Morgunblaðið - 22.09.1989, Síða 13
MORG.UNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUH .22, SEKIKMBEJÍ 3,9^9 ,
13 f
og háðu þar 2 kappleiki, annan við
Burnmeister & Wain skipasmíða-
stöðina, sem þeir unnu (3-1), og
einn við skipasmiði á Helsingjaeyri
sem þeir töpuðu (1-2). í fjölda ára
(fyrir daga sjónvarpsins) stóð SVH
fyrir kvikmyndasýningum handa
starfsmönnum eftir vinnutíma.
Reglulega voru haldin taflmót og
bridsmót. Félagsvist var einnig hátt
skrifuð hjá starfsmönnum. Á hveiju
ári hefur verið farið í ferðalög hér
innanlands á vegum félagsins,
stundum var farið tvisvar á sumri.
Frá því að félagið var stofnað hefur
það staðið fyrir dansleikjahaldi fyr-
ir starfsmenn. Vorfagnaðir, haust-
fagnaðir og árshátíð voru regluleg-
ir dagskrárliðir, þótt í dag sé ein-
ungis um árshátíð að ræða. Við
dansleikjahald kom sú aðstaða, sem
fyrirtækið bauð félaginu upp á að
kostnaðarlausu, sér vel. Ekki eru
börn félagsmanna heldur gleymd
því á hverju ári er þeim haldin jóla-
trésskemmtun. Alltaf hafa söng-
glaðir Héðinsmenn skotið upp koll-
inum með reglulegu millibili innan
fyrirtækisins, og hafa því í gegnum
tíðina verið starfræktir sönghópar,
sumir lengur aðrir skemur. Hefur
þetta verið allt frá tríói upp í stóra
kóra. Karlakór Héðins, sem fyrst
var undir stjórn Guðmundar Jó-
hannssonar, var t.d. í fjölda ára
óijúfanlegur hluti sem skemmti-
atriði á árshátíðum félagsins, þar
sem bæði mátti heyra sungin þjóð-
leg lög og skemmtivísur um fyrir-
tækið og/eða einstaka starfsmenn
innan þess. SVH hefur einnig stað-
ið fyrir útgáfustarfsemi innan fyrir-
tækisins, gefið var út blað sem
nefndist „Deiglan". Var þetta upp-
lýsinga og skemmtirit fyrir félags-
menn, þar höfðu þeir betra tæki-
færi til að fylgjast með því sem var
að gerast innan félagsins. Þessi
útgáfustarfsemi stóð því miður ekki
lengi yfir, fyrsta tölublað kom út
1956 og það síðasta ári seinna.
Við stofnun félagsins varð að
sækja sérstaklega um inngöngu í
félagið en það varði ekki lengi því
gífurlegur áhugi manna á að ganga
í félagið varð til þess að fljótlega
varð hver sá sem starfaði hjá
Héðni hf., sjálfkrafa félagi í SVH.
Eftir að Járnsteypan hf., varð hluti
af Héðni h.f., þá gilti það sama um
þá.
í tilefni af 50 ára afmæli SVH
ætlar félagið á halda félagsmönn-
um sínum smá. teiti að Seljavegi
2, laugardaginn 23. september
1989, milli kl. 17-19. (Húsnæði
verslunarinnar).
Allir eldri félagar SVH eru boðn-
ir hjartanlega velkomnir.
(Frá stjórn SVH.)
Starfsmannafélag Vél-
smiðjunnar Héðins 50 ára
Starfsmannafélag Vélsmiðjunnar
Héðins hf. varð 50 ára þann 11.
september síðastliðinn.
Þó að SVH sé ekki stofnað fyrr
en 1939, var blómlegt félagslíf fyr-
ir hendi hjá starfsmönnum fyrir-
tækisins, sem þá hafði verið starf-
andi í 17 ár eða allt frá árinu
1922. Reyndar var það áhugi
starfsmanna á knattspyrnu og
knattspyrnukeppni sem varð til þess
að starfsmannafélagið var stofnað.
Stofnfundur félagsins var haldinn
þann 11. september 1939, í kaffi-
stofu fyrirtækisins. Nefnd undir
stjórn Hilmar Friðrikssonar sá um
undirbúningsstarfið fyrir stofnun
félagsins, en hann var síðan kosinn
fyrsti formaður félagsins.
Þegar í upphafi var félagið stofn-
að til eflingar á félagslífi og kynn-
ingar meðal starfsmanna og ein-
skorðuðust lög félagsins við íþrótta-
og skemmtanalíf ásamt fræðslu-
starfsemi.
Alveg frá upphafi félagsins hefur
Héðinn hf. stutt dyggilega við bak-
ið á félaginu. Sem dæmi má nefna
að í desember 1943, afhenti þáver-
andi forstjóri, Sveinn Guðmunds-
son, SVH efstu hæð skrifstofu-
byggingarinnar (4. hæð) til umráða
sem samkomusal og félagsheimili
fyrir félagið og bað um að húsa-
kynnin hlytu nafnið „Naustið“.
Þessi húsakynni komu sér mjög vel
fyrir starfsmenn og voru þar haldn-
ir almennir dansleikir í fjáröflunar-
skyni, spilakvöld og fundir. Aldrei
hefuf heldur vafist fyrir fyrirtækinu
að vera starfsmannafélaginu innan
handar hvort heldu'r sem er í formi
beinna styrkja eða í afnotum af
húsnæði og tækjum.
Þegar litið er til baka, er margt
sem SVH hefur tekist á hendur á
þessu 50 ára tímabili, og verður
hér tæpt á nokkrum atriðum. Fyrst
ber að nefna það sem viðkemur
knattspyrnuleikjum. Sem áður
sagði að þá var það þessi brenn-
andi áhugi fyrir knattspyrnuíþrótt-
inni sem varð vakningin að stofnun
SVH. Allt frá stofnun hafa verið
árleg knattspyrnumót milli starfs-
manna Héðins og annarra smiðja
og stórfyrirtækja jafnt á Reykjavík-
ursvæðinu sem og utanbæjar. Frá
upphafi hafa Héðinsmenn staðið sig
með sóma í þessum firmakeppnum
og því til sönnunar eru bikarar sem
SVH hefur unnið til eignar.á mótun-
um. Áhuginn fyrir knattspyrnunni
var svo gífurlegur að árið 1940 var
farið að ræða um að breyta nafni
félagsins, ef með þyrfti, og sækja
um inngöngu í ÍSÍ. Árið 1952 varð
mjög viðburðarríkt ár fyrir knatt-
spyrnudeild félagsins því það ár
fóru Héðinsmenn undir fararstjórn
Torfa Þorsteinssonar til Danmerkur
Hinar tvær myndirnar med
„Indy“,
Ránið á týndu örkinni og
Indiana Joncs og musteri
hinna dæmdu,
voru stórkostlegar
cn þcssi cr cnn bctri.
Harrison Ford sem
„Indy“
cr óborganlegur.
Scan Conncry scm pabbinn
bregst ekki
frckar cn fyrri daginn.
Alvöru ævintýramynd sem veldur
þér örugglega ekki vonbrigöum
SIMI 2 21 40
MORATEMP
AUÐSTILLT
MORATEMP blöndunar-
tækin eru með auðveldri
einnar handar stillingu á
hitastigi og vatnsmagni.
MORA sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást i byggingavöruverslunum.
meiri ánægja
FRUMSÝNUM í DAG ÆVINTÝRAMYND ALLRA TÍMA
SÍDASTA KROSSFERDIN
Hún er komin
nýjasta
ævintýramyndin med
Indiana Jones.
Verkamannafélagið Hlíf:
Niðurskurði verkamannabú
staða í Haftiarfirði mótmælt
Verkamannafélagið Hlíf samþykkti einróma, á stjórnarfundi
fimmtudaginn 24. ágúst, ályktun þar sem niðurskurði á byggingu
verkamannabústaða á þessu ári í Hafnarfirði er mótmælt.
í ályktuninni segir: „Stjórn Verk-
amannafélagsins Hlífar mótmælir
harðlega niðurskurði stjórnvalda á
áætluðum íbúðarbyggingum verka-
mannabústaða í Hafnarfirði fyrir
árið 1989. í stað 110 íbúða sem
bygginganefnd í Hafnarfirði telur
brýna þörf fyrir, gefa stjórnvöld
aðeins leyfi fyrir 40 íbúðum.
Ljóst er að þessi mikli niður-
skurður á byggingu félagslegra
íbúða mun hafa mjög alvarlegar
afleiðingar í för með sér fyrir
hundruð húsnæðislausra fjöl-
skyldna í Hafnarfirði, en sumar
þeirra hafa beðið eftir húsnæði
árum saman og sjá nú fram á enn-
þá lengri bið.
Stjórn Hlífar bendir á að yfirlýst
markmið stjórnvalda síðan 1974 er
að þriðjungur alls nýs íbúðarhús-
næðis skuli vera í félagslega kerf-
inu, en vanefndirnar eru slíkar að
þar eru aðeins 13,5%. Vilji stjórn-
völd teljast marktæk verða þau að
standa við gefin loforð og stefnulýs-
ingar. Því skorar stjórn Hlífar á þau
að veita nú þegar meira fé til bygg-
ingar verkamannabústaða og
standa þar með við loforð sem þau
marg ítrekað hafa gefið láglauna-
fólki.“
T-Jöfóar til
JTl fólks í öllum
starfsgreinum!