Morgunblaðið - 22.09.1989, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989
23
Landflótta tyrkneskur Kúrdi:
Baðst hælis sem pólitísk-
ur flóttamaður og dvelst
nú í Húnavatnssýslu
TYRKNESKUR ílóttamaður af kúrdískum ættum, Mustava Coka að
nafni, hefúr beiðst hér hælis sem pólitískur flóttamaður. Hann kom
hingað seint í júlí og hefur dvalist á bæ í Austur-Húnavatnssýslu. Út-
lendingaeftirlitið hefúr sent dómsmálaráðuneytinu skýrslu um málið
og er niðurstððu ráðuneytisins að vænta innan skamms, að sögn Þor-
steins Geirssonar ráðuneytisstjóra. Karl Jóhannsson hjá útlendingaeftir-
litinu segir að átt liafi að synja Coka um hæli í Danmörku og Noregi
en hann hafi farið frá þessum löndum áður en úrskurðirnir voru form-
lega birtir.
Coka kom hingað með Norrænu
fyrir tveimur mánuðum. Hann komst
inn í landið án vegabréfs með því
að segjast vera norskur ríkisborgari,
en í gildi er gagnkvæmur samningur
milli Norðurlandanna um afnám
vegabréfsskoðunar. Hann hafði síðan
samband við skrifstofu íslandsdeild-
ar Amnesty International.
Að sögn Jóhönnu K. Eyjólfsdótt-
ur, formanns íslandsdeildar Am-
nesty, var útlendingaeftirlitið strax
látið vita af manninum og farið fram
á að honum væri ekki vísað strax
úr landi heldur mál hans athugað
fyrst. Jóhanna segir að Amnesty
hafi ekki tök að athuga sérstaklega
mál þessa manns. Haft hafi verið
samband við skrifstofur samtakanna
í Danmörku og Noregi og aðalstöðv-
arnar í Bretlandi en Coka sé ekki á
skrá þar sem pólitískur fangi.
„Hins vegar kemur saga hans um
fangelsun og pyntingar fyrir stjórn-
málaskoðanir heim og saman við
upplýsingar um aðra Kúrda sem of-
sóttir hafa verið í Tyrklandi,“ segir
Jóhanna. „Við sáum enga ástæðu til
að rengja manninn og vonumst til
að hann fái lausn sinna mála. Það
sem að Amnesty á íslandi snýr er
að reyna að tryggja að mál hans fái
hér réttláta meðhöndlun. Hins vegar
skiptir Amnesty sér ekki af flótta-
mönnum nema þeir eigi á hættu að
verða hnepptir í fangelsi vegna
stjórnmálaskoðana.“
- Coka fékk húsaskjól á bóndabæ í
Húnavatnssýslu. Þaðan kom hann
aftur til Reykjavíkur til yfirheyrslu
hjá útlendingaeftirlitinu en fór svo á
ný út á land þar sem hann er enn.
Útlendingaeftirlitið sendi dómsmála-
ráðuneyti skýrslu um mál Coka og
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 21. september.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 88,00 82,00 84,00 2,226 186.984
Ýsa 110,00 35,00 103,61 0,317 32.845
Karfi 20,00 20,00 20,00 0,036 703
Ufsi 36,00 36,00 36,00 0,109 3.924
Steinbítur 82,00 76,00 77,46 1,803 139.651
Langa 47,00 47,00 47,00 0,456 21.432
Lúða 260,00 200,00 215,78 0,601 129.660
Koli 68,00 35,00 56,14 1,268 71.188
Keila 26,00 26,00 26,00 0,101 2.619
Skarkolaflök 180,00 155,00 168,40 0,225 37.890
Samtals 87,79 7,141 626.896
i dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr ýmsum
bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 64,00 58,00 61,41 29,238 1.795.535
Ýsa 123,00 50,00 112,31 8,319 934.327
Karfi 34,00 22,00 29,08 19,260 560.172
Ufsi 37,00 33,00 35,58 39,442 1.403.327
Steinbítur 66,00 60,00 65,27 0,082 5.352
Hlýri 62,00 62,00 62,00 3,712 230.166
Hlýri+steinb 66,00 60,00 65,27 0,082 5.352
Langa 34,00 33,00 33,16 0,582 19.301
Skarkoli 60,00 60,00 60,00 0,245 14.700
Keila 14,00 14,00 14,00 0,038 532
Samtals 49,28 101,800 5.016.272
Selt var úr Ásbirni RE, Arnari HU, Þorláki ÁR og fleirum. í dag
verða meðal annars seld 80 tonn af ufsa og óákveðið magn
af öðrum tegundum úr Ottó N. Þorlákssyni RE og fleirum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 71,00 36,00 54,18 11,656 631.540
Ýsa 110,00 43,00 98,86 3,815 377.145
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,040 600
Ufsi 17,00 17,00 17,00 0,185 3.145
Steinbítur 39,00 15,00 35,18 0,244 8.584
Langa ' 34,00 15,00 32,27 1,420 45.820
Lúða . 275,00 155,00 238,14 0,223 53.105
Skarkoli 49,00 49,00 49,00 0,018 882
Keila 27,50 5,00 9,53 0,477 4.547
Skata 66,00 66,00 66,00 0,090 5.940
Lýsa 32,00 32,00 32,00 0,150 4.800
Samtals 62,02 18,318 1.136.108
I dag verða meðal annars seld 30 tonn af þorski, 30 tonn af
karfa, 5 tonn af ufsa og óákveðið magn af ýsu og fleiri tegund-
um úr Hauki GK. Einnig verður selt óákveðið magn úr línu- og
netabátum.
er niðurstöðu að vænta innan
skamms að sögn Þorsteins Geirsson-
an ráðuneytisstjóra. Óli Þ. Guðbjarts-
son dómsmálaráðherra kveðst ekkert
geta sagt um málið að svo stöddu.
Samkvæmt upplýsingum norsku
flóttamannahjálparinnar fór Coka
frá Danmörku eftir að hafa fengið
synjun um landvistarleyfi. í Noregi
var ósk hans um hæli sem pólitískur
flóttamaður hafnað í lok síðasta árs
samkvæmt sömu gögnum. Þar segir
jafnframt að þar sem hann hafi ekki
haft efni á að áfrýja máli sínu hafi
hann að svo búnu farið huldu höfði
í hálft ár þar til hann sigldi hingað
til lands.
Hildur Bjarnadóttir er ein þeirra
sem liðsinnt hefur Coka hér á landi.
„Mustava sagði þegar hann kom
hingað að hann vildi miklu frekar
lenda í íslensku fangelsi heldur en
að fara aftur til Noregs, þar sem
hann er hræddur um að þaðan yrði
hann sendur til Tyrklands. Hann tel-
ur að heima fyrir bíði hans fangelsi
og pyntingar," segir Hildur. „Hann
hefur viljað vinna og hafa eitthvað
fyrir stafni, því að biðin eftir úr-
skurði þykir flóttafólki verst.“
Hildur kveðst nýkomin af flótta-
mannaþingi Amnesty International í
Kaupmannahöfn. „Þar var rætt um
réttleysi flóttamanna," segir hún,
„og að ekki væri mannsæmandi
hvernig komið er fram við þá. Á þing-
inu var bent á 14. grein mannrétt-
indayfirlýsingar Sameinuðu þjóð-
anna frá 1948, þar sem segir að all-
ir menn eigi rétt á að biðja um hæli
í öðru landi en sínu eigin til að forðst
ofsóknir stjórnvalda heima fyrir svo
fremi þeir hafi ekki framið afbrot."
Atriði úr Síðustu krossferðinni.
Háskólabíó:
Síðasta
krossferðin
frumsýnd
Háskólabió hefúr tekið til sýn-
inga kvikmyndina Síðasta kross-
ferðin. Myndin er sú þriðja um
Indiana Jones.
Áður hafa verið sýndar kvik-
myndirnar Ránið á týndu örkinni
og Indiana Jones and the temple
of doom. í þessari mynd kemur
faðir aðalhetjunnar til sögunnar
og er hann leikinn af Sean Conn-
ery. Indiana Jones er sem fyrr leik-
inn af Harrison Ford. Leikstjóri
er Steven Spielberg.
Morgunblaðið/Sverrir
Hannes Lárusson, eigandi Gallerí 11 við Skólavörðustíg, fyrir fram-
an sýningarsalinn.
Gallerí einn
einn opnað
NÝR sýningarsalur hefúr verið
opnaður að Skólavörðustíg 4a í
Reykjavík, þar sem Gallerí Grjót
var áður.
Sýningarsalurinn hefur hlotið
nafnið Gallerí 11 (Gallerí einn einn)
og geta listamenn leigt salinn und-
ir sýningar 2-3 vikur í senn. Einn-
ig mun eigandi Gallerísins, Hannes
Lárusson, bjóða listamönnum að
sýna verk sín samkvæmt samningi
við Galleríið og á ábyrgð þess.
. Allar frekari upplýsingar um Gall-
erí 11 og rekstrarfyrirkomulag
þess verða veittar á opnunartíma,
frá klukkan 14-18 alla daga.
Patrick Swayze og Julie Michaels í hlutverkum sínum.
Útkastarinn
í Bíóhöllinni
BÍÓHÖLLIN hefiir hafíð sýning-
ar á myndinni Útkastarinn (Ro-
ad House). Efiii myndarinnar er
'm.a. samkvæmt kynningu frá
Bíóhöllinni:
Dalton starfar sem útkastari í
veitingahúsi einu í Bandaríkjunum.
Hann er fær í starfi, reynir fyrst
með góðu að fá óróaseggi til að
hætta uppsteyt, en er fljótur að
láta menn út fyrir dyrnar, ef þeir
vilja ekki taka sönsum.
Snör handtök Daltons vekja at-
hygli og aðdáun Tilghmans nokk-
urs, sem gefur sig á tal við hann
og tjáir honum vanda sinn. Tilgh-
man á veitingahús, Doucle Deuce,
í öðru fylki. Honum hefur græðst
nokkurt fé á starfsemi þess en sá
er galli á gjöf Njarðar, að alls
konar trantaralýður kemur þar á
síðkvöldum og setui' allt á annan
endann svo að menn ráða ekki við
neitt.
Það verður úr, að Dalton tekur
að sér að hreinsa til hjá Tilghman,
sem fellst umsvifalaust á skilmála
hans. Síðan kemur hann á staðinn
og byijar á að athuga aðstæður
án þess að láta neinn vita um er-
indi sitt.
Leiðrétting
Hvammslanga.
í frétt um nýjan framkvæmda-
stjóra Drífu hf. á Hvammstanga
sem nýlega birtist í blaðinu misrit-
aðist nafn framkvæmdastjórans.
Hann heitir Þorsteinn Gunnlaugs-
son og er rekstrartæknifræðingur
frá Tækniskólanum í Óðinsvéum í
Danmörku. Þetta er leiðrétt um
leið og beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Karl
Pokapési
í borginni
NÚ UM helgina verða konur úr
Lionsklúbbnum Eir með sína
árlegu sölu á Pokapésa á fimm
stöðum í borginni.
Allur ágóði af sölunni rennur til
líknarmála.
Fíladelfía forlag:
Bókin „Lifðu!“
komin út
ÚT ER komin bókin „Lifðu!“
eftir norsku hjúkrunarkonuna
Mari Lornér.
Mari var 37 ára þegar hún yeikt-
ist af beinkrabbameini. Hún
gekkst undir erfiða læknismeðferð
og náði bata. Meðan á veikindun-
um stóð hélt Mari dagbók. Hún
segir frá því hvernig fjölskylda
hennar og vinir brugðust við, þeg-
ar henni var ekki hugað líf. Þrem
árum síðar tóku veikindin sig upp
aftur og enn hélt Mari dagbók.
Þessum dagbókarbrotum hefur
hún safnað saman í bókina „Lifðu!“
Mari Lornér er nú stödd hér á
landi, ásamt eiginmanni sínum
Lars Lornér. Þau tala á opinberum
samkomum í Hvítasunnukirkjunni
á Akureyri 23. og 24. september
og í Fíladelfíukirkjunni, Reykjavík,
30. september og 1. október.
ITC - kynning
á Vopnafirði
LANDSAMTÖK ITC á íslandi
verða með kynningarfund á
Vopnafirði í kvöld. Fundurinn
verður á Hótel Tanga og hefst
klukkan 21.
Slátrun hafin í
Búðardal
Búðardal.
Sauðfjárslátrun hófst í síðustu
viku hjá sláturhúsi afúrðastöðv-
arinnar í Búðardal. Alls inun
verða slátrað um 23 þúsund fjár
og er það svipað og síðastliðið
haust.
Starfsfólk verður í kringum 100
manns og reiknað er með að slátur-
tíð standi yfir í 20 virka daga.
Hefur gengið vel að fá starfsfólk,
sem er flest heimamenn.
Nýr sláturhússtjóri tók til starfa
við afurðastöðina nú í haust og er
það Gunnar Aðalsteinsson frá
Borgarnesi.
Krisljana
Fyrirlestur á
vegum félagsví-
sindadeildar
TODD SWANSTROM flytur fyr-
irlestur á vegum félagsvísinda-
deildar HÍ um: „Can capitalism
and democracy coexist in urban
United States of America?"
Fyrirlesari lauk doktorsprófi frá
Princeton haskóla og eftir hann
hafa birst margar greinar um
stjórnmál og hagkerfi í stórborgum
Bandaríkjanna. Hann et' höfundur
bókarinnar: „The crisis of growth
politics: Cleveland, Kucinich and
the challenge of urban populism," .
sem út kom 1985; fyrir hana hlaut
höfundurinn verðlaun frá samtök-
um bandarískra stjórnmálafræð-
inga.
Todd Swanstrom er prófessor í
stjórnmálafræði við ríkisháskólann
í New York. Fyrirlesturinn verður
í stofu 202 í Odda, húsi félags-
vísindadeildar HÍ, föstudaginn 22.
september og hefst kl. 16.00. Öll-
um er heimil þátttaka.
(Fréttatilkynning)
Ljósbrot syngur
inn á plötu
KÓRINN Ljósbrot skipar ungt
fólk úr hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu í Reykjavík. Nú er
ltoniin á markað lyrsta hljóm-
platan með söng kórsins og heit-
ir hún „Vonarland".
Á plötunni eru tíu lög. Einsöngv-
arar eru Jóhannes Ingimarsson,
Sólrún Hlöðversdóttir, Guðný Ein-
arsdóttir og Hafliði Kristinsson,
sem jafnframt stjórnar kórnum.
Allur söngur og hluti undirleiks
var hljóðritaður í Stúdíó Stemmu
hf. en hluti undirleiks var hljóðrit-
aður í Bandaríkjunum.
Ljósbrot mun kynna plötuna á
tónleikum víða um land.
(Fréttatilkynning)