Morgunblaðið - 21.09.1989, Síða 29
,29-
MORGUNBLAÐll) FLMMTi;i)AGl:J{ 21. SEPTKMBER 11)89
SVIPMYNPIR UR BORGINNI/ólafur ormssqn
Engin tölva?
Þá er komið haust, sá árstimi
þegar sumir álíta að rómantíkin sé
alls ráðandi, ekki síður en á vorin.
Ungir elskendur og raunar á öllum
aldri eru sjálfsagt að setja upp
hringana þessa dagana. Útihátíðir
liðnar, sumarhátíðir, útilegur og
ferðalög og svo taka gullsmiðir við
og hanna hlutina, þá ofast hring-
ana, eyrnalokkana eða armböndin.
Ég gekk um Hljómskálagarðinn
einn mánudagsmorgun seint í
ágústmánuði. Þar sátu tvö ung-
menni á bekk við styttu þjóðskálds-
ins Jónasar Hallgrímssonar og
spáðu í framtíðina. Hann á að giska
um tvítugt, hún eitthvað yngri,
sautján, átján ára. Þau drukku kók
úi' plastboxum og átu prins póló,
súkkulaðikex, líklega hádegismat-
urinn þann daginn. Áhyggjulaus
ungmenni, ekki farin að fjárfesta í
íbúðarhúsnæði eða bíl, einungis
heyrt getið um lánskjaravísitöluna
sem víti til varnaðar ungu fólki sem
einhvern tímann vill verða fjár-
hagslega sjálfstætt, víxill og
skuldabréf lítt spennandi, kannski
af þeirri kynslóð íslendinga sem
ætlar nú loks að fara að spara og
leggja fyrir inn á kjörbók, tromp-
reikning eða hvað það heitir nú allt
saman. Hann var í svartri leður-
blússu og ljósbláum gallabuxum,
hún í ljósgulri skyrtu og dökkbláum
gallabuxum og þarna voru fuglarn-
ir ekki langt undan, endur, þrestir
og tilhugalíf einnig þar á dagskrá.
Pilturinn tók yfir um axlir stúlkunn-
ar. Ég settist á grasbalann ekki
langt undan, við þann reit í mið-
borg Reykjavíkur þar sem maður
er í hvað nánustu snertingu við
náttúruna. Það var léttskýjað og
sólin sýndi sig af og til. Handan
sælureitsins, Hljómskálagarðsins,
um Sóleyjargötuna var töluverð
umferð bíla, þar var annar heimur..
„Manstu þegar ég hitti þig í Húna-
veri í sumar?“ spurði pilturinn. „Já,
og þú varst æðislegur, svo kaldur
og svalur, meiriháttar. Áttu ennþá
tjaldið?"
„Nei.“
„Hvað varð af því?“ spurði stúlk-
an.
„Æ, ég ákvað að brenna tjaldið,
svefnpokann og allt draslið, daginn
sem við fórum í bæinn.“
„Af hveiju? Svo faliegt tjald og
svefnpokinn alveg æðislegur, við
gátum svo auðveldlega legið bæði
í pokanum.“
„Lúlli, brenndi sinn poka og sitt
tjald og ég ákvað þá að taka þátt
í fjörinu. Hvað er einn svefnpoki
og eitt tjald á milli vina?“ spurði
pilturinn.
„Mér finnst þetta nú ekkert snið-
ugt,“ sagði stúlkan og bar allt í
einu naglalakk úr túpu á neglur
hægri handar.
„Ekkert sniðugt? Hafðirðu
kannski hugsað þér framtíðarheim-
ili okkar í þessu tjaldi? Og kannski
svefnpokann sem hjónarúmið?“
spurði pilturinn og lá nú með höfuð-
ið í kjöltu stúlkunnar.
„Nei, kannski ekki,“ svaraði
stúlkan, ósköp hlédræg og eins og
feimin.
„Nú, hvað ertu þá að kvarta.
Skaffa ég ekki á við þrjá milljóna-
mæringa? Hef á annað hundrað
þúsund á mánuði. Og eiginlega
ekkert af því gefið upp til skatts.
Og með þessu áframhaldi verðum
við komin í einbýlishús á Arnarnes-
inu eftir þijú, fjögur ár. Ég er eng-
inn venjulegur hafnarverkamaður
eða smali á sveitabæ í óbyggðum."
„Nei. Þú ert tónlistarmaður,
poppsöngvari og verður bráðum
heimsfrægur," svaraði stúlkan og
strauk piltinum um vangann.
„Og gáðu að því að þú lýkur
menntaskólanámi eftir tvö, þijú ár
og ætlar í framhaldsnám í Banda-
ríkjunum. Þá verð ég kominn með
gras af seðlum og við getum búið
í einbýlishúsi á Manhattan á meðan
þú lýkur við að ganga frá doktors-
ritgerðinni," sagði pilturinn og
kveikti í smávindli.
Ég stóð upp af grasbalanum og
rölti áleiðis niður í miðborgina. Á
gangstétt við Reykjavíkurapótek,
Pósthússtrætismegin, sá ég hvar
Flosi Ólafsson, leikari, og Úlfur
Hjörvar, rithöfundur, spjölluðu
saman og sjálfsagt um landsins
gagn og nauðsynjar, báðir sællegir
og sólbrúnir og húmorinn greinilega
ekki langt undan.
Ég gekk yfir í fornbókaverslun
Braga í Hafnarstræti þar sem laun-
þegar úr flestum starfsstéttum hóp-
ast saman, t.d. á haustin, og spá í
þjóðmálin. Þar leit inn maður í þjón-
ustu hins opinbera sem ekki vill
láta nafns síns getið. Kunnur Reyk-
víkingur sem hefur jafnvel betra
yfirlit yfir dægurmálin en þeir hjá
Seðlabankanum sem allt þykjast
vita. Viðstaddir þrír karlmenn og
ein kona, öll á miðjum aldri fyrir
utan kaupmanninn, Braga, sem
veit deili á Reykvíkingum frá því í
vöggu og fram undir nírætt og var
tíðrætt um stjórnleysið hjá
Steingrími og félögum og maðurinn
hjá hinu opinbera taldi augljósan
muninn á stjórn ríkisins annars
vegar og borgarinnar hins vegar.
„Hvarvetna framfarir í borginni.
Ég hef verið í sumarleyfi síðan í
maí og svei mér þá maður ratar
varla lengur um borgina. Skúlagat-
an allt frá Ingólfsstræti og að Bar-
ónsstíg að verða ein samfelld
byggð. Og svo ráðhúsið, nú eða
Borgarleikhúsið, þessi stórglæsi-
lega bygging tilbúin að heita, eða
framkvæmdirnar -í Öskjuhlíðinni.
Nei, það er sama hvar maður fer
um þessa borg, það er stórhugur
sem einkennir stjórn hennar," sagði
maðurinn hjá hinu opinbera, tók
bók úr hillu í fornbókaversluninni
og fletti um stund.
Og í búðinni var annar maður
sem tók undir ummæli mannsins
hjá hinu opinbera, kvað þó enn
fastara að orði og sagði nú svo
komið hvergi fyndust kommúnistar
nema í Rúmeníu, Búlgaríu, Norð-
ur-Kóreu, Kúbu og í stjórnarráðinu
við Lækjartorg.
Tölvur bánist í tal.
„Og þú ert enn með ritvél frá
því á stríðsárunum, Bragi,“ spurði
maðurinn hjá hinu opinbera.
„Já. Það verður nú ekki lengi úr
því sem komið er,“ svaraði Bragi
af sinni alkunnu hógværð.
„Og hvað með þig, Ólafur? Engin
tölva? Þú skrifar þó ekki aliar grein-
arnar þínar með oddhvössum biý-
anti?“
„0, nei. Ég vélrita mínar greinar
á ósköp venjulega ritvél frá Skrif-
stofuvélum,“ svaraði ég.
„Hjá stofnuninni höfum við
tölvuvætt alla starfsemina í sam-
ræmi við nýja tíma,“ sagði maður-
inn hjá hinu opinbera.
Svo gekk hann um bókarekkana
og leit á einstaka bók, og áður en
hann kvaddi og hélt út í Hafnar-
strætið sagði hann: „Ég hef verið
framsóknarmaður síðan í barn-
æsku. Alltaf kosið flokkinn. Nú er
ég búinn að fá nóg. Davíð Oddsson
er minn maður. Ég þoli ekki lengur
þessa lágkúru sem einkennir ríkis-
stjórnina, framtaksleysið, úrræða-
leysið."
Við útidyrahurðina mætti hann
ungri blómarós. Þau tóku tal saman
og síðan leiddust þau út á Hafnar-
strætið, og allt í einu komið glaða-
sólskin í miðborginni...
ísafjörður
Sjálfstæðiskvennafélag ísafjarðar heldur
almennan félagsfund í Sjálfstæðishúsinu
(safirði, 2. hæð, laugardaginn 23. septemb-
er nk. kl. 14.00.
Cagskrá:
1. Kosning fulltrúa á landsfund.
2. Sólveig Pétursdóttir, varaþingmaður,
ræðir stjórnmálaviðhorfið.
Konur fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Austurland - FUS Óðinn
Aðalfundur FUS Óðinns, félags ungra sjálfstæðismanna á Austur-
landi, verður haldinn í Hótel Valaskjálf, fimmtudaginn 21. sept. kl.
21.00.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á landsfund.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Gestur á fundinum verður Garðar Rúnar Sigurgeirsson, formaður
kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins i Austurlandskjördæmi.
Stjórnin.
Vestmannaeyjar
Fulltrúaráðsfundur
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Vest-
mannaeyjum heldur fund á Hótel Þórs-
hamri, fimmtudaginn 21. september kl.
21.00.
Fundarefni:
1. Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæð-
isflokksins.
2. Önnur mál.
Gestur fundarins verður Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins.
______________________________ Stjórn fulltrúaráðsins.
Egilsstaðir
- Fljótsdalshérað
Almennur félagsfundur í sjálfstæðisfélagi Fljótsdalshéraðs verður
haldinn i Samkvæmispáfanum, Fellabæ, mánudaginn 25. september
kl. 21.00.
Dagskrá:
1. Kjör fulltrúa á landsfund.
2. Framtíð fulltrúaráðs. _ .. .
3. Önnur mál. Stiornm.
Ólafsvík - Ólafsvík
Aðalfundur
Aðalfundur sjálfstæðisfélags Ólafsvíkur og nágrennis verður haldinn
sunnudaginn 24. september kl. 20.30 í Mettubúð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins.
3. Bæjarmálin.
4. Önnur mál.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins mæta á fundinn. Félagar og
stuðningsmenn fjölmennið.
____________________ Stjórnin.
Sjálfstæðismenn
á ísafirði
Fundur verður haldinn i Sjálfstæðishúsinu, fimmtudaginn 21. sept.
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins í október nk.
2. Önnur mál.
Nýjir félagar velkomnir.
Stjórnin.
I.O.O.F. 11 = 1719218’/a
I.O.O.F. 5 = 1712198'h =
□ St:.St:. 59899217 VII Gþ.
Hjálpræðisherinn
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30. Allir velkomnir.
Barnagospel - æfing á morgun
kl. 18.00. Öll börn eru velkomin.
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvistin í kvöld, fimmtudag,
21. september. Verið öll velkomin.
Fjölmennið.
Seltjarnarneskirkja
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30. Ungt fólk með hlutverk
aðstoðar. Þorvaldur Halldórsson
stjórnar tónlistinni.
Sóknarnefnd.
Skyggnifýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur skyggnilýsingafund í
Skútunni, Dalshrauni 15, Hafnar-
firði, fimmtudaginn 21. september
kl. 20.30. Mætið tímanlega. Mið-
ar seldir við innganginn.
Hugefli
Kynningarfyrirlestur um nám-
skeið í hugarþjálfun verður haid-
inn i Bolholti 4 nk. föstudag, 22.
september, kl. 19.00. Leiðbein-
andi er Garöar Garðarsson NLP
pract. Allir velkomnir.
fíunhjólp
í kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma i Þribúðum, Hverfisgötu
42. Mikill almennur söngur.
Samhjálparvinir gefa vitnis-
burði mánaðarins og kór þeirra
syngur. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Við lærum að dansa
Dansnámskeið hefst föstudag-
inn 22. september.
Nánari upplýsingar á skrifstof-
unni, símar 24950 og 10490.
AGLOW-
kristileg samtök kvenna
Fundur verður i Menningarmið-
stööinni í Gerðubergi mánudag-
inn 25. september nk. kl. 20.00
tii 22.00 og hefst með kaffiveit-
ingum sem kosta 250,00 kr.
Mari Lornér, sænsk kona búsett
í Noregi mun vitna um lækningu
sem Drottinn veitti henni á bein-
krabbameini.
Mætið stundvíslega og takið
með ykkur gesti.
Allar konur velkomnar.
Hreinsunar- og
málningardagur
veröur á skiðasvæði félagsins
sunnudaginn 24/9 kl. 13.00.
Allir félagar eru hvattir til að
mæta. Boðið verður uppá veit-
ingar.
Stjórnin.
FERDAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533
22.-24. sept.: Landmanna
laugar-Jökulgil
Ekið frá Landmannalaugum inn
Jökulgil sem er fremur grunnur
dalur og liggur upp undir Torfa-
jökul til suðausturs frá Land-
mannalaugum. Jökulgil er rómað
fyrir litfegurð fjalla sem að þvi
liggja. Ekið meðfram eftir árfar-
vegi Jökulgilskvislar. Einstakt
tækifæri til þess að skoða þetta
litskrúðuga landsvæöi. Gist í
sæluhúsi F.í. í Landmannalaugum.
22.-24. sept.: Þórsmörk -
haustlitir
Góð hvild frá amstri hversdags-
ins er helgardvöl hjá Ferðafélagi
íslands í Þórsmörk. Gróðurinn
er hvergi fallegri en í Þórsmörk
á haustin. Gist í Skagfjörðsskála
í Langadal. Brottför í ferðirnar
er kl. 20.00, föstudag.
Upplýsingar og farmiöasala á
skrifstofu F.Í., Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
UJj Útivist
Helgarferð 22.-24. sept.
Haustlita- og grillveisluferð í
Þórsmörk.
Góð gistiaðstaða i Útivistarskál-
unum Básum. Ágæt tjaldstæði.
Fjölbreyttar gönguferðir. Grill-
veisla og kvöldvaka með óvænt-
um uppákomum. Pantið tíman-
laga i vinsælustu ferð haustsins.
Pantanir óskast staðfestar i
síðasta lagi fimmtudag 21 .sept.
Uppl. og farm. á skrifstofunni,
Grófinni 1, símar: 14606 og
23732. • Sjáumst!