Morgunblaðið - 21.09.1989, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTl)I)AG UR '2‘¥.fSEf’fTI'!MÍ?ER11089
35
rési heitnum Níelssyni í verslun
Sláturfélags Suðurlands hér á
Akranesi. Andrés var þar verslunar-
stjóri, en þegar hann hætti.þar og
sneri sér að sínu eigin fyrirtæki,
bókaversluninni, 1942, tók Elías við
sem verslunarstjóri, Því starfi
gegndi hann til 1946, er hann hóf
sinn eigin verslunarrekstur.
Elías hóf eigin verslun í Asbergi
26. janúar 1946, með því að kaupa
birgðir skóverslunar, sem þar var
rekin. Um vorið sama ár flytur
hann verslunina að Staðarfelli, sem
áður er nefnt, og nefnir verslunina
því nafni.
Þegar hann flutti að Staðarfelli,
fór hann einnig að versla með bús-
áhöld og rafmagnsvörur, auk skó-
fatnaðar. Þessi rekstur gekk vel,
en honum fannst þessir vöruflokkar
ekki fara nógu vel saman í sömu
verslun, og einnig vildi hann hafa
á boðstólum meira úrval, en hægt
var að koma fyrir í takmörkuðu
plássi á Staðarfelli. Því var það að
1958 opnaði hann nýja verslun að
Kirkjubraut 2, fyrir búsáhöld og
rafmagnsvörur, en hafði eingöngu
skóverslun á Staðarfelli. Verslunina
á Kirkjubraut 2 rak hann til 1966,
en þá seldi hann, og sneri sér ein-
göngu að skóversluninni og jók
umsvif sína á því sviði með því að
fara einnig að versla með skó í
Reykjavík.
Elías rak verslanir sínar af mynd-
arskap og hagsýni. Honum var
einkar lagið að sýna viðskiptavinum
sínum lipurð og góða þjónustu.
Þó að Elías hefði meira en nóg
að starfa í sínum eigin atvinnu-
rekstri, var hann mikil áhugamaður
um það, að renna stoðum undir fjöl-
breyttara atvinnulíf á Akranesi.
Hann var t.d. aðalhvatamaður þess,
að hingað voru keyptar vélar til
sokka- og fata framleiðslu. Hann
stofnaði ásamt fleirum fyrirtækið
Fatagerðina hf., sem hér var rekið
um tíma. Það fyrirtæki veitti mörg-
um vinnu, einkum konum, en mikil
þörf var fyrir slíka vinnu í bænum.
Þessi starfsemi stóð því miður
of stutt, hún stó.ðst ekki þegar ódýr
innflutningur lagði undir sig þann
markað, sem framleiðslan byggði á.
Þó að Elías hefði í mörgu að
snúast, gaf hann sér tíma til þess
að sinna félagsmálum. Einkum voru
það tvær félagshreyfingar, sem.
hann var virkur þátttakandi í, en
það var Oddfellow- og Lionshreyf-
ingin. Hann var einn af stofnendum
Oddfellowstúkunnar „Egils“ á
Akranesi og einnig var hann einn
af stofnendum Lionsklúbbs Akra-
ness. í þessum félögum báðum vann
hann mikið og gott starf, og naut
þar trausts og vinsælda félaganna.
Elías var að eðlisfari hlédrægur,
og var honum ekkert um það að
láta á sér bera, vildi heldur vinna
störf í kyrrþey. En í vina- og félaga-
hópi naut hann sín vel, og hafði
gaman af að slá á létta strengi.
Árið 1940, hinn 30. nóvember,
kvæntist Elías eftirlifandi konu
sinni, Sigríði Ástu Ármannsdóttur,
frá Hofteigi á Akranesi. Þau eign-
uðust tvö börn, þau eru: Guðjón,
starfsmaður Járnblendifélagsins,
búsettur á Akranesi, kvæntur
Vigdísi Eyjólfsdóttur, hjúkrunar-
fræðingi, þeirra börn eru: Sigríður
Ásta, Eyrún og Elías Jón. Gunn-
hildur, búsett á ísafirði, var gift
Kjartani Júlíussyni, raftækni. Hann
er látinn. Þeirra börn eru: Helgi
Steinar og Katrín.
Áður en Elías giftist átti hann
son, Steinar Richard. Hann lést af
slysförum 1962, var búsettur í
Reykjavík, kvæntur Aðalheiði Úifs-
dóttur. Þeirra sonur er Ragnar Örn.
Heimili þeirra Sigríðar og Elíasar
á Kirkjubraut 1 á Akranesi er fal-
legt og rausnarlegt, og ber glöggt
vitni um smekkvísi og myndarskap
húsmóðurinnar. Nú hefur myndast
þar skarð, sem ekki verður fyllt,
en minningar um góðan dreng
munu geymast.
Elli á Staðarfelli, en svo var hann
oftast nefndur, er kvaddur hinstu
kveðju, og honum þökkuð sam-
fylgdin.
Eg votta Sigríði, börnum,
tengdadóttur og barnabörnum, svo
og öðrum aðstandendum, mína
dýpstu samúð.
Valdimar Indriðason
Ingi Friðrik Axels-
son - Minningarorð
Fæddur 7. apríl 1936 —
Dáinn 14. september 1989
í dag verður lagður til hinstu
hvílu mágur minn Ingi Friðrik Ax-
elsson. Hann fæddist í Reykjavík
7. apríl .1936, sonur hjónanna
Jennýjar Ásmundsdóttur og Axels
Friðrikssonar kaupmanns og síðar
skrifstofumanns.
Ingi Friðrik hélt til Þýskalands
eftir að hann hafði lokið stúdents-
námi frá Menntaskólanum í
Reykjavík, lagði stund á arkitektúr
og lauk námi vð það fag í Stutt-
gart. I Þýskalandi kynntist hann
eiginkonu sinni Irmgard, og hófu
þau búskap í Stuttgart.
Irmgard átti tvö börn af fyrra
hjónabandi, Gundulu og Christiane,
sem Ingi gekk i föður stað. Ingi
og Irmgard slitu samvistum 1986
og fluttist Ingi þá heim til Islands.
Fljótlega eftir að Ingi kom heim
kom í ljós að hann var haldinn
ólæknandi sjúkdómi sem hann gekk
með næstu árin og bar með mikilli
karlmennsku. Ingi var maður
skarpgreindur og sama hvar borið
var niður var hann vel heima í öllu.
Síðasta mánuðinn hrakaði honum
mjög, en eina ósk átti hann alltaf
heitasta, að fara til Þýskalands, og
má segja að hann hafi eytt sínum
síðustu kröftum til að komast þang-
að. Þar lést hann eftir tæplega
tveggja vikna dvöl á sjúkrahúsi í
Karlsruhe. En einmitt í útborg
Karlsruhe höfðu þau Ingi og Irm-
gard reist sér reisulegt hús.
Að endingu vil ég með þessum
fátæklegu línum þakka Inga
ánægjuleg kynni og sendi aldraðri
móður hans og nánustu ættingjum
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Guðmundur Kr. Þórðarson
Páll Kr. Maríus-
son - Kveðjuorð
Fæddur 10. júní 1910
Dáinn 3. september 1989
Sú harmafregn barst mér til
Svíþjóðar þann 3. september síðast-
liðinn að Páll Kristinn Maríusson
væri Iátinn eftir stutta en harða
banalegu. Hann var giftur ömmu
minni sem lést 1983 og var mér
alltaf sem besti afi. Djúpur söknuð-
ur fyllir hugann en einnig afar dýr-
mætar minningar. Alltaf var kátt á'
hjalla þegar ég, sem lítil stúlka,
heimsótti ömmu og Kristin, þau
tóku mér bæði opnum örmum og
vildu allt fyrir mig gera. Síðustu
æviár ömmu átti hún við mikil veik-
indi að stríða og elsku Kristinn stóð
eins og klettur við hlið hennar allt
til hins síðasta.
Eg minnist þess hvað Kristinn
var oft glaðvær og næmur fyrir því
spaugilega í tilverunni og veit að
hann reyndi að slá á létta strengi
og gera sem minnst úr veikindum
sínum, allt fram til hins síðasta.
Nú eru hörpustrengir hans þagnað-
ir, en minningarnar lifa, minningar
um mann sem var ætíð höfðingi
heim að sækja og ávallt reiðubúinn
að hlusta á fólk og gefa holl ráð í
erfiðleikum. Hann gaf því sam-
ferðafólki sínu stærstu gjöf sem
hægt er aðgefa, hann gaf af sjálfum
sér. Þannig gaf hann mér gott vega-
nesti sem mun fylgja mér allt lífið.
Ég votta börnum hans, barna-
börnum og öðrum aðstandendum
dýpstu samúð mína.
Stýr mínu fari heilu heim
í liðfn á friðarlandi
þar mig í þinni gæslu geym
ó, Guð minn alls valdandi.
(V. Briem)
Gyða
+
Móðir mín,
SIGURBJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR,
IMorðurgötum, Mýrdal,
verður jarðsungin frá Reyniskirkju laugardaginn 23. september-
kl. 14.00. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Sjúkrahús Suðurlands, Selfossi.
Fyrir hönd vandamanna,
Sæmundur Hjaltason.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
RUT ÁGÚSTSDÓTTIR,
Sólhlfð 5,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 23. september
kl. 14.00.
Ágúst Óskarsson, Oddfríður Guðjónsdóttir,
Ólöf Óskarsdóttir, Haraldur Gislason,
Edda Óskarsdóttir, Sigurður Jónsson,
Eygló Óskarsdóttir, Ragnar Lárusson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GÍSLI PÁLL ODDSSON,
Suðurgötu 52,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 22. september
kl. 14.00.
Ingileif Guðjónsdóttir,
Guðjón Gfslason, Valdís Guðnadóttir,
Oddur Gíslason, Björnfriður Björnsdóttir,
Egill Steinar Gíslason, Borghildur Birgisdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
JÓN S. JÓHANNESSON
fyrrv. stórkaupmaður,
Eskihlíð 18A,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 22. september
kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hins látna er bent á líknarstofnanir.
Katrín Skaptadóttir,
Pálína Jónsdóttir, Reynir Kristinsson,
Sveinborg Jónsdóttir, Reynir Þórisson,
Jens Ágúst Jónsson, Lilja Leifsdóttir.
+
Af alhug þökkum við auðsýnda samúð, vináttu, og virðingu við
minningu,
FRIÐFINNS FINNSSONAR
frá Oddgeirshólum,
Guð blessi ykkur.
Ásta Sigurðardóttir,
Jóhann Friðfinnsson,
Finnbogi Friðfinnsson, Kristjana Þorfinnsdóttir.
Innilegar þakkir öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og samúð
við andlát og jarðarför systur okkar og mágkonu,
SVÖVU SIGURÐARDÓTTUR,
Reykjahlíð.
+
Móðir okkar og tengdamóðir,
STEFANÍA GISSURARDÓTTIR
frá Hraungerði,
Ártúni 2,
Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 23. sept. kl.
13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlega bent á Selfoss-
kirkju.
Páll Sigurðarson,
Ólafur Sigurðsson,
Ingibjörg S. Cordes,
Sigurður Sigurðarson,
Ingveldur Sigurðardóttir,
Gissur Sigurðsson,
Agatha S. Sigurðardóttir,
Lára H. Jóhannesdóttir,
Albína Thordarson,
Richard Cordes,
Arndis Jónsdóttir,
Halldór Helgason,
Auður Aðalsteinsdóttir,
Baldur Jónsson.
Þuríður Sigurðardóttir,
Guðrún Sigurðardóttir,
Jón Bjartmann Sigurðsson,
Laufey Sigurðardóttir, Þorbergur Magnússon,
Baldur Sigurðsson, Helga Finnsdóttir.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við
andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og lang-
afa,
GUÐMUNDAR ÞÓRARINSSONAR,
Ólafsvik.
Magðalena Kristjánsdóttir,
Elísabet Þ. Guðmundsdóttir,
Ágúst Tómasson,
Kristján Guðmundsson,
Kristjana Árnadóttir,
Elísabet Mortensen,
Margrét Rögnvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.