Morgunblaðið - 22.09.1989, Síða 24
ox.o' jTtteKirma ss í-iiffé jhttquom
MORGUNBLAÐIÐ -FOSTUDAGUR 22. -SEPTEMBER 1989- -
Lífeyrissjóður trésmiða:
Óskar eftir að Lífeyrissjóðurinn
Sameining taki við rekstrinum
LÍFEYRISSJÓÐUR Trésmiða hcfur sent Lífeyrissjóðnum Sameiningu
erindi þar sem óskað er eftir því að Lífeyrissjóðurinn Sameining taki
að sér rekstur sjóðsins. Margrét Einarsdóttir umsjónarmaður Lífeyris-
sjóðs trésmiða sagði að erindinu hefði verið vel tekið innan stjórnar
Sameiningar og átti hún fastlega von á að Lífeyrissjóður Sameiningar
tæki að sér reksturinn.
Margrét sagði skýringuna á beiðni
Lífeyrissjóðs trésmiða fyrst og
fremst þá að sjóðurinn væri lítil ein-
ing og hlutfallslega dýrari í rekstri
en stórir sjóðir. Á síðasta ári var
rekstrarkostnaður sjóðsins um 17%
og árið þar á undan 22%. Margrét
sagði að það væri of hátt hlutfall og
stefnt væri að því að koma rekstri
sjóðsins niður í um 6-7%.
„Við náum því ekki á meðan sjóð-
urinn er svona lítill og við erum ein.
En með því að sameinast öðrum sjóð
í rekstri þá námum við rekstrar-
i,_" jaafó íd —
kostnaði verulega niður og að því
er vitanlega stefnt,“ sagði Margrét.
„Við lítum einnig á þessa ósk okk-
ar sem fyrsta skref í þá átt að við
eignumst einn öflugan lífeyrissjóð
fyrir allt Norðurland. Þá erum við
að tala um stóra einingu sem hag-
kvæm yrði í rekstri, en ekki síst er
það ávinningur að Norðlendingar
myndu stjórna því hvar peningarnir
yrðu ávaxtaðir. Hins vegar megum
við ekki gleyma því hver er tilgang-
ur lífeyrissjóða, þ.e. að greiða líf-
eyri, en sú umræða finnst mér hafa
gleymst að undanförnu," sagði
Margrét.
Morgunblaðið/Rúnar Þór.
Baldvin Björnsson, Jóhannes Páll Héðinsson og Bogi Pétursson við
smíðarnar.
Drensjaheimilið Astjörn:
Svefiisalir panelklæddir og kojur smíðaðar
Laugardapr:
Dansleikur
Hljómsveit
Ingimars Eydal
leikur íyrir dansi.
Hótel KEA
ÁSTIRNINGAR hafa unnið að gagngerum endurbótum á svefnsöl-
um heimilisins, en hafist var handa um viðgerðir og endurbætur
strax að loknu starfí í ágúst. Á Ástjörn í Kelduhverfí rekur Sjónar-
hæðarsöfiiuðurinn á Akureyri drengjaheimili og gekk starfið í
sumar sérlega vel, en aldrei áður hefúr verið önnur eins ásókn í
að komast þar að og í sumar. Á stundum voru allt upp í 90 drengír
á heimilinu, en boðið er upp á sumardvöl i tvær, Qórar og átta
vikur og nokkrir drengjanna dvöldu í tíu vikur að Ástjörn í sum-
ar. Ymislegt er í boði fyrir drengina, en vinsælast þykir að sigla.
I sumar voru keyptir fimm hjólabátar, en að auki eru til reiðu
margir ára- og seglbátar.
með vinnu og fjárframlög," sagði
Bogi.
„En það er líka gleðilegt hversu
mikið sjálfboðaliðastarf Islending-
ar hafa innt af hendi, margir
hveijir. Við sem vinnum að þessu
og berum ábyrgð á því erum að
sjálfsögðu afar þakklát fyrir allt
sem gert hefur verið fyrir okkur,
en mest af öllu þökkum við Guði,
sem hefur verið svo góður við
okkur og blessað starfið ríkulega
í þau 43 ár sem við höfum starf-
að,“ sagði Bogi.
. Bogi Pétursson forstöðumaður
Ástjarnar sagði unnið væri að
gagngerum endurbótum á svefn-
skálunum tveimur, m.a. er sett
ný einangrun og panelklæðning á
veggi. Þegar er búið að klæða
stærri salinn. Þá verða smíðaðar
nýjar kojur í báða salina, því þær
sem fyrir voru þóttu gamlar og
lúnar; þær elstu voru jafngamlar
starfinu, eða 43 ára.
„Þessar endurbætur kosta
stórfé, en við Ástirningar erum
bjartsýnir og höfum trú að takast
muni að koma þessu í höfn,“
sagði Bogi. „Við erum þakklátir
öllum þeim sem hafa hjálpað okk-
ur, en í sumar hafa unnið hjá
okkur um 40 Færeyingar í sjálf-
boðaliðastarfi og um 30 íslending-
ar.“ Samskiptin við Færeyinga
hófust eftir að Jogvan Purkhus
fluttist frá Færeyjum til íslands
og hóf að starfa þar, hann kynnti
itarfið bræðrasöfnuðum þar í
ndi, en Bogi sagði að mikið og
blómlegt kristilegt starf væri í
Færeyjum. „Færeyingar hafa með
mikilli gleði hjálpað okkur bæði
st;
la:
Lyfjakostnaður við hjúkrunardeild:
Unnt að spara verulega ef
lyf yrðu keypt í heildsölu
UNNT er að spara allt að hálfri milljón króna á ári í lyfjakostnað
á rekstri hjúkrunardeildar Hlíðar ef lyf yrðu keypt í heildsölu frá
lyfjafyrirtækjum í stað þess að kaupa þau af apótekum. Ráða þarf
lyfjafræðing að þeim stofnunum sem kaupa lyf beint frá heildsölufyr-
irtækjum. Lyíjakostiiaður er verulega stór liður í rekstri hjúkruna-
rdeilda og voru upplýsingar þar um lagðar fram í öldfunarráði lyrir
skömmu.
TÓNLISTARSKÓLINN Á AKUREYRI
Hafnarstræti 81, simi 21460 - 21788.
Tónlistarskólinn verður settur í Akureyrarkirkju
laugardaginn 23. september kl. 17.00.
2 lítrar Coca Cola kr. 99,-
IV2 líter kr. 91,-
Verslunin Þorpið,
Móasíðu 1.
Bjarni Kristjánsson forstöðumaður
öldrunarþjónustu Akureyrarbæjar
sagði að lyf væru keypt af apótek-
um með ákveðnum afslætti, en
heimild væri til þess í lögum að
ráða lyfjafræðing til starfa til þeirra
heilbrigðisstofnana sem fengið hafa
starfsleyfi heilbrigðisráðherra sem
sjúkrastofnanir. Þær stofnanir
hefðu þá heimild til að kaupa lyf í
heildsölu.
Gert er ráð fyrir að lyljakostnað-
ur geti lækkað verulega frá þvi sem
nú er, ef lyf væru öll keypt á heild-
söluverði. Öldrunarráð hefur sótt
um heimild til að ráða lyfjafræðing
svo hægt verði að kaupa lyf á heild-
söluverði. „Við teljum að þrátt fyrir
verulegan afslátt á lyfjum getum
við sparað nokkur hundruð þúsund
króna eða allt upp í hálfa milljón
króna,“ sagði Bjarni.
Bæjarráð hefur frestaði af-
greiðslu málsins.
Athugasemd
Haust/vetur ’S9
eftir Leó Ingólfsson,
rafeinda virkja
Ekki nenni ég að eltast við allan
vaðalinn úr Ragnhildi Guðmunds-
dóttur, formanni Félags íslenskra
símamanna, eða ruglið um umslög,
eyðublöð og frímerki, sem hún virð-
ist hafa fengið á heilann, en snerta
auðvitað ekkert kjarna málsins.
Hins vegar er það alltaf til leiðinda
þegar farið er rangt með einfaldar
tölur og mikilvægar staðreyndir
dregnar undan. Ég tel því rétt að
eftirfarandi komi fram.
Fyrir það fyrsta eru símsmiðirn-
ir, sem gengið hafa í Rafiðnaðar-
samband íslands, ekki 80 talsins
heldur 120.
í öðru lagi er það alls ekki upp-
haf þessa 'máls, að símsmiðirnir
fengu bréf á liðnu sumri eins og
Ragnhildur Guðmundsdóttir vill
láta fólk halda þótt hún sjálf viti
miklu betur. Það rétt er að í júlí í
fyrra höfðu nær fjórir tugir
símsmiða skrifað Pósti og síma bréf
og óskað flutnings yfir á ráningar-
kjör skv. kjarasamningi Rafiðnað-
arsambands íslands. Þessi bréf
urðu svo rúmlega hundrað áður en
lauk. 1 framhaldi af þessu var um
miðjan ágúst í fyrra haldinn fjöl-
mennur fundur símsmiða í FÍS þar
sem kosin var fimm manna nefnd
til þess að vinna að framgangi
málsins. Um þennan fund var
Ragnhildi Guðmundsdóttur full-
kunnugt þótt hún vilji bersýnilega
helst gleyma honum núna.
Að endingu er rétt að rifja það
upp, að þegar rafeindavirkjar hjá
ríkinu stóðu í sínu striði hér um
árið, þá mættu þeir fullum skiln-
ingi, velvilja og jafnvel stuðningi
hjá starfsmannafélögum útvarps og
sjónvarps. Félag íslenskra síma-
manna með Ragnhildi Guðmunds-
dóttur í broddi fylkingar beitti sér
hins vegar af alefli gegn yfirlýstum
vilja og hagsmunum rafeindavirkja
og gekk þar í lið með samninga-
nefnd ríkisins og forsvarsmönnum
Pósts og síma. Þann leik á greini-
lega að endurtaka núna við
símsmiðina.
Virðandi fyrir sér Ragnhildi Guð-
mundsdóttur uppstillta öðru sinni
þétt við hlið samninganefndar ríkis-
ins og forráðamanna Pósts og síma,
er ekki að furða þótt símsmiðir og
aðrir rafiðnaðarmenn spyiji í for-
undran: „Hverra hagsmuna er kon-
an að gæta???“