Morgunblaðið - 21.09.1989, Síða 12
12________Mchlctf'NBM*TÍífjAGljr' 21. 'SEPTÉMBÉR1 1!989j-
Onothæf sýnisbók ís-
lenskra ljóða á 20. öld
eftir Halldór Blöndal
„Gegnum ljóðmúrinn, — safn
íslenskra ljóða á 20. öld“ er gefið
út af „Máli og menning_u“ árið 1987
og ber það með sér. Á bókarkápu
stendur m.a.: „Safninu er ætlað að
sýna framhaldsskólanemum þær
víðáttur sem blöstu við þegar
íslensk ljóðskáld höfðu endanlega
brotist gegnum ljóðmúrinn um
miðja þessa öld. Ljóðin hafa verið
valin með tilliti til þess að þau sýni
þróun nútímaljóðlistar, bæði hvað
varðar form og inntak, eins glöggt
og unnt er.“ Islenskukennararnir
Ingi Bogi Bogason, Sigurður Svav-
arsson og Vigdís Grímsdóttir völdu
ljóðin og önnuðust útgáfuna. Ljóðin
eru 200 og skáldin 86.
Eg skil ekki orðið „ljóðmúr" og
hef ekki fundið í orðabókum. Þaðan
af síður skil ég, hvað íslenskukenn-
ararnir eiga við, þegar þeir skrifa
í formála, að íslensk skáld hafi end-
anlega brotist í gegnum ljóðmúrinn.
Getur eitthvað verið" endanlegt í
skáldskap? spyr ég sjáían mig, um
leið og ég les þessi orð. Og kemst
óðar að þeirri niðurstöðu, að hugsun
íslenskukennaranna sé hvorki skýr
né skáldleg. En óneitanlega rímar
hún við hljóðfráu þotuna hans
Pompidous, sem skaust „gegnum
hljóðmúrinn", en ekki endanlega
sem betur fór, þegar hann sótti
okkur heim forðum, íslendinga.
I orðabók Menningarsjóðs er
„hljóðmúr“ skilgreindur svo: „Þau
takmörk í hraðaaukningu farartæk-
is þegar það tekur að fara hraðar
en hljóðið og lendir við það á sam-
þjöppuðum hljóðbylgjum frá sjálfu
sér.“ Með skírskotun til sumra
þeirra verka, sem eru birt í „Gegn-
um ljóðmúrinn" má notast við sömu
skilgreiningu að slepptu h-inu og
með því að taka tillit til þess eðlis-
munar, sem er á milli ljóðs og hljóðs,
höfundar skrifaðs máls og hljóð-
frárrar þotu. Það er a.m.k. ekki
verri skýring en hver önnur, að
sumur samsetningurinn í bókinni
hafi farið hraðar en Ijóðið og lent
við það á samþjöppuðum ljóðbylgj-
um frá sjálfu sér.
Eftir að ég hafði flett „Gegnum
ljóðmúrinn", varð mér ljóst, að
íslenskukennararnir höfðu ekki gert
upp við sig, hvernig þeir skilgreindu
orðið „nútímaljóð". Þeir segja, að
Bikarinn eftir Jóhann Siguijónsson
sé nútímaljóð, en það var ort 1910
og skáldið dó 1919 eða sama ár
og „Svartar fjaðrir" komu út. „Hafi
nokkru sinni leiftrað af eldtungu í
íslenskri ljóðlist, þá var það þegar
Davíð Stefánsson hóf þar flugið á
sínum „svörtu fjöðrum“,“ sagði Jó-
hannes úr Kötlum.
Sestu héma hjá mér,
systir mín góð.
í kvöld skulum við vera
kyrrlát og hljóð.
Það kveður við nýjan og hreinan
tón hjá hinu unga skáldi strax í
fyrsta ljóðinu.
Árið áður höfðu Söngvar föru-
mannsins komið út:
Heyr mitt ljúfasta lag,
þennan lífsglaða eld,
um hinn dýrlega dag
og hið draumfagra kveld.
Rauðu skarlati skrýðst
hefur skógarins flos.
Varir deyjandi dags
sveipa dýrlingabros.
„Þögnin hefur verið allkaldrana-
leg um nafn Stefáns skálds Sigurðs-
sonar frá Hvítadal síðan hann and-
aðist nú fyrir rúmu ári,“ skrifar
Halldór Laxness og rifjaðist upp
við lestur formála að Gegnum
ljóðmúrinn: „Þegar á fyrsta fjórð-
ungi aldarinnar hófu einstök skáld
að brydda upp á nýjungum í ljóðlist-
inrii, t.d. Jóhann Siguijónsson, Jón
Thoroddsen yngri, Hulda, Johann
Jónsson, Halldór Laxness, Sigurður
Nordal og fleiri,“ stendur þar og á
öðrum stað segir í formála: „Þess
vegna höfum við litið framhjá skáld-
um sem framlengdu í raun ríkjandi
hefð, þ.e. nýrómantíkina, þótt þau
hafi rækilega sett mark sitt á fyrri-
hluta þessarar aldar, t.d. Davíð
Stefánsson og Stefán frá Hvítadal,
enda eru þessi skáld rækilega kynnt
í öðrum sýnisbókum." Þetta er af-
sökun íslenskukennaranna fremur
en skýring á því, að þeir töldu hvor-
ugt þessara skálda verðugt í þann
hóp, sem á verk í því safni ljóða á
20. öld, sem sérstaklega er ætlað
nemum í framhaldsskólum. Kenn-
ararnir virðast finna að þeim er
ekki stætt á því að sniðganga ljóð
Davíðs og Stefáns, eins og ljóða-
safnið er skilgreint í formála, og
líður hálfilla, sem von er. Guðmund-
ur Böðvarsson á ljóð í safninu.
I þessu samhengi rifja ég upp,
að flest ljóð Einars Benediktssonar
eru 20. aldar ljóð. Sögur og kvæði
komu að vísu út 1897, en Hafblik
1906, Hrannir 1913, Vogar 1921
og Hvammar 1930. Það er vissu-
lega umhugsunarefni, hvaða ljóð
það eru, sem sameina þetta tvennt,
að vera ort á 20. öld og vera þó
þeirrar gerðar, að íslenskukennarar
telji, að þau eigi erindi við nemend-
ur í framhaldsskólum.
Það kann að vera gott markmið
að kenna „nútímabókmenntir" í
framhaldsskólum. En fyrst er að
reyna að skilja, hvað sé nútími og
hvað bókmenntir. Eitt okkar bestu
skálda á þessari öld sagði við mig
oftar en einu sinni, að mjög hæpið
væri að kenna ljóð eða sögur í skól-
um, fyrr en einhveijum áratugum
eftir að þau væru skrifuð. Þá fyrst
kæmi í ljós, hvers virði þau væru
— hvort þau gætu risið undir því
að mega kallast skáldskapur eða
bókmenntir eða hvort þau væru
dægurfluga, tískuverk. Það væri
skaðlegt að troða vondum samsetn-
ingi ofan í börn og unglinga. Þau
hefðu tilhneigingu til að forðast
skáldskap fyrst á eftir og jafnvel
eftirleiðis.
Góðvinur minn, Stefán Þorláks-
son frá Svalbarði, hefur sagt mér
frá læknisráði, sem var vinsælt eft-
ir 1950: Maður er settur í meg-
runarkúr með því að bera fyrir
hann nógu mikið úrval af vondum
mat, útskýrii' Stefán. Hann bragðar
á öllum réttunum, einum á fætur
öðrum, en missir lystinajafnharðan,
hversu svangur sem hann var, þeg-
ar hann settist til snæðings.
Nú er ég vitaskuld ekki þeirrar
skoðunar, að öll ljóð_ í Gegnum
ljóðmúrinn séu vond. í vorþeynum
eftir Jón Helgason er í senn gott
og gamaldags og er sömu ættar
og Ávarp til fóstuijarðarinnar úr
framandi landi eftir Grím Thomsen.
Og ég get talið upp mörg önnur
ljóð eftir önnur skáld„sem íslensku-
kennararnir hafa valið og sóma sér
Viðskiptatækni 128 klst.
Markaðstækni 60 klst.
Fjármálatækni 60 klst.
Sölutækni 36 klst.
Hringdu í síma 62 66 55 og fáðu sendan bækling
Viðskiptaskólinn
Borgartúni 24, sími 6 2 6 6 5 5
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^um Moggans^,
Halldór Blöndal
„Það kann að vera gott
markmið að kenna
„nútímabókmenntir“ í
framhaldsskólum. En
fyrst er að reyna að
skilja, hvað sé nútími
og hvað bókmenntir.“
vel í safni, úrvali, íslenskra ljóða á
20. öld, þótt þau séu ekki öll nútí-
maljóð í þröngum skilningi þess
orðs.
Á hinn bóginn er augljóst af
fjölda höfundanna, að ljóðasafnið
er misjafnt að gæðum og margt
innan um, sem ekkert erindi á inn
í framhaldsskóla landsins.
Fyrir íslenskukennurunum hefur
ekki vakið að velja ljóðin þannig,
að nemendur framhaldsskóla fengju
í hendui' bók, sem kallast mætti
úrval ljóða á 20. öld. Gegnum ljóð-
múrinn er ekki góð bók í þeim skiln-
ingi. I sumum tilvikum er meira að
segja hæpið að kalla verkið ljóð,
sem valið er. Gott dæmi er Kven-
maður eftir Jón Thoroddsen:
Hún var formáli að ástarævisögum manna.
Hún var innskotskafli.
Hún var kapítulaskipti.
Og nú er hún ástarævisaga mín. En það
hefur gleymst að prenta orðin: Öll réttindi
áskilin.
Eg hafði gaman af Flugum í
menntaskóla og kunni þær meira
og minna utan að, m.a. þær, sem
teknar eru upp í Gegnum ljóðmúr-
inn. Kvenmaður er skemmtileg
fluga og fyndin, en ég kann ekki
þá skilgreiningu á ljóði, sem tekur
til hennar. Enda ónauðsynlegt með
öllu. Skilgreining, sem tæki til flugu
þessarar og Þjóðvísu Tómasar Guð-
mundssonar og segði, að hvort
tveggja væri ljóð, yrði svo laus í
reipunum, að hún yrði óðar lögð til
hliðar sem óbrúkleg:
Eg hélt ég væri smámey og hugðist vera til
eins og hitt fólkið um bæinn.
Og vorið kom og glóði um glugga mína og þil
allan guðslangan daginn.
Á Tjörnesi er eyðikot gamalt,
Bangastaðir, og þótti hafa það helst
til síns ágætis, að hestgegnt var í
Bangastaðahöfn. En örnefni sýna,
að þar hafa búið skáldmæltir menn
og heita Víðáttur fyrir ofan kotið
og upp á heiðina. Islenskukennur-
unum verður tíðrætt um þær víðátt-
ur, „sem blöstu við þegar íslensk
ljóðaskáld höfðu endanlega brotist
gegnum ljóðmúrinn um miðja þessa
öld.“ Á hinn bóginn tekst þeim ekki
að vísa lesaranum til var upp á
víðátturnar, heldur stendur hann í
þessum skilningi á sömu flatneskj-
unni og áður eftir lestur bókarinn-
ar. í safninu eru mörg góð ljóð réttu
megin við ljóðmúrinn, eins og höf-
undarnöfnin sýna. En hitt er vissu-
lega, rétt, að maður fær hellu fyrir
eyrun, ef hann er of nærri hljóðfráu
þotunni, þegar hún fer gegnum
múrinn. Eins fer fyrir mér, þegar
ég les sum Ijóðin í bókinni. Eg fæ
hellu fyrir eyrun, löngu áður en ég
hef lesið þau til enda.
Höfnndur er þingmaihir
Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi
eystra.