Morgunblaðið - 22.09.1989, Síða 1
56 SIÐUR B/C
214. tbl. 77. árg.
FOSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Flak Boeing 737-400 þotu bandaríska flugfélagsins USAir i Aust-
urá við La Guardia-flugvöllinn í New York. Hafiiaði þotan þar á
undirstöðum aðflugsljósa og stendur því að verulegu leyti upp
úr ánni. Á kortinu má sjá að flugvöllurinn er staðsettur í miðri
byggð í New York-borg.
Boeing-þota ferst í New York:
Hreyfilbilun or-
sök flugslyssins?
„Á ÞESSARI stundu vitum við ekki livað fór úrskeiðis og olli slysinu
á La Guardia-flugvellinum. Að svo komnu máli gerum við heldur
ekki ráð fyrir að slysið eigi eftir að hafa áhrif á rekstur flugfélaga
sem reka samskonar þotur,“ sagði Don Wlieeler, blaðafulltrúi hjá
Boeing-verksmiðjunum, er Morgunblaðið spurði hann um orsakir
flugslyss á La Guardia-flugvelli í New York.
▲ o
N -
EKj
Bronx
Boeing 737-400
: lenriir í ánni eftir mis-
heppnað flugtak frá
La Guardia-flugvelli
Klukkan 3.30 að ísl. tíma í fyrri-
nótt hlekktist Boeing 737-400-þotu
bandaríska flugfélagsins USAir
þar á í flugtaki. Um borð voru 63
menn og björguðust allir nema
tvær konur. í fréttum Reuters-
fréttastofunnar sagði að óstaðfest-
ar fregnir hermdu að hreyfilbilun
hefði orðið í þotunni.
Rannsókn á slysinu hófst í New
York klukkan 17 að ísl. tíma í
gær. Var flugriti þotunnar þá kom-
inn í leitirnar, en hann geymir upp-
lýsingar um starfsemi hreyfla og
ýmissa stjórnkerfa flugvélarinnar.
Flugvélin var á leið til Charlotte
í Norður-Karólínufylki í flug 5050.
Úrhellisrigning var og svartaþoka
er flugtak var reynt klukkan 23.30
að staðartíma. Að sögn farþega var
flugvélin tekin að lyfta sér þegar
flugmennirnir hættu skyndilega við
KRTN/Morgunblaðið/AM
flugtak. Dugði brautin ekki til að
stöðva brun þotunnar. Fór hún
fram af brautinni og stöðvaðist út
í Austurá þar sem hún brotnaði í
þrennt.
Sjá „Engin tilmæli.“ á bls. 3.
Fellibylurinn Húgó:
Hundrað þúsund
Bandaríkjamenn
flýja heimili sín
Miami. Reuter.
RUMLEGA þúsund bandarískir hermenn hafa verið sendir til ferða-
mannaeyjunnar St. Croix í Karíbahafi. Upplausn ríkti á eyjunni eft-
ir að fellibylurinn Húgó gekk þar yfir á mánudag. Sjónarvottar segja
að ræningjar hafi látið greipar sópa um verslanir og bófaflokkar
farið um götur vopnaðir vélbyssum. St. Croix er ein Jómfrúreyja
og lýtur bandarískri stjórn. Fellibylurinn stefiiir nú á suðaustur-
strönd Bandaríkjanna og hafa 100.000 manns yfirgefið híbýli sín á
ströndinni af þeim sökum. Önnur 100.000 manna eru i viðbragðsstöðu.
Úr lofti virðist svo sem 90 af
hundraði mannvirkja á St. Croix
séu í rúst. Á flugvelli eyjunnar, sem
er vinsæll ferðamannastaður, biðu
skelfingu lostnir ferðamenn og eyj-
'arskeggjar eftir flugi til megin-
landsins þegar fréttamann Reut-
ers-fréttastofunnar bar þar að í
gærmorgun. Þeir sögðu að fellibyl-
urinn hefði lagt eyjuna í rúst á
mánudag. En ekki hefði tekið betra
við þegar upphófst mikil drykkja í
höfuðstaðnum, slagsmál og skot-
bardagar bófaflokka. Ekki hefði
heldur bætt úr skák að 300-500
fangar sluppu út úr fangelsum eyj-
arinnar. „Þeir fara um götur vopn-
aðir vélbyssum og skjóta á fólk,“
sagði Channel Weaver, sem var í
þann mund að yfirgefa eyjuna eftir
átta ára búsetu.
íbúar St. Croix eru 50.000. í>eir
hafa verið án rafmagns og vatns
síðan á mánudag er fellibylurinn
gekk yfir. Orðrómur er einnig á
kreiki um að ein stærsta olíuhreins-
unarstöð heims sem starfrækt er á
St. Croix hafi orðið illa úti í óveðr-
inu. Hefur þessi kvittur leitt til þess
að hlutabréf í olíufyrirtækjum ann-
ars staðar hafa snarhækkað.
Herlögregla hefur verið send til
eyjarinnar að beiðni landstjórans
Ný lota hafin í viðræðum fíilltrúa risaveldanna:
Líkur á árangri í viðræð-
um um afvopnun í Evrópu
Washington, Vínarborg. Reuter, dpa.
EDÚARD Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, átti í gær-
kvöldi iund með George Bush, forseta Bandaríkjanna í Hvíta húsinu í
Washington. Shevardnadze er kominn til Bandaríkjanna til að ræða við
hinn bandaríska starfsbróður sinn, James Baker og hefst fundur þeirra
í dag, fóstudag. Sovéski utanríkisráðherrann hefur boðað að hann hygg-
ist kynna mikilvægar tillögur á þessum vettvangi, einkum Iivað varðar
hugsanlegan sáttmála um niðurskurð á sviði hefðbundins vígbúnaðar í
Evrópu. Vestrænir embættismenn kváðust í gær telja góðar líkur á því
að unnt yrði að ganga frá slíkum samningi á næsta ári.
Shevardnadze fæi'ði Bush Banda-
ríkjaforseta bréf frá Míkhaíl S. Gorb-
atsjov, aðalritara sovéska kommún-
istaflokksins. Eftir fundinn kvaðst
sovéski utanríkisráðherrann telja áð
iíkur á því að leiðtogar risaveidanna
kæmu saman til fundar hefðu aukist
og sagði niðurstöðu viðræðnanna
hafa orðið þá að slíkur fundur væri
nauðsynlegur. í fréttum breska út-
varpsins, BBC sagði að líkur væru á
því að þeir Bush og Gorbatsjov rædd-
ust við á næsta ári. Sovéski utanrík-
isráðherrann sagði við komu sína til
Bandaríkjanna á miðvikudagskvöld
að bréf Gorbatsjovs hefði að geyma
tillögur er gætu orðið til þess að
greiða verulega fyrir viðræðum um
niðurskurð á sviði hefðbundins her-
afla frá Atlantshafi til Úralfjalla.
Aðildarríki Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) hafa lokið við gerð til-
lagna um niðurskurð á sviði hefð-
bundins vígbúnaðar í Evrópu og voru
þær kynntar blaðamönnum í Vínat'-
borg í gær. Ráðgert hafði verið að
Reuter
George Bush (t.v.) og James Bak-
er (t.h.) bjóða Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
velkominn í Ilvíta húsið.
leggja þæt' frant fyrir tveimur vikunt
en það reyndist ekki unnt vegna
ágreinings milli Grikkja og Tyrkja.
Þær eru fyrst og fremst nánari út-
færsla á eldri hugmyndum sem Bush
þar. Er það í fyrsta skipti frá árinu
1968 sem bandarískir hermenn eru
látnir kveða niður óeirðir almennra
batidarískra borgara.
Því er spáð að Húgó geri strand-
högg í Suður-Karólínuríki í Banda-
ríkjunum um klukkan 10.00 í dag,
föstudag. Mesta hættan er talin
stafa af flóðbylgjum s_em búist er
við að gangi á land. Á þriðja tug
manna hefur farist af völdum óveð-
ursins og tjón á mannvirkjum er
gríðarlegt. I gær fórst frönsk þyrla
undan ströndum eyjarinnar Guad-
eloupe þegar verið var að bjarga
fórnarlömbum óveðursins. Fimm
manns fórust og fjögurra er saknað.
Bandaríkjaforseti kynnti fyrr á þessu
ári en nýju tillögurnar kveða m.a. á
unt hvernig staðið skuli að frant-
kvæntd eftirlits og gagnkvæma upp-
lýsingaskyldu. Formaður sendi-
nefndar Kanada í Vínarviðræðunum
kvaðst telja „einstaklega góðar líkur“
á því að ríkin 23 sem taka þátt í
fundahöldunum gætu undirritað
sáttmála unt fækkun vígtóla og her-
manna í Evrópu á næsta ári. Hátt-
settur fulltrúi eins aðildarríkis Var-
sjárbandalagsins sagði að svo virtist
sem tillögur NATO-ríkjanna gætu
reynst gagnlegar.
Fundur þeirra Bakers og Shev-
ardnadze fer fram í Jackson Ilole,
litlum landnentabæ í Wyoming-ríki.
Ráðherrarnir munu ræðast við í
bjálkakofa einum í bænum en fundi
þeirra lýkur á laugardag.
Noregur:
Vilja semja
um upplýs-
ingaskyldu
Ósló. Reuter.
NORSK stjórnvöld, sem hafa
miklar áhyggjur af tíðum slys-
um um borð í sovéskum kjarn-
orkukafbátum undan Noregs-
ströndum, kváðust í gær vilja
ná samningum við sovét-
stjórnina utn atvik af þessu
tagi.
Thorvald
Stoltenberg,
utanríkisráð-
herra Noregs,
sagðist hafa
boðið sovésk-
um embættis-
mönnum til
Oslóar þar sem
ræddur yrði
Thorvald samningur,
Stoltenberg. sem skyldaði
stjórnvöld beggja ríkja til að
veita strax upplýsingar um slys
utan lögsögunnar. Sagði hann á
fréttamannafundi í gær, að einu
gilti hvort urn væri að ræða flug-
slys eða sjóslys, hernaðarleg
yfirvöld eða borgaraleg.
Norðmenn eru mjög óánægðir
tneð seinlæti Sovétmanna við að
skýra frá slysum í Norðurhöfum
og vitna meðal annars til elds-
voðans um borð í sovéskum'kaf-
bát af gerðinni Echo-2 í júní sl.
Sega Sovétmenn, að þá hafi
enginn týnt lífi en í apríl létust
42 ménn þegar kafbátur af
Mike-gerð sökk við Norður-
Noreg.