Morgunblaðið - 21.09.1989, Side 33
MaRGUHBUMHÐi: FiMMTIFmGWKi U Mg£B3»iͧR ’ l
Morgunblaðið/ArnÖr
Sveit Jóhannesar Sigurðssonar sigraði í Bikarkeppni Suðurnesja sem
fram fór í sumar. Í sveitinni spiluðu ásamt Jóhannesi, Karl Hermanns-
son, Einar Jónsson og Hjálmtýr Baldursson. Myndin er tekin þegar
sveitin spilaði gegn sveit Arneyjar úr Sandgerði eftir að sveit Elías-
ar Guðmundssonar hafði gefið úrslitaleikinn vegna manneklu.
ir Braga Haukssonar og Modern Iceland
eigast við. Spilamennskan hefst kl. 18.30
á Hótel Loftleiðum á föstudaginn. Þá verða
spiluð 48 spil en síðustu 16 .spilin verða
spiluð á laugardaginn. Hluti þeirra verður
Brids
Arnór Ragnarson
Bridsfélag kvenna
sýncfurTbernni utsendingú á Stöð 2.‘ Ahörf-
endur eru velkomnir á Hótel Loftleiðir á
föstudaginn. Aðgangur er ókeypis.
Norðurlandamót í
Færeyjum í júní 1990
Þær konur sem hafa áhuga á að spila í
landsliðinu á NM 1990 eru beðnar að hafa
samband við skrifstofu BSÍ í síma 689360.
Vilhjálmur og Sigurður
sigruðu
Feðgarnir Vilhjálmur Sigurðsson og Sig-
urður Vilhjálmsson báru sigur úr býtum í
síðasta Alslemmu-mótinu, sem spilað var í
Kópavogi um síðustu helgi. 20 pör tóku
þátt í mótinu, sem var með barometer-
sniði, 4 spil milli para. Mótið var afar jafnt
framan af .og um miðbik gátu ein 10-11
ör haft sigur. Lokaröð efstu para varð þessi:
Vilhjálmur Sigui*ðss. — Sigurður Vilhjálmss. 74
Hrólfur Hjaltason — Sverrir Ármannss. 55
Sveinn R. Eiríkss. — Steingi'. G. Péturss. 50
Hjördís Eyþórsd. — Hermann Lárusson 44
Þröstur Ingimarss. — Bernódus Kristinss.34
Dúa Ólafsd. — Ólína Kjartansd. 30
Hannes R. Jónsson — Rúnar Láruss. 16
ísak Ö. Sigurðss. — Sigurður Siguijónss. 5
Hjálmar S. Pálsson— Jörundur Þórðarss. 5
Guðlaugur Sveinss. — Magnús Sverriss. 2
Forsvarsmenn Alslemmu ’89 þakka
bridsáhugafólki þátttökuna í sumar, í þeim
5 mótúm sem haldin voru um land allt.
Semkís efnin eru prófuð af Rannsóknarstofnun byggingar-
iðnaðarins og fagmönnum í byggingariðnaði.
Það er ekki óleysanlegt vandamál að lagfæra frostskemmdir
í steypu, ryðskemmdir út frá járnabindingu, sprungur í veggjum,
brotna kanta og stærri eða minni múr- og steypuskemmdir ef
notuð eru Semkis viðgerðarefnin. Réttu viðgerðarefnin eru
íslensku Semkís efnin, þróuð og framleidd fyrir íslenskar aðstæður.
Heildsöludreifing:
Sementsverksmiðja ríkisins,
Afgreiðsla Sævarhöfða Reykjavík s: 91-83400
Afgreiðsla Akranesi, s: 93-11555.
Semkís efnin fást hjá öllum helstu byggingarvöruverslunum
og hjá SANDI h.f. Viðarhöfða i Reykjavík s: 91-673555
KALMANSVÖLLUM 3, 300 AKRANES. SlMI: 93-13355
Sl. mánudag hófst vetrarstarfið með eins
kvölds tvímenningi; 14 pör mættu og var
spilað í einum riðli. Næstu tvo mánudaga
verða líka eins kvölds keppni og eru allir
velkomnir, (karlmenn einnig). Spilað er i
Sigtúni 9.
1-2 Véný Viðarsdóttir —
Dúa Ólafsdóttir 194
1-2 Hrafnhildur Skúladóttir —
Kristín ísfeld 194
3 Nína Hjaltadóttir —
Lilja Petersen 190
4 Hildur Helgadóttir —
Karolína 187
Meðalskor 156
Bridsfélag Suðurnesja
Vetrarstarfið hófst sl. mánudagskvöld
með eins kvölds tvímenningi. Tólf pör
mættu til keppni. Þórður Kristjánsson og
Arnór Ragnarsson urðu efstir með 132 stig.
í öðru til þriðja sæti urðu Jóhannes Ellerts-
son og Heiðar Agnarsson með 127 stig, svo
og Víðir Jónsson og Vignir Sigursveinsson.
Næsta mánudagskvöld verður einnig eins
kvölds keppni. Spilað er í Golfskálanum í
Leiru kl.20.
Frá Bridsdeild
Barðstrendingafélagsins
Vetrarstarf deildarinnar hefst mánudag-
inn 25. sept. 1989. Spilað verður í sal Meist-
arasambands byggingarmanna í Skipholti
70, 2. hæð. Sama stað og síðasta vetur.
Spilað er á mánudagskvöldum og hefst -
keppni stundvíslega kl. 19.30. Spilastjóri í
vetur verður Sigurður Vilhjálmsson.
Mánudaginn 25. sept. verður spilaður
aukatvímenningur, eitt kvöld. Mánudaginn
2. okt. hefst aðaltvímenningskeppnin, 5 til
6 kvölda.
Allir eru velkomnir til þátttöku í starfi
deildarinnar.
Upplýsingar og þátttökutilkynningar í
síma 71374. (Ólafur)
Bridsdeild
Rangæingafélagsins
Deildin er að hefja vetrarstarfsemi sína
og hefst spilamennskan með 1 kvölds
tvimenningi miðvikudaginn 27. þ.m. Þá
verða afhent verðlaUn fyrir síðasta keppn-
istímabil. Síðan hefst tvímenningskeppni
miðvikudaginn 4. október. Spilaðar verða 5
umferðir. Eins og á undanförnum árum
verður spilað í Armúla 40. Spilað verður
alla miðvikudaga og hefst spilamennskan <
alltaf stundvíslega kl. 19.30. Allir eru vel-
komnir meðan húsrúm leyfir, en það er viss-
ara að láta skrá sig í sima 30481 Sigurleif-
ur eða 76525 Ingólfur.
Bikarkeppni
Úrslitaleikur í bikarkeppninni mun fara
fram núna um helgina, en þar munu sveit-
HUGEFLI
Kynningarfyrirlestur um
námskeiö í hugarþjálfun
nk. föstudag 22. sept.
kl. 19.00 að Bolholti 4.
Allir vclkomnir. Nánari
uppl. í síma: 68 66 12.
■
Hil
FYRIR FÆTURNA
BÆKLUNARSKÓSMÍÐI
Bæklunarskósmíði felst í sérsmíði á skóm fyrir þá sem
þess þurfa með, og einnig spelkum til stuðnings og
réttinga á fótum. Til slíks búnaðar eru gerðar miklar
kröfur. Hjá okkur starfa aðeins viðurkenndir sérfræðingar
í bæklunarskósmíðum. Fyrir þeim fer Kolbeinn Gíslason,
fyrsti íslendingurinn sem lokið hefur meistaraprófi í
greininni. Við höfum lagt áherslu á að smíða þægilega og
fallega skó sem standast fagurfræðilegar kröfur
samtímans. Til þess notum við hráefni sem tryggja
léttleika og góða endingu.
Þá viljum við vekja sérstaka athygli á ADIMED
meðferðar- og sjúkraskóm. ADIMED skórnir eru
sérstaklega hannaðir fyrir lamað og hreyfihamlað fólk og
þá sem orðið hafa fyrir meiðslum á ökkla, s.s.
liðbandsslitum.
SÉRSTÖK INNLEGGJAÞJÓNUSTA
Fjöldi fólks þjáist af ýmiss konar fótkvillum sem oft valda
verulegum óþægindum. Með notkun réttra innleggja í skó
má draga úr og jafnvel komast með öllu hjá slíkum
óþægindum. Við sérsmíðum traust og endingargóð
innlegg eftir tilvísunum lækna. Og við ábyrgjumst gæði
innleggjanna.
Fyrir þá sem þjást af þreytu og verkjum í baki bendum við
á innleggin frá VISCOLAS. Þau veita mikla fjöðrun og
hafa hvílandi áhrif á fætur og bak. Rannsóknir hafa gefið
til kynna að VISCOLAS innleggin draga mjög úr
höggáhrifum við göngu og henta því mjög vel íþróttafólki
og öðrum sem þurfa mikið að standa í fæturna.
SÉRVERSLUN MEÐ HEILSUSKÓ
Gísli Ferdínandsson hf. starfrækir einnig skóverslun. í
samræmi við markmið fyrirtækisins einbeitum við okkur
að því að hafa á boðstólum skó sem fara vel með fæturna
og viðhalda heilbrigði þeirra. Þannig getur þú fengið hjá
okkur skó sem ekki aðeins hæfa lengd fótanna heldur
einnig breidd þeirra.
BARNASKÓR í HÁUM GÆÐAFLOKKI
Börnin eru í sérstöku uppáhaldi hjá okkur. Það er mjög
mikilvægt að litlir fætur fái að vaxa og þroskast eðlilega
og það gera þeir því aðeins að valdir séu réttir skór sem
veita fótum þeirra eðlilegan stuðning.
Kolbeinn Gíslason
Meistari í bæklunarskósmíði
Bæklunarskósmíði
Skóviðgerðir Skóverslun
Ráðgj öf