Morgunblaðið - 22.09.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.09.1989, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989 Finnland: Fyrrverandi ráðherra sakaður um landráð Hclsinki. Frá Lars Lundsten, íréttaritara Morgunblaðsins. FINNSKA þjóðþingið verður innan tíðar að taka ákvörðun um hvort höfða beri landráðsmál gegn Paavo Vayrynen fyrrum utanríkisráð- herra. Fimm þingmenn hafa undimtað ályktun um að stjórnarskrár- nefiid þingsins taki afstöðu í málinu, en það er fyrsta skref í átt að því að höfða mál gegn Vayrynen sem er sagður hafa sótt aðstoð í sovéska sendiráðið í forsetakosningunum 1981. Meðal annarra vilja fimmmenn- ingarnir ganga úr skugga um hvort utanríkisráðherra átti hlutdeild í þeim vandamálum sem settu svip á viðskipti landanna um þær mundir. Málið snýst um óljósa atburði sem áttu sér stað árið 1981 er Finnar kusu eftirmann Kekkonens forseta sem þá hafði sagt af sér vegna veik- inda. Váyrynen er ásakaður um að hafa sótt til Sovétmanna til þess að greiða fyrir kjöri Ahtis Kaijalainens sem eftirmanns Kekkonens. Váyryn- en var á þeim tíma formaður finnska Miðflokksins en Kaijalainen forseta- efni hans. Báðir voru tryggir stuðn- ingsmenn Kekkonens sem hafði stjórnað landinu í rúman aldarijórð- ung. Þegar Kekkonen fór frá urðu mið- flokksmenn áhyggjufullir um framt- íðina og vildu tryggja sér forseta- embættið til frambúðar. Mauno Koi- visto sem var forsætisráðherra Finna fyrir jafnaðarmenn var orðinn nokk- uð vinsæll meðal almennings. Kaij- alainen var álitinn ríkisarfi Kekkon- ens en var ekki sérstaklega vinsæll meðal kjósenda enda varð Koivisto kosinn og náði endurkjöri með trygg- um meirihluta í fyrra. Fyrir nokkrum vikum voru birtar endurminningar Ahtis Kaijalainens, en hann hvarf af sviði stjórnmála skömmu eftir forsetakosningarnar 1981. Kaijalainen minnist þess að flokksformaður hans hafi reynt að vinna sér stuðning hjá Sovétmönnum og er vitnað í bréf sem Váyrynen er sagður hafa skrifað. Ætlunin á að hafa verið að sýna kjósendum, að eina leiðin til þess að halda góðum samskiptum og blómlegum viðskipt- um við Sovétmenn væri að kjósa Katjalainen. Staðreyndin er hins vegar sú að það komu upp minnihátt- ar erfiðleikar í viðskiptiim þjóðanna einmitt á þessum sama tíma. Eins og búast má við neitar Vay- rynen fastlega að hafa átt óviðeig- andi viðræður við starfsmenn sov- éska sendiráðsins. Stjórnarskrár- nefnd þingsins tekur afstöðu til hvers konar viðræðu þeir Váyrynen og Viktor Vladimirov sendifulltrúi áttu í hita kosningabaráttunnar. Frumkvæðið að rannsókn málsins kemur frá nokkrum þingmönnum Hægriflokksins en bæði Harri Hol- keri forsætisráðherra og Ilkka Suom- E vr ópubandalagið: Kæra Breta vegna meng- unar í vatni Bmssel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttarilara Morgunblaðsins Framkvæmdastjórn Evrópu- bandalagsins (EB) tilkynnti í Brussel á miðvikudag að ákveðið hefði verið að kæra stjórnvöld í Bretlandi til Evrópudómstólsins í Lúxemborg fyrir að uppfyila ekki láginarksstaðla EB um mengun í neysluvatni. Þessi kæra kemur á sérlega óhentugum tíma fyrir rík- isstjórn Margaret Thatcher, for- sætisráðherra Bretlands, sem hyggst selja breskar vatnsveitur einkaaðilum um miðjan nóvcm- ber. Ripa di Meana, sem fer með um- hverfismál innan framkvæmda- stjórnar EB, skýrði frá ákvörðun þessari. Fyrr í vikunni var Chris Pattprn, umhverfismálaráðherra Bretlands, á ferð hér í Brussel í þeim erindum að fá framkvæmda- stjórn EB til að falla frá kærunni. Patten benti á að í gangi væri áætl- un sem miðaði að því að neysluvatn á Bretlandi uppfyllti skilyrði EB- staðla árið 1995. Framkvæmda- stjórn EB krefst þess hins vegar að stöðlunum verði náð árið 1993. inen, iðnaðarráðherra og flokksform- aður, hafa reynt að draga úr ásökun- um gegn Váyrynen. Hinn ákærði — eða fórnarlambið eins og hann sjálfur álítur sig vera — segist ekki hafa neitt að fela. Váyrynen hefur átt erfitt með að umgangast Koivistö forseta og hefur undanfarnar vikur gefið í skyn að þetta hneykslismál hafi komið upp einungis vegna þessa. Meðal annars hefur Váyrynen lýst því yfir að hann muni víkja ef það gæti greitt fyrit að Miðflokkurinn tæki þátt í stjórnar- myndun í forsetatíma Koivistos. Stjórnmálaskýrendum ber ekki sam- an um hvort þetta geti orðið endalok stjórnmálaferils Váyrynens eða hvort hann á eftir að græða á því að verða píslarvottur. Reuter Bangsímon á uppboði Bangsinn á myndinm seldist fyrir 55.000 puiid (5,3 milljónir ísl. kr.) hjá uppboðshöldurum Sothebys í London á þriðjudag. Þetta er fjór- falt hærra verð en áður hefur verið greitt fyrir leikfangabangsa á uppboði. Hann er sagður einstaklega vel með farinn og þykir ein- stakur vegna þess að feldurinn er með tvenns konar brúnum blæ og augun eru óvenju stór. Bangsi er sagður fæddur í Þýskalandi árið 1920 og gæti vel heitið Bangsímon. Kaupandinn óskaði nafnleyndar. 9 SV/EDAMEOFEROARSKOLI ÍSLANDS 9 TILKYNNIR ★ Nám fyrir byrjendur í svæðameðferð hefst í kvöld, föstudaginn 22. september kl. 18.00. Enn er mögu- leiki á að sækja um skólavist veturinn 1989-1990. ★ Einnig er í boði ódýrt nudd nemenda undir leiðsögn leiðbeinenda. á ★ Innritun og allar nánari upplýsingar eru gefnar^ síma 687566. Qrn og Helena ROYAL SKYNDIBÚÐINGARNIRx / ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUÐA Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragötegundir Viðskiptatækni 128 klst. Markaðstækni 60 klst. Fjármálatækni 60 klst. Sölutækni 36 klst. /í«'í. Hringdu í síma 62 66 55 og fáðu sendan bækling Viðskiptaskólinn Borgartúni 24, sími 62 66 55 HID ÍSLENSKA SKYLMINGAFÉLAG Haustnámskeið í ólympiskum skylm- ingum hefst þriðjudaginn 26. sept. og er öllum opið. Takmark þessa nám- skeiðis er að kynna öryggisreglur og grundvallartækni íþróttarinnar að því marki að þátttakendur geti að því loknu skylmst sér til ánaagju. Öll nauðsynleg tæki eru á staðnum. Upplýsingar og skráning í síma 26928 næstu daga. MARKAÐS- TÆKNI Hvernig nærð þú bestum árangri í markaðsstarfmu ? Markaðstækni er hagnýtt nám í markaðs- og sölu- fræðum sem er einkum ætlað núverandi og verð- andi markaðsstjórum. Markaðstækni er einnig afar hentug fyrir þá stjórnendur og forráðamenn fyrirtækja sem ekki hafa hlotið formlega menntun í markaðs- eða sölufræðum. — A námskeiðinu er kennt eftirfarandi: — - Grunnatriði í markaðsmálum. - Vöruhugtakið og vöruþróun. - Verðlagning. - Auglýsingar, sölumennska og kynningarstarfsemi, - Val dreifileiða. - Markaðsáætlanir og stjórnun markaðsstarfseminnar. Námskeiðið er 60 klst. og spannar 4 VIKUR. Allt námsefni er á íslensku og sérstaklega samið fyrir Viðskiptaskólann. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 15-20 manns. Kennarar á Markaðstækni-námskeiðinu eru allir sérmenntaðir í markaðsmálum. Kennt er 4 daga í viku, 4 tíma í senn. Námskeiðið hefst 16. október. Námskeiðsgjald er kr. 48.600,- Hringdu og fáðu sendan bækling. % Viðskiptaskólinn Borgartúni 24, sími 62 66 55

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.