Morgunblaðið - 22.09.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989
Keflavíkurflugvöllur:
Eðlilegt að við tök-
um við fleiri störfiim
- segir Þorsteinn Pálsson
„GEIR Hallgrímsson markaði þá
stefnu á sínum tíma sem utanrík-
isráðherra, að við tækjum við
fleiri störfum og það komst til
dæmis til framkvæmda hvað
varðar ratsjárstöðvarnar. Það er
eðlilegt, eftir því sem aðstæður
leyfa, að fyigja þeirri stefnu,"
sagði Þorsteinn Pálsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, er hann
var inntur álits á þeim orðum
Matthíasar Bjarnasonar, þing-
manns Sjálfstæðisflokksins, að
íslendingar ættu að taka að sér
fleiri störf á Keflavíkurflugvelli.
Þorsteinn sagði að mjög mikil-
vægt væri að hlutir af þessu tagi
gerðust með þróun. „Ég legg á það
áherslu að í þessum efnum þarf
jafnan að taka ákvörðun út frá
vamarhagsmunum okkar,“ sagði
hann. „Við höfum aldrei litið svo á
að várnarliðið verði hér ætíð, en
mikilvægi varnarsamstarfsins við
Bandaríkin er óbreytt. Við metum
samstarfið á hverjum tíma og það
er gífurlega þýðingarmikið, vegna
þeirra miklu breytinga sem nú eiga
sér stað, að Atlantshafsbanda-
lagsríkin sýni áframhaldandi styrk.
Þegar ég tala um breytingar vísa
ég fyrst og fremst í þann áragnur
sem hefur náðst í afvopnunarmál-
um og hrun sósíalismans í Austur-
Evrópu. Einmitt á slíkum tímum
er engin forsenda til að breyta
grundvelli varnarsamningsins, enda
ekki um það rætt,“ sagði Þorsteinn
Pálsson.
Þjóðleikhúsið:
Miðasala á Oliver gengur vel
SÖNGLEIKURINN Oliver verð- aðeins í rúman mánuð og lýkur
ur frumsýndur í Þjóðleikhúsinu þeim 29. október. Ástæðan fyrir
á laugardaginn. Að sögn Jó- þessu er sú að leikmynd og bún-
runnar Sigfúsdóttur hjá miða- ingar eru leigð erlendis frá fyrir
sölu Þjóðleikhússins gengur þennan tíma.
sala á miðum á söngleikinn mjög Sala á áskriftarkortum er enn í
vel. fullum gangi og lýkur henni 1.
Sýningar á Oliver standa yfir október næstkomandi.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.16 i gær)
VEÐURHORFUR íDAG, 22. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Við Suðurströndina er 1000 mb lægð, sem grynn-
ist, en um 500 km suðaustur af Hvarfi er 995 mb lægð á leið aust-
norð-austur. Víða verður vægt frost inn til landsins í nótt, en ann-
ars hiti á bilinu 3-10 stig.
SPÁ: Hæg breytileg átt, léttskýjað á Austurlandi. Suð-vestan kaldi
og skýjað. Þurrt að mestu á vestanverðu landinu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Sunnan- og suðvestan-
átt. Rigning eða skúraveður um sunnan- og vestanvert landið, en
þurrt á Norðausturlandi. Hiti 5-10 stig.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 4 úrkoma Reykjavík 7 léttskýjað
Bergen 14 alskýjað
Helsinki 20 alskýjað
Kaupmannah. 19 léttskýjað
Narssarssuaq 1 þoka
Nuuk 0 slydda
Osló 19 léttskýjað
Stokkhólmur 21 léttskýjað
Þórshöfn 10 hálfskýjað
Algarve 27 skýjað
Amsterdam 24 mistur
Barcelona 24 þokumóða
Berlín 25 helðskírt
Chicago 13 þokumóða
Feneyjar 27 heiðskirt
Frankfurt 22 mistur
Glasgow 15 súld
Hamborg 23 mistur
Las Palmas 26 léttskýjað
London 26 léttskýjað
Los Angeles 17 heiðskírt
Lúxemborg 23 léttskýjað
Madríd 23 léttskýjað
Malaga 25 skýjað
Mallorca 26 skýjað
Montreal 16 þokumóða
New York 23 þokumóða
Orlando 23 skýjað
Paris 25 léttskýjað
Róm 28 heiðsklrt
Vín 25 heiðskírt
Washington 24 súld
Winnipeg vantar
Morgunblaðið/Silli
í verslun KNÞ á Kópaskeri sem kaupfélagið á Húsavík rekur nú.
Norður-Þingeyjarsýsla:
Kaupfélagið hætt-
ir verslunarrekstri
Kaupfélögin á
Húsavík og
Þórshöfn leigja
aðstöðuna
Húsavík.
KAUPFÉLAG Norður-Þingey-
inga á Kópaskeri hefúr náð
nauðasamningum við almenna
lánardrottna, leigt verzlanir
sínar um tíma og eru nú verzl-
unarhættir á Kópaskeri komnir
í eðlilegt form.
Hinn 17. apríl síðastliðinn fékk
Kaupfélag Norður-Þingeyinga
heimild skiptaráðanda til að leita
nauðasamninga við lánadrottna
sína til þess að bjarga málum
sínum án gjaldþrots.
Á lögmætum fundi síðastliðinn
mánudag með skiptaráðanda
Halldóri Kristinssyni, sýslumanni
á Húsavík, var lagður fram
nauðasamningur, sem almennir
kröfuhafar samþykktu með því
að fá 40% krafna sinna greidd.
Til að geta staðið við samning-
inn hefur stjóm kaupfélagsins
talið rétt að hætta verzlunar-
rekstri um tíma, selja vörulager
sinn og leigja verzlunarhúsnæði
félagsins. Kaupfélag Þingeyinga
á Húsavík hefur tekið verzlanirnar
á Kópaskeri og í Ásbyrgi á leigu
en Kaupfélag Langnesinga, Þórs-
höfn, verzlunina á Raufarhöfn.
Þetta voru svo til einu verzlanirn-
ar á þessum stöðum, svo mikil-
svert var að þær Iegðust ekki nið-
ur.
Fyrir hönd stjórnar Kaupfélags
Norður-Þingeyinga hefur Árni
Vilhjálmsson hrl. annast þessa
samninga og hefur það mál leyst
án gjaldþrots, sem annars hefði
getað komið til.
Fréttaritari
Norræna ráðherranefhdin:
Styrktarsjóður sto&að-
ur til kvikmyndagerðar
Sjóðurinn hefiir
370 milljónir
króna til ráðstöf-
unar á ári
„NORRÆNA ráðherranefndin
hefúr beitt sér fyrir stofnun norr-
æns kvikmyndasjóðs og þetta er
tilraun sem á að gera í íimm
ár,“ segir Tryggvi Gíslason deild-
arstjóri í sljórnarskrifstofu norr-
ænu ráðherranefndarinnar.
Hann segir að ákveðið hafi verið
að sjóðurinn hafi tii úthlutunar
45 milljónir danskra króna ár
hvert, en það samsvarar um 370
milljónum íslenskra króna. Sjóö-
urinn tekur til starfa um næstu
áramót.
Auk ráðheri'anefndarinnat'
standa ríkissjónvarpsstöðvarnar og
kvikmyndastofnanir á Norðurlönd-
unum að sjóðnum. Hann á að starfa
í fimm ár í tilraunaskyni. Ætlunin
er að sjóðurinn styrki kvikmynda-
gerð, hvort sem er fyrir bíó, sjón-
varp, myndbönd eða annað form.
Sérstök áhersla verður lögð á að
styrkja gerð mynda fyrir börn og
unglinga.
Tryggvi segir að sjóðurinn út-
hluti samkvæmt ákvörðunum
stjórnar sjóðsins, ekki verði deilt
úr honum í einhvetju hlutfalli til
einstakra landa. „íslendingar gætu
þess vegna fengið miklu meira en
nemur þeirra hlut, eins og gefur
að skilja, og nú hafa íslenskir kvik-
myndagerðarmenn getið sér gott
orð, meðal annars á Norðurlöndum,
svoleiðis að auðvitað getur þetta
eflt íslenska kvikmyndagerð."
Norræni kvikmyndasjóðuriunn
mun hafa aðsetur í Svíþjóð. Ekki
hefur enn verið skipað í stjórn hans,
það verður gert fljótlega. Tryggvi
segir að búast megi við að auglýst
verði eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum eftir miðjan næsta mánuð
og að fyrsta úthlutun geti farið
fram í febrúar næstkomandi.
Skóladagbók
frá Eymunds-
son og AB
BÓKAVERSLUN Sigfúsar Ey-
mundssonar og Almenna bókafé-
lagiö hafa í samvinnu gefið út
Skóladagbók, sem send hefúr ver-
ið öllum þeim nemendum er luku
skyldunámi sl. vor og hyggja á
framhaldsnám í haust, auk þess
sem hún er til sölu í verslunum
Eymundssonar.
Að sögn Tómasar Tómassonar,
markaðsstjóra Eymundssonar og
AB, er stefnt að því að gera útgáfu
skóladagbókarinnar að árlegum við-
burði.
í dagbókinni eru m.a. sérstakir
reitir fyrir heimaverkefni, próftöflur
og stundaskrá.