Morgunblaðið - 21.09.1989, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21.. SEPTEMBER 1989
31
Ingveldur Björns-
dóttir - Minning
Fædd 4. desember 1904
Dáin 11. september 1989
Enn erum við á það minnt, að
„allrar veraldar vegur víkur að
sama punkti, fetar þann fús sem
tregur, hvort fellur létt eða þungt.“
Tíminn er fugl, sem flýgur hratt.
Frændaliði fækkar. Föðuramma
mín, Ingveldur Björnsdóttir, andað-
ist í Hátúni 10 hinn 11. september
síðastliðinn, eftir nokkra sjúkra-
legu. Gott var jafnan milli okkar
og verður mér amma eftirminnileg.
Ingveldui' Jónína Rósamunda
Björnsdóttir fæddist í Hagavík í
Grafningi hinn 9. desember 1904
og voru foreldrar hennar Elín
Björnsdóttir húsfreyja og síðar
verkakona í Reykjavík og Björn
Rósenkranz, kaupmaður í
Reykjavík.
Elín, móðir hennat', fæddist á
Litla-Hálsi í Grafningi, dóttir Björns
Oddssonar, bónda þar Björnssonar,
bónda á Þúfu í Olfusi og konu hans,
Jórunnar Magnúsdóttur, ljósmóðut',
en móðir Elínar var Ingveldur Ein-
arsdóttir, bónda á Kotströnd
Björnssonar og konu hans, Guðnýj-
ar Björnsdóttur bónda í Hlöðunesi
á Vatnsleysuströnd Jónssonar.
Björn Rósenkranz var sonur
Ólafs Rósenkranz, leikfimikennara
við Menntaskólann í Reykjavík,
biskupsritara og síðat- háskólaritara
Ólafssonar Rósenkranz bónda á
Miðfelli í Þingvallasveit, og konu
hans, Hólmfríðar Björnsdóttur
prests Þorvaldssonar í Holti undir
Eyjafjöllum prests og sálmaskálds
Böðvarssonar í Holti undir Eyja-
fjöllum. Kona séra Þorvaldar var
Kristín Björnsdóttir prests í Ból-
staðarhlíð Jónssonar. Ólafur, afi
Björns Rósenkranz, var hálfbróðir
Jóns Guðmundssonar, ritstjóra
Þjóðólfs.
Elín Björnsdóttir, móðir ömmu,
gekk síðar að eiga Guðmund Jóns-
son, sjómann frá Helgustaðafjalli á
Síðu, og eignuðust þau einn son
barna, Hjörleif Guðna, en misstu
hann í frumbernsku. Guðmundar
Jónssonar naut og við helsti
skammt, því að hann drukknaði
hinn 17. ágúst 1911, aðeins 49 ára
að aldri. Elín átti alla tíð eftir það
heimili hjá Ingveldi, dóttur sinni.
Hún andaðist hinn 30. ágúst 1936
í Reykjavík, 64 ára að aldri.
Amma ólst upp hjá móður sinni
hér í Reykjavík. Hún gekk í Mið-
bæjarbarnaskólann og minntist með
ánægju kennara síns, Helga Hjörv-
ars. Vorið 1918 fermdist hún í
Fríkirkjunni í Reykjavík hjá síra
Ólafi Ólafssyni fríkirkjupresti.
Hún var snemma áhugasöm um
alla handavinnu, enda léku hann-
yrðir og kvenlegar menntii' í hönd-
um hennar alla stund.
Hinn 11. maí 1923 gekk hún að
eiga afa minn, Einar Jórmann Jóns-
son, hárskerameistara, son Ólafar
Benjamínsdóttur og Jóns Jónsson-
ar, bónda í Hraunkoti í Grindavtk.
Þau eignuðust þtjú börn. Elstur er
faðir minn, Björn Rózenkranz Ein-
arsson, hljóðfæraleikari, kvæntui'
móður rninni, Ingibjörgu Gunnars-
dóttur læknabílstjóra í Reykjavík
Ólafssonar. I miðið var Elín Ilulda
Rósenkranz Einarsdóttir, hún átti
fyrst William Murry, hermann í
Bandatíkjaher, þá Noel Bates,
skrifstofumann í New York og
síðast Helga Loftsson, skipstjóra í
New Yot'k Gestssonar bónda á
Húsatóftum á Skeiðum. Elín Hulda
(Lóló) lést af slysförum í New York
hinn 13. ágúst 1963. Yngstur er
Guðntundur Rósenkranz Einarsson,
hljóðfæraleikari, kvæntur Höllu
Kristinsdóttur húsasmiðs í
Reykjavík Elíassonar.
Þá ól amma upp dótturdóttur
sína,’ Ingveldi Rósenkranz Björns-
dóttur, sent búsett er í Omaha í
Bandaríkjunum.
Amma var prýðilega músíkölsk
og vildi fyrir alla muni láta drengi
sína læra á hljóðfæri. Festi hún í
því skyni kaup á vönduðu píanói
og hóf sjálf að læra að spila til
þess að geta leiðbeint þeim.
Hún vissi sannarlega sínu viti og
var rík af hyggindum, sem í hag
mega koma. Og væri það svo, að
fólk yrði ríkt af mikilli vinnu, ráð-
deild og sparsemi, hefði amma
líklega vet'ið auðkýfingut', því að
henni féll aldrei verk úr hendi, sá
sér og börnunum farborða með
saumaskap. Hún hafði fyrirtaks
verksvit og var útsjónarsöm, sömu-
leiðis nýtin á efnið; afklippingar og
afgangar voru notaðir til þess að
búa til margan glaðninginn til tæki-
færisgjafa. Eg á enn ábreiðu, sem
hún saumaði úr renningum, sem
hún klippti neðan af dömukápum,
sem hún hafði tekið að sér að stytta
fyrir viðskiptavini kjólaverslunar í
bænum. Og hún var af þeim garnla,
góða skóla, sem við mættum mörg
gera sigursælan á nýjaleik og er í
því fólginn að fyrirlíta gálauslega
meðferð verðmæta og mundi fyrr
hátta niðut' í rúm og breiða upp
fyrir höfuð en láta úti peninga fyr-
ir einhvetjum ekkisens óþarfa. Hún
vissi, að efnahagur manna er frem-
ur kominn undir sparnaði en tekj-
urn, meira um vert, hversu farið er
með efnin en hve rnikils er aflað.
Þess vegna búnaðist henni vel í litlu
íbúðinni í húsinu nr. 1 við Fisch-
ersund og enn stendur á bak við
Morgunblaðshöllina, átti fallegar
og vandaðar mublur og eitthvert
hljómfegursta píanó, sem sögur
fara af í Reykjavík. Hún var
skemmtileg í viðræðu, en yfirleitt
fullkomlega laus við að vera há-
stemmd í tali, sparsöm á stóru orð-
in eins og fleira; sá stíll tekur ekki
djúpt í árinni, kennir óbeint og seg-
ir heldur minna en meira og maður
verður að þekkja inn á hann til
þess að misskilja hann ekki. „Eitt
lag á garminn", sagði hún, þegar
hún var að mælast til þess að ég
settist við píanóið. Hún var feintin
í gerðinni og gat verkað á fólk eins
og jökulbunga í fjölmennari sam-
kvæmum, þótt undir niðri slægi
hlýtt hjarta og höfðingslund, þegar
því var að skipta. Hún bjó yfir ríku-
legri kímnigáfu og var mjög skyggn
á hinar skoplegu hliðar lífsins.
Hún naut sonartryggðar til hins
síðasta og umhyggju tengdadætra
sinna og fyrir það erurn við, ástvin-
ir hennar, þakklát við þessi um-
skipti.
Fyrir nokkrum árum flutti amma
úr íbúðinni við Fischersund og bjó
urn hríð á Furugerði 1. Síðast
dvaldi hún í Hátúni 10, þar sem
hún naut hinnar bestu aðhlynning-
ar._
Eg kveð ömmu með söknuði og
sendi ættingjum hennar og vinum
samúðarkveðjur.
Gunnar Björnsson
Þegar komið er að skilnaðar-
stund við tengdamóður mína, leitar
hugurinn ósjálfrátt 42 ár aftur í
tímann, þegar ég kom mjög ung á
heimili hennar og leit hana fyrst
augum. Þá kom hún mér fyrir sjón-
ir, sem mjög falleg kona og heill-
andi persóna, sem áhugavert væri
að kynnast og njóta samvista við.
Mjög vel tók hún mér og þess naut
ég öll þessi ár. Alla tíð var hún tilbú-
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi... j|
>
■=>
Q
Z
o:
2
. þær duga sem besta bók.
451 Múlalundur
in að veita aðstoð við ýmsa hluti,
sem hún kunni góð skil á.
Skemmtileg og fróðleg samtöl,
ýmist í síma eða yfir kaffibolla,
eftir því sem okkur hentaði hverju
sinni.
Ævinlega gat hún sagt frá ein-
hvetju skemmtilegu, sem hún hafði
séð eða heyrt þann daginn, því stutt
var í glensið hjá henni.
Það er nú svo, þegar komið er
að kveðjustund og hugurinn reikar
til liðinna ára, þá kemst maður að
því, að minningarnar vill maður
helst eiga fyrir sig.
Ég et’ þakklát fyrir að hafa átt
þessa stórbrotnu konu fyrir tengda-
móðut' og vin og hafa notið sam-
fylgdar hennar.
Fyrir það þakka ég af heilurn hug
og bið henni guðs blessunar í nýjum
heimkynnum.
Halla
Tengdamóðir mín, Ingveldur
Björnsdóttir, lést 11. september
síðastliðinn og verður útför hennar
gerð frá Dómkirkjunni í dag. Hún
fæddist í Reykjavík 9. desember
1904 og voru foreldrat' hennat' Elín
Björnsdóttir og Björn Rosenkranz,
stórkaupmaður. Hún giftist ung
Einari Jónssyni hárskerameistara
og eignuðust þau þtjú börn, Björn,
Elínu Huldu sem er látin og Guð-
mund. Einar og tengdamamma slitu
samvistir.
Ingveldur var falleg kona, hár-
prúð og sérstaklega vel eygð. Hún
var stórbrotin, skapmikil, skemmti-
leg og flest til lista lagt. Hún spil-
aði á píanó og söng vel, bróderaði
og ekki voru ófáar frúrnar í
Reykjavík se.m skörtuðu kjólum sem
hún hafði saumað eða yngismeyj-
arnar sem gengu inn kirkjugólfið í
brúðarkjólum gerðum af hennar
meistarahöndum.
Enga vinkonu hefi ég eignast
betri um ævina en tengdamömmu.
Hún var svo góð við mig og hjálp-
söm og man ég ekki eftir að þar
brygði skugga á í nær hálfa öld sem
við þekktumst.
Góðan vin eignaðist tengda-
mamma, Odd Bjarnason skósmið,
og held ég að hann hafi komið eins
og sólargeisli inn í líf hennar.
Oddur var slíkt prúðmenni að
þeir sem einu sinni kynntust honum
gleyma honum ekki.
Að endingu vil ég þakka fyrir
að hafa fengið að vera tengdadóttir
Ingveldar Björnsdóttui'.
Ingibjörg Gunnarsdóttir
KARLMANNAFOT
Kr. 5.500,- til 9.990,-
Terylenebuxur kr. 1.395,- til 2.195,-
Gallabuxur kr. 1.195,- og 1.420,-
Flauelsbuxur kr. 1.220,- og 1.900,-
Regngallar nýkomnir kr. 2.650,-
Skyrtur, nærföt, sokkar o.fl. ódýrt.
ANDRES,
Skóiavörðustíg 22, sími 18250.
Libresse
dömubindi við allar aðstæður,
allt tímabilið.
m
% 3 Mi
Libresse bindið er lagað að línum líkamans,
er þægilegra og öruggara auk þess að vera
eingöngu framleitt úr náttúrulegum efnum.
I KaUPSEt
I
HF.
Laugavegur 25 - Box 595 - 121 Reykjavík
Sími27770
PlanPerfect 25.-27. sept. kl. 9—13
Töflureiknir fyrir byrjendur. Fariö verður í uppbyggingu kerfisins og helstu skipanir kenndar
ásamt valmyndum. Æfingar í töflum og reiknilíkönum og tenging viö WordPerfect.
Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasdóttur
Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933.
ATH: VR og fleiri stéttarféiög styrkja félaga sina til þátttöku
Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf.
augljós