Morgunblaðið - 21.09.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.09.1989, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDÁGUR 21...SEPTEMBER 1989. Alþj óðasiglinga- máladagurinn eftir Magnús Jóhannesson í dag, 21. september, er haldinn víða um heim hátíðlegur alþjóða- siglingamáladagurinn (World Mari- time Day). Tilgangur með degi þessum er að vekja sérstaka athygli á við- fangsefnum Alþjóðasiglingamála- stofnunarinnar (International Mari- time Organization, IMO) sem eru öryggi sjófarenda og varnir gegn mengun sjávar. Árið 1977 samþykkti allsheijar- þing IMO að halda skyldi árlega einn dag hátíðlegan og helga hann þeim málefnum Alþjóðasiglinga- málastofnunarinnar sem væru ofar- lega á baugi í hvert sinn. Árið 1978 var fyrsti alþjóðasigl- ingamáladagurinn haldinn hátíðleg- ur en þá voru liðin 20 ár frá því að stofnskrá Alþjóðasiglingamála- stofnunarinnar tók gildi. í dag er tólfti alþjóðasiglingamáladagurinn haldinn hátíðlegur. Að þessu sinni er dagurinn helg- aður 30 ára sögu IMO en 1. janúar á þessu ári voru liðin 30 ár frá því að stofnunin tók til starfa. í tengslum við alþjóðasiglinga- máladaginn hefur framkvæmdaráð IMO veitt verðlaun þeim einstakl- ingi sem hefur á fyrra ári lagt stærstan skerf til starfa Alþjóða- siglingamálastofnunarinnar. Að þessu sinni hlýtur verðlaunin Emil „Þegar litið er yfir störf IMO sl. 30 ár blandast engum hugur um að stofnunin hafi með starfi sínu haft veruleg áhrif til að auka öryggi sjófarenda og draga úr mengun sjávar.“ Janssen aðstoðarsiglingamálastjóri Noregs. Þess má geta að Hjálmar R. Bárðarson fyrrverandi siglinga- málastjóri hlaut þessi verðlaun árið 1984. Alþj óðasiglingamála- stofnunin IMO Segja má að tvær meginástæður hafi legið til grundvallar er ríki heims ákváðu að setja á fót sér- staka stofnun um öryggismál sjó- farenda. í fyrsta lagi hafa siglingar og sjósókn verið meðal áhættusam- ari starfsgreina. í öðru lagi eru sigl- ingar í eðli sínu alþjóðlegar og aug- ljóst að skjótari og meiri árangri verður náð til að auka öryggi sjó- farenda, ef unnið er að verkefninu á alþjóðlegum vettvangi en ef hver þjóð vinnur að þessum málum án samráðs við aðrar þjóðir. I dag eiga 132 ríki aðild að IMO. Stofnunin er vettvangur samstarfs um þau viðfangsefni sem fyrr eru nefnd. Á þessum vettvangi hittast fulltrúar ríkisstjó'rna, annarra alþjóðastofn- ana og hagsmunasamtaka og leita lausna á þeim vandamálum sem við er að glíma hveiju sinni. Aukin þátttaka hagsmunaaðila s.s. full- trúa sjómanna, skipaeigenda og annarra samtaka í störfum IMO á undanförnum árum hefur tvímæla- laust haft jákvæð áhrif og skilað betri árangri til að ná þeim mark- miðum sem stofnunin vinnur að. Sameiginlegar ákvarðanir aðild- arríkja stofnunarinnar koma fram ýmist í alþjóðasamþykktum, álykt- unum og leiðbeiningum. Alþjóðasiglingamála- stoftiunin í 30 ár í 30 ára sögu IMO hafa orðið miklar breytingar á starfsumhverfi stofnunarinnar. Ör tækniþróun, m.a. í flutningum á sjó, hefur haft áhrif á hönnun skipa og störf áhafna. Þá hafa viðhorf til mengun- arvarna sjávar breyst verulega eins og alkunna er. Á fyrsta allsheijarþingi IMO árið 1960 var samþykkt að endurskoða Alþjóðasamþykkt um öryggi mannslífa á hafinu frá 1948 (Saf- ety of Life at Sea, SOLAS 1948). Þá hafði stofnunin tekið að sér framkvæmd Alþjóðasamþykktar til að koma í veg fyrir árekstra á sjó. Og einnig framkvæmd Alþjóðasam- þykktar um varnir gegn olíumeng- un sjávar frá 1954. IMO varð þar með fyrsta alþjóðastofnunin sem tók að sér mengunarvarnir sjávar. Alþjóðasamþykktir er varða öryggi skipa og áhaftia þeirra Eins og áður er nefnt var eitt af fyrstu verkefnum allsheijarþings IMO að endurskoða SOLAS 1948 og var ný Alþjóðasamþykkt um öryggi mannslífa á hafinu sam- þykkt árið 1960 (SOLAS 1960) þessi samþykkt tók gildi árið 1965. SOLAS 1960 lagði grundvöll að ákvæðum um alla helstu öryggis- þætti í skipum, má þar nefna ákvæði um sundurhólfun og stöðug- leika skipa, vélakerfi og rafbúnað, eldvarnir og slökkvibúnað, björgun- arbúnað, fjarskiptabúnað og öryggi siglingabúnaðar og siglingar. Vegna þróunar í gerð og búnaði skipa var talið nauðsynlegt að gera nýja alþjóðasamþykkt uni öryggi mannslífa á hafinu 1974 (SOLAS 1974), þar sem allir þessir þættir voru teknir fyrir á ný. Þessi sam- þykkt hefur verið í gildi frá 1980. Einnig var þá gerð sú grundvallar- breyting á eftirliti með framkvæmd samþykkta að stjórnvöldum var fal- ið að hafa eftirlit með erlendum skipum sem kæmu í þeirra hafnir (hafnareftirlit), svo betur mætti samræma eftirlit einstakra ríkja. Hafnareftirlit með skipum hefur síðan farið vaxandi á öllum sviðum. Fjöldi annarra alþjóðasamþykkta er varða öryggi skipa hefur verið gerður á vegum IMO. Má þar nefna Alþjóðasamþykkt um hleðslumerki skipa frá 1966, Alþjóðasamþykkt um mælingu skipa 1969, Alþjóða- samþykkt um gámaflutninga 1972, og sérstaka samþykkt um öryggi fiskiskipa sem gerð var árið 1977. Þá hefur mönnum orðið æ Ijósara .á undanförnum árum að einn veiga- mesti þátturinn í öryggi sjómanna byggist á hæfni áhafnar, þjálfun hennar og reynslu. Af þeim sökum beitti IMO sér fyrir því að árið 1978 var gerð sérstök alþjóðasam- þykkt um menntun, þjálfun, skilríki og vaktstöðu sjómanna. Tilgangur þessarar samþykktar er að setja staðal um lágmarkskröfur til áhafna skipa. Ýmislegt bendir til þess að frekari áhersla verði lögð á virka þátttöku áhafnarinnar til að auka öryggi og efla mengunar- varnir. Fyrir næsta allsheijarþingi IMO liggur tillaga að ályktun um skipsstjórn vegna öryggis skipa og mengunai’varna, sem líklegt er að verði samþykkt samhljóða. Annar mikilvægur þáttur í ör- yggismálum sjómanna er leit og björgun slasaðra og/eða skipreika sjómanna. Til þess að tryggja að vel sé fyrir þessum þáttum öryggis- mála séð hvar sem er í heiminum gekkst IMO fyrir gerð alþjóðasam- þykktar um leit og björgun á sjó árið 1979. Þessi samþykkt tekur sérstaklega mið af nýju neyðarfjar- skiptakerfi skipa sem tekið verður í notkun eftir 1. febrúar 1992 og er gjörbreyting á því sem verið hefur. í hinu nýja kerfi er m.a. tek- in upp og hagnýtt ný tækni fjar- skipta og staðsetningar með gervi- hnöttum. Alþjóðasamþykktir um varnir gegn mengun hafsins IMO hefur frá upphafi látið mengunarvarnir hafsins sig miklu varða. Árið 1954 var gerð fyrsta alþjóðasamþykktin um varnir gegn olíumengun sjávar. IMO tók að sér við upphaf stofnunarinnar 1959 framkvæmd þessarar alþjóðasam- þykktar. Þessi alþjóðasamþykkt var sú fyrsta í heiminum þar sem gert var átak til að sporna við mengun hafsins. Það var þá þegar orðið ljóst að olíumengun sjávar var orðin al- þjóðlegt vandamál. Vandinn .jókst með aukinni burðargetu olíuskipa og umferð skipa. Það er þó ekki fyrr en við strand olíuflutninga- skipsins Torry Canyon.árið 1967 sem athygii alheimsins beindist að þeirri gífurlegu eyðileggingu sem olíuflutningar geta valdið á lífríki og umhverfi sjávar. í kjölfar þessa óhapps gekkst IMO fyrir gerð fjölmargra alþjóða- samþykkta um varnir gegn mengun sjávar. Árið 1973 var gerð heild- stæð alþjóðasamþykkt um varnir gegn mengun sjávar frá skipum sem tekur til olíumengunar, meng- unar frá sorpi, skólpi, kemískum efnum og öðrum hættulegum efn- ROYAL SKYNDIBÚÐINGARNIR v7 ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUÐA Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragötegundir í skrifstofutækni lærir þú að vinna sjálfstætt á tölvur í skrifstofutækni eru m.a. kenndar eftirfarandi greinar: - almenn tölvufræði - to'll- og verðútreikningur - almenn skrifstofutækni - grunnatriði við stjórnun - útfylling eyðublaða - verslunarreikningur - víxlar og verðbréf - íslenska - viðskiptaenska Námið tekur 3-4 mánuði og að því loknu útskrifast þú sem skrifstofutæknir. Þú getur valið um morgun-, eftirmiðdags- eða kvöldtíma. - stýrikerfi - tölvusamskipti - ritvinnsla - gagnagrunnur - töflureiknar og áaétlanagerð - tölvubókhald HlTÖlVyFRÆÐSLAN Borgartúni 28, sími 687590 Innritun er þegar hafin. Mjög hagstæð greiðslukjör. Hringdu í síma 687590 og fáðu sendan bækling. P.s. þú ert líka velkomin í heimsókn til okkar í Borgartún 28. um. Island hefur staðfest allar al- þjóðasamþykktir sem gerðar hafa verið á vegum IMO um varnir gegn mengun sjávar. Önnur verkeftii Þótt öryggismál sjófarenda og varnir gegn méngun sjávar hafi jafnan skipað öndvegi í störfum IMO er einnig unnið að öðrum málum. Eitt þessara verkefna er auðveldun siglinga sem felst m.a. í samræmingu skýrslugerða við komu og brottfarir skipa og árið 1965 var undirrituð sérstök alþjóða- samþykkt á vegum IMO um þetta efni (Facilitation of Maritime Traffic). Árið 1976 stóð Alþjóðasiglinga- málastofnunin fyrir ráðstefnu um gervihnattafjarskipti skipa, þar sem lögð voru drög að stofnun Alþjóð- legu gervihnattastofnunarinnar (International Maritime Satellite Organization INMARSAT). Þessi alþjóðasamþykkt tók gildi í júlí 1979 og hefur INMARSAT-stofn- •unin aðsetur í London. Nú mun vera unnið að því að ísland gerist aðili að INMARSAT. Þá hefur IMO undanfarin ár lagt i i > > i >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.