Morgunblaðið - 21.09.1989, Qupperneq 26
m
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21j SBP'TEMBER 198»
. Morgunblaðið/Rúnar Þór
„Fallegasti stafn á Akureyri," sögðu þeir Sverrir Hermannsson og Kristján Pétursson sem vinna
við stafn hússins númer 86 við Hafiiarstræti, en hann er allur útskorinn.
Hafiiarstræti 86:
Fallegasti stafii á Akureyri
— segir Sverrir Hermannsson húsasmiður
sem vinnur að endurbótum á staftii hússins
EITT af aldamótahúsum Akur-
eyrarbæjar er í andlitslyftingu
hjá Sverri Hermannssyni og
Kristjáni Péturssyni, en þeir
vinna nú við suðurstafn hússins
númer 86 við Hafnarstræti.
„Við stefnum að því að klára
stafninn í haust og þá verður
þetta fallegasti stafn á Akur-
eyri,“ sagði Sverrir.
Þetta er þriðja haustið sem
Sverrir vinnur við stafn hússins
og er ætlunin að Ijúka verkinu
nú á haustdögum. Húsið var
byggt árið 1902 og þar var lengi
til húsa verslun sem Magnús frá
Grund flutti í bæinn, en nú eru
þar íbúðir á þremur hæðum. Það
er að beiðni íbúanna sem unnið
er að endurbótum hússins.
Þeir Sverrir og Kristján sögðu
að töluvert mikið verk væri við
stafninn, en í hann fara fleiri
þúsund stykki af sérsmíðuðum
hlutum, stórum og smáum, Stafn-
inn er allur útskorin. Auk þess
að vinna við „fallegasta stafn á
Akureyri", eru þeir félagar með
um tuttugu hús í takinu, bæði í
bænum og í nágrenni hans. Sverr-
ir segist lengi hafa verið einn í
viðhaldi gamalla húsa, en nú sæki
smiðir í auknum mæli eftir slíkri
vinnu. „Menn hafa miklu meiri
áhuga á þessu núna en þeir höfðu
hér áður fyrr,“ sagði Sverrir. „Það
virðist vera almenn vakning í
þessa átt og nú hefur Húsfriðun-
arsjóður komið til skjalanna sem
stuðlar að því að menn fara frek-
ar að laga hús sín.“
Bæj arstj órn Akureyrar:
Kjaradeila starfsmanna Krossaness
óvænt inn í umræður bæjarstjórnar
Á FUNDI bæjarstjórnar í fyrra-
dag flutti Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir (B) tillögu um að kjara-
samninganefnd Akureyrarbæjar
gengi til samninga við verkalýðs-
félagið Einingu fyrir hönd starfs-
manna verksmiðjunnar. Eftir að
starfsmönnum var sagt upp störf-
um vegna endurskipulagningar
hafa komið upp deilur á milli
stjórnar verksmiðjunnar og
Verkalýðsfélagsins Einingar
vegna nýrra samninga. Úlfhildur
taldi gagnrýnivert að trúnaðar-
maður skyldi ekki endurráðinn
og að starfsmönnum hafi verið
boðinn samningur hliðstæður
þeim sem gildir fyrir starfsmenn
Istess hf., en það þýddi að starfs-
menn Krossanesverksmiðjunnar
þyrftu að skipta um stéttarfélag
og ganga í Iðju.
Yfirmenn Krossanesverksmiðj-
unnar hafa vísað málinu til VSÍ.
*
Iðunn Agústsdóttir sýnir í blómaskálanum Vín
IÐUNN Ágústsdóttir opnar
málverkasýningu í blómaská-
lanum Vín við Hrafnagil annað
kvöld, fostudagskvöld kl. 20.00.
Á sýningunni verða 28 pastel-
myndir, allar unnar á þessu ári.
Sýningin, sem er sölusýning, verð-
ur opin á oþnunartíma skálans frá
13-22 daglega til 1. október næst-
komandi.
Iðunn dvaldi í Austurríki um
tíma í sumar þar sem hún tók
þátt í náms- og kynningardögum
í þorpinu Hitzendorf. Þar var lögð
áhersla á fijálslega tjáningu á
umhverfinu og fólk sem þátt tók
í vinnudögunum hvatt til að tjá
sig opið og frjáist varðandi ýmis-
legt í umhverfinu. Vinnudagarnir
stóðu í hálfan mánuð og lauk með
samsýningu. Hópurinn gerði einn- -
ig stórt veggmálverk sem afhjúp-
að var með viðhöfn.
Morgunblaðið/mnar Þór
Iðunn Ágústsdóttir opnar málverkasýningu í blómaskálanuin Víi>
Úlfhildur sagði að þau vinnubrögð
sem viðhöfð hefðu verið í kjaradeilu
starfsmanna Krossanesverksmiðj-
unnar væru ekki eðlileg hjá bæjar-
fyrirtæki og taldi að kjarasamn-
inganefnd Akureyrarbæjar ætti að
láta málið til sín taka. Flutti hún
tillögu um að nefndin gengi til
samninga við Einingu fyrir hönd
verksmiðjunnar. Tillögunni var
vísað til bæjarráðs til umijöllunar.
Sigfús Jónsson bæjarstjóri og
formaður stjórnar Krossanesverk-
smiðjunnar sagðist ekki vera undir
það búinn að ræða málið á fundi
bæjarstjórnar, þar sem það hefði
komið mjög óvænt upp á. Hann tjáði
bæjarfulltrúum þó að þau kjör sem
mönnum hefði verið boðin eftir end-
urráðninguna hefðu verið betri en
ber kjarasamningur við Einingu, en
aftur verri en sá samningur að við-
bættum aukasporslum sem starfs-
menn fengu áður en til uppsagna
kom.
Björn Jósep Arnviðarson (D) taldi
að umræður um málefni Krossanes-
verksmiðjunnar á fundinum hefðu'
verið á mörkum þess að rúmast.
innan fundarskapa bæjarstjórnar
án þess að leitað væri afbrigða.
Björn Jósep sem er formaður kjara-
nefndar sagði að forráðamenn
beggja deiluaðila teldu að sam-
komulag í deilunni væri í sjónmáii.
Meira um að fólk
skuldi dagvist-
argjöld en áður
MUN meira er um það nú en áður að fólk skuldi dagvistargjöld til
lengri eða skemmri tíma. Sigríður M. Jóhannsdóttir dagvistarfulltrúi
Akureyrarbæjar sagði að undanfarið hefði gengið nokkuð erfíðlega
að fá greiðslur á réttum tíma og sagði að þar skipti mestu máli bág-
ur efnahagur heimilanna.
Sigríður sagði að áður hefði ekki
verið mikið um að fólk drægi að
greiða dagvistargjöldin, þá ævinlega
hefði eitthvað verið um slík. Þetta
væri hins vegar meira áberandi nú.
Hún sagði mismunandi milli dag-
heimila hversu skuldir væru miklar
og væri það einnig rokkandi milli
mánaða.
Sigríður sagði að um þó nokkuð
háa upphæð væri að ræða í útistand-
andi skuldum, en vildi ekki segja
nákvæmlega fyrir um hversu há sú
upphæð væri. Hún sagði að dæmi
væru um að fólk skuldaði allt að
þtjá til fjóra mánuði, en það væri
þó ekki algengt.
„Þetta er eflaust dæmi um síversn-
andi hag heimilanna. En ég tel að
einnig skipti máli í þessu sambandi,
að við tökum ekki vexti og þess
vegna geymi fólk heldur að greiða
hjá okkur en þar sem háir vextir
hlaðast upp sé ekki greitt á réttum
tíma,“ sagði Sigríður. Hún bætti við
að til þess gæti komið að segja
þyrfti fólki upp plássi vegna þessa.
„Það hefur verið rætt og það var í
gildi regla þar sem segir að ef fólk
borgaði ekki gjaldið innan.mánaðar
mætti segja plássi þess upp, en það
hefur ekki reynt á þessa reglu enn.“
Bruninn hjá UA:
Eldsupptök enn ókunn
en allar hugsanlegar
skýringar kannaðar
ELDSUPPTÖK bruna sem varð
hjá Útgerðarfélagi - Akur-
eyringa voru enn ókunn, eftir
að sérfræðingar og rannsóknar-
lögregla höfðu kannað málið í
gær. Eftir hádegið í gær kvikn-
aði eldur I útihúsi á vegum Út-
gerðarfélagsins. Slökkvilið var
ekki kallað út, en starfsmenn
réðu niðurlögum hans fljótlega.
Menn frá rannsóknarlögreglu,
brunamálastofnun, sérfræðingar á
sviði rafmagnsmála og efnafræð-
ingur ásamt slökkviliðsstjóra unnu
að rannsókn eldsupptakanna í
gær. Tómas Búi Böðvarsson
slökkvilisstjóri sagði að engin sjá-
anleg eldsupptök hafi komið í ljós,
en menn hefðu skoðað alla hugs-
anlega möguleika. „Það er horft
á allt, rafmagn, sjálfsíkveikju, eða
hvort kveikt hafi verið í af manna-
völdum, óviljandi og yfirleitt allt
sem kemur til greina. En það er
ekkert komið á hreint í þeim efn-
um,“ sagði Tómas Búi.
Hann sagði að augu manna
hefðu í fyrstu beinst að rafmagn-
sköplum undir gólfinu á þeim stað
þar sem mesti bruninn var, en.
engin ummerki sæust á þeim.
Aðspurður um hvort grunur léki á
að um íkveikju væri að ræða sagði
hann að það væri eitt af því sem
væri skoðað, sérstaklega eftir að
ekkert fannst að rafmagnsköplun-
um.
Varðandi eldvarnarhurðina sem
opnaðist í brunanum sagði Tómas
að talið væri að rafmagnskaplar
undir hurðinni hafi getað leitt sam-
an þannig að hurðin opnaðist.
Vilhelm Þorsteinsson fram-
' kvæmdastjóri Útgerðarfélags Ak-
ureyringa sagði að mun betur
hefði farið en á horfðist. Þær fisk-
birgðir sem voru í frystigeymslum
virtust hafa sloppið án skemmda,
að sögn Vilhelms, en í frysti-
geymslum voru um 1200 tonn af
fullunninni vöru á verðmæti um
170-80 milijónir króna. Skemmdir
urðu á húsakynnum Útgerðarfé-
lagsins, mikið magn umbúða
brann til kaldra kola svo og einnig
pallar, bretti og fleiri tæki, en lyft-
ara sem var í geymsiunni var
bjargað út. Ekki var búið að meta
tjónið í heild í gær. Vinnsla hófst
á ný í gærmorgun og sagði Vil-
helm að næsta skref yrði að gera
við skemmdir á húsinu.