höfðingi heim
að sækja og voru þau hjónin orð-
lögð fyrir gestrisni og myndarskap.
Hann byijaði sipn búskap með
konu sinni Sigríði Ármannsdóttur á
Staðarfelli og bjuggu þau þar alla
tíð._
Árið 1946 hóf hann verzlunar-
rekstur, fyrst með búsáhöid, en
söðlaði síðaf yfir í skóverzlun. Rak
hann skóverzlunina Staðarfell á
Akranesi í rösklega 40 ár. Einnig
rak hann verzlun við Skólavörðu-
stíg, síðar við Óðinstorg, í fjölda
ára. Hann keypti og skóverzlun á
Laugavegi 100 og rak 3 verzlanir
um árabil. Varð hann umsvifamik-
ill kaupmaður, sem sífellt þurfti að
fara á milli Akraness og Reykjavík-
ur. Taldi hann sig ekki geta gert
landsbyggðarverzlun góð skil, nema
reka einnig verzlun í Reykjavík,
Þurftu þau hjónin því oft að fara
erlendis og kaupa inn. Þótt mörgum
þyki það eftirsóknarvert að ferðast
til útlanda verður það lýjandi til
lengdar. Kom að því, er hann hafði
fengið hjartaáfail fyrir nokkrum
árum, að hann seldi verzlanirnar í
Reykjavík og hélt sig við heima-
byggð sína. Þaðan ætlaði hann aldr-
ei að fara, þótt einhveijum hefði
kannske fundist að betra hefði ver-
ið að flytja og reka verzlun í
Reykjavík, þar sem nafli heimsins
er að margra mati. Svo mikið
Skagafólk voru þau hjónin að það
kom aldrei til greina.
Elli hafði mörg áhugamál. Var
mikill félagsmaður. Var í Lions og
átti þar 100% mætingu í mörg ár.
Hann var og í Oddfellowstúkunni
Agli. Talaði hann oft um hvað þessi
félög væru mannbætandi.
Sumarbústað í Borgarfirðinum
höfðu þau hjónin komið sér upp af
áhuga og dugnaði með Guðjóni syni
sínum og áttu þau hjónin margar
ánægjustundir í faðmi fjölskyldunn-
ar. Tvö börn áttu þau, Guðjón og
Gunnhildi. Son átti. Elli áður en
hann gifti sig, Steinar, er dó af slys-
förum. Var það þeim mikið áfall.
Sonur Steinars, Ragnar, hafði ný-
lega gert hann að langafa, sem
hann var stoltur af.
Erfitt var og hjá þeim hjónum,
þegar Gunnhildur missti mann sinn
snögglega frá tveim ungum börn-
um. Þar voru þau vanmáttug, eins
og fleiri.
Barnabörnin urðu 6 að tölu,
þeirra líf og yndi. Gaman var að
fylgjast með, síðast þegar við heim-
sóttum þau, sjá, sonardótturina
Sigríði yngri hjálpa til við af-
greiðslu. Snemma beygist krókur-
inn.
Elli hafði mikið að gefa. Þótti
hann ómissandi í stórum hópi skó-
kaupmanna, sem um árabil hittust
á skósýningum, vor og haust. Og
þegar hann vantaði, var ekki sama
glaðværðin og áður. Þótt hann
væri með þeim elstu, þá var fjörið
þar sem hann var. Hann dansaði
manna mest, var manna kátastur
og skemmtilegastur, þrátt fyrir
langan vinnudag. Gaf þeim yngri
ekkert eftir. Orðheppinn var hann
með afbrigðum og eru margar
fleygar setningar til eftir hann.
Hann hafði ekki gengið heill til
skógar um nokkurn tíma, þótt hann
vildi ekki gera mikið úr veikindum
sínum. Sló hann á létta strengi,
þegar spurt var hvernig heilsan
væri. Fyrir skömmu lagðist hann
inn á sjúkrahús og þegar hringt var
til hans eftir heimkomuna, sagðist
hann vera stálsleginn.
Kvöldið áður en hann lést hringdi
....................... —
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma;
HERBORG KRISTJÁNSDÓTTIR
kennari,
Vesturbrún 6,
lést á heimili okkar að morgni 19. september.^
Þórir Sigurðsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Bróöir okkar, + SKÚLI PÉTURSSON
bóndi,
Nautaflötum,
Ölfusi,
lést 19. september. Systkini hins látna.
■ Hjartkær sonur minn, faðir og t aróðir okkar,
BÆRING VAGN AÐALSTEINSSON,
Klapparstíg 11,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 22. septem-
ber kl. 15.00.
Svanhildur Maríasdóttir, Selma Björk Elíasdóttir, Halldór Guðbjartur Elíasson,
Jónas Friðgeir Elíasson, Viðar Elíasson, Hilmar Elíasson, Svanfrfður Ósk Bæringsdóttir, Hafdís Lilja Pétursdóttir, Soffía Ösp Bæringsdóttir,
Svanur Elí Elíasson, Hlynur Elías Bæringsson.
3.
vfi ►
'iCWÍ’."
Kransar, krossar, kistu-
skreytingar, samúðarvendir
og samúðarskreytingar.
Sendum um allt land á opnunartíma
frá kl. 10-21 alla daga vikunnar.
amfliaaiaiKStq
MIKLUBRAUT 68 ® 13630
+
Útför heiðursborgara Gerðahrepps,
BJÖRIMS FINNBOGASONAR,
fyrrverandi oddvita,
verður gerð frá Útskálakirkju laugardaginn 23. september nk. kl. 14.00.
Hreppsnefnd Gerðahrepps.
+
Hjartkær eiginmaður minn,
GUÐNI ÁRSÆLSSON,
Hrisateigi 43,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju föstudaginn 22. septem-
ber kl. 13.30.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Guðrún Jóhannesdóttir.
+
Eiginkona mín og móðir okkar,
HALLFRÍÐUR SVEINSDÓTTIR
frá Súðavík,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju föstudaginn 22. september
kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélag
íslands.
Þorvarður Hjaltason og börn.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
J. GUNNAR TÓMASSON
verkfræðingur,
Bakkaflöt 6,
Garðabæ,
verður jarðsunginn föstudaginn 22. september kl. 15.00 frá Foss-
vogskirkju.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Landspítalasjóð og
St. Jósefsspítalann í Hafnarfirði.
Doris J. Tómasson,
Edda Gunnarsdóttir,
Karl Gunnarsson,
Rúna Gunnarsdóttir,
Ása Gunnarsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
hann til Eyja og lék á als oddi,
talaði urn hvenær við hittumst næst,
þó ætlaði hann ekki til Dusseldorf
í ár, en vonaði að næst gæti hann
verið með. Morguninn eftir var
hann allur.
Erfitt er að trúa því að hann
Elli sé dáinn. Sár er söknuður fjöl-
skyldu hans og vina. Viljum við
með þessum fátæklegu orðum
þakka honum og þér Sigga mín
vináttuna í öll þessi ár. Megi góður
Guð styrkja þig og fjölskylduna og
hjálpa ykkur að sefa þá sáru sorg
sem nú ríkir á Staðarfelli.
Sigurbjörg Axelsdóttir,
Axel O. Lárusson.
Bezti faðir, barna þinna gættu;
blessun þín er múr gegn allri hættu.
Að oss hlúðu, hryggð burt snúðu,
hjá oss búðu,
orð þín oss innrættu.
(P.G.)
Hann Elías afí minn er dáinn ög
þess vegna langar mig að skrifa
fáein kveðjuorð um hann.
Það er erfitt að kveðja svo góðan
mann sem afi minn var. Hann var
svo góður og umhyggjusamur og
vildi allt fyrir alla gera.
Hann afi vissi og kunni svo
margt, sem hann hafði mikla
ánægju af að segja okkur frá. Hann
bjó til leikföng, eins og þau sem
hann lék sér að sem drengur. Svo
Iékum við okkur saman og þá var
afi ekki síður barn en við.
Það er svo margt, sem við afi
gerðum saman. Ég minnist alltaf
þcss þegar við fórum saman í
sunnudagaskólann frá því ég var
fjögurra ára og héldum því áfram
í mörg ár. Síðastliðinn vetur fór
hann með mér í messu vegna ferm-
ingarundirbúnings hjá mér. Mér
leið alltaf svo vel með honum afa.
En nú kveð ég elsku afa minn.
Hann mun alltaf vera í huga mér
og ég mun reyna að gefa öðrum
það, sem hann gaf mér. Ég skal
reyna að hjálpa elsku ömmu minni,
sem honum þótti svo vænt um, en
þurfti að kveðja alltof fljótt.
Hafðu Jesú, raig í minni,
mæðu’ og dauðans hrelling stytt.
Bðrn mín hjá þér forsjón finni,
frá þeim öllum vanda hritt.
Láttu standa á lífsbók þinni
líka þeirra nafn sem mitt.
(H.P.)
Sigríður Ásta Guðjónsdóttir
Að kvöldi miðvikudags 13. sept-
ember lést á heimili sínu, Kirkju-
braut 1 á Akranesi, Elías Guðjóns-
son kaupmaður. Hann hafði átt við
hjartasjúkdóm að etja um tíma, en
vonir stóðu til að hann kæmist yfír
það. Var hann óðum að hressast
og var hann við vinnu í verslun sinni
daginn sem hann lést. En kallið,
sem enginn flýr, var komið, og eng-
inn frestur veittur.
Hann verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju í dag, fimmtudaginn
21. september.
Elías Jón Guðjónsson, en svo hét
hann fullu nafni, var fæddur á
Akranesi 13. maí 1919. Foreldrar
hans voru Guðjón Jónsson kaup-
maður og kona hans Ólafía Ólafs-
dóttir, bæði fædd á Akranesi. Guð-
jón byrjaði að versla á Akranesi
1918, fyrst í Oddgeirsbúð, sem stóð
þar sem nú er verslunar- og íbúðar-
húsið á Kirkjubraut 2. í Oddgeirs-
búð hafði verslað áðut' Oddgeir heit-
inn Ottesen á Ytra-Hólmi. Árið
1922 byggðu þau Guðjón og Ólafía
myndarlegt steinhús á Kirkjubraut
1, beint á móti Oddgeirsbúð og
nefndu það Staðarfell. Þar verslaði
Guðjón meðan hann lifði, en hann
lést langt fyrir aldur fram árið
1929.
Eftir lát Guðjóns rak Ólafía versl-
unina í nokkur ár, en leigði hana
síðan. Ólafía rak um árabil matsölu
- á Staðarfelli af miklum myndar-
skap. Hún andaðist í Reykjavík
1955. Þau Guðjón og Ólafía áttu
einnig eina dóttur, Unni. Hún- er
búsett í Reykjavík gift Skarphéðni
Óskarssyni, og eiga þau fjögur
börn.
Hugur Elíasar hneigðist snemma
að verslunarstörfum. Innan við
tvítugt hóf hann störf og stjórnaði
verslun, er Sigurður heitinn Hall-
bjarnarson útgerðarmaður stofnaði.
Um tíma vann hann svo með And-