Morgunblaðið - 21.09.1989, Síða 44
SAGA CLASS
Fyrir þá sem eru aðeins
á undan
FLUGLEIDIR
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Lánskjaravísital-
an hækkar meira
en spáð var:
-Dregur úr
líkum á
lækkun
nafiivaxta
SEÐLABANKINN hefur reikn-
að út lánskjaravísitölu fyrir
október og verður hún 2.640
stig, sem er 2,17% hækkun frá
núgildandi vísitölu. Þetta jafh-
gildir 29,3% hækkun á árs-
^grundvelli, en miðað við hækk-
un vísitölunnar síðustu 3 mán-
uði er árshækkunin 16,7%.
Síðustu 6 mánuði hefur láns-
kjaravísitalan hækkað um
21,6% miðað við heilt ár.
Hækkun lánskjaravísitölunnar
fyrir október er nokkru meiri en
spár viðskiptabankanna gerðu ráð
fyrir. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins gefur hækkunin
ekki tilefni til bjartsýni um að
nafnvextir lækki á næstunni. For-
vextir víxla hafa verið á bilinu
24-26% og algengustu vextir
óverðtryggðra skuldabréfa
27-29%, en ný vaxtaákvörðun tek-
ur gildi í dag.
Stefán Pálsson, bankastjóri
Búnaðarbankans og formaður
Sambands viðskiptabankanna,
kvaðst ekki vilja spá fyrir um áhrif
hækkunar lánskjaravísitölunnar á
vaxtaákvarðanir viðskiptabank-
anna. Hann sagði þó hækkunina
meiri en vonast hefði verið til,
^Skákþing íslands:
Karl Þor-
steins er
langefstur
KARL Þorsteins er með örugga
forystu á Skákþingi íslands. Að
loknum 8 umferðum hefur hann
hlotið 7 'h vinning. Jóhann Hjart-
arson gerði jaíhtefli við Agde-
stein í íímmtu umferð
Interpolis-skákmótsins í Hollandi
og er í 3.-4. sæti ásamt Ivantsjúk.
í 8. umferð skákþingsins vann
Karl Þorsteins Hannes Hlífar Stef-
ánsson, Jón L. Árnason vann Sig-
urð Daða Sigfússon og Þröstur
Ái'nason vann Jón G. Viðarsson.
Jafntefli varð í öðrum skákum.
Karl er með 714 vinning, eins og
fyrr sagði, en næstir koma Jón L.
Árnason og Þröstur Þórhallsson
með 514 vinning. Björgvin Jónsson
hefur 5 vinninga. Níunda umferð
hefst klukkan 15 í dag í Útsýnar-
húsinu í Mjódd.
Kasparov og Kortsnoj deila efsta
sæti í Hollandi með fjóra vinninga
hvor en Jóhann og ívantsjúk hafa
hlotið þijá vinninga. Agdestein og
Sax hafa tvo vinninga, Ljubojevic
1 'k og Piket hefur 'Avinning.
Auk Jóhanns og Agdesteins
gerðu Ljubojevic og Sax jafntefli í
gær en Kasparov vann ívantsjúk
og Kortsnoj vann Piket.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ásgeir kvaddi með sigri
Ásgeir Sigurvinsson lauk glæstum 17 ára lands- I liðinu að nýju eftir tveggja ára hlé, skoraði bæði
liðsferli sínum á Laugardalsvelli í gærkvöldi þegar mörk íslenzka liðsins.
ísland vann Tyrkland 2:1 í undankeppni Heimsmeist- Sjá nánar um leikinn á íþróttasíðum bls. 42-43.
arakeppninnar. Pétur Pétursson, sem lék með lands- |
V erðlagsstofiiun:
Hámarks-
verð á ýsu
afiiumið
Verðlagsstofnun hefur ákveðið
að afnema hámarksverð á ýsu, en
upp á síðkastið hefur verð á ýsu
á uppboðsmörkuðum hækkað
verulega, og að sögn Georgs Ólafs-
sonar verðlagsstjóra hafa fisk-
heildsalar átt erfitt með að útvega
kaupmönnum fisk öðruvísi en að
borga með honum.
„Það virðist vera eftirspurn eftir
ýsu erlendis núna, sem auðvitað er
gott fyrir þjóðarbúið, og hafa margir
fiskseljendur eingöngu snúið sér að
sölu á erlenda markaði. Neytendur
hér innanlands vilja að góð ýsa sé á
boðstólum, en síðustu daga hafa fisk-
heildsalar ekki getað útvegað stærri
verslunum fiskinn, og því teljum við
að það sé hagkvæmara, og þá ekki
síst fyrir neytendur, að afnema hám-
arksverðið að minnsta kosti um sinn.
Við eigum frekar von á því að verð-
ið á ýsunni í hefðbundnum fiskbúðum
hækki lítið eða haldist óbrejdt, en
heildsöluverð til kjörbúða muni hins-
vegar hækka. Verðlagsstofnun mun
síðan fylgjast með því hver þróunin
verður með verðkönnunum," sagði
Georg.
Hámarksverð á ýsuflökum hækk-
aði síðast í bytjun júlí og var þá 360
kr. kílóið með söluskatti.
Verkfall 500 marnia í ál-
verinu hófst á miðnætti
Gert ráð fyrir samningafundi eitthvað firam efitir nóttu
VERKFALL um 500 starfsmanna álversins í Straumsvík kom til
framkvæmda á miðnætti í nótt. Þá stóð fundur deiluaðila ennþá
í húsnæði ríkissáttasemjara við Borgartún og var óvíst hvenær
honum lyki, en fyrir lá ákvörðun um að halda eitthvað áfram. Þá
var staðan í viðræðunum mjög tvísýn og gat brugðið til beggja
vona hvort samningar tækjust eða upp úr slitnaði. Forsvarsmenn
aðila vildu ekkert Iáta hafa efitir sér um stöðu mála á miðnætti.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hafa starfsmenn í ál-
verinu fengið 12,5% launahækkun
það sem af er þessu ári, sem er
sambærilegt við það sem samið
hefur verið um við flesta laun-
þega. Hluti af þessari launahækk-
un er ekki bundinn í kjarasamn-
ingi aðila frá því vorið 1988, held-
ur tókst samkomulag um hana í
framhaldi' af kjarasamningum í
vor.
Vinnuveitendasamband íslands
hefur samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins boðið starfsmönn-
um fyrir hönd ÍSAL 4,8% launa-
hækkun til ársloka, sem er sam-
bærilegt við það sem samist hefur
um við aði'a. Fyrir samning fram
í mars hefur verið boðin ein-
greiðsla, sem er metin til um 2%
launahækkunar og 4,5% launa-
hækkun til viðbótar er boðin gegn
þeim skilyrðum að morgunverðar-
kaffitími verði felldur niður og
fækkað verði um 22 menn í álver-
inu. Þessi síðasttöldu skilyrði feng-
ust ekki rædd af starfsmönnum í
fyrrinótt og á þvi strönduðu við-
ræðurnar. Gærdagurinn fór til
finna leiðir út úr þeirri sjálfheldu
sem viðræðurnar voru komnar i
og tóku þá framangreind atriði
einhveijum breytingum.
Sláturkostnaðurinn 1.100
þúsund krónur á meðalbú
SLÁTUR- og heildsölukostnaður kindakjöts er nú 126,50 kr. á
hvert kíló samkvæmt ákvörðun fímmmannanefndar, en við það
bætist 12 króna verðjöfnunargjald, og fara 8 krónur af því í úreld-
ingarsjóð sláturhúsa. Heildarkostnaðurinn er því 138,50 krónur
á kíló, og hefur hann hækkað um 20% frá því í síðustu sláturtíð.
Samkvæmt þessu nemur þessi kostnaður nú um 2.000 krónum á
meðaldilk, eða um 1.100 þúsund krónum á meðalbú.
Grundvallarverð til bænda í
sauðfjárframleiðslu er nú 374,67
krónur fyrir hvert kíló af 1. flokks
dilkakjöti (2. verðflokkur), en
samkvæmt samkomulagi bænda
við ríki féllust þeir á að fresta
tveim þriðju hlutum af launaieið-
réttingu sem þeir áttu rétt á um
síðustu mánaðamót. Bændur selja
afurðastöðvunum kjötið í sláturtíð
og fá það greitt þá, en launaleið-
réttinguna fá þeir greidda beint í
formi niðurgreiðslna 1. desember
og 1. mars. Slátur- of heildsölu-
kostnaður er því 37% af verðinu
til bænda, og miðað við grundvall-
arbú (400 vetrarfóðraðar kindur)
er hann um 1.100 þúsund krónur,
en laun bóndans eru rúmlega
1.388 þúsund krónur.
Samkomulag er milli aðila um
tveggja vikna aðlögunartíma að
framleiðslustöðvun i álverinu.
Tíminn er notaður til að minnka
straum á kerum í áföngum og
lækka álhæð í þeim til að minnka
tjón vegna framleiðslustöðvunar.
Ef til hennar kemur nemur tjónið
hundruðum milljóna og mánuði
tekur að koma verinu í full afköst
á ný.
Christian Roth, forstjóri ÍSAL,
sendi frá sér yfirlýsingu í gær-
kveldi, þar sem mótmælt er til-
hæfulausum orðrómi um að Alu-
suisse stefni starfsmönnum vísvit-
andi í verkfall til að fæla frá er-
lenda aðila sem hafi sýnt áhuga á
að taka þátt i samstarfi um aukna
álframleiðslu hér á landi.
Sjá ennfremur yfirlýsingu
forstjóra ÍSAL á bls. 16.
• •
Olvaður ók
á húsið sitt
BÍL var ekið á íbúðarhús í Þing-
holtunum um niiðjan dag í gær.
Lögreglan var kvödd á staðinn.
I ljós kom að ökumaðurinn var
ölvaður. Hann hafði verið að leggja
bílnum í stæði en ekki tekist betur
til en svo að hann ók á eigið hús.
Ilann sakaði ekki en bíllinn
skemmdist nokkuð.