Morgunblaðið - 21.09.1989, Síða 25
MÖRGUNBLAÐIÐ KIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1089
Austur-Húnavatnssýsla:
Plöntuhlífar unnar
úr úrgangsplasti
Blönduosi.
SKOGRÆKT hefur verið mikið í brennidepli að undanfórnu og áhugi
almennings á þessu viðfangsefni fer stórum vaxandi. Einn er sá maður
í A-Húnavatnssýslu sem töluvert hefur látið þessi mál til sín taka en
það er Gísli Pálsson bóndi á Hofi í Vatnsdal. Meðal annars hefúr hann
hafið framleiðslu á plöntuhlífum úr harðplasti. Þessi framleiðsla hjá
Gísla er nokkurskonar endurvinnsla á úrgangsplasti þar sem langir
plasthólkar eru sagaðir niður í hæfilegar lengdir og komið fyrir á
þeim jarðvegsfestingum. Hugmyndina að þessum plöntuhlífum sækir
Gísli Pálsson til Þorbergs H. Jónssonar sem kom með þessa hugmynd
heim frá Skotlandi fyrir um Ijórum árum. Gísli segir Skota nota plöntu-
hlífar mikið við uppeldi á skógarplöntum og sé tilgangurinn þrenns
konar. í fyrsta lagi aukast lífslíkur plantnanna. í öðru lagi flýta hlífarn-
ar fyrir þroska plantna og í þriðja lagi ver hlífin plöntur fyrir beitardýr-
um.
Á dögunum kynnti Gísli Pálsson
fyrir fréttaritara notagildi þessara
plöntuhlífa í skógræktarreit á bæn-
um Fjósum í Svartárdal. Að sögn
Gísla hafa gi’óðurhlífarnar komið að
góðu gagni. „í fyrravor voru settar
niður eittþúsund blágreniplöntur og
voru 23 cm lághlífar settar yfir tvö-
hundruð þeirra. Niðurstaðan úr þess-
ari athugun varð sú að plöntur sem
höfðu hlíf lifðu að langstærstum
hluta. Blágreniplöntur sém voru á
bersvæði og lentu ekki undir snjó
drápust flestar," sagði Gísli Pálsson.
Gísli sagði að skógræktarmenn
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Björn Friðriksson umsjónamað-
ur skógræktarreitsins á Fjósum
í Svartárdal stendur við Qögurra
ára lerkiplöntu sem notið hefúr
skjóls af heimagerðri plöntuhlif.
þyrftu að gera meira af faglegum
tilraunum með gróðurhlífar við mis-
munandi aðstæður. Til dæmis þolir
blágreni ekki mjög háar hlífar fyrstu
uppvaxtarárin en aftur á móti þurfa
lerki og stafafura hærri hlífar. Gísli
sagði að þessi stutta reynsla sem á
engan hátt er vísindaleg, renndi stoð-
um undir þessa kenningu. Árangur
af skógræktarstarfinu á Fjósum frá
því skógrækt hófst þar að nýju árið
1985 er ekki nógu góður að sögn
Gísla ef undan eru skildar þær plönt-
ur sem höfðu gróðurhlífar fyrstu
árin. „Guðmundur Tryggvason frá
Sölvatungu setti utan um þó nokkrar
lerkiplöntur fyrir u.þ.b. fjórum árum
gróðurhlífar sem hann útbjó sjálfur
og þær plöntur bera langt af öðrum
plöntum sem settar voru niður á
sama tíma,“ sagði Gísli Pálsson.
Ástæður fyrir þessum miklu afföllum
á skógarplöntum á Fjósum sagði
Gísli vera þær að þetta svæði væri
eitt það þurrviðrasamasta á öllu
landinu. Ungar plöntur eru með við-
kvæmt rótarkerfi og væri þeim því
hætt við ofþornun. Afföllin eiga sé
helst stað seinni hluta vetra og á
vorin. Gísli sagði ennfremur að ung-
ar plöntur, sem hafa um sig gróð-
urhlíf, þorni ekki eins og sú planta
sem stendur á berangri. Gísli Pálsson
gat þess að lokum að heldur ætti að
planta út eitthvað færri tijám en
vetja meiri tíma og íjármunum í
aðbúnað og umhirðu tijáplantnanna.
Jón Sig.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 20. september.
FISKMARKAÐUR hf. í Flafnarflrði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 65,00 65,00 65,00 6,057 393.693
Ýsa 94,00 94,00 94,00 1,605 150.870
Karfi 35,00 33,00 34,26 94,406 3.234.171
Ufsi 37,50 35,00 36,36 50,367 1.831.1.02
Steinbítur 30,00 30,00 30,00 0,018 528
Langa 46,00 46,00 46,00 1,427 65.633
Lúða 325,00 190,00 277,23 0,375 103.960
Koli 40,00 40,00 40,00 0,054 2.156
Keila 15,00 15,00 15,00 0,099 1.483
Skötuselur 135,00 135,00 135,00 0,031 4.185
Samtals 37,48 154,438 5.787.781
í dag verður selt óákveðíð magn af blönduðum afla úr ýmsum
bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 69,00 30,00 65,24 4,379 285.697
Þorskur(smár) 15,00 15,00 15,00 0,012 180
Ýsa 119,00 103,00 110,31 7,202 794.419
Karfi 37,00 32,00 32,99 12,246 403.956
Ufsi 33,00 32,00 32,90 9,891 325.462
Steinbítur 69,00 69,00 69,00 0,211 14.559
Langa 43,00 43,00 43,00 0,234 10.062
Skarkoli 59,00 59,00 59,00 0,561 33.099
Samtals 53,76 34,736 1.867.434
Selt var úr Þorláki, Freyju og fleirum. i dag verða meðal annars
seld 25 tonn af þorski, 6 tonn af ýsu, 20 tonn af karfa og 30
tonn af ufsa úr Arnari, Asbirni og fleirum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 62,00 48,50 54,30 9,007 489.017
Þorskur(umál) 25,00 25,00 25,00 0,020 500
Ýsa 110,00 90,00 96,87 7,850 760.400
Karfi 34,50 25,00 34,31 15,777 541.350
Ufsi 30,00 28,50 28,85 0,664 19.159
Steinbítur 53,00 42,00 51,32 0,236 12.112
Langa 34,00 30,00 32,17 0,587 18.882
Lúða 200,00 70,00 190,62 0,129 24.590
Solkoli 53,00 53,00 53,00 0,092 4.876
Skarkoli 51,00 35,00 50,82 0,885 44.975
Keila 17,00 7,00 8,07 0,224 1.808 -
Skata 72,00 72,00 72,00 0,050 3.600
Skötuselur 295,00 64,00 167,62 0,114 19.042
Samtals 54,45 35,634 1.940.311
í dag verður meðal annars selt óákveðið magn, aðallega af
þorski og ýsu, úr Hópsnesi GK og óákveðið magn af blönduðum
afla úr dagróðrabátum.
James Woods og Sean Young í
Tálsýn.
Laugarás-
bíó sýnir
Tálsýn
LAUGARÁSBÍÓ hefúr tekið til
sýninga . myndina Tálsýn (The
Boost). I kynningu á myndinni
segir m.a.:
„Hjónin Lenny og Linda Brown
hafa lifað fremur fábreyttu lífi og
Lenny náð litlum árangri sem sölu-
maður. Þá kemst hann í kynni við
viðskiptajöfur og það 'gerbreytir
högum þeirra hjóna. Þau flytja til
Los Angeles þar sem Lenny fær
stórkostleg atvinnutækifæri sem
sölumaður fasteigna. Lænny er
mjög fær sölumaður og árangurinn
lætur ekki á sér standa. Fyrr en
varir lifa þau hjónin í vellystingum
og lífið brosir við þeim. Þau eru
ung, ástfangin og auðug.
En skjótt skipast veður í lofti.“
(Úr fréttatilkynningu)
Tvö vöruflutn-
ingaskip fengu
á sig brotsjó
Vöruflutnlngaskipin Dísarfell
og Oriolos fengu á sig brotsjói
við Færeyjar á laugardag. Eng-
inn slasaðist en fjórir gámar með
um 50 tonn af ísfiski losnuðu af
Dísarfelli og sukku og björgun-
arfleki losnaði af Oriolos. Dísar-
fell er í eigu Sambandsins en
Oriolos er þýskt skip, sem Eim-
skip hefúr á leigu. Skipin komu
bæði til Bretlands á mánudag.
„Dísarfellið fékk á sig þijú brot
í 11 til 12 vindstigum suðvestur
af Færeyjum á laugardagsmorgun
og einn hnúturinn náði að slíta/jóra
gáma af dekkinu," sagði Ómar
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
skipadeildar Sambandsins, í sam-
tali við Morgunblaðið. „Það var
haugasjór þarna og þegar svona
hnútar skrúfast upp eru allar keðj-
ur og strekkjarar, sem halda gá-
munum niðri, eins og tvinni,“ sagði
Ómar.
Leiðrétting
í F'RÉTT um íþróttasvæði ung-
mennafélagsins Fjölnis í Grafar-
vogi í þriðjudagsblaðinu var for-
maður félagsins rangnefndur.
Hann heitir Guðmundur Grétar
Kristinsson. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.
E1 Puerco og
Ennisrakaðir
skötuselir á
faraldsfæti
Vcstmannaeyjum.
I ágúst sl. kom út plata sem
ber nafnið E1 Puerco og Ennis-
rakaðir. Á þcssari plötu flytja
nokkrir Eyjamenn undir forystu
Elíasar Bjarnhéðinssonar, E1
Puerco, lög og texta sem flest
eru saniin af höfúðpaurnum
sjálfum. Nú hyggjast þeir félag-
ar leggja land undir fót til kynn-
ingar á plötu sinni og ætla að
hcfja yfirreiðina í veitingahúsinu
Casablanca, þar sem haldnir
verða tónleikar.
Tónleikarnir í Casablanca verða
nk. föstudagskvöld. Þar verða flutt
lög af plötu félaganna og þau
hlutverkum sínum í myndinni
kynnt. Nokkur laganna hafa þegar
heyrst í útvarpi og hefur lagið
Kynskiptingurinn, sem Elías ásamt
Andreu Gylfadóttur söngkonu
syngur, þegar vakið nokkra eftir-
tekt.
Kynning á
starfsemi ITC
LANDSAMTÖK ITC á íslandi -
þjálfun í samskiptum hafa tekið
til starfa á ný eftir sumarfrí. Á
landsþingi sl. vor var kosin ný
stjórn. Landsforseti þetta kjör-
tímabilið er Halla Gísladóttir.
Samtökin eru alþjóðleg og
bera heitið „International Train-
ing in Communication" og starfa
þau víða um heim.
Samtökin veita þjálfun í mann-
legum samskiptum og örvar for-
ystuhæfileika. Þjálfunin sem sam-
tökin veita gera einstaklinga hæf-
ari til að starfa að samfélagsmálum
og gera áhrif þeirra meiri. Samtök-
in eru opin bæði konum og körlum.
22 deildir starfa víðs vegar um
landið ög er hámarkstala aðila í
deild bundin við þijátíu. Hér á ís-
landi er aðildartala félaga nú hátt
á fimmta hundrað.
Laugardaginn 23. september nk.
verður kynningarfundur í Félags-
miðstöðinni Valaskjálf, Egilsstöð-
um og hefst hann kl. 14.00.
„Islensk vika“
hjá Útvarpi Rót
„Islensk vika“ stendur nú yfir
hjá útvarpsstöðinni Rót og er
hún haldin í samvinnu við Félag
íslenskra tónlistarmanna. Ein-
göngu er leikin og kynnt íslensk
tónlist á Rót á meðan á vikunni
stendur, en hún hófst sl. mánu-
dag, 18. september.
Islenskri viku lýkur næstkom-
andi sunnudag, 24. september, með
tónleikum í félagsheimili tónlistar-
manna, Vitastíg 3. Tónleikarnir
heljast kl. 13.00. Fram kemur fjöldi
tónlistarmanna og verður útvaipað
beint frá tónleikunum.
Formannaráð-
steftia í
Borg-arnesi
Formannaráðstefna Neyten-
dasamtakanna verður haldin
dagana 22.-23. september í
Hótel Borgarnesi.
Á laugardaginn 23. september
kl. 13.30 verður haldinn opinn
fundur sem ber yfirskriftina —
hvaða afleiðingar hafa viðskipta-
hindranir í landbúnaði haft fyrir
neytendur? Frummælendur eru
Gunnlaugur Júlíusson hagfræðing-
ur Stéttarsambands bænda, Birgir
Árnason aðstoðarmaður viðskipta-
ráðherra og Jóhannes Gunnarsson
form. Neytendasamtakanna. Einn-
ig verður kynnt niðurstaða könnun-
ar á viðhorfi almennings til land-
búnaðar.
Á föstudaginn 22. september
mun Jón Magnússon lögfræðingur
fjalla um íslenska neytendalöggjöf
— hvað höfum við, hvað vantar.
Jón Gíslason, Hollustuvernd ríkis-
ins, mun fjaila um matvælalöggjöf
og Sólveig Guðmundsdóttir, Verð-
lagsstofnun, mun fjalla um auglýs-
ingar — hvað má, hvað má ekki
og hvers vegna.
(Fréttatilkynnirig)
Harpa Björns-
dóttir opnar
sýningu
HARPA Björnsdóttir opnar sýn-
ingu á verkum sínum í Gallerí
Borg Pósthússtræti 9, fimmtu-
daginn 21. september kl. 17.00.
Harpa Björnsdóttir fæddist 1955
og lauk námi frá Nýlistadeild
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1981.
Sýningin sem er sölusýning er
opin virka daga frá kl. 10—18 og
um helgar frá kl. 14—18. Henni
lýkur þriðjudaginn 3. október.
Stuðmenn á
Hótel Örk
STUÐMENN leika fyrir dansi á
Hótel Örk föstudagskvöldið 22.
september. Hátíðin hefst með
borðhaldi klukkan 19.30. Reynir
Jónasson leikur á harmonikku
fyrir matargesti og mun halda
áfram að borðhaldi loknu.
Stuðmenn hefja tónleika klukk-
an 21.30 og leika síðan fyrir dansi
til klukkan 3 um nóttina. Sérlegur
gestur Stuðmanna verður Karl Sig-
hvatsson, sem leikur á Hammond-
orgel.
Sýning í minn-
ingu Græn-
landstrúboða
í SAMKOMUSAL Grunnskólans
í Borgarfirði verður um helgina
opnuð sýning til minningar um
200 ára ártíð séra Egils Þór-
hallasonar Grænlandstrúboða.
Sr. Kolbeinn Þorleifsson kirkju-
sagnfræðingur setur sýninguna
upp og flytur hann erindi um sr.
Egil og sýnir litskyggnur frá
Grænlandi, laugardaginn 23.
september kl. 14.
Sr. Egill var trúboði í Grænlandi
frá 1765 til 1775 og ferðaðist mik-
ið um Vestribyggð og var prófastur
í Suður-Grænlandi í nokkur ár.
Hann skrifaði nokkrar bækur, þar
á meðal fyrstu heildarlýsingu á
norrænum rústum í Grænlandi.
Seinustu ár ævi sinnar var hann
prestur í Bogense á Norður-Fjóni,
þar sem hann lést árið 1789.
HAMí
Tunglinu
HLJÓMSVEITIN HAM stendur
fyrir tónleikum í Tunglinu í
kvöld, fimmtudag. Sérstakir
gestir að þessu sinni verða Syk-
urmolarnir.
Tónleikarnir eru haldnir í tilefni
þess að í byijun október lítur dags-
ins ljós fyrsta breiðskífa HAM.
Platan sem ber nefnið „Buffalo
Virgin" verður gefin út af breska
útgáfufyrirtækinu One Little Indi-
an. Önnur plata Sykurmolanna
Here Today Tomorrow, Next We-
ek, kemur út um svipað leyti.
í október mun HAM síðan fylgja
Sykurmolunum í hljómleikaför um
Bretlandseyjar. Þetta verða því
síðustu tónleikar sveitanna hér á
landi um nokkra hríð. Það skal
tekið fram að Sykurmolarnir hefja
leik sinn stundvíslega kl. 22.30.
(Fréttatilkynning)
Eldri borgarar
kveðja
Broadway
Dægurlagahátíðin „Komdu
kvöld“ verður sýnd sunnudaginn
24. september nk. og er sú sýn-
ing sérstaklega ætluð öldruðum
og öðrum seni ekki vilja eða
geta sótt kvöldskemmtanir.
Lögin sem sungin eru í sýning
unni spanna finimtíu ára tímabil
I textagerð Jóns Sigurðssonar
bankamanns. Sýningin hefst kl,
15.
Miðaverð er kr. 1.800 og eru
kaffiveitingar innifaldar í verði
Tekið verður á móti pöntunum og
miðar seldir í félgasmiðstöðvum
aldraðra á vegum Reykjavíkur-
borgar. Einnig verður miðasala við
innganginn í Broadway.