Morgunblaðið - 21.09.1989, Blaðsíða 27
MORGllNBUAiÖIE)' FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1989
'27
Til greinahöfimda
Aldrei hefur meira aðsent efni
borizt Morgunblaðinu en nú og því
eru það eindregin tilmæli ritstjóra
blaðsins til þeirra, sem óska birt-
ingar á greinum, að þeir stytti mál
sitt mjög. Æskilegt er, að greinar
verði að jafnaði ekki lengri en 2-3
blöð að stærð A4 í aðra hverja línu.
Þeir, sem óska birtingar á lengri
greinum, verða beðnir um’að stytta
þær. Ef greinahöfundar telja það
ekki hægt, geta þeir búizt við veru-
legum töfum á birtingu.
Minning'ar- og
afmælisgreinar
Af sömu ástæðum eru það ein-
dregin tilmæli ritstjóra Morgun-
blaðsins til þeirra, sem rita minn-
ingar- og afmælisgreinar í blaðið,
að reynt verði að forðast endur-
tekningar eins og kostur er, þegar
tvær eða fleiri greinar eru skrifað-
ar um sama einstakling. Þá verða
aðeins leyfðar stuttar tilvitnanir í
áður birt ljóð inni í textanum. Al-
mennt verður ekki birtur lengri
texti en sem svarar einni blaðsíðu
eða fimm dálkum í blaðinu ásamt
mynd um hvern einstakling. Ef
meira mál berst verður það látið
bíða næsta eða næstu daga.
Ræður
Töluvert er um það, að Morgun-
blaðið sé beðið um að birta ræður,
sem haldnar eru á fundum, ráð-
stefnum eða öðrum mannamótum.
Morgunblaðið mun ekki geta orðið
við slíkum óskum nema í undan-
tekningartilvikum.
Ritstj.
Miklaholtshreppur:
Vegir byggðir upp
Borg.
Nú er verið að byggja upp vegakaflana frá Svínhól við hreppa-
mörk Eyjahrepps og Miklaholtshrepps að Stóru-Þúfú. Þessi vegur
hefur oft verið snjóþungur og sást það best sl. vetur.
Þá er lokið við uppbyggingu veg-
ar frá Dalsmynni í Eyjahreppi að
Skógarnesvegamótum. Snyrting
vegakanta og sléttun á landi sem
tekið hefur verið til vegafram-
kvæmda, er nú lokið á þessum
kafla. Frágangur á þessu verki er
til fyrirmyndar hjá þeim sem unnu
þetta verk.
Fyrstu lömbin héðan vestan
varnargirðingar á Snæfellsnesi voru
sótt þann 14. september til slátrun-
ar í Borgarnesi. Ekki er gott að spá
í vænleika þeirra. Vorið kom seint
og var kalt, gróður kom ekki fyrr
en komið varfram íjúní. Júlímánuð-
ur rigningarsamur og sólarlítill,
stöðug væta undanfarið. Hætt er
við að nokkuð af kindum hafi farið
afvelta og þegar hafa nokkrar kind-
ur fundist.
Skóiastarf í Laugagerðisskóla
hófst 11. september. Þar verða um
80 nemendur við nám í vetur. Þetta
er 24. starfsár skólans.
Nú eru þar 11 kennarar þó ekki
allir í fullu starfi. 37 nemendur eru
í heimavist, hinir nemendur er ekið
daglega úr þremur hreppum.
- Páll.
hqtel kynnir
cot j
STVÐMENN
föstudagskvöldió 22. september nk.
Verð með mat kr. 3.800,-
Á dansleik kr. 1.200,-
Borðapantanir í síma 34-700
Gisting í tveggja manna herbergi
kr. 2.475,- pr. mann
Kvöldid hefst meö
bordhaldi kl. 19.30
/r/iátdtísn. dtsyy,zernz
Tónleikamir hefjast
kl. 21.30.
Dansleikur til kl. 03.00
Reynir Jónasson
leikur fyrir matargesti.
Aldurstakmark 20 ár
HÓTEL
y3> odk
HVERAGERÐI
<•
Nýjar vörur á góðu verði hjá
Nokkur dæmi um úrvalið:
Ellingsen
Hlýjar enskar nylonúlpur
með loðkantl < skærgulum
öryggislit. Henta þeim sem
þurfa að sjást öryggislns
vegna. Stroff á ermum og
hægt að þrengja f mittlð,
margir vasar og þæglleg
hetta. Kr. 4.650,-
Hlýjar enskar nylonúlpur,
dökkbláar með loðkanti.
Stroff á ermum og hægt að
þrengja ( mittið, margir vas-
ar og þægileg hetta.
Kr, 4.650,-
Loðfóðraðar Frlstads úlpur,
dökkbláar með þægilegu
sniði. Kr. 12.642,-
Stórir norskir kopar pottar
til margra nota. Tíu gerðlr
á lager. Dæmi: 40 sm (
þvermá) og 30 sm á hæð,
kr. 4.900,-. Elnstaklega
hagstætt verð.
Norsku Stil ullarnærfötin
eru nú fáanleg tvöföld, þ.e.
fóðruð með mjúku 100%
Dacron efni. Dæmi um verð:
Dömubuxur kr. 1.630,-,
herrabuxur kr. 1.960,- og
bollr kr. 2.159,-.
Barnastærðir eru væntan-
legar.
SENDUM UM ALLT LAND
Grandagarði 2, Reykjavík, sími 28855